Morgunblaðið - 01.10.2016, Side 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2016
Viðhaldsfríar
hurðir
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Viðhaldsfríir sólskálar og svalalokanir
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í 30 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Yfir 40 litir í boði!
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Lauslega áætlað hækkar höfuðstóll
verðtryggðra lána sem tekin eru á
tímabilinu maí til nóvember á þessu
ári um 162 milljónir króna, að mati
Yngva Harðarsonar, framkvæmda-
stjóra Analytica.
„Fljótlega athugað þá sýnist mér
að verðtryggð lán sem tekin eru á
þessu tímabili geti orðið um 60 millj-
arðar króna. Án villunnar hefði mán-
aðarbreyting neysluvísitölunnar nú í
september verið 0,21% í stað 0,48%,
svo að mismunurinn er 0,27%. Þetta
þýðir að höfuðstóll þessara lána
hækkar um 162 milljónir króna,“
segir Yngvi og bendir jafnframt á að
slæmt sé að fá leiðréttinguna alla inn
í september.
„Réttast finnst mér að Hagstofan
myndi leiðrétta vísitöluna aftur í tím-
ann. Hvort það er hægt lagalega séð
er svo annað mál en þetta vekur þá
spurningu hvort ekki eigi að slíta í
sundur annars vegar lánskjaravísi-
töluna, þ.e. vísitölu neysluverðs til
verðtryggingar, og hins vegar vísi-
töluna sem notuð er til að mæla verð-
bólguna.“
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins hefur forsætisráðuneytið
óskað eftir greinargerð frá Hagstof-
unni vegna málsins, en stofnunin
heyrir beint undir forsætisráðherra.
Hagstofustjóri segir áhrifin lítil
Morgunblaðið hefur ekki náð tali
af Ólafi Hjálmarssyni hagstofustjóra
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Ólafur
sagði hins vegar í viðtali í hágdeg-
isfréttum Ríkisútvarpsins í gær að
lántakendur myndu nánast ekkert
finna fyrir leiðréttingu á neysluvísi-
tölunni. Dró hann úr áhrifum mis-
takanna og fullyrti að ekki hefði
skapast skaðabótaskylda vegna
þessa.
Kostnaður lántakenda nýrra lána
vegna mistaka Hagstofunnar er
væntanlega mismunandi en lauslega
má áætla að höfuðstóll 20 milljóna
króna láns hækki um 54 þúsund
krónur og 30 milljóna króna láns um
81 þúsund krónur.
Í fréttatilkynningu sem send var
út vegna málsins segir að Hagstof-
unni þyki miður að mistök hafi orðið
og reynt verði eftir fremsta megni að
koma í veg fyrir að slíkt endurtaki
sig. „Hagstofan fer yfir verklýsingar
er snúa að vísitölu neysluverðs og
mun taka verklag til endurskoðunar
í kjölfarið eins og þörf krefur,“ segir
í tilkynningunni.
Bera ekki ábyrgð á villunni
Haukur Örn Birgisson hæstarétt-
arlögmaður segir ólíklegt að lántak-
endur eða lánveitendur geti sótt
bætur til Hagstofunnar vegna mis-
takanna.
„Lánasamningar eru einkaréttar-
legir samningar milli lántakanda og
lánveitanda sem Hagstofa Íslands er
ekki aðili að, þó að aðilar komi sér
saman um að miða við vísitölu sem
birt er af Hagstofunni. Reynist vísi-
talan af einhverjum ástæðum röng
er engu að síður erfitt að sjá að
ábyrgð Hagstofunnar sé þannig að
hún leiði til skaðabótaskyldu fyrir
aðila lánasamnings. Slík skaðabóta-
skylda þyrfti að byggjast á lögum,“
segir Haukur og bendir á að hvorki í
lögum um Hagstofu Íslands né lög-
um um vexti og verðtryggingu sé
minnst á ábyrgð Hagstofunnar.
„Lántakendur geta farið með sín
mál til úrskurðarnefndar um við-
skipti við fjármálafyrirtæki, sem er
undir Fjármálaeftirlitinu, eða eftir
atvikum til dómstóla vegna ágrein-
ings við sinn lántakanda, en það er
alveg ótengt Hagstofunni.“
Höfuðstóllinn hækk-
ar um 162 milljónir
Forsætisráðuneytið kallar eftir greinargerð frá Hagstofunni
Morgunblaðið/Kristinn
Lán Þeir sem tóku og eiga eftir að taka verðtryggð lán á tímabilinu maí til
nóvember á þessu ári bera væntanlega kostnað af mistökum Hagstofunnar.
Hagstofumistökin
» Lántakendur nýrra lána
gætu þurft að taka á sig höfuð-
stólshækkun vegna málsins.
» Hagstofan er væntanlega
ekki skaðabótaskyld vegna vill-
unnar í neysluvísitölunni.
