Morgunblaðið - 08.10.2016, Qupperneq 29
Huginn og TR berj-
ast um sigurinn á Ís-
landsmóti skákfélaga
Huginn hefur forystu eftirfyrri hluta Íslandsmótsskákfélaga sem fram fórí Rimaskóla um síðustu
helgi. Tíu lið eru í efstu deild og er
staðan á toppnum þessi: 1. Huginn
30 ½ v.(af 40) 2. TR 28 v. 3. Fjölnir
22 v. 4. Víkingaklúbbur 21 v. 5. TB
19 v.
Taflfélag Garðabæjar og b-sveit
Skákfélags Akureyrar leiða 2. deild,
í 3. deild er Skákfélag Selfoss í efsta
sæti og í 4. deild leiðir b-sveit Vík-
ingaklúbbsins.
Nokkrir kunnir meistarar náðu
frábærum árangri um helgina, t.d.
félagarnir úr TR, Bragi Þorfinnsson
sem skilaði 4 ½ vinningi á 1. borði og
Guðmundur Kjartansson á 2. borði
með 4 vinninga. Hrannar Bald-
ursson vann fjórar skákir fyrir skák-
deild KR og Halldór Brynjar Hall-
dórsson náði góðum úrslitum gegn
stigahærri andstæðingum. Grein-
argott yfirlit og tölfræði ýmsa má
finna á skak.is.
Viðburðarík keppni Hugins og
Fjölnis
Skákdeild Fjölnis er á hraðri upp-
leið þessi misserin. „Rima-
skóladrengirnir“ Dagur Ragn-
arsson, Oliver Aron Jóhannesson og
Jón Trausti Harðarson, fengu 2 ½
vinning í sögulegri viðureign Fjölnis
og Hugins í fimmtu umferð. Dagur,
var hvergi banginn þegar Hannes
bauð honum jafntefli á 4. borði, hafn-
aði og lagði síðan stómeistarann með
eftirfarandi fléttu:
Hannes Hlífar – Dagur
26. … Rf4+! 27. gxf4 exf4
– og Hannes gafst upp, 28. Hxe8
er svarað með 28. .. f3+!
Í þessari sömu umferð samdi Jón
L. Árnason fljótlega jafntefli fyrir
Bolvíkinga á 2. borði, gerði stuttan
stans í skáksalnum og sá í sviphend-
ingu að allt stefndi í söguleg úrslit
milli Fjölnis og Hugins; Hannes
Hlífar var búinn að tapa, greinarhöf-
undur var með tapað tafl gegn Hol-
lendingnum Ris og Hjörvar í basli
með Oliver Aron. Jón fylgdist svo
með einstökum úrslitum á netinu
heima hjá sér. Og þá birtist á skján-
um að sá hollenski hefði beðið lægri
hlut. Jón var ekki trúaður á að slíkt
gæti hafa gerst og að hætti Njáls á
Bergþórshvoli endurræsti i hann
heimasíðu mótsins eigi sjaldnar en
þrisvar sinnum: alltaf sama nið-
urstaðan og ekkert annað í stöðunni
en að hringja í greinarhöfund og
spyrja tíðinda. Á afmælismóti TV á
dögunum gekk mér bærilega að fást
við vígreifar drottningar. Það sama
varð uppá teningnum í þessari við-
ureign:
Helgi Ólafsson (Huginn) – Robert
Ris (Fjölnir)
Slavnesk vörn
1. c4 e6 2. Rc3 d5 3. d4 c6 4. e3
Rf6 5. Rf3 Rbd7 6. Be2 Bd6 7. b3
O-O 8. O-O b6 9. Bb2 Bb7 10. Dc2
Hc8 11. Hac1 c5 12. cxd5 cxd4 13.
Rxd4 Rxd5 14. Dd2 Rxc3 15. Bxc3
Rf6 16. Bb2 Re4 17. Hxc8?
Morgunumferðir virðast kalla á
svona yfirsjónir. Ég vildi forðast 17.
Dd3 Hxc1 18. Bxc1 – en ekki 18.
Hxc1 Bxh2+. Samt féll ég í þennan
pytt!
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Gunnar Björnsson
Viðureign Hugins og Fjölnis í fullum gangi.
17. … Bxh2+! 18. Kxh2 Dh4+ 19.
Kg1 Rxd2 20. Hxf8+ Kxf8 21. Hc1
Hvíta staðan er auðvitað gjörtöp-
uð en með því að halda nokkrum
trompum geta opnast óvæntir
möguleikar.
21. … Re4 22. f3 Df2+ 23. Kh2
Dg3+ 24. Kg1 Rg5 25. Kf1 h5 26.
Hd1 h4?
Tapleikurinn.
27. Rf5!
Hvað er þetta?
27. … exf5
Ekki 27. … Dc7 28. Be5! Dc8 29.
Bxg7+ og drottningin fellur. Eini
leikurinn var 27. … Db8 þó hvítur
eigi betri færi eftir 28. Be5! Da8 29.
Bxg7+ Kg8 30. Bf6! o.s.frv.
28. Ba3+ Kg8 29. Bd6!
Drottningin á engan reit!
29. .. Bxf3 30. Bxf3
– og Ris gafst upp. Það sá undir
iljar hans á leið út úr skáksalnum.
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2016
TORMEK Brýnsluvélar
▲ Tormek T-4 er uppfærsla á T-3
og er nú kominn með málmhaus
sem eykur nákvæmni um 300%
Fylgihlutir sjást á mynd.
Verð: 54.200
▼ Tormek T-7 er hannaður fyrir
látlausa notkun og mikil afköst.
Fylgihlutir sjást á mynd.
Nokkur stykki til á þessu
frábæra tilboðsverði 88.600
▼ Tormek T-8 er uppfærsla á T-7
og er nú kominn með málmhaus
sem eykur nákvæmni.
Verð: 98.700
Allar stýringar fyrirliggjandi
Verslunin Brynja er umboðs-
aðili TORMEK á Íslandi
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | verslun@brynja.is | brynja.is
Opið
virk
a
dag
a frá
9-18
lau
frá 1
0-16
SVX-150:
Skærastýring
Verð 5.780
SVD-185:
Stýring fyrir tréskurðar- og rennijárn
Verð 11.765
SVM-140:
Hnífastýring
Verð 5.980
SVM-00:
Stýring fyrir tálguhnífa
Verð 4.175
Atvinnublað
alla laugardaga
Sendu pöntun á augl@mbl.is eða
hafðu samband í síma 569-1100
Allar auglýsingar birtast bæði í
Mogganum og ámbl.is
ER ATVINNUAUGLÝSINGIN
ÞÍN Á BESTA STAÐ?