Morgunblaðið - 29.09.2016, Síða 46

Morgunblaðið - 29.09.2016, Síða 46
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Ef ætti að dæma hann út frá útlitinu minnir Miles Hilton Barber kannski mest á vinalegan skólastjóra. Hann verður 68 ára gamall á þessu ári, hárið löngu orðið grátt og þótt hann búi í dag á Bretlandi má heyra á hreimnum að hann ólst upp í Afríku, nánar tiltekið í Ródesíu sem í dag er Simbabve. Hann lætur kannski ekki mikið yfir sér en Miles er samt mik- ill ævintýramaður sem hefur slegið ótalmörg heimsmet og afrekað hluti sem flestir láta sig aðeins dreyma um; hann hefur klifið suma hæstu tinda heims, slegið hraðamet á sportbílum, flogið heimsálfa á milli á fisvél, hlaupið eyðimerkurmaraþon og gert atlögu að Suðurpólnum. Það sem gerir þessi afrek enn merkilegri er að Miles missti sjónina fyrir um fjórum áratugum, og heimsmetin sló hann eftir að hann varð fimmtugur. Miles er væntanlegur til Íslands í næstu viku og mun halda námskeið á mánudag, þriðjudag og miðviku- dag á vegum Kompaní – við- skiptaklúbbs Morgunblaðsins. Kompaní er vettvangur sem veitir viðskiptavinum Morgunblaðsins og Mbl.is aukna þjónustu í formi fræðslufunda og fyrirlestra, auk þess að sameina starfandi fólk á Ís- landi. Stendur Kompaní fyrir komu Miles í samstarfi við breska mark- aðsráðgjafarfyrirtækið Amplify. Saga Miles er engu lík, en boð- skapur hans er mjög skýr: að það er fyrst og fremst hugarfarið sem held- ur aftur af okkur, hvort heldur í einkalífinu, í starfi eða í rekstri. Sjónin fór og múrarnir risu „Mig langaði til að verða flug- maður og 18 ára gamall skrái ég mig í flugher Ródesíu, en þeir tóku ekki við mér því ég féll á sjónprófinu. Ég var ekki nema 21 árs gamall þegar ég byrja að missa sjónina vegna arf- gengs sjúkdóms,“ segir Miles, en bróðir hans er einnig blindur vegna sama sjúkdóms. Miles segir samfélagið strax hafa sent honum mjög skýr skilaboð um þær takmarkanir sem blindan setti honum. Eftir því sem sjónin versnaði fækkaði þeim störfum sem hann átti að geta sinnt og allir draumar um að fljúga og sigra heiminn voru fyrir bí. Fyrst gat hann unnið sem sölumaður fyrir lyfjafyrirtæki, þá stýrði hann lítilli keðju matvöruverslana og eftir að Miles flutti til Bretlands gerðist hann atvinnuráðgjafi hjá hagsmuna- samtökum blindra. Þar væri Miles kannski enn þann dag í dag ef bróðir hans hefði ekki fengið brjálæðislega hugmynd. Rétt eins og Miles hafði dreymt um að fljúga hafði bróðirinn fengið sigl- ingabakteríuna og meðal annars tek- ið þátt í kappsiglingu milli Afríku og Suður-Ameríku á sínum yngri árum, áður en sjónin fór. „Hann fær skyndilega þá hugdettu að smíða sér skip og sigla einn síns liðs frá Suður- Afríku til Ástralíu, kominn á sex- tugsaldurinn. Ég var sjálfur fastur í hugsunarhætti fórnarlambsins og hafði löngu gefið alla mína stóru drauma upp á bátinn, og eins og allt fólkið í kringum hann hélt ég að bróðir minn væri genginn af göfl- unum, þar til hann loks sigldi skipinu sínu inn í höfnina í Ástralíu.“ Á hraða hljóðsins Það tók Miles ekki langan tíma að kveikja á perunni en hann var hik- andi í fyrstu. „Á yngri árum hafði ég haft gaman af að hlaupa, og ákvað að ég skyldi verða fyrsti blindi mað- urinn til að ljúka 250 km kapphlaupi í gegnum Sahara-eyðimörkina.