Morgunblaðið - 08.10.2016, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 08.10.2016, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2016 Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is 85% þeirra sjúklinga sem farið hafa í magahjáveituaðgerðir á Íslandi hafa náð fullnægjandi þyngdartapi sam- kvæmt nið- urstöðum rann- sóknar sem kynnt hefur verið í Læknablaðinu. „Það er afar mik- ilvægt að fá nið- urstöður úr þess- ari rannsókn, því með þessu getum við sýnt okkar sjúklingum fram á það hve hátt hlut- fall þeirra sem fara í aðgerðina fá viðunandi árangur,“ segir Rósa- munda Þórarinsdóttir, 1. höfundur að rannsókninni sem hún fram- kvæmdi ásamt kærasta sínum, Vil- hjálmi Pálmasyni, en undir leiðsögn Björns Geirs Leifssonar og Hjartar Gíslasonar, skurðlækna á LSH. Rósamunda er á fjórða ári í lækna- námi við HÍ en Vilhjálmur er á 5. ári. Konur í miklum meirihluta Rannsóknin tók til 772 magahjá- veituaðgerða sem framkvæmdar voru á árunum 2001-2015 á Íslandi. Byggjast niðurstöðurnar á eft- irfylgni með árangri 702 sjúklinga, eða 91% þeirra sem fóru í aðgerð á tímabilinu. Ásættanlegt þyngdartap var skilgreint sem svo að missa yfir 50% af umframþynd, þ.e. 50% af þeirri þyngd sem er yfir 25 í BMI- þyngdarstuðul eða að komast undir 33 í BMI-stuðul. Stuðullinn er í gróf- um dráttum reiknaður sem þyngd miðað við hæð viðkomandi. Fram kemur að meðalaldur þeirra sem fóru í slíkar aðgerðir er 41 ár en athygli vekur að konur fóru í aðgerð í 83% tilfella. Rósamunda segir að ekki sé gott fyrir sig að geta sér til um ástæður þess hví konur eru í svo miklum meirihluta þeirra sem fara í aðgerð, slíkt gæti verið viðfangsefni annarrar rannsóknar. Að meðaltali voru sjúklingar með 2,8 fylgisjúkdóma offitu fyrir aðgerð en fjöldi sjúkdóma er tengdur offitu með einum eða öðrum hætti. Al- gengir fylgisjúkdómar eru t.a.m. sykursýki af tegund tvö, of hár blóð- þrýstingur og blóðfituraskanir. Til að mynda voru 80 þeirra sjúklinga sem fóru í aðgeðina með sykursýki af tegund 2. 71% þeirra fór í fullt sjúkdómshlé eftir aðgerð. Rúmlega þriðjungur sjúklinga með of háan blóðþrýsting eða blóðfituraskanir varð lyfjalaus eftir aðgerð. Fram kemur í greininni að sýnt hafi verið fram á að offituaðgerðir séu eina meðferðarúrræðið sem stuðlar að langvarandi þyngdartapi, bættu ástandi fylgisjúkdóma og betri lifun sjúklinga með sjúklega offitu. Þá kemur fram að á Íslandi sé nú um fimmtungur fullorðinna of feitur. Þyngdartap viðunandi í 85% til- vika eftir magahjáveituaðgerð  Konur í magahjáveituaðgerð 83% tilfella  Fimmtungur fullorðinna of feitur Rósamunda Þórarinsdóttir Morgunblaðið/ÞÖK Skurðtól 772 magahjáveituaðgerð- ir voru framkvæmdar 2001-2015. Útlendingastofnun hefur áform um að auka við mótttöku hælisleitenda á Bifröst í Borgarfirði í stað þess að leggja hana af í lok september, eins og tilkynnt hafði verið. Byrjað var að vista hælisleitendur þar í byrjun júlí. Byggðaráð Borgarbyggðar átelur að ekki skuli hafa verið haft formlegt samband við sveitarfélag- ið fyrr en nú, vegna þessa máls. Fram kemur í bókun byggðaráðs að á Bifröst verði komið fyrir barn- lausu fólki og hraustu sem ekki muni þurfa á þjónustu sveitarfé- lagsins að halda. Töluvert lítið not- að húsnæði er á Bifröst, á há- skólalóðinni. Byggðaráð leggur áherslu á að gengið verði frá samningum um endurgreiðslu kostnaðar vegna þessa verkefnis, ef um slíkt verður að ræða, og felur embættismönnum að semja um það við hlutaðeigandi stofnanir. Morgunblaðið/Árni Sæberg Bifröst Séð yfir háskólasvæðið. Hælisleit- endur vist- aðir á Bifröst  Sveitarstjórn ekki tilkynnt um málið Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Fyrir