Morgunblaðið - 01.10.2016, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2016
Veldu margverðlaunuð finnsk gæðadekk sem eru sérstaklega
hönnuð fyrir krefjandi aðstæður norðlægra slóða
ein öruggustu dekk sem völ er á
ítrekað valin bestu dekkin í gæðakönnunum
breitt úrval nagla-, vetrar- og heilsársdekkja
eigum dekk fyrir fólksbíla, jeppa og sendibíla
Skoðaðu dekkjaleitarvélina á MAX1.is
MAX1 býður 20% afslátt af hágæða Nokian dekkjum og hluti söluágóða
rennur til Krabbameinsfélagsins.
SENDUM UM ALLT LAND
Flutningur með Flytjanda
500 kr. hvert dekk
Bíldshöfða 5a, Reykjavík
Jafnaseli 6, Reykjavík
Dalshrauni 5, Hafnarfirði
(Knarrarvogi 2, Reykjavík
Ath. ekki dekkjaþjónusta)
Aðalnúmer:
515 7190
Opið:
Virka daga kl. 8-17
Laugardaga: sjá MAX1.is
Fáðu 20% afslátt af
NOKIAN dekkjum og styrktu
Bleiku slaufuna um leið
Íbúðalánasjóður þarf að endur-
greiða Borgarbyggð tæplega 62
milljóna króna dráttarvexti sem
sjóðurinn hafði innheimt með ólög-
mætum hætti hjá Borgarbyggð
vegna framkvæmdaláns við bygg-
ingu hjúkrunarálmu dvalarheimilis-
ins Brákarhlíðar. Einnig um 5 millj-
ónir í skaðabætur og 4,5 milljónir í
málskostnað.
Er þetta niðurstaða dóms Hæsta-
réttar sem staðfesti dóm Héraðs-
dóms Reykjavíkur.
Borgarbyggð tók framkvæmda-
lán hjá Íbúðalánasjóði til að byggja
hjúkrunarálmuna og var gert ráð
fyrir að því yrði breytt í 40 ára lán
eftir að lokaúttekt framkvæmdanna
færi fram. Var þetta í samræmi við
áætlun ríkisvaldsins um uppbygg-
ingu hjúkrunarheimila víða um
land.
Hvenær lauk framkvæmdum?
Fram kemur í dómi Hæstaréttar
að Borgarbyggð hafi greint Íbúða-
lánasjóði frá því undir lok árs 2013
að sveitarfélaginu stæði til boða
hagstæðari lán hjá öðrum fjármála-
stofnunum. Framkvæmdalánið var
greitt upp í lok janúar 2014. Í fram-
haldi af því krefur Íbúðalánasjóður
Borgarbyggð um 62 milljóna króna
dráttarvexti vegna vanskila á fram-
kvæmdaláninu, frá 1. janúar 2013
að telja, og neitaði að aflýsa láns-
skjölunum úr þinglýsingarbókum.
Borgarbyggð greiddi dráttarvext-
ina með fyrirvara og höfðaði mál til
endurgreiðslu á upphæðinni auk
skaðabóta.
Íbúðalánasjóður byggði dráttar-
vaxtakröfu sína á að lokaúttekt
framkvæmdarinnar hefði farið fram
í byrjun desember 2012 og sam-
kvæmt lánssamningi ætti að greiða
dráttarvexti frá þeim tíma, ef lánið
hefði ekki verið gert upp. Lóðar-
framkvæmdum lauk hins vegar
ekki fyrr en ári seinna og vottorð
um það var gefið út 5. desember
2013.
Ólögmæt og saknæm synjun
Hæstiréttur féllst á það með
Borgarbyggð að gjalddagi lánsins
hefði samkvæmt því verið 5. febr-
úar 2014. Borgarbyggð hefði því
greitt lánið á réttum tíma. Þá kem-
ur fram í dómnum að Borgarbyggð
hafi ekki verið gerð grein fyrir því
að dráttarvextir yrðu reiknaðir frá
1. janúar 2013, fyrr en eftir að lánið
var greitt upp. Krafa Íbúðalána-
sjóðs um dráttarvexti hafi því verið
ólögmæt og synjun sjóðsins að óska
eftir aflýsingu á lánsskjölum vegna
framkvæmdalánsins bakað sveitar-
félaginu tjón með ólögmætum og
saknæmum hætti. helgi@mbl.is
Íbúðalánasjóður
greiði skaðabætur
Gerðu ólögmæta kröfu á Borgarbyggð
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Borgarnes Borgarbyggð fær 67
milljónir í kassann með dómi.
