Morgunblaðið - 10.09.2016, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 10.09.2016, Blaðsíða 54
54 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2016 Seasons to Perform: Alwa- ys, Always, Always: Look for the Answer, 2016 nefn- ist sýning með nýjum verk- um eftir Maju Bekan og Gunndís Ýr Finnboga- dóttur sem opnuð verður í Nýlistasafninu að Völvufelli 13-21 í Reykjavík í dag, laugardag, kl. 15. „Í gegnum verkin spyrja myndlistarmennirnir sig um eðli arkífsins (sem og fleiri arkífa), skoða mögu- leika heimilda um listaverk sem efniviðs sem áfram- haldandi rannsókn og við- bragð listamannanna við hugmyndum um tíma, við- veru listamanna í verkum og á sýningum, um endurvinnslu hugmynda, höfundarrétt og framleiðni í myndlist,“ segir í tilkynningu frá safninu. Samvinna listakvennanna hefur þróast í nokkur ár og hófst með verkefninu „Hotel New York“ í Rotterdam árið 2006. „Samvinna Gunndísar og Maju byggist aðallega á því að eyða tíma saman, venjulega án þess að deila sama rými. Með því að vinna náið saman á þennan hátt skoða listamennirnir og spyrja spurninga um hvernig samvinna getur þróast, og/sem er oft þvinguð í tíma og rými. Verk þeirra eiga það til að vera mjög persónuleg og skapa ein- hvers konar hugarflug sem oft fer fram í gegnum tölvupóst, löng Skype- samtöl, verkefni fyrir hvor aðra að leysa, (ímyndaðar) sameiginlegar kaffipásur o.fl. Oft eru verk þeirra svar /viðbragð við (sýningar)boði og skoða hugmyndir um (skort á) tíma og eignarhaldi ((mis)notkun á frí- og persónulegum) tíma.“ Skoða eðli arkífa Samvinna Listakonurnar eyða iðulega tíma saman án þess að deila sama rými. Stórsveit Rekjavíkur heldur tónleika í Kaldalóni Hörpu annað kvöld, sunnudag, kl. 20. Flutt verður tónlist eftir saxófónleikarann og tónskáldið John Coltrane sem, að sögn skipu- leggjenda, er meðal áhrifamestu ein- staklinga djasssögunnar. Coltrane hefði orðið níræður 23. september nk. hefði hann lif- að. Til að minnast þeirra tímamóta flytur Stórsveit Reykjavíkur eitt af frægustu verk- um hans; svítuna „A love Supreme“ frá 1964. „Hér er um að ræða magnað verk innblásið af trúarhita og framsækinni tón- hugsun. Útsetningin var gerð fyrir Lincoln Center Jazz Orchestra af Wynton Marsalis. Auk svítunnar flytur stórsveitin nokkur stök verk Coltranes, meðal annars í útsetn- ingum eftir leiðandi stjörnur stór- sveitaheimsins; Mariu Schneider og Bob Mintzer sem bæði hafa komið fram sem gestir með Stórsveit Reykjavíkur á liðnum árum,“ segir í tilkynningu. Þar kemur fram að stjórnandi tónleikanna verður Snorri Sigurðarson. Tónleikarnir marka upphaf 25. starfsárs Stórsveitar Reykjavíkur, en sveitin hélt sína fyrstu tónleika í febrúarmánuði 1992. Á yfirstandandi starfsári býður Stórsveitin upp á alls sjö tónleika, sem allir fara fram í Hörpu. Um miðjan nóvember fagnar sveitin tíu ára útgáfuafmæli plöt- unnar Í Reykjavíkurborg er geymir tólf vinsæl Reykjavíkurlög í útsetn- ingum Veigars Margeirssonar, sem sjálfur stjórnar. Í byrjun desember verða jólatónleikar með Góa undir stjórn Hauks Gröndals. Nýárstón- leikarnir verða helgaðir gullöld sveiflunnar sem Sigurður Flosason stjórnar. Í febrúar verða afmælistón- leikar starfsársins undir stjórn þýska básúnuleikarans Ansgar Strie- pens. Í apríl er hið árvissa maraþon Stórsveitarinnar haldið í 21. sinn. Á lokatónleikum starfsársins í maí verður ný tónlist í forgrunni. Stórsveitin heiðrar John Coltrane John Coltrane Upphaf Stórsveit Reykjavíkur leikur undir stjórn Snorra Sigurðarsonar. Allt frá því að Baltasar Kor-mákur steig fram meðleikstjórnarfrumraunsína, 101 Reykjavík (2000), hefur hann látið mikið til sín taka í kvikmyndageiranum, jafnt hér heima sem ytra. Frami hans og frægð hefur vaxið ört og nú má segja að hann hafi áunnið sér titil heimsfrægs