“ Miles segir að það hafi verið eins og flóðgáttir hafi brostið. Hann skildi loks hvernig hugarfarið, miklu frekar en blindan, hafði takmarkað hvað hann gerði við líf sitt. Leið t.d. ekki á löngu þar til Miles var kominn aftur í flugstjórasætið og er hann meðal annars fyrsti blindi maðurinn til að rjúfa hljóðmúrinn í herþotu. En gott og vel. Ef fólk skilur hvernig hugarfarið takmarkar okk- ur, hvernig er hægt að brjótast út úr viðjum eigin hugarfars? Er það ekki hægara sagt en gert? Miles segir besta ráðið að setja sér skuldbind- andi markmið, og síðan vinna „aftur- ábak“ út frá markmiðinu: „Ef þig dreymir um að klífa Kilim- anjaro, þá er fyrsta skrefið að bóka ferð. Þá er búið að taka ákvörðunina sem knýr þig til að finna peningana fyrir ferðalaginu með einhverjum hætti, þjálfa þig og taka frá tíma fyr- ir ævintýrið. Ef byrjað er á hinum endanum tekst sennilega aldrei að komast á áfangastað, því það er aldr- ei hægt að finna tíma eða peninga.“ Stjórnendur þori að setja markið hátt Miles segir stjórnendur þurfa að hugsa með sama hætti. „Þegar farið er yfir reksturinn og gerðar áætlanir fyrir næsta ár er yfirleitt byrjað að setja markmið út frá því hvar fyrir- tækið er statt í dag, og komist að þeirri niðurstöðu að miðað við mark- aðsaðstæður sé mögulega hægt að auka markaðshlutdeildina lítillega og auka hagnaðinn smávægilega. En hvað með að setja t.d. það markmið að auka hagnaðinn um 50% eða tvö- falda markaðshlutdeildina?“ segir Miles. „Þegar ég segi þetta við stjórnendur svara þeir að sumt sé hreinlega ekki gerlegt. Þá bið ég þá að ímynda sér að ég hafi numið börn- in þeirra á brott og neiti að skila þeim nema takist að tvöfalda mark- aðshlutdeildina á næsta ári. Þá hætta stjórnendurnir að láta hugar- farið segja sér hvað er gerlegt og ógerlegt og byrja þess í stað að leita að lausnum.“ Vill Miles meina að það sé fyrst og fremst hugsunarhátturinn sem skilji að þau fyrirtæki sem skara fram úr og hin sem reka lestina. „Ég hef séð þetta oftsinnis; mjög svipuð fyrir- tæki í sama geira sem hafa alveg sömu burðina, nema hvað í öðru fyrirtækinu finnst stjórnendunum alveg ásættanlegt að ná 5% vexti á meðan stjórnendurnir á hinum staðnum vilja vaxa um 50%. Leiðtog- ar sem láta ekki hugarfarið setja sér mörk smita út frá sér til starfsfólks- ins, sem verður til þess að fyrirtækið nær lengra.“ Takmarkalaus Miles lýsir því þannig að þegar hann áttaði sig á hvernig hugarfarið hefti hann hafi flóðgáttirnar brostið. Fyrirlestrar hans þykja opna augu fólks fyrir nýjum möguleikum. SWNS Hugarfarið er stærsti þröskuldurinn Óstöðvandi Þó hann hafi misst sjónina hefur Mi- les Hilton Barber afrekað hluti sem fæstir myndu þora. Hér er hann í ofur-maraþoni í Sahara.  Merkilegur fyrirlesari er væntanlegur til landsins  Hann lætur sjónleysið ekki aftra sér frá því að sigrast á hæstu tindum, fljúga flugvélum á hljóðhraða, kafa ofan í höfin og aka hraðskreiðum bílum Víðförull Miles hæstánægður í leiðangri á Suðurskautslandinu Þar sló hann enn eitt heimsmetið. 46 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2016
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.