» Hagstofustjóri dregur úr af-
leiðingum mistakanna í sam-
talið við Ríkisútvarpið.
Úrvalsvísitala Kaupallarinnar lækk-
aði um 3,05% í gær og féll gengi
hlutabréfa allra fyrirtækja á Aðal-
markaði. Alls nam veltan á markaðn-
um tæplega 4 milljörðum króna.
Hlutabréf í Icelandair Group og
Marel lækkuðu hvað mest. Þannig
lækkuðu bréf Icelandair Group um
4,89% í 1,3 milljarða króna viðskipt-
um og hlutabréf í Marel lækkuðu um
4,24% í 360 milljóna króna viðskipt-
um. Auk þess féllu hlutabréf í Ný-
herja og fasteignafélögunum Regin
og Reitum um meira en 2%.
Ekki eru einhlítar skýringar á
lækkuninni í gær, að mati Gústavs
Gústavssonar hjá eignastýringu
Landsbankans. Á bak við lækkunina
í Icelandair Group virðast vera mörg
smáviðskipti frá einstaklingum með
litla hluti, að hans sögn, og lítur út
fyrir að slíkir einstaklingar hafi mest
verið á söluhliðinni. Á kauphliðinni
hafi verið lífeyrissjóðir sem hugsan-
lega hafi séð tækifæri í lækkunun-
um. Hins vegar voru engar fréttir í
gær sem hefðu átt að hreyfa svona
við markaðnum, að mati Gústavs.
Þess má geta að í tilkynningu til
Kauphallar í gærmorgun var greint
frá því að stjórnarmaður í Icelandair
Group, Katrín Olga Jóhannesdóttir,
hefði selt hluti fyrir 9,6 milljónir
króna að markaðsvirði í félaginu. Í
samtali við vb.is í gær kom fram að
Katrín hefði selt hlutina til þess að
fjármagna byggingu sumarbústaðar.
Síðastliðna sex mánuði hefur úr-
valsvísitalan lækkað um 10,76%.
Heildarlækkun vísitölunnar frá ára-
mótum nemur nú 12,44%.
olafur@mbl.is
Skörp lækkun í Kauphöll
Úrvalsvísitalan féll um 3,05% í gær og hefur lækkað um
rúm 12% frá áramótum Icelandair og Marel lækkuðu mest
Morgunblaðið/Kristinn
Kauphöllin Miklar lækkanir hafa verið á hlutabréfamarkaði frá áramótum.
● Greiningardeildir viðskiptabankanna
þriggja spá því allar að peninga-
stefnunefnd Seðlabankans muni halda
stýrivöxtum óbreyttum, en tilkynnt
verður um næstu vaxtaákvörðun á mið-
vikudaginn kemur. Íslandsbanki hafði
fyrir birtingu neysluvísitölu í vikunni
gert ráð fyrir 0,25% lækkun stýrivaxta,
en leiðrétting Hagstofunnar vegna fyrri
mistaka við útreikning vísitölunnar
breytti því. Sama á við um Arion banka
sem taldi þróun verðbólguvæntinga
gefa tilefni til lækkunar vaxta þar til
skekkjan í vísitölunni kom í ljós.
Greiningardeildir spá
óbreyttum stýrivöxtum
● Tilkynnt var í
gær að Guðjón
Rúnarsson hefði
látið af störfum
sem framkvæmda-
stjóri Samtaka
fjármálafyrir-
tækja, SFF. Starfið
er auglýst laust til
umsóknar í blaðinu
í dag en Björk
Guðnadóttir, lög-
fræðingur SFF, mun sinna málefna-
vinnu SFF þangað til nýr framkvæmda-
stjóri verður ráðinn.
Guðjón hefur verið framkvæmda-
stjóri SFF frá stofnun samtakanna í
nóvember 2006 þegar Samtök banka
og verðbréfafyrirtækja sameinuðust
Sambandi íslenskra tryggingafélaga.
Áður var Guðjón framkvæmdastjóri
Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja.
Hann mun verða samtökunum innan
handar fyrst um sinn, að því er fram
kemur í frétt á vefsíðu SFF.
Guðjón
Rúnarsson
Lætur af starfi fram-
kvæmdastjóra SFF
STUTT
1. október 2016
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 114.17 114.71 114.44
Sterlingspund 148.08 148.8 148.44
Kanadadalur 86.7 87.2 86.95
Dönsk króna 17.112 17.212 17.162
Norsk króna 14.179 14.263 14.221
Sænsk króna 13.246 13.324 13.285
Svissn. franki 117.19 117.85 117.52
Japanskt jen 1.1284 1.135 1.1317
SDR 159.32 160.26 159.79
Evra 127.52 128.24 127.88
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 158.8477
Hrávöruverð
Gull 1327.9 ($/únsa)
Ál 1653.0 ($/tonn) LME
Hráolía 48.87 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á