kvikmyndahöfundar sem státað getur af blómstrandi höf- undarverki. Eiðurinn, nýjasta mynd Baltasars, sækir í stef úr mörgum fyrri verka hans. Flest þeirra eru tregafullar örlagasögur um ein- stæðar persónur í örvæntingarfullu kappi við tímann – hetjur sem leggja allt í sölurnar í baráttu við skelfilega glæpi, fjölskylduharmleiki og baldin náttúruöfl. Líkt og í Eiðnum var hinn fullkomni glæpur útgangs- punktur A Little Trip to Heaven (2005); vá steðjar að fjölskyldu hetj- unnar í Reykjavík-Rotterdam (2008) og endurgerðinni Contraband (2012); feður reyna að bjarga dætr- um sínum í Mýrinni (2006) og Inn- hale (2010); á meðan tortímandi náttúruöfl setja sterkan svip á Djúp- ið (2012) og sjónvarpsþáttaröðina Ófærð (2015). Þessar frásagnir eru auk þess allar afar raunsæjar og hafa flestar sterka skírskotun í vá- leg samfélagsmein samtímans. Eiðurinn er saga fjölskyldu sem fer forgörðum. Hún segir af hjarta- skurðlækninum Finni (Baltasar Kormákur) sem nýtur velgengni í starfi og farsældar í einkalífinu. Á besta aldri virðist Finnur hafa allt til alls þar til hann áttar sig á að að eldri dóttir hans Anna (Hera Hilm- arsdóttir) er komin á glapstigu með líf sitt. Hún er komin í neyslu og orðin ástfangin af Gretti, harðsvír- uðum dópsala (Gísli Örn Garð- arsson). Finnur er staðráðinn í að koma dóttur sinni aftur á réttan kjöl en finnur fljótt til smæðar sinnar og vanmáttar enda við ramman reip að draga. Finnur missir sjónar á öllu því er áður skóp líf hans og einka- lífið tekur að splundrast eftir því sem örvænting hans og þráhyggja magnast. Undir lokin blindast hann af heift og leggur á ráðin um hið full- komna morð. Þar með fótumtreður hann hornstein tilveru sinnar: Eið- inn sem hann sór þegar hann tók að starfa sem læknir um að hann myndi aðeins nota gáfur sínar og getu til að líkna sjúkum en aldrei í því skyni að valda miska eða tjóni. Handrit myndarinnar er runnið undan rifjum leikarans Ólafs Egils- sonar en það byggist að hluta á hans eigin reynslu af því að hafa horft á eftir systur sinni inn í hið fúla fen eiturlyfjanna. Hann, líkt og aðal- persónan Finnur, ætlaði að ein- henda sér í vonlausa björgunar- aðgerð með öllum tiltækum ráðum. Ólafur og hans fjölskylda sluppu með skrekkinn og hann áttaði sig á að það er ekki hægt að þvinga aðra til betra lífs með offorsi eða stjórn- semi, þótt ætlunin sé göfug. Saga hans og myndarinnar á erindi við áhorfendur því hún virðist vera að verða ásækið leiðarstef í íslensku samtímalífi. Í fjölmiðlum birtast sí- fellt tilkynningar um „týndar“ ung- lingsstelpur og samtvinnaðar ljótar sögur af misindismönnum sem hugs- anlega voru rændir barnæskunni. Allir á Íslandi virðast þekkja beint eða óbeint til svona fórnarlamba eða fjandmanna svo frásögn Eiðsins gæti virkað sem víti til varnaðar þeim sem eiga í sömu glímu og Finnur; betra væri að þeir leituðu sér hjálpar en að þeir tortímdu sér og sínum í vonlausri heift. Römm er sú taug er bindur ást- ríkan föður við uppkomna dóttur sína. Ást hans verður átakanleg þeg- ar hún rennur honum úr greipum. Taugin þenst og hjartað slær óþyrmilega. Tíminn tifar og virðist vera að þrjóta. Finnur getur ekki sleppt og reynir með offorsi að end- urheimta barn sitt úr helju. Flestir foreldrar myndu bugast í svona að- stæðum, á meðan aðrir, eins og Finnur, gjótharðna og fyllast stór- mennskubrjálæði og fítonskrafti, til- búnir að berjast út í rauðan dauðann og brenna allar brýr að baki sér. Breyskleiki og ást á öðrum getur orðið hverjum sem er að falli. Á ög- urstundu losnar stundum mikil illska og ólga úr læðingi innra með mestu gæðablóðum. Allir geta fram- ið hroðalega glæpi undir ákveðnum kringumstæðum – þótt fæstir séu færir um að hemja bræði sína um stundarsakir til að leggja á ráðin um hinn fullkomna glæp. Óttar og