Morgunblaðið - 08.10.2016, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 08.10.2016, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2016 Ráðgjöf og þjálfun nolta.is Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Vitað er um meira en 800 manns sem létu lífið af völdum fellibylsins Matthews á Haítí og talið er að enn fleiri hafi farist, að sögn embættis- manna í landinu í gær. Fellibylurinn kom að strönd Flórída en fyrstu fregnir bentu til þess að hann hefði ekki valdið eins miklu tjóni í suður- hluta ríkisins og óttast hafði verið. Fellibylurinn olli mestu tjóni í suðvesturhluta Haítí. Fregnir hermdu að 30.000 hús hefðu eyði- lagst í Sud-héraði og um 80% húsa í bænum Jérémie sem er með um 31.000 íbúa. Í þremur nálægum bæj- um fórust tugir manna, að sögn fréttaveitunnar Reuters. Hún hafði eftir yfirvöldum í einum þeirra, Chantal, að 86 manns hefðu látið líf- ið þar og tuttugu til viðbótar væri saknað. Skortur á matvælum Fréttaveitan AFP hafði eftir at- kvæðamiklum þingmanni í Sud-hér- aði að talið væri að tala látinna hækkaði vegna þess að björgunar- sveitir hefðu ekki enn komist til nokkurra bæja og þorpa sem ein- angruðust og eru án símasambands. Yfirmaður Matvælaáætlunar Sam- einuðu þjóðanna á Haítí sagði að það gæti tekið allt að fimm daga að afla nákvæmra upplýsinga um mann- tjónið og eyðilegginguna. Rafmagnslaust er víða á hamfara- svæðunum og íbúarnir eru að verða uppiskroppa með matvæli og drykkjarvatn. Erfiðlega hefur geng- ið að koma hjálpargögnum til bæja sem einangruðust vegna þess að mikilvæg brú hrundi í hamförunum. Miklir vatnavextir vegna úrhellis, sem fylgdi fellibylnum, hafa einnig torveldað hjálparstarfið. Óttast að kólerufaraldur færist í aukana Varnarmálaráðuneyti Bandaríkj- anna sagðist hafa sent herskip, níu þyrlur og 550 hermenn til að taka þátt í hjálparstarfinu á Haítí. Fleiri bandarísk herskip, meðal annars flugmóðurskip, eru í grennd við landið og hugsanlegt er að þau verði einnig send þangað. Embættismenn Sameinuðu þjóð- anna sögðu að vitað væri um 350.000 manns sem þyrftu á aðstoð að halda vegna náttúruhamfaranna. Frétta- vefur BBC hafði eftir talsmanni am- eríska Rauða krossins að hjálpar- stofnanir hefðu mestar áhyggjur af því að hamfarirnar yrðu til þess að kólerufaraldur í landinu færðist í aukana. Faraldurinn hófst eftir jarð- skjálfta á Haítí í janúar 2010 sem talið er að hafi kostað rúmlega 250.000 manns lífið. Að minnsta kosti 7.000 manns hafa dáið í kól- erufaraldrinum, að sögn ríkisstjórn- ar landsins. Haítí er eitt af fátækustu löndum heims og rúmur helmingur íbúa borganna býr í hreysum sem þola ekki öfluga jarðskjálfta og fellibylji. Mikil skógareyðing hefur valdið jarðvegsrofi sem hefur orðið til þess að mörg hreysanna eru berskjölduð fyrir slíkum óveðrum. Að minnsta kosti fjórir menn létu lífið í Dóminíska lýðveldinu af völd- um fellibylsins sem gekk einnig yfir Kúbu, Jamaíka og Bahamaeyjar en olli ekki manntjóni þar. Milljónum sagt að fara af strandsvæðunum Vindhraðinn mældist um 54 m/s þegar óveðrið kom að strönd Flórída í gær og yfirvöld höfðu mestar áhyggjur af miklum sjógangi af völdum bylsins. Um 600.000 heimili voru rafmagnslaus í ríkinu. Um þrjár milljónir manna höfðu fengið fyrirmæli