Morgunblaðið - 09.09.2016, Page 4

Morgunblaðið - 09.09.2016, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2016 PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS 10 . SEPTEMBER BRYNDÍS Haral ÉG ÓSKA EFTIR ÞÍNUM STUÐNINGI Í 4. SÆTIÐ 4 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Sjómannasamband Íslands, SSÍ, hefur beint því til aðildarfélaga sinna að hefja undirbúning að verk- falli á fiskiskipaflotanum. Verkalýðs- félag Vestfirð- inga, VM-Félag vélstjóra og málmtækni- manna og Sjó- mannafélag Ís- lands, SÍ, munu einnig fara í at- kvæðagreiðslu um verkfall sinna félagsmanna. Í fyrradag slitnaði upp úr viðræðum Sjómannasam- bandsins og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, en um tvö þúsund fé- lagar í félögum innan SSÍ eru á þeim hluta flotans sem samningar við SFS taka til. Miðað er við að atkvæðagreiðsla um verkfallið hefjist 15. september innan aðildarfélaga SSÍ og á henni að ljúka í síðasta lagi kl. 12 á hádegi 17. október. Er þá miðað við að allir sjómenn hafi tök á að greiða atkvæði í landi. Verði verkfall samþykkt hefst það kl. 23 þann 10. nóvember. Atkvæði verða greidd í hverju félagi fyrir sig, en Hólmgeir Jónsson, framkvæmdastjóri SSÍ, segist ekki eiga von á öðru en að menn verði samstiga í aðgerðum. 24. júní í sumar var undirritaður kjarasamningur SSÍ og SFS, en hann var felldur í atkvæðagreiðslu sem lauk 10. ágúst. Undanfarið hef- ur formlega og óformlega verið reynt að finna samningsflöt í deilu SSÍ og SFS, en án árangurs. Hólm- geir segir að á miðvikudag hafi orðið ljóst að deiluaðilar næðu ekki sam- an, en í gær hafði verið boðaður fundur deiluaðila hjá sáttasemjara. Hann vill ekki nefna einstök atriði sem helst var tekist á um. „Við töld- um okkur ekki ná því fram í þessum viðræðum sem dygði til að ná samn- ingi í gegn,“ segir Hólmgeir. Verkfall 2001 Síðasti kjarasamningur Sjó- mannasambandsins við SFS, áður LÍÚ, var gerður 2008 og rann hann út í ársbyrjun 2011. Sjómenn hafa því verið án samnings í hátt í sex ár, en kaupliðir voru uppfærðir fram á árið 2014. Sjómenn fóru síðast í verkfall 2001 og stóð það í sex vikur. Því lauk með því að voru lög sett á verkfallið og deilan sett í gerðardóm. Félög sjómanna undir- búa verkfall á flotanum  Slitnaði upp úr viðræðum við SFS á miðvikudag Hólmgeir Jónsson Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Sveitarstjórn Rangárþings eystra samþykkti í gær samning við verktaka um lagningu ljósleiðara um Eyjafjallasveit. Ákveðið hefur verið að semja við Mílu um rekst- ur strengsins en frágangur samn- inga um það bíður þar sem Voda- fone hefur kært mat á tilboðum til kærunefndar útboðsmála. Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitar- stjóri Rangárþings eystra, segir að unnið hafi verið að fyrsta áfanga ljósleiðaravæðingar dreif- býlis í sveitarfélaginu frá því í vor, þegar sótt var um styrk úr fjar- skiptasjóði til að leggja ljósleiðara til sveitabæja undir Eyjafjöllum. Fengust tæpar 27 milljónir í styrk og sveitarfélagið gerði ráð fyrir 10 milljóna króna framlagi á fjár- hagsáætlun ársins. Samið hefur verið við Heflun um að plægja ljósleiðarann í jörð fyrir 28 milljónir kr. Var samning- urinn samþykktur samhljóða í sveitarstjórn í gær. Verktakinn á að ljúka við að plægja strenginn niður fyrir lok október og ljúka verkinu að fullu fyrir áramót. Míla bauð hærri styrk Tvö fjarskiptafyrirtæki buðu í rekstur ljósleiðarans, Míla og Fjarskipti (Vodafone). Míla bauðst til að leggja liðlega 343 þúsund krónur til hverrar tengingar og Vodafone 305 þúsund krónur. Verkefnishópur taldi að bæði fyr- irtækin hefðu reynslu af hlið- stæðum verkefnum og fjárhags- legan styrk til að annast verkefnið og lausnir beggja uppfylltu kröfur í útboðsgögnum. Hins vegar væri Míla tilbúin til að leggja hærri fjárhæð til tenginga og tilboð hennar væri þar með hagstæðara. Vodafone taldi ekki rétt metið og kærði málið til kærunefndar útboðsmála. Fyrirtækið gagnrýnir meðal annars fyrirspurn fulltrúa sveitarfélagsins til beggja aðila um það hvort styrkur þeirra myndi einnig ná til annarra not- enda en þeirra sem ættu rétt á styrk