Morgunblaðið - 10.09.2016, Side 54
54 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2016
Seasons to Perform: Alwa-
ys, Always, Always: Look
for the Answer, 2016 nefn-
ist sýning með nýjum verk-
um eftir Maju Bekan og
Gunndís Ýr Finnboga-
dóttur sem opnuð verður í
Nýlistasafninu að Völvufelli
13-21 í Reykjavík í dag,
laugardag, kl. 15.
„Í gegnum verkin spyrja
myndlistarmennirnir sig
um eðli arkífsins (sem og
fleiri arkífa), skoða mögu-
leika heimilda um listaverk
sem efniviðs sem áfram-
haldandi rannsókn og við-
bragð listamannanna við
hugmyndum um tíma, við-
veru listamanna í verkum
og á sýningum, um endurvinnslu hugmynda, höfundarrétt og framleiðni í
myndlist,“ segir í tilkynningu frá safninu.
Samvinna listakvennanna hefur þróast í nokkur ár og hófst með verkefninu
„Hotel New York“ í Rotterdam árið 2006. „Samvinna Gunndísar og Maju
byggist aðallega á því að eyða tíma saman, venjulega án þess að deila sama
rými. Með því að vinna náið saman á þennan hátt skoða listamennirnir og
spyrja spurninga um hvernig samvinna getur þróast, og/sem er oft þvinguð í
tíma og rými. Verk þeirra eiga það til að vera mjög persónuleg og skapa ein-
hvers konar hugarflug sem oft fer fram í gegnum tölvupóst, löng Skype-
samtöl, verkefni fyrir hvor aðra að leysa, (ímyndaðar) sameiginlegar kaffipásur
o.fl. Oft eru verk þeirra svar /viðbragð við (sýningar)boði og skoða hugmyndir
um (skort á) tíma og eignarhaldi ((mis)notkun á frí- og persónulegum) tíma.“
Skoða eðli arkífa
Samvinna Listakonurnar eyða iðulega tíma
saman án þess að deila sama rými.
Stórsveit Rekjavíkur heldur tónleika
í Kaldalóni Hörpu annað kvöld,
sunnudag, kl. 20. Flutt verður tónlist
eftir saxófónleikarann og tónskáldið
John Coltrane sem, að sögn skipu-
leggjenda, er meðal áhrifamestu ein-
staklinga djasssögunnar. Coltrane
hefði orðið níræður 23. september
nk. hefði hann lif-
að. Til að minnast
þeirra tímamóta
flytur Stórsveit
Reykjavíkur eitt
af frægustu verk-
um hans; svítuna
„A love Supreme“
frá 1964.
„Hér er um að
ræða magnað
verk innblásið af
trúarhita og framsækinni tón-
hugsun. Útsetningin var gerð fyrir
Lincoln Center Jazz Orchestra af
Wynton Marsalis. Auk svítunnar
flytur stórsveitin nokkur stök verk
Coltranes, meðal annars í útsetn-
ingum eftir leiðandi stjörnur stór-
sveitaheimsins; Mariu Schneider og
Bob Mintzer sem bæði hafa komið
fram sem gestir með Stórsveit
Reykjavíkur á liðnum árum,“ segir í
tilkynningu. Þar kemur fram að
stjórnandi tónleikanna verður Snorri
Sigurðarson.
Tónleikarnir marka upphaf 25.
starfsárs Stórsveitar Reykjavíkur,
en sveitin hélt sína fyrstu tónleika í
febrúarmánuði 1992. Á yfirstandandi
starfsári býður Stórsveitin upp á alls
sjö tónleika, sem allir fara fram í
Hörpu. Um miðjan nóvember fagnar
sveitin tíu ára útgáfuafmæli plöt-
unnar Í Reykjavíkurborg er geymir
tólf vinsæl Reykjavíkurlög í útsetn-
ingum Veigars Margeirssonar, sem
sjálfur stjórnar. Í byrjun desember
verða jólatónleikar með Góa undir
stjórn Hauks Gröndals. Nýárstón-
leikarnir verða helgaðir gullöld
sveiflunnar sem Sigurður Flosason
stjórnar. Í febrúar verða afmælistón-
leikar starfsársins undir stjórn
þýska básúnuleikarans Ansgar Strie-
pens. Í apríl er hið árvissa maraþon
Stórsveitarinnar haldið í 21. sinn. Á
lokatónleikum starfsársins í maí
verður ný tónlist í forgrunni.
Stórsveitin
heiðrar John
Coltrane
John Coltrane
Upphaf Stórsveit Reykjavíkur leikur undir stjórn Snorra Sigurðarsonar.
