Morgunblaðið - 10.09.2016, Blaðsíða 55
MENNING 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2016
Færeysku listamennirnir Bárður
Jákupsson og Zacharias Heinesen
opna sýningar á nýjum málverkum í
Gallerí Fold í dag kl. 15.
Bárður Jákupsson er fæddur í
Þórshöfn í Færeyjum árið 1943.
„Hann lauk námi við Akademiuna í
Kaupmannahöfn 1972. Bárður hefur
unnið þrekvirki við kynningu á fær-
eyskri myndlist. Hann átti stóran
þátt í stofnun Listasafns Færeyja
1989, en áður stjórnaði hann starf-
semi Listaskálans sem þá var eini
sýningarstaðurinn í Færeyjum.
Hann ritstýrði blaðinu Mondul í 16
ár, en það er gefið út af færeyska
þjóðminjasafninu og skrifaði fjölda
greina um söguleg efni.
Bárður hefur skrifað mikið um
færeyska myndlist og meðal annars
gefið út færeyska myndlistarsögu.
Hann hefur skrifað bækur um fær-
eyska myndlistarmenn og verið í rit-
stjórn um danska listasögu. Þá gerði
hann 11 sjónvarpsþætti um færeyska
myndlist.
En fyrst og fremst er Bárður Ják-
upsson listmálari. Hann er talinn í
fremstu röð færeyskra myndlist-
armanna og hefur sýnt verk sín víðs-
vegar. Verk hans prýða opinber söfn
og stofnanir í mörgum löndum. Hann
hefur meðal annars teiknað 25 raðir
af færeyskum frímerkjum, mynd-
skreytt bækur og blöð, gert færeysk
spil svo eitthvað sé nefnt. Áhrifa hans
gætir víða í færeyskri myndlist,“ seg-
ir í tilkynningu frá Gallerí Fold.
Zacharias Heinesen er fæddur í
Færeyjum árið 1936, en hann er son-
ur rithöfundarins Williams Heine-
sen. „Hann lærði list sína í kon-
unglega Listaháskólanum í
Kaupmannahöfn eftir að hafa numið
við Myndlista- og handíðaskóla Ísl-
ans árið 1958. Hann hefur haldið
fjölda sýninga, bæði einn og með öðr-
um og eru mörg verk eftir hann í eigu
erlendra og íslenskra safna. Zach-
arias hlaut Henry Heerup verðlaunin
árið 1986.
Hann er þekktastur fyrir olíu- og
vatnslitamálverk sín en hann hefur
einnig unnið að bókaskreytingum,
tréristum og klippimyndum. Þá hafa
komið út frímerki í Færeyjum með
myndum hans.“
Sýningarnar standa til 25. sept-
ember.
Tvær sýningar opnaðar í Gallerí Fold
Málsmetandi Færeysku listamennirnir Bárður Jákupsson og Zacharias
Heinesen eru taldir í fremstu röð færeyskra myndlistarmanna.
Morgunblaðið/Golli
Ranglega var sagt í blaðinu í gær að
sýningin T E X T I hefði verið opnuð
í Listasafni Íslands í vikunni. Hið
rétta er að hún verður opnuð
fimmtudaginn 15. september kl. 20.
Eru hlutaðeigendur beðnir velvirð-
ingar á þessum leiðu mistökum. Á
sýningunni mun gestum gefast færi
á að sjá valin textaverk úr safni Pét-
urs Arasonar og Rögnu Róberts-
dóttur.
Viku of snemma
Texti Verk eftir Lawrence Weiner.
LEIÐRÉTT
AF TÓNLIST
Auður Albertsdóttir
audura@mbl.is
Glampinn í augum aðdáendaJustin Bieber í Kórnum áfimmtudagskvöldið ágerð-
ist eftir því sem klukkan nálgaðist
20:30 og síðasta hálftímann áður
en goðið steig á svið magnaðist
spennan með hverri mínútunni.
Aðdáendum sínum til mikillar
gleði lét Bieber ekki bíða eftir sér
og á slaginu hálfníu voru ljósin
slökkt og skemmtunin hófst.
Það er augljóst að Bieber er
vanur því að koma fram. Hvert
einasta skref á sviðinu stóra var
æft í þaula og voru hvergi hnökrar
á. Tónleikarnir stóðu yfir í um
klukkustund og 45 mínútur og var
stöðug keyrsla allan tímann. Á
nokkrum stöðum fór söngvarinn af
sviðinu og á meðan skemmtu
magnaðir dansarar áhorfendum.
