Morgunblaðið - 29.09.2016, Page 52
52 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2016
venjulegri umferð í Helsinki í Finn-
landi.
Í samtali við frönsku útvarpsstöð-
ina RFI sagði fulltrúi EasyMile,
Manuel Chaufrein, við upphaf akst-
ursins, að prófanirnar væru þær
fyrstu af mörgum sem ráðgerðar
væru í ár og á því næsta, 2017.
„Markmiðið er að sýna fram á hent-
ugleika þess að farartæki af þessu
tagi verði tekin í notkun í flutn-
ingakerfi Parísar.“
EZ10-smárútan getur ekið á allt
að 25 km/klst hraða og borið 12 far-
þega. Fyrir tilstilli gervitunglaleið-
sögubúnaðar (GPS), nýsitækni og
árekstrarvarna getur hún komist
leiðar sinnar. Við stjórn hennar er
og haft gagn af ljósnemum og fjar-
lægðarskynjurum.
Chaufrein segir að ætlað drægi
smárútunnar sé um 120 kílómetrar.
Raundrægi ræðst þó af veðri, fjölda
farþega og veghalla en bíllinn ætti
alla jafnan að geta ekið í átta til 12
stundir á fullri rafhleðslu. Hann
bætti því við, að vagnarnir litlu væru
ekki hugsaðir sem arftakar stórra
strætisvagna heldur sem viðbót er
bætir upp þjónustu jarðlestakerf-
isins og hefðbundinna strætisvagna.
„Þeir klára til dæmis síðasta spölinn
frá stöð að endanlegum áfangastað.
Þá mætti einnig nota á flugvöllum til
að flytja farþega til og frá,“ segir
Chaufrein. Hann er á því að vagnar
sem þessir verði komnir í almenna
notkun í París innan fimm ára.
Ráðamenn vonast til að sjálfeknu
vagnarnir verði komnir öllu fyrr til
skjalanna, eða fyrir árslok 2018. Til
viðbótar reynsluakstri vagnanna
meðfram Signubökkum verður
næsta áfanga hrint úr vör fyrir árs-
lok. Verður EZ10-vagninn þá látinn
ganga milli tveggja stórra sam-
göngumiðstöðva, lestarstöðvanna
Gare de Lyon og Gare de Austerlitz.
Þriðji áfanginn hefst svo í ársbyrjun
2017 er vagnarnir munu vera í ferð-
um milli bækistöðva frönsku kjarn-
orkustofnunarinnar og miðstöðvar
annarra orkugjafa (CEA) í Saclay
fyrir utan París. Þar er að finna
stórt vísindaver sem sinnir kjarn-
orku- og eðlisfræðirannsóknum.
Kostar 26 milljónir
„Smárúturnar sjálfeknu bjóða
upp á nýja þjónustumöguleika, sér-
staklega á borgarsvæðum þar sem
byggð er ekki ýkja þétt,“ segir for-
stjóri RATP, Elisabeth Borne, í til-
kynningu. EasyMile-vagnarnir sem
smíðaðir eru í borginni Toulouse
ættu að verða daglegt brauð á göt-
um Bordeaux snemma á næsta ári
samkvæmt áætlun um aksturs-
tilraunir með þá þar í borg. For-
smekkinn af því fengu borgarbúar í
sumar er EZ10-smárúturnar voru
brúkaðar í tengslum við hina al-
þjóðlegu ITS-ráðstefnu um nýtækni
í samgöngumálum.
Í byrjun september hófust próf-
anir með akstur tveggja lítilla mann-
lausra vagna af gerðinni Arma frá
franska fyrirtækinu Navly í þriðju
stærstu borg Frakklands, Lyon.
Þeir geta flutt allt að 15 farþega á 20
km/klst hraða og er ekið á lokaðri
1,3 kílómetra langri braut í nýju
hverfi borgarinnar, Confluence. Til-
raunin mun standa í eitt ár. Þessir
vagnar voru prófaðir í akstri í sviss-
neska bænum Sion fyrr í sumar.
Smárúturnar Arma eru sagðar
tæknileg undur er kosti um 200.000
evrur stykkið, eða sem svarar tæp-
lega 26 milljónum króna.
Prófanirnar í París hófust daginn
fyrir bílalausan borgardag sl.
sunnudag. Um 650 km af vegakerfi
borgarinnar var lokað öllum bílum
nema bráðnauðsynlegum far-
artækjum. Samsvarandi lokun átti
EasyMile
Sjálfvirkur bílafloti Sjálfeknir dvergstrætóar í röðum við stöðvar Easymile í Toulouse í Frakklandi. Þeir taka 12 farþega og geta ekið á allt að 25 kílómetra hraða á klukkustund.
Sjálfeknar smárútur
prófaðar í París
Rúturnar hugsanlega teknar í notkun innan fimm ára
AFP
Vekur athygli Sjálfekni dvergstrætóinn vekur athygli á Signubökkum.
Að innan Innviðir sjálfeknu rútunnar sem hafnar eru tilraunir með í París.
BAKSVIÐ
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Franska tæknifyrirtækið EasyMile
hóf síðastliðinn laugardag prófanir á
rafknúnum strætisvagni í Parísar-
umferðinni. Hófust þær á göngu-
götu á Signubökkum undir brúnni
Pont Neuf og leið EZ10 vagninn
meðfram ánni í samstarfi við stræt-
isvagna- og jarðlestafélag Parísar
(RATP). Strætisvagnar af þessari
gerð hafa þegar verið reyndir við
prófanir á lokuðum brautum í Jap-
an, Singapúr og Kaliforníu og í