úr fjarskiptasjóði. Guðmundur Gunnarsson, ráð- gjafi sveitarfélagsins við ljósleið- aravæðinguna, segir að við mat á tilboðunum hafi verið gengið út frá forsendum útboðsins, ekki svörum við fyrirspurninni sem kom eftir á. Haldið verður áfram Styrkur fjarskiptastjóðs miðast eingöngu við lögbýli. Þau eru 77 á þessari ljósleiðaraleið. Þar fyrir utan eru mannvirki í þéttbýlinu í Skógum. Guðmundur segir að við hönnun kerfisins hafi verið gert ráð fyrir að unnt yrði að veita þjónustu við frístundahús. Ef allir vildu tengingu gætu notendur orð- ið allt að 150. Ísólfur Gylfi reiknar með að á næsta ári verði sótt um styrk úr fjarskiptasjóði til að tengja fleiri sveitir við ljósleiðara. Þar er um að ræða Fljótshlíð, Landeyjar og dreifbýli í nágrenni Hvolsvallar. Hann tekur fram að sveitarstjórn líti svo á að lagning ljósleiðara sé ekki verkefni sveitarfélaga í grunninn, heldur ríkisins. „En við viljum gera allt sem við getum til að ýta því áfram,“ segir hann. Vodafone kærir mat á tilboðum í ljósleiðararekstur  Lagning ljósleiðara undir Eyjafjöll- um að hefjast  Allt að 150 tengingar Morgunblaðið/Ómar Samband Víða á landinu er unnið við lagningu ljósleiðara. Lítið Skaftárhlaup náði niður í byggð í gær og fylgdi því mikil brennisteinslykt. Talið er að hlaupið komi úr Vestari Skaft- árkatli. Sjónarvottar greindu frá því að áin væri vatnsmikil og dökk, að sögn Veðurstofu Íslands. Skammt er frá síðasta hlaupi í júní 2015 og ekki talið að hætta sé á ferðum. Rennsli Skaftár við Sveinstind fór að aukast klukkan 16.00 í fyrradag. Síðdegis í gær var það komið í rúmlega 290 m3/s. Vatns- hæð árinnar hækkaði úr um 220 cm síðdegis í fyrradag í um 330 cm síðdegis í gær. Brennisteinsvetni berst með hlaupvatninu undan jökli. Styrkur þess er þá svo mikill að það getur skaðað slímhúð í augum og önd- unarvegi, að því er segir á vef Veðurstofunnar. „Ferðafólki er því eindregið ráðlagt að halda sig fjarri jöðrum Skaftárjökuls og Tungnaárjökuls. Þegar styrkur brennisteinsvetnisins fer yfir hættumörk er fólk hætt að finna lyktina. Sprungur munu myndast mjög hratt í kringum ketilinn, því ætti ferðafólk á Vatnajökli að halda sig fjarri kötlunum.“ gudni@mbl.is Kirkjubæjarklaustur Skaftárkatlar eystrivestari Síðujökull Skaftárjökull Tungnárjökull Skeiðarárjökull Öræfajökull Hvammur Skaftárdalur Svínadalur Brú yfir Eldvatn Hólaskjól Farvegur Skaftár í flóðum Heimild: Veðurstofa Íslands Skaftárhlaup Lítið Skaftárhlaup hafið  Hlaupið líklega úr V-Skaftárkatli sem hljóp síðast 2015 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Kjarasamningurinn sem Félag grunnskólakennara felldi á dögunum gekk lengra en rammasamkomulagið sem gildir á almennum vinnumark- aði, að mati Gylfa Arnbjörnssonar, forseta Alþýðusambands Íslands (ASÍ). Rammasamkomulagið er hluti af samningi ASÍ og BSRB við SA, ríki og sveitarfélög. Gylfi sagði að grunn- skólakennarar væru ekki aðilar að rammsamkomulaginu en viðsemj- endur þeirra, sveitarfélögin, væru það. Gylfi sagði það vera alveg ljóst að samningur ASÍ við SA gilti sem for- senduákvæði samninga starfsmanna ríkis og sveitarfélaga. Samkomulag væri um launastefnu sem miðaðist við að kostnaðarhækkun vegna kjara- samninga skyldi ekki vera meiri en sem samsvaraði vísitölugildinu 132 í árslok 2018, miðað við gildið 100 í nóvember 2013, að viðbættu launa- skriði. Eftir væri að mæla launaskrið- ið og yrði væntanlega byrjað á því í október eða nóvember næstkomandi. Gylfi sagði að kjarasamningar grunnskólakennara þyrftu ekki endi- lega að raska SALEK-samkomulag- inu um framtíðarskipan kjaramála, en þeir gætu mögulega raskað gild- andi kjarasamningi, gengju þeir lengra en rammasamkomulagið. Sveitarfélögin væru bundin af því samkomulagi um að eitt skyldi yfir alla ganga. Hann kvaðst telja að Kjararáð hefði einnig gengið lengra en rammasamkomulagið kvæði á um. „Þetta er eitthvað sem við þurfum að fara í gegnum í janúar næstkom- andi,“ sagði Gylfi. Möguleg áhrif á samninga  Kjarasamningur sem grunnskólakennarar felldu gekk lengra en rammasamkomulag á almennum vinnumarkaði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.