Bieber mátti þó aldrei gleymast og
á meðan mátti sjá hann á risastór-
um skjánum, leikandi sér á hjóla-
bretti og á öðru dansandi um-
kringdan túbusjónvörpum. Hver
merkingin er var óljóst en fagn-
aðarhróp áheyrenda í hvert skipti
sem risastór Bieber sást á skjánum
gáfu í skyn að það skipti svo sem
engu máli.
Naut sín best með gítarnum
Lög af nýjustu plötu Biebers,
Purpose, voru í aðalhlutverki á
tónleikunum, enda er tónleika-
ferðalagið kennt við hana. Sú sló í
gegn og aðeins sex vikum eftir út-
gáfu hennar í nóvember sl. hafði
hún selst í einni milljón eintaka.
Öll þekktustu lög plötunnar fengu
að hljóma í Kórnum eins og „What
Do You Mean?“, „Where Are Ü
Now“, „Sorry“ og „I‘ll Show You“
þar sem hljómsveitin og dansarar
ásamt magnaðri ljósasýningu
fengu að njóta sín. Um miðbik tón-
leikanna var slökkt á öllu og Bie-
ber tók tvö lög, „Cold Water“ og
„Love Yourself“ í órafmagnaðri
útgáfu einn á sviðinu. Það var
fyrst þá sem tónlistarhæfileikar
Biebers sáust almennilega. Það má
nefnilega ekki gleyma því að Bie-
ber er á vissan hátt undrabarn í
tónlist og var hann uppgötvaður á
Youtube árið 2007, aðeins þrettán
ára gamall. Það var ekki vegna
danshæfileika eða almenns töff-
araskapar, heldur bara með því að
syngja og spila á gítar. Það er því
hægt að segja að Bieber hafi leitað
til rótanna með þessum órafmagn-
aða hluta kvöldsins og virtist hann
njóta sín þá nokkuð vel, einn á
sviðinu með kassagítar.
Þó er vert að nefna það að í
hraðari lögum kvöldsins, þar sem
Bieber dansaði nánast allan tím-
ann, virtist ekki vera mikið stress
hvort sem hann var að syngja í
hljóðnemann eða ekki. Jafnvel
virtist vera sem ekki væri einu
sinni kveikt á honum á ákveðnum
stöðum, þrátt fyrir að rödd söngv-
arans hljómaði vel. Það er nátt-
úrulega ekkert nýtt að söngvarar
nýti sér svokallað playback á tón-
leikum sem þessum og ekki ætlar
undirrituð að dæma Bieber út af
notkun þess. Það hefði nú auðvitað
verið skemmtilegt að heyra enn
meira í honum. En þar sem hann
beitti röddinni almennilega sá
maður að þarna var hæfileikabúnt
á ferð.
Þakkaði guði og
minnti á söluvarning
Bieber var lítið að spjalla við
áhorfendur en hann fann tíma til
að þakka feðgunum guði og Jesú
og sagði hinn fyrrnefnda „gefa og
gefa“. Reyndar minnti hann fólk
góðlátlega á að hægt væri að
kaupa ýmsan varning merktan
honum á staðnum og bað þá sem
voru búnir að versla að veifa varn-
ingnum. Það kæmi mér ekki á
óvart að ófá grunnskólabörnin hafi
verið merkt Bieber í bak og fyrir
þegar þau mættu í skólann næsta
dag.
Heilt á litið skemmti undir-
rituð sér mjög vel á tónleikum
stórstjörnunnar og var hún ekki
ein um það. Það að sjá gleðina sem
hann skapaði meðal áhorfenda
sinna, sem margir hverjir voru ef-
laust á sínum fyrstu stórtónleikum,
var ómetanlegt og munu þeir ef-
laust standa upp úr sem hápunkt-
ur ársins hjá mörgum.
Undrabarnið sveik ekki sína
Morgunblaðið/Ófeigur Lýðsson
» Það hefði nú auð-vitað verið skemmti-
legt að heyra enn meira
í honum. En þar sem
hann beitti röddinni al-
mennilega sá maður að
þarna var hæfileikabúnt
á ferð.
Stórstjarna Bieber er vanur því
að koma fram. Hvert einasta skref
á sviðinu stóra var æft í þaula og
voru hvergi hnökrar á.
EIÐURINN 5, 5:45, 8, 10:20
KUBO 2D ÍSL.TAL 2, 3:50
KUBO 3D ÍSL.TAL 6
WAR DOGS 8, 10:25
HELL OR HIGH WATER 8
LEYNILÍF GÆLUDÝRA 2D ÍSL.TAL 1:45, 3:45
NÍU LÍF 1:50
JASON BOURNE 10:10
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
TILBOÐ KL 2
—með morgunkaffinu