Allt frá því að Baltasar Kor-mákur steig fram meðleikstjórnarfrumraunsína, 101 Reykjavík
(2000), hefur hann látið mikið til sín
taka í kvikmyndageiranum, jafnt
hér heima sem ytra. Frami hans og
frægð hefur vaxið ört og nú má
segja að hann hafi áunnið sér titil
heimsfrægs kvikmyndahöfundar
sem státað getur af blómstrandi höf-
undarverki. Eiðurinn, nýjasta mynd
Baltasars, sækir í stef úr mörgum
fyrri verka hans. Flest þeirra eru
tregafullar örlagasögur um ein-
stæðar persónur í örvæntingarfullu
kappi við tímann – hetjur sem leggja
allt í sölurnar í baráttu við skelfilega
glæpi, fjölskylduharmleiki og baldin
náttúruöfl. Líkt og í Eiðnum var
hinn fullkomni glæpur útgangs-
punktur A Little Trip to Heaven
(2005); vá steðjar að fjölskyldu hetj-
unnar í Reykjavík-Rotterdam (2008)
og endurgerðinni Contraband
(2012); feður reyna að bjarga dætr-
um sínum í Mýrinni (2006) og Inn-
hale (2010); á meðan tortímandi
náttúruöfl setja sterkan svip á Djúp-
ið (2012) og sjónvarpsþáttaröðina
Ófærð (2015). Þessar frásagnir eru
auk þess allar afar raunsæjar og
hafa flestar sterka skírskotun í vá-
leg samfélagsmein samtímans.
Eiðurinn er saga fjölskyldu sem
fer forgörðum. Hún segir af hjarta-
skurðlækninum Finni (Baltasar
Kormákur) sem nýtur velgengni í
starfi og farsældar í einkalífinu. Á
besta aldri virðist Finnur hafa allt til
alls þar til hann áttar sig á að að
eldri dóttir hans Anna (Hera Hilm-
arsdóttir) er komin á glapstigu með
líf sitt. Hún er komin í neyslu og
orðin ástfangin af Gretti, harðsvír-
uðum dópsala (Gísli Örn Garð-
arsson). Finnur er staðráðinn í að
koma dóttur sinni aftur á réttan kjöl
en finnur fljótt til smæðar sinnar og
vanmáttar enda við ramman reip að
draga. Finnur missir sjónar á öllu
því er áður skóp líf hans og einka-
lífið tekur að splundrast eftir því
sem örvænting hans og þráhyggja
magnast. Undir lokin blindast hann
af heift og leggur á ráðin um hið full-
komna morð. Þar með fótumtreður
hann hornstein tilveru sinnar: Eið-
inn sem hann sór þegar hann tók að
starfa sem læknir um að hann
myndi aðeins nota gáfur sínar og
getu til að líkna sjúkum en aldrei í
því skyni að valda miska eða tjóni.
Handrit myndarinnar er runnið
undan rifjum leikarans Ólafs Egils-
sonar en það byggist að hluta á hans
eigin reynslu af því að hafa horft á
eftir systur sinni inn í hið fúla fen
eiturlyfjanna. Hann, líkt og aðal-
persónan Finnur, ætlaði að ein-
henda sér í vonlausa björgunar-
aðgerð með öllum tiltækum ráðum.
Ólafur og hans fjölskylda sluppu
með skrekkinn og hann áttaði sig á
að það er ekki hægt að þvinga aðra
til betra lífs með offorsi eða stjórn-
semi, þótt ætlunin sé göfug. Saga
hans og myndarinnar á erindi við
áhorfendur því hún virðist vera að
verða ásækið leiðarstef í íslensku
samtímalífi. Í fjölmiðlum birtast sí-
fellt tilkynningar um „týndar“ ung-
lingsstelpur og samtvinnaðar ljótar
sögur af misindismönnum sem hugs-
anlega voru rændir barnæskunni.
Allir á Íslandi virðast þekkja beint
eða óbeint til svona fórnarlamba eða
fjandmanna svo frásögn Eiðsins
gæti virkað sem víti til varnaðar
þeim sem eiga í sömu glímu og
Finnur; betra væri að þeir leituðu
sér hjálpar en að þeir tortímdu sér
og sínum í vonlausri heift.
Römm er sú taug er bindur ást-
ríkan föður við uppkomna dóttur
sína. Ást hans verður átakanleg þeg-
ar hún rennur honum úr greipum.
Taugin þenst og hjartað slær
óþyrmilega. Tíminn tifar og virðist
vera að þrjóta. Finnur getur ekki
sleppt og reynir með offorsi að end-
urheimta barn sitt úr helju. Flestir
foreldrar myndu bugast í svona að-
stæðum, á meðan aðrir, eins og
Finnur, gjótharðna og fyllast stór-
mennskubrjálæði og fítonskrafti, til-
búnir að berjast út í rauðan dauðann
og brenna allar brýr að baki sér.
Breyskleiki og ást á öðrum getur
orðið hverjum sem er að falli. Á ög-
urstundu losnar stundum mikil
illska og ólga úr læðingi innra með
mestu gæðablóðum. Allir geta fram-
ið hroðalega glæpi undir ákveðnum
kringumstæðum – þótt fæstir séu
færir um að hemja bræði sína um
stundarsakir til að leggja á ráðin um
hinn fullkomna glæp.
Óttar og Anna eru ungmenni á
villigötum. Þau eiga sér skörðótta
forsögu og hafa sína djöfla að draga
en umfram allt eru þau mannleg.
