Morgunblaðið - 01.10.2016, Síða 12

Morgunblaðið - 01.10.2016, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2016 Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Ísorpinu er fátt um gull semglóir eins og flestir vita. Þarhefur Magnús Helgasonmyndlistarmaður þó oft og einatt fundið sitthvað sem fyrir hann er gulls ígildi. Jafnt í Reykjavík, Barcelona og Akureyri sem og á fleiri stöðum ef því er að skipta. Magnús heillaðist af nytjalist á námsárum sínum kringum aldamót- in í fjöltæknideildinni í AKI, listahá- skólanum í Enschede í Hollandi. Að vísu í óhefðbundnum skilningi hug- taksins því hann notar í málverk sín alls konar hluti af haugunum – og þá sem hann nær að fanga áður en þeir komast á áfangastað. Viðarplötur, gler, flísar og göm- ul húsgögn ganga meðal annars í endurnýjun lífdaga í verkum Magn- úsar. Svo leggst honum líka ýmislegt til úr náttúrunni. Og púslar öllu sam- an eftir því sem sköpunargáfan býður. „Blönduð tækni,“ útskýrir hann. „Í skólanum lærði ég einnig ljósmyndun, kvikmyndagerð með 8 og 16 mm tökuvélum og vann í nokk- ur ár fyrir hrun með Jóhanni Jó- hannssyni tónskáldi við að gera bak- grunna fyrir tónleika.“ Síðan Magnús lauk námi hefur hann að mestu leyti verið sjálfstætt starfandi listamaður með áherslu á málverkið. Þar til í fyrra var hann líka safnfulltrúi í hlutastarfi í Lista- safni ASÍ. „Þá kom ævintýraþráin yfir mig og konu mína, Þuríði Helgu Kristjánsdóttur, og við ákváðum að taka okkur upp frá Vesturbæ Reykjavíkur og flytjast með börnin okkar þrjú til Barcelona.“ Fann fegurðina í ruslinu í Barcelona Reykjavík, Barcelona, Akureyri. Magnús Helgason myndlistarmaður og fjölskylda hans hafa verið á faraldsfæti undanfarið. Viðarplötur, gler, flísar og gömul hús- gögn ganga í endurnýjun lífdaga í verkum hans. Í þeim efnum hljóp á snærið hjá honum í Barcelona, þar sem ruslagámarnir reyndust gjöfulli en bæði í Reykjavík og á Akureyri. Fjölskyldan Magnús og Þuríður Helga ásamt börnum sínum, Heklu Sól- veigu og tvíburunum Helga Hrafni og Ingunni Kríu Þóreyju. Geómetrísk form American Express nefnist þetta verk Magnúsar. Þema Sögu- hrings kvenna í haust eru lífs- sögur, þvert á tungumál, menningar- heima, kyn- slóðir og tján- ingarform. Sagðar eru sög- ur frá ólíkum tímum og stöðum og fjölbreyttum frásagnaraðferðum beitt. Virginia Gillard, leikkona, kennari og rithöfundur, leiðir októ- berstefnumót Söguhringsins kl. 12.30 - 15.30 í dag, laugardag 1. október, í Borgarbókasafninu á Spönginni. Söguhringur kvenna er sam- vinnuverkefni Borgarbókasafnsins og W.O.M.E.N. á Íslandi og að þessu sinni í samstarfi við Ós Pressuna, fjölmála skáldafélag á Íslandi, en Virginia Gillard, er einn af stofn- endum félagsins. Hún nálgast sög- urnar með leikrænum og mynd- rænum hætti, en teikningar, landakort og ýmiss konar orðasúpur koma við sögu í frásögnum hennar. Söguhringur kvenna er opinn öll- um konum sem vilja deila hug- myndum og njóta samvista í af- slöppuðu andrúmslofti. Vefsíðan www.borgarbokasafn.is Sögur Söguhringurinn er vettvangur fyrir konur sem vilja skiptast á sögum, segja frá reynslu sinni og fræðast um aðra menningarheima. Lifandi lífssögur á október- stefnumóti Söguhrings kvenna Virginia Gillard Í samstarfi við íslenska sauðfjár- bændur verður sláturtíðinni fagnað rækilega í KEX Hostel um helgina. Kl. 13 - 17 dag verður efnt til götumatar- hátíðar þar sem gestum og gangandi býðst að bragða á kunnuglegum og framandi réttum úr lambakjöti og innmat. Bjór og aðrir drykkir verða til sölu, en réttirnir eru ókeypis og born- ir fram í veislusalnum Gym & Tonik þar sem verður göldruð götumatar- stemning. „Við erum með fyrsta flokks hrá- efni á Íslandi. Við viljum sýna fólki að það er hægt að gera alls konar skemmtilega hluti við kjötið sem fell- ur til í sláturtíðinni og búa til svolitla matarhátíðarstemningu í kringum það,“ segir Böðvar Guðjónsson, við- burðastjóri hjá KEX. Á hverjum sunnudegi eru Heimilis- legir sunnudagar á KEX Hostel þar sem markhópurinn er barnafólk. Á morgun kl. 13 - 15 getur fólk kynnt sér sláturgerð. Öllum er frjálst að fylgjast með því hvernig maður hreinsar vambir, brytjar mör, saumar keppi og hrærir í blóðmör og lifrar- pylsu. Margrét Sigfúsdóttir, skóla- meistari Hússtjórnarskólans, leiðir sýnikennsluna. „Það eru margir af minni kynslóð sem hafa aldrei tekið slátur. En engu að síður er þetta hluti af okkar menn- ingu og það skiptir máli að þessari þekkingu sé haldið við,“ segir Böðvar. Þjóðlegir siðir í hávegum hafðir á KEX Hostel Sláturgerð og götumatarhátíð með lambakjöti og innmat Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Menningararfur Sláturgerð er hluti af menningu Íslendinga og mörgum þykir mikilvægt að halda þeirri þekkingu við. SKÚLPTÚR/SKÚLPTÚR er röð einka- sýninga í Gerðarsafni í Kópavogi sem kannar stöðu skúlptúrsins í íslenskri samtímalist. Lögð er áhersla á að kynna hugðarefni listamanna. Í dag kl. 15 verður sjónlýsing á sýningum Evu Ísleifsdóttur og Sindra Leifs- sonar. Sjónlýsingin er samin og flutt af Guðbjörgu H. Leaman og Þórunni Hjartardóttur, myndlistarmönnum og sjónlýsendum. Eva vinnur með ímynd listamanns- ins og listaverksins, en handverkið er líka til staðar. Hversdagurinn og sam- félagsrýni eru henni hugleikin. Verk Sindra vísa einnig í handverkið og í þeim koma umhverfi og samfélag gjarnan við sögu. Sjónlýsing er aðferð til að færa sjónrænar upplifanir í orð og gera þannig blindum og sjónskertum kleift að upplifa verk á nýjan hátt. Aðferðin býður upp á óvæntar leiðir í myndlæsi og túlkun. Sjónlýsingin er öllum opin og þátt- takendum að kostnaðarlausu. Gerðarsafn Sjónlýsing á skúlptúr Skúlptúr Íslensk samtímalist. Skannaðu kóðann til að lesa

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.