um að forða sér af hættusvæðunum í borgum á borð við Jacksonville í Flórída og Savannah í Georgíuríki. Um 22.000 manns dvöldu í neyðarskýlum á vegum yfir- valda í Flórída í fyrrinótt. Að minnsta kosti fjögur dauðsföll voru rakin til fellibylsins í Flórída, samkvæmt fréttum CNN. Þeirra á meðal var kona, sem dó af völdum hjartaáfalls eftir að bráðaliðum tókst ekki að koma henni til hjálpar vegna óveðursins. Talið var að fellibylurinn færi að strönd Suður-Karólínu og um 310.000 höfðu í gær orðið við fyrir- mælum yfirvalda í ríkinu um að forða sér af strandsvæðunum. Hundruð fórust á Haítí  Um 350.000 manns þurfa á hjálp að halda á Haítí vegna fellibylsins Matthew sem olli miklu tjóni  600.000 heimili án rafmagns í Flórída og þrjár milljónir manna þurftu að forða sér af hættusvæðunum AFP Eyðilegging Fellibylurinn olli miklu tjóni í bænum Jérémie á Haítí. Hermt er að 80% húsanna hafi eyðilagst. Fellibylurinn Matthew Heimildir: Bandaríska veðurstofan, NWS, fellibyljastofnunin NHC ogWeather Channel ATLANTSHAF FLÓRÍDA GEORGÍA SUÐUR- KARÓLÍNA NORÐUR- KARÓLÍNA Í dag Á morgun Á þriðjudag Á mánudag Í gær Á miðnætti í fyrrinótt Í gær kl. 18 að ísl. tíma BAHAMAEYJAR HAÍTÍ DÓMINÍSKA LÝÐVELDIð JAMAÍKA BANDARÍKIN Svæði sem fellibylurinn gæti farið um Viðvaranir yfirvalda Hætta Varúð Vindhraði KÚBA > 49 m/s 33-49 m/s 18-33 m/s Miami Jacksonville 200 km Leið fellibylsins Mannskæðustu fellibyljirnir vestanhafs 1998 Mitch Mið-Ameríka Dauðsföll: Rúm 9.000 Hanna Haítí A.m.k. 500 Jeanne Haítí Rúm 3.000 Ingrid og Manuel Mexíkó 157 Katrína Bandaríkin 1.800 Sandy Bandaríkin, Kúba, Haítí 260 2004 2013 20052012 2008 1 6 2 4 5 5 3 1 3 4 5 6 2 Freital. AFP. | Bjórflösku var kastað að einum flóttamannanna í lest. Annar var vakinn um miðja nótt þegar þrír menn, vopnaðir bar- eflum, hringdu dyrabjöllunni. Kona úr röðum flóttafólksins varð fyrir árás ókunnugs manns sem reif slæðu af henni þegar hún varð á vegi hans á götu. Ári eftir að fólkið flúði til Þýska- lands vegna stríðsins í Sýrlandi segjast sumir flóttamannanna hafa sætt svo miklu hatri að þeir hug- leiði nú alvarlega að forða sér. Fólkið dvelur í Saxlandi í austan- verðu Þýskalandi þar sem öfga- hreyfingin PEGIDA var stofnuð og hatursglæpum gegn flóttamönnum hefur fjölgað síðustu misseri. Árás- um á hælisleitendur í Saxlandi, meðal annars íkveikjuárásum á gistiheimili flóttafólks, fjölgaði úr 235 árið 2014 í 784 í fyrra. „Það er of ógnvekjandi að vera hérna,“ segir Fares Kassas, sem varð fyrir árásinni í lestinni. „Maðurinn kastaði flöskunni þegar dyrnar voru að lokast og lestin fór af stað. Ég gat ekkert gert,“ segir Kassas og bætir við að hann íhugi nú að flytjast til Tyrklands þótt hann hafi fengið hæli í Þýskalandi. „Við drepum ykkur“ Annar flóttamaður, Mohammed Alkhodari, komst undan hópi manna sem ógnuðu honum á götu og segist núna reyna að komast hjá því að vera úti við eftir klukkan sex eftir hádegi. „Ég finn fyrir svo mik- illi streitu að ég þjáist af maga- verkjum.“ Þorpið Clausnitz í Saxlandi komst í fréttirnar í febrúar þegar æstur múgur réðst á rútu sem flutti Flóttafólk í Saxlandi íhugar að flýja hatrið  Árásum fjölgar  „Það er of ógnvekjandi að vera hérna“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.