Morgunblaðið - 10.09.2016, Blaðsíða 31
31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2016
Staðfesta Þegar Justin Bieber er annars vegar skipta rok og rigning engu máli. Þó að regnhlífin gefi sig má alltaf nota símann sem vörn og halda má Bieber að sér með miðanum einum.
Ófeigur
Um liðna helgi
dvaldi sá sem þetta
ritar á Djúpavogi í
mikilli veðurblíðu, sól
og logni þannig að
fjöll, byggð og bátar
spegluðust í hafflet-
inum og norðurljós
glöddu augu vökulla að
næturlagi. Tilefni við-
komu var aðalfundur
Skógræktarfélags Ís-
lands sem valið hafði staðinn fyrir
aðalfund sinn þetta árið og hitti á
öfundsverðar aðstæður. Í hálfa öld
hefi ég heimsótt Djúpavog árlega
og um skeið oft á ári vegna ýmissa
starfa, m.a. tengdum náttúruvernd
og stjórnmálum. Á þessum tíma
hefur byggðarlagið gengið í gegn-
um erfið skeið eins og flest sjáv-
arþorp hérlendis en fyrir atorku
íbúanna náð að vinna sig upp úr
öldudal og stendur nú um margt
betur en áður í sögu sinni. Hún er
raunar óvenjulöng og margbrotin,
því að hér hefur verið kaupstaður í
meira en 400 ár. Sá grunnur sem nú
hefur verið lagður lofar góðu og
skiptir þar miklu vandað landrænt
skipulag þar sem haldið er til haga
ríkulegum kostum náttúru og um-
hverfis. Teiknistofa Guðrúnar Jóns-
dóttur arkitekts hefur um áratugi
annast gerð aðalskipulags svæðisins
eins og nánar er vikið að hér á eftir.
Stórt en fámennt sveitarfélag
Upp úr miðri síðustu öld var erf-
itt að sjá fasta drætti í skipulagi
byggðar á Djúpavogi, sem fram að
því hafði stækkað og þróast óháð
lærðum viðmiðunum og reglustriku
frá því Hamborgarkaupmenn komu
sér upp verslunaraðstöðu við voginn
með konungsleyfi. Um aldamótin
1900 hafði íbúatalan náð vel yfir 100
manns í dreifðri byggð þar sem
hvert hús stóð undir sínum kletti,
flest í landi jarðarinnar Borg-
argarðs. Djúpivogur var í Búlands-
hreppi fram til ársins 1992 að hann
sameinaðist Berunes- og Geithellna-
hreppi og heitir sveitarfélagið nú
Djúpavogshreppur.
Þar töldust vera sam-
tals 523 íbúar árið
2000 en eru nú 456
talsins og hefur fækk-
unin fyrst og fremst
bitnað á dreifbýlinu.
Heildarstærð sveitar-
félagsins er 1.133 km2
eða vel yfir 1% af Ís-
landi og er drjúgur
hluti þess fjalllendi. Til
Djúpavogs og ná-
grennis á þekkt fólk
ættir að rekja, fyrir
1900 gerði ljósmyndarinn Nicoline
Weyvadt á Teigarhorni garðinn
frægan, á öndverðri öldinni sem leið
ólust þar upp bræðurnir Eysteinn
og Jakob Jónssynir, listamennirnir
Finnur og Ríkarður Jónssynir frá
Strýtu og bræðurnir Birgir og
Kristján Thorlacíus frá Búlands-
nesi, að ógleymdum Stefáni Jóns-
syni fréttamanni. Bók hans Að
breyta fjalli mætti vera skyldulesn-
ing þeirra sem heimsækja staðinn.
Drýgstur við að halda til haga sögu
byggðarlagsins hefur verið Ingimar
Sveinsson fv. skólastjóri, en frá
fyrri tíð er sérstakur fengur að
sóknalýsingum Jóns Bergssonar
prests á Hofi í Álftafirði, skráðum
1840.