Ást þeirra er í vissum skilningi
skaðleg en sönn engu að síður og því
ekki furða að Óttar sé ragur að
sleppa takinu af Önnu. Þau, ásamt
Sólveigu (Margrét Bjarnadóttir),
eiginkonu Finns, og yngri dótturinni
Hrefnu (Auður Aradóttir), falla í
skuggann af ægivaldi aga hans,
bræði og þráhyggju. Sjónarhorn
frásagnarinnar og framvinda mynd-
arinnar eru lituð af ástríðu og heift
hans. Þetta sést vel í átakanlegri
senu eftir miðbik myndarinnar þeg-
ar Hrefna biður pabba sinn að
gleyma sér ekki. Á öðrum stað spilar
hún angistarfullu vögguvísuna
„Sofðu unga ástin mín“ á píanó á
meðan foreldrarnir sitja aðskildir í
huggulegri stofu heimilisins. Þögull
texti vísunnar verkar eins og níst-
andi merkingarauki þar sem fað-
irinn virðist sturlaður af heift og
hefndarþorsta og móðirin buguð af
sorg yfir mannsmissi sínum. Hrefna
og hundurinn Boli eru saklaus vitni
að hildarleik aðstandenda sinna.
Þau eru næm á umhverfið og stig-
magnandi tilfinningaspennuna og
reyna með sínum hætti að stilla til
friðar.
Sjónræn umgjörð og allur frá-
gangur myndarinnar eru frámuna-
lega hrífandi. Kvikmyndataka,
klipping, tónlist, listræn útfærsla á
leikmynd, búningum og gervum og
allir aðrir formlegir þættir giftast í
nostursamlega gæðaheild. Stór-
brotin þyrsluskot sem sýna Finn
reyna að hjóla úr sér bræðina eins
og trylltur eldibrandur um þjóðvegi,
í myrkri og fimbulkulda, umvafinn
snævikysstum mosabreiðum og
gráu úfnu hrauni eru vægast sagt
krassandi. Það sama má segja um
magnaða og nærgætna innanhúss-
lýsingu sem virkar alúðleg, nánast
kærleiksrík og í hrópandi ósamræmi
við ríkjandi aðstæður þar sem
spennuþrunginn og mikill tilfinn-
ingafjandi leikur lausum hala. Mýkt
og harka takast á út í gegnum
myndina, jafnt í sviðsmynd og bún-
ingum sem innan söguheimsins.
Gler af ýmsum toga virðist notað til
að skilja að þessar andstæður mýkt-
ar og hörku, kulda og hlýju, hins
ytra og innra, reglu og óreiðu. Finn-
ur þarf tíðum að kljást við speg-
ilmynd sína í myndinni en sárast
þykir honum eflaust þegar Sólveig
lokar á hann og slítur tengsl þeirra
með því að skýla sér bak við
ógagnsæ sólgleraugu þegar laganna
verðir fara að láta að sér kveða.
Myndin er byggð á sterku hand-
riti og vandaðri persónusköpun.
Persóna Finns yfirskyggir reyndar
aðrar persónur en það gerir
sálfræðitrylling og tilfinninga-
spennu myndarinnar enn ágengari.
Baltasar er feiknasterkur í sinni
rullu og það sama má segja um aðra
leikara. Hera, Gísli Örn, Margrét og
Auður ljá persónum sínum magnað
líf og gera þær svo áhugaverðar að
áhorfendur myndu gjarnan vilja
bjarga þeim undan skugga Finns og
fá að kynnast þeim betur. Aðrir
aukaleikarar í hlutverkum lögreglu-
manna og lækna skila sínu einnig
prýðilega. Myndin er raunsæ og vís-
ar í viðvarandi samfélagsmein án
þess byggja um of á sönnum atburð-
um. Íslenskur veruleiki og persónu-
leg reynsla aðstandenda er upp-
spretta átakanlegs skáldskapar sem
getur gengið nærri og snert strengi
í hjörtum áhorfenda.
Tilfinningaspenna „Baltasar er feiknasterkur í sinni rullu og það sama má segja um aðra leikara,“ segir í rýni.
Römm er sú taug
Smárabíó, Háskólabíó, Laugar-
ásbíó, Borgarbíó, Selfossbíó,
Króksbíó, Ísafjarðarbíó og
Skjaldborgarbíó.
Eiðurinn bbbbb
Leikstjórn: Baltasar Kormákur. Handrit:
Ólafur Egilsson og Baltasar Kormákur.
Stjórn kvikmyndatöku: Óttar Guðnason.
Klipping: Sigvaldi J. Kárason. Aðal-
hlutverk: Baltasar Kormákur, Hera
Hilmarsdóttir, Gísli Örn Garðarsson,
Margrét Bjarnadóttir, Auður Aradóttir,
Guðrún Sesselja Arnardóttir, Þorsteinn
Bachmann og Ingvar E. Sigurðsson. 110
mín. Ísland 2016.
HJÖRDÍS
STEFÁNSDÓTTIR
KVIKMYNDIR