Morgunblaðið - 01.10.2016, Side 1
!"
#$
$
"
%
& ' (
)
* $ + , $ * %
L A U G A R D A G U R 1. O K T Ó B E R 2 0 1 6
Stofnað 1913 230. tölublað 104. árgangur
GUÐ FÆR
GREITT Í
DOLLURUM ORKA OG GREDDA
STERTABENDA 49MAGNÚS Í BARCELONA 12
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Erró Er með ótalmörg verkefni undir.
Fjórar sýningar eru undir hjá
listmálaranum Erró um þessar
mundir. Tvær sýningar verða á
Brüssel-svæðinu í Belgíu og önnur
þeirra verður opnuð í dag. Hinar
verða í Frakklandi að ári.
„Mér leiðist ef ég er ekki að
vinna,“ segir Erró við blaðamann
Morgunblaðsins, sem hitti listmann-
inn á vinnustofu hans í París nú í
vikunni. Erró, sem vinnur tíu til tólf
stundir á dag, er 84 ára að aldri.
Hann er með mörg járn í eldinum
og fyrir nokkrum dögum kom út
bók sem er greinargott og litríkt
yfirlit yfir verk hans sem unnin eru
2012 til 2015.
„Frakkar þekkja Ísland, en vilja
vita meira. Leigubílstjórinn sem ég
kom með í morgun vildi vita allt um
Ísland,“ segir Erró sem hefur
sterkar taugar til Íslands, enda þótt
hann hafi verið búsettur í París í
áratugi. »6
Fjórar sýningar og
12 tíma vinnudagur
Var lokað 1994
» Bandaríska varnarliðið á
Keflavíkurflugvelli lét loka
braut 07/25 árið 1994.
» Brautin var lítið notuð en
innan við eitt prósent flugtaka
og lendinga fór um hana.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Það er mat Isavia að kostnaður við
að opna flugbraut 07/25 á Keflavík-
urflugvelli sé að lágmarki 280 millj-
ónir króna.
Í kjölfar lokunar neyðarbrautar-
innar svokölluðu á Reykjavíkurflug-
velli óskaði Ólöf Nordal innanríkis-
ráðherra eftir því að Isavia tæki
saman minnisblað um kostnað við
það að opna að nýju umrædda flug-
braut en hún er í sömu stefnu og
neyðarbrautin í Reykjavík. Braut 07/
25 gæti þá nýst fyrir sjúkraflugvélar
ef þær geta ekki lent í Reykjavík
vegna veðurs. Hún gæti því orðið
neyðarbraut í Keflavík.
„Það þarf strax að fara í aðgerðir
svo að hægt verði að lenda á þessari
braut í neyðartilfellum. Ég hef rætt
þetta við forstjóra Isavia,“ segir hún.
Isavia gerði þrjár útfærslur og var
kostnaðurinn á bilinu 280 til 1.390
milljónir. Í ódýrustu útfærslunni
fólst yfirlögn með flotbiki ásamt
brautarljósum. Ef gert er ráð fyrir
að flugbrautin verði aðeins notuð af
léttari flugvélum kemur þessi kostur
til álita að mati Isavia.
Skoða nýja neyðarbraut
Isavia gerði kostnaðarmat fyrir innanríkisráðherra Hægt er að opna braut
07/25 í Keflavík fyrir 280 milljónir Þarf að fara strax í aðgerðir, segir ráðherra
MKostar 280 miljónir »4
Hlutdeild Íslands í norsk-íslenskri
vorgotssíld gæti orðið tæplega 94
þúsund tonn á næsta ári, verði farið
eftir ráðgjöf Alþjóðahafrannsókna-
ráðsins (ICES) um aflamark deili-
stofna. Íslendingum var úthlutað 46
þúsund tonnum af norsk-íslenskri
vorgotssíld á þessu ári.
Kolmunnahlutur Íslendinga gæti
sömuleiðis orðið um 210 þúsund tonn
á næsta ári en hlutur Íslendinga var
um 164 þúsund tonn á þessu ári.