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Meirihluti umhverfis- og skipulags-
ráðs Reykjavíkur lagðist gegn því á
fundi í vikunni að heimila niðurrif
húsa við Bragagötu 35 og Freyju-
götu 16, sem reist voru á þriðja ára-
tug síðustu aldar og standa gegnt
veitingastaðnum Eldsmiðjunni á
mótum þessara gatna. Eigandi lóð-
anna hefur þar áform um að byggja
tvö ný íbúðarhús með alls átta íbúð-
um og sameiginlegu stigahúsi.
Meirihlutinn studdist við umsögn
skipulagsfulltrúa, máli sínu til stuðn-
ings. Húsverndarsjónarmið og varð-
staða um byggðamynstur gömlu
Reykjavíkur verði að vera í forgangi
þegar þess sé kostur.
Minnihluti ráðsins taldi uppbygg-
ingu á lóðunum hins vegar falla vel
að núverandi byggð og vitnaði þar til
umsagnar Minjastofnunar, sem
gerði ekki athugasemd við niðurrif
húsanna. Húsin séu illa farin og
betra að byggja nýtt frekar en að
byggja við og ofan á þau. Hafði eig-
andi lóðarinnar þá lagt fram endur-
skoðaða tillögu að uppbyggingu á
reitnum, sem unnin var af arkitekta-
stofunni Arkþingi í kjölfar samráðs
við Minjastofnun.
Í umsögn Minjastofnunar segir
m.a. að hæð, umfang og lega ný-
bygginga hafi verið löguð að ríkjandi
einkennum byggðamynsturs á reitn-
um, auk þess sem þak og gluggar
falli vel að svipmóti hverfisins.
„Minjastofnun gerir því ekki at-
hugasemd við niðurrif umsagnar-
skyldra húsa sem fyrir eru á lóð-
unum við Bragagötu 35 og
Freyjugötu 16, enda sé tryggt að
uppbygging á reitnum verði á
grundvelli tillögu Arkþings,“ segir í
umsögn Minjastofnunar.
Ný tillaga þó skref í áttina
Umrætt svæði er skilgreint sem
sérstakt hverfisverndarsvæði, þar
sem áhersla er lögð á að gamlar
byggingar skuli varðveittar á sínum
stað. Í greinargerð skipulagsfulltrúa
segir m.a. að ef hreyfa eigi við eldri
byggingum skuli færa fyrir því sterk
rök í tillögu að deiliskipulagi. Ekki
er í gildi deiliskipulag á þessum reit
en byggðamynstursverndun er á
svæðinu.
Áhugi hefur áður komið fram á
þessum lóðum, eða haustið 2015, en
þá var beiðni um niðurrif einnig
hafnað. Þá skilaði skipulagsfulltrúi
umsögn þar sem sagði m.a. að niður-
rif húsa á þessu svæði samrýmdist
ekki markmiðum Aðalskipulags
Reykjavíkur. Ekki væri mælt með
því að samþykkja niðurrif húsanna
og nýbyggingar á lóðunum án þess
að reiturinn og umhverfi hans yrðu
skoðuð og skipulögð í heild, með til-
liti til byggðamynsturs og hús-
verndar.
Skipulagsfulltrúi kemst að sömu
niðurstöðu nú, telur þó tillögu til að-
lögunar að byggðamynstri svæðisins
vera „skref í áttina“ en greinilega
ekki nóg. Gera þurfi tillögu að nýt-
ingu húsanna þar sem byggt sé við
þau í samræmi við byggðamynstrið
og markmið Aðalskipulags Reykja-
víkur.
Þráttað um niðurrif tveggja húsa
Skipulagsfulltrúinn í Reykjavík og Minjastofnun ekki sammála um niðurrif og uppbyggingu húsa
við Bragagötu og Freyjugötu Meirihluti umhverfis- og skipulagsráðs hafnaði ósk um niðurrif
Morgunblaðið/Ófeigur
Húsin Bláa húsið stendur við Bragagötu 35 og hið rauða við Freyjugötu 16.
Deilt var um það í umhverfis- og skipulagsráði hvort rífa ætti þessi hús.
Teikningar/Arkþing
Áformin Svona lítur tillagan að uppbyggingu á lóðunum tveimur út.