Anna eru ungmenni á villigötum. Þau eiga sér skörðótta forsögu og hafa sína djöfla að draga en umfram allt eru þau mannleg. Ást þeirra er í vissum skilningi skaðleg en sönn engu að síður og því ekki furða að Óttar sé ragur að sleppa takinu af Önnu. Þau, ásamt Sólveigu (Margrét Bjarnadóttir), eiginkonu Finns, og yngri dótturinni Hrefnu (Auður Aradóttir), falla í skuggann af ægivaldi aga hans, bræði og þráhyggju. Sjónarhorn frásagnarinnar og framvinda mynd- arinnar eru lituð af ástríðu og heift hans. Þetta sést vel í átakanlegri senu eftir miðbik myndarinnar þeg- ar Hrefna biður pabba sinn að gleyma sér ekki. Á öðrum stað spilar hún angistarfullu vögguvísuna „Sofðu unga ástin mín“ á píanó á meðan foreldrarnir sitja aðskildir í huggulegri stofu heimilisins. Þögull texti vísunnar verkar eins og níst- andi merkingarauki þar sem fað- irinn virðist sturlaður af heift og hefndarþorsta og móðirin buguð af sorg yfir mannsmissi sínum. Hrefna og hundurinn Boli eru saklaus vitni að hildarleik aðstandenda sinna. Þau eru næm á umhverfið og stig- magnandi tilfinningaspennuna og reyna með sínum hætti að stilla til friðar. Sjónræn umgjörð og allur frá- gangur myndarinnar eru frámuna- lega hrífandi. Kvikmyndataka, klipping, tónlist, listræn útfærsla á leikmynd, búningum og gervum og allir aðrir formlegir þættir giftast í nostursamlega gæðaheild. Stór- brotin þyrsluskot sem sýna Finn reyna að hjóla úr sér bræðina eins og trylltur eldibrandur um þjóðvegi, í myrkri og fimbulkulda, umvafinn snævikysstum mosabreiðum og gráu úfnu hrauni eru vægast sagt krassandi. Það sama má segja um magnaða og nærgætna innanhúss- lýsingu sem virkar alúðleg, nánast kærleiksrík og í hrópandi ósamræmi við ríkjandi aðstæður þar sem spennuþrunginn og mikill tilfinn- ingafjandi leikur lausum hala. Mýkt og harka takast á út í gegnum myndina, jafnt í sviðsmynd og bún- ingum sem innan söguheimsins. Gler af ýmsum toga virðist notað til að skilja að þessar andstæður mýkt- ar og hörku, kulda og hlýju, hins ytra og innra, reglu og óreiðu. Finn- ur þarf tíðum að kljást við speg- ilmynd sína í myndinni en sárast þykir honum eflaust þegar Sólveig lokar á hann og slítur tengsl þeirra með því að skýla sér bak við ógagnsæ sólgleraugu þegar laganna verðir fara að láta að sér kveða. Myndin er byggð á sterku hand- riti og vandaðri persónusköpun. Persóna Finns yfirskyggir reyndar aðrar persónur en það gerir sálfræðitrylling og tilfinninga- spennu myndarinnar enn ágengari. Baltasar er feiknasterkur í sinni rullu og það sama má segja um aðra leikara. Hera, Gísli Örn, Margrét og Auður ljá persónum sínum magnað líf og gera þær svo áhugaverðar að áhorfendur myndu gjarnan vilja bjarga þeim undan skugga Finns og fá að kynnast þeim betur. Aðrir aukaleikarar í hlutverkum lögreglu- manna og lækna skila sínu einnig prýðilega. Myndin er raunsæ og vís- ar í viðvarandi samfélagsmein án þess byggja um of á sönnum atburð- um. Íslenskur veruleiki og persónu- leg reynsla aðstandenda er upp- spretta átakanlegs skáldskapar sem getur gengið nærri og snert strengi í hjörtum áhorfenda. Tilfinningaspenna „Baltasar er feiknasterkur í sinni rullu og það sama má segja um aðra leikara,“ segir í rýni. Römm er sú taug Smárabíó, Háskólabíó, Laugar- ásbíó, Borgarbíó, Selfossbíó, Króksbíó, Ísafjarðarbíó og Skjaldborgarbíó. Eiðurinn bbbbb Leikstjórn: Baltasar Kormákur. Handrit: Ólafur Egilsson og Baltasar Kormákur. Stjórn kvikmyndatöku: Óttar Guðnason. Klipping: Sigvaldi J. Kárason. Aðal- hlutverk: Baltasar Kormákur, Hera Hilmarsdóttir, Gísli Örn Garðarsson, Margrét Bjarnadóttir, Auður Aradóttir, Guðrún Sesselja Arnardóttir, Þorsteinn Bachmann og Ingvar E. Sigurðsson. 110 mín. Ísland 2016. HJÖRDÍS STEFÁNSDÓTTIR KVIKMYNDIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.