Samkvæmt þeim reiknireglum sem
notaðar hafa verið um makrílkvóta
gæti kvóti íslenskra skipa orðið um
160 þúsund tonn á næsta ári, sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Alþjóðahafrannsóknaráðið leggur
einnig til að engar veiðar verði stund-
aðar úr neðri stofni úthafskarfa árin
2017 og 2018. Hrygningarstofninn
hefur minnkað mikið síðan veiðar úr
neðri stofni úthafskarfa hófust í byrj-
un 10. áratugar síðustu aldar. Þetta
kom fram í fréttatilkynningu frá Haf-
rannsóknastofnun. »26
Meiri kvóti úr deili-
stofnum á næsta ári
Hlutdeild í síld gæti orðið 94 þús. tonn
Stjarnan tryggði sér í gær Íslandsmeistaratitil kvenna í
fjórða skipti á síðustu sex árum með því að sigra FH,
4:0, í lokaumferð Pepsi-deildarinnar. Breiðablik, sem
þurfti að treysta á að Stjarnan tapaði, beið lægri hlut
fyrir Val. Stjörnukonur fögnuðu titlinum að vonum
innilega á sínum heimavelli. » Íþróttir
Stjarnan Íslandsmeistari í fjórða sinn
Morgunblaðið/Eggert
Spennandi Íslandsmóti kvenna í knattspyrnu lauk í gær
Mistök Hagstofu Íslands gætu
kostað eigendur nýrra lána, sem
tekin voru frá maí á þessu ári, og
allra lána til nóvember nk. um
162 milljóna króna hækkun á höf-
uðstól.
„Fljótlega athugað þá sýnist
mér að verðtryggð lán sem tekin
eru á þessu tímabili geti orðið um
60 milljarðar. Án villunnar hefði
mánaðarbreyting neysluvísitöl-
unnar nú í september verið 0,21%
í stað 0,48%, svo að mismunurinn
er 0,27%. Þetta þýðir að höfuð-
stóll þessara lána hækkar um 162
milljónir,“ segir Yngvi Harðar-
son, framkvæmdastjóri Analytica.
»22
Höfuðstóll hækkar
um 162 milljónir
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknarflokksins,
sleit fundi framkvæmdastjórnar
flokksins eftir liðlega klukkustundar
fund upp úr kl. 14 í gær, án þess að
endanleg niðurstaða fengist um
hvernig dagskrá flokksþings flokks-
ins skyldi breytt, þar sem formað-
urinn sagði samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins, að hann myndi
ákveða dagskrá þingsins, ekki fram-
kvæmdastjórn.
Sigmundur Davíð sagði í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi, að
ákveðin hefð væri fyrir því að for-
maður flokksins ákvæði endanlega
dagskrá flokksþings Framsóknar-
flokksins.
„Ég vil vekja athygli á því að ég
gerði ekki drögin að dagskrá flokks-
þingsins, en hins vegar lagði ég til að
að ráðherrar flokksins fengju að
flytja sínar yfirlitsræður. Fundurinn
var ekki boðaður til þess að fara yfir
dagskrá þingisins, enda var ég þegar
búinn að leggja til að ráðherrar
flyttu sínar ræður,“ sagði Sigmund-
ur Davíð í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöld.
Fyrir liggur að báðir formanns-
frambjóðendur, Þeir Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson og Sigurður
Ingi Jóhannsson, munu fá einhvern
tíma til þess að flytja framboðsræð-
ur fyrir formannskjör á morgun, en
samkvæmt drögum að dagskrá, eins
og hún var á heimasíðu Framsókn-
arflokksins í gærkvöld, lá ekki fyrir
hvenær eða hversu lengi hvor fram-
bjóðandi fengi að tala.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir utanrík-
isráðherra sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær: „Það eru miklar líkur
á því að ég bjóði mig fram í varafor-
manninn.“ »16
Sleit fundinum án niðurstöðu
Báðir formannsframbjóðendurnir fá sinn ræðutíma
„Þegar Katla er annars vegar
verðum við að hafa varann á okkur
og taka þau merki sem við sjáum al-
varlega og bregðast þá rétt við og
vera viðbúin,“ segir Magnús Tumi
Guðmundsson jarðeðlisfræðingur,
en öflugar jarðskjálftahrinur hafa
gengið yfir í Kötlu í Mýrdalsjökli síð-
an á fimmtudagsmorgun.
Ríkislögreglustjóri í samráði við
lögreglustjórann á Suðurlandi
ákvað að virkja viðbragðsáætlun
vegna eldgoss undir Mýrdalsjökli á
óvissustigi í gær. Líklegt er að hrin-
an stafi af kvikuhreyfingum í Kötlu
en gosórói hefur þó ekki mælst. „Við
tökum stöðuna alvarlega og viljum
hafa vaðið fyrir neðan okkur,“ segir
Víðir Reynisson, verkefnastjóri al-
mannavarna, en lögreglan leitaði
ferðamanna á svæðinu í gær til að
koma þeim í skjól. Lögreglan á Suð-
urlandi lokaði fyrir umferð á vegi
221 við Sólheimajökul í gær og end-
urskoðar þá ákvörðun síðdegis. »2
Mýrdalsjökull
KatlaEyjafjallajökull
Vík í Mýrdal
Múlakvísl
Óróleiki í Kötlu
„Viljum hafa vaðið
fyrir neðan okkur“