Morgunblaðið - 29.09.2016, Blaðsíða 36
36 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2016
Haustið er farið að minna á sig.
Gróðurinn sölnar og trén skarta
haustlitunum áður en þau fella lauf-
ið. Árrisulir þurfa að skafa hrím af
bílrúðunum og það er orðið tíma-
bært að líta eftir hitamælinum og
huga að hálkunni sem getur verið
lúmsk.
Sumarið sem nú er að kveðja
okkur var bæði hlýtt og ljúft.
Meðalhitinn í Reykjavík frá júní til
ágúst var 11,7 stig. Hiti þar hefur
aðeins þrisvar sinnum verið hærri í
sömu mánuðum frá upphafi sam-
felldra mælinga árið 1871. Öll heit-
ustu árin hafa verið á þessari öld,
það eru árin 2010, 2003 og 2012.
Þess má einnig geta að af tíu hlýj-
ustu sumrum í Reykjavík eru átta á
þessari öld. Aðeins sumurin árið
1880 og árið 1939 skjótast inn í
topp tíu listann, að því er segir á vef
Veðurstofunnar.
Ragnar Axelsson, ljósmyndari
Morgunblaðsins, fór um landið og
tók meðfylgjandi myndir sem
minna á sumarið sem nú er að baki.
Það er gott að ylja sér við góðar og
bjartar minningar þegar veturinn
kemur með kuldann og myrkrið.
gudni@mbl.is
Rauðisandur Veðraður rekaviðardrumbur, líklega langt að kominn, liggur á bala við fjöruna.
Hekla Nokkrir skaflar voru á Heklu. Undir kraumar eldur og getur brotist upp hvenær sem er.
Morgunblaðið/RAX
Snæfellsnes Sólin braust í gegnum dumbunginn og lýsti upp álftir, stærstu fugla Íslands, sem svömluðu á vatninu.
Landmannaleið Litskrúðug fjöllin í kringum Landmannalaugar eru eilíft augnayndi.
Kaldármelar Bændur voru búnir að heyja og sumir styrktu Krabbameinsfélagið með bleiku.
Nokkrar minning-
ar frá ljúfu sumri
Hlýtt sumar á hlýrri öld er að kveðja
Reykjafjörður Rogginn tjaldur
tyllti sér á drang og gætti óðals síns.