liggur jákvæð afstaða og samþykktir stjórn- ar Björgunar ehf. og stjórnar Faxaflóahafna sf. um að fullgera samninga um rýmingu Björgunar af lóðinni Sævarhöfða 33. Þetta var kynnt á fundi stjórnar Faxaflóahafna í gær. Samkvæmt samkomulaginu fær Björgun að vera með starfsemi á svæðinu fram í maí árið 2019. Þar er m.a. geymt byggingarefni sem skip félags- ins dæla af hafsbotni. Íbúar í Bryggjuhverfi hafa þrýst á það í mörg ár að starfsemi fyrirtækisins verði flutti af svæðinu, enda hafi sandurinn fokið yfir hverfið. Fram kemur í minnisblaði Gísla Gíslasonar hafnarstjóra að samningarnir byggjast á því að leysa úr áratuga löngum ágreiningi um gildi samn- inga frá árunum 1968 og 1994 og fleiri atriði. Efn- isatriði samninganna séu í meginatriðum án ágreinings milli aðila, en unnið sé að frágangi orðalags og verklýsingu. Höfnin kaupir húseignir og laust efni Í samningunum felst að Faxaflóahafnir sf. kaupa þrjár húseignir, sem eru á lóðinni, af Björg- un ehf., alls liðlega 1.600 fermetrar, á 195 milljónir króna. Faxaflóahafnir kaupa laust efni á lóð Björgunar ehf., alls 236.000 rúmmetra, enda nýt- ist það efni í 1. áfanga landfyllingar utan Sævar- höfða og farghauga. Kaupverð er alls 145 millj- ónir. Björgun mun svo annast gerð 25.000 fermetra landfyllingar sem 1. áfanga landfyllinga sam- kvæmt aðalskipulagi. Kostnaður samkvæmt verk- samningi þar að lútandi er 151 milljón. Verklok eru miðuð við lok árs 2019. Alls fela samningar við Björgun í sér útgjöld að fjárhæð um 553 milljónir króna fyrir Faxaflóa- hafnir, sem skiptast að stærstum hluta á árin 2016 og 2017 vegna húsakaupa og efniskaupa. Í fyrirliggjandi drögum að samningum er ekk- ert fjallað um hugsanlega framtíðarstarfsaðstöðu Björgunar. Faxaflóahafnir höfðu boðið fram svæði á Grundartanga undir starfsemina, sem ekki þótti álitlegt af hálfu Björgunar. „Að samningum gerðum er ágreiningur Faxa- flóahafna sf. og Björgunar ehf. að fullu leystur og ljóst að unnt verður að hefja viðræður borgar og hafnar um sölu/kaup lands að Sævarhöfða,“ segir í minnisblaði Gísla Gíslasonar hafnarstjóra. Morgunblaðið/RAX Björgun mun hverfa af Sævarhöfða árið 2019 Sævarhöfði Á athafnasvæði Björgunar er sandur og möl sem skip fyrirtækisins dæla upp af hafsbotni í Faxaflóa. Íbúar hafa kvartað yfir sandroki.  Áratuga löngum ágreiningi lýkur með samningi  Björgun annast landfyllingu Höfði Friðarsetur Reykjavíkur- borgar og Háskóla Íslands var form- lega opnað í gær. Dagur B. Eggerts- son borgarstjóri og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Ís- lands, skrifuðu undir stofnsamning í Höfða í gærmorgun. Strax í dag verður svo haldin ráðstefna á friðar- setrinu til að minnast þess að 30 ár eru síðan Ronald Reagan og Mikhail Gorbachev héldu hér leiðtogafund. vidar@mbl.is Höfði Friðarsetur var opnað í gær. 30 ár frá fundinum Um 60 fasteignir í Borgarbyggð sem notaðar eru sem leiguhúsnæði í atvinnuskyni, til dæmis skamm- tímaleiga fyrir ferðafólk, eru skráðar sem íbúðarhúsnæði í fast- eignamati. Sveitarfélagið er að breyta skráningunni. Við það hækka fasteignagjöld eigendanna. Upplýsingarnar voru teknar saman í sumar. Eftir að viðkomandi húseigendum hafði verið gert við- vart og gefið tækifæri til at- hugasemda var skráningunni breytt, samkvæmt upplýsingum fjármálastjóra Borgarbyggðar, og viðbótargjöldin innheimt. Þegar skráning breytist úr íbúð- arhúsnæði í atvinnuhúsnæði hækk- ar fasteignaskatturinn úr 0,49% af fasteignamati í 1,65%. Þetta er talið geta skilað 7,5 milljóna króna við- bótartekjum í sveitarsjóð á einu ári. Breyta skráningu 60 eigna í Borgarbyggð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.