Framlag Guðrúnar
Jónsdóttur arkitekts
Fyrsta eiginlegt aðalskipulag
Djúpavogs og Búlandshrepps 1989-
2009 var staðfest af ráðherra árið
1990 og hafði þá verið í undirbún-
ingi um nokkurt skeið. Höfundur
þess var Guðrún Jónsdóttir arkitekt
sem nú er nýlátin. Ég tel mér til
tekna að hafa mælt með Guðrúnu til
verksins við sveitarstjóra eftir að
hafa fylgst með starfi hennar um
skeið og forystu fyrir Torfusamtök-
unum á áttunda áratugnum. Efn-
istök hennar og samstarf við heima-
menn allt frá upphafi voru með
ágætum og um margt nýstárleg.
Þannig tók fyrsta skipulagið til alls
Búlandshrepps og sömuleiðis að-
alskipulag Djúpavogshrepps 2008-
2020. Þá var kominn til aðstoðar við
verkið sonur hennar Páll Jakob
Líndal og að frágangi komu jafn-
framt Andrés Skúlason oddviti og
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir arki-
tekt. Í greinargerð með skipulaginu
2009 segir m.a.: „Ekkert kauptún á
Íslandi getur státað af svipuðu um-
hverfi og Djúpivogur. … Á þessum
stað dugir því ekki annað en sýna
fyllstu nærgætni í sambandi við
mótun hins byggða umhverfis.“ Og
sem leiðarljós við mótun núverandi
skipulags var að „sérstaklega (sé)
litið á hina sérstöku náttúru svæð-
isins og menningarminjar sem auð-
lind og/eða uppsprettu sem beri að
horfa til í sambandi við skilgrein-
ingu á landnotkun innan sveitarfé-
lagsins. … Stefnt er að því að
dýpka þekkingu manna á svæðinu,
einkum hvað snertir náttúrufar og
sögu.“
Ekki orðin tóm
Ferðamaður sem staldrar við á
Djúpavogi kemst fljótt að því að
ekki hefur verið látið sitja við orðin
tóm. Umgengni í plássinu er til fyr-
irmyndar og þjónusta prýðileg við
ferðamenn, hvort sem er á Hótel
Framtíð, í Löngubúð eða á tjald-
svæði. Höfnin skapar líf með fjölda
smábáta og ásýnd sveitabæja er
víðast hvar til fyrirmyndar. Vissu-
lega býr Djúpivogur betur en flest
önnur þorp að gömlum byggingum,
sumum frá um 1800 og ráðhúsi sem
reist var árið 1900. Teigarhorn er
með markvissri stefnu að verða það
sem menn dreymdi um með friðlýs-
ingu staðarins 1975. Í hreppnum
eru fjórar friðaðar timburkirkjur að
Papeyjarkirkju meðtalinni og
Djúpavogskirkja byggð 1996 eftir
teikningu Björns Kristleifssonar er
staðarprýði. Aðild hreppsins að Cit-
taslow-hreyfingunni undirstrikar
virðinguna fyrir staðarkostum.
Ekkert af þessu hefur gerst fyr-
irhafnarlaust og engum dylst að
þáttur núverandi oddvita, Andrésar
Skúlasonar, og íbúanna í heild er
stór í því sem fyrir augu ber á þess-
um fagra stað.
Eftir Hjörleif
Guttormsson » „Á þessum stað dug-
ir því ekki annað en
sýna fyllstu nærgætni í
sambandi við mótun
hins byggða umhverfis.“
(Guðrún Jónsdóttir
arkitekt).
Hjörleifur Guttormsson
Höfundur er náttúrufræðingur.l
Djúpivogur sem dæmi um farsælt og framsýnt skipulag
Ljósmynd/HG
Búlandstindur og Djúpivogur Gömlu verslunarhúsin við voginn fyrir miðju.
Ljósmynd/HG
Frá Teigarhorni Weyvadthús byggt um 1880. Nýir göngustígar niður að sjó.
Ljósmynd/HG
Atvinnulíf Fiskvinnslufyrirtækið Búlandstindur.