Morgunblaðið - 08.10.2016, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 08.10.2016, Qupperneq 32
32 MESSUR Á MORGUN Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2016 AKUREYRARKIRKJA | Geðveik messa kl. 11 í tilefni alþjóðlega geð- heilbrigðisdagsins. Fjölbreyttur tónlist- arflutningur, reynslusaga og hugvekja. Prestur er sr. Svavar Alfreð Jónsson. Sunnudagaskóli í Safnaðarheimilinu kl. 11. Umsjón hafa sr. Sunna Dóra Möller og Sólveig Anna Aradóttir. Bleik messa kl. 20. Kristinn Hreins- son, framkvæmdastjóri Rafeyrar, flytur hugleiðingu. Lára Sóley og Hjalti flytja tónlist Bergþóru Árnadóttur. Prestur er sr. Hildur Eir Bolladóttir. AKURINN kristið samfélag | Sam- koma í Núpalind 1 þann 9. október kl. 14. Biblíufræðsla, söngur og bæn. Kaffi í lokin. ÁRBÆJARKIRKJA | Fjölskylduguðs- þjónusta kl. 11. Brúðuleikhús, söngur og gleði. Million Shiferaw og Ahmed Nur Abib frá Eþíópíu koma í heimsókn og kynna vatnsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar. Prestur er sr. Þór Hauksson ásamt Ingunni Björk Jónsdóttur, djákna. Undirleikur Benjamín Gísli Ein- arsson. Fermingarbörn sérstaklega boðin til guðsþjónustunnar. ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Kristný Rós Gústafsdóttir djákni og Benjamín Hrafn Böðvarsson guð- fræðinemi annast samverustund sunnudagaskólans. Séra Birgir Ás- geirsson, fyrrverandi prófastur, prédik- ar og þjónar fyrir altari. Kammerkór Ás- kirkju syngur. Organisti er Magnús Ragnarsson. Kaffisopi eftir messu og meðlæti í boði fermingarbarna kom- andi vors. ÁSTJARNARKIRKJA | Messa kl. 11. Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar. Prestur er sr. Kjartan Jónsson. Sunnudagaskóli á sama tíma undir stjórn Hólmfríðar S. Jónsdóttur. Hressing og samfélag á eftir messu. BORGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Organisti er Steinunn Árnadóttir. Prestur er Páll Ágúst Ólafsson. BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa með fornu ívafi kl. 11. Prestur sr. Bryndís Malla Elídóttir. Kór kirkjunnar syngur stjórnandi er Örn Magnússon. For- söngvarar eru úr hópi kórfélaga. Bein útsending frá messunni verður í Rík- isútvarpinu. Sunnudagaskóli kl. 11 í safnaðarheim- ili. Ensk messa kl. 14. Prestur er sr. Toshiki Toma, organisti er Örn Magn- ússon. BÚSTAÐAKIRKJA | Listahátíð barnanna. Dagurinn er helgaður börn- um og þeirra fjölskyldum og hefst kl. 11 þar sem yngri barnakór kirkjunnar syngur. Síðan verður föndur og hress- ing í safnaðarheimilinu. Örn Árnason, afi, kemur í heimsókn kl. 13. Eldri barnakór syngur og ungmenni spila á hljóðfæri kl. 14. Hressing í safn- aðarheimili. DIGRANESKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Prestur Gunnar Sigurjónsson. Organisti er Bjartur Logi Guðnason. Söngvinir, kór eldri borgara í Kópavogi, syngja. Súpa í safnaðarsal að messu lokinni. Dómkirkja Krists konungs, Landa- koti | Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30 á íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku. Virka daga kl. 18 og má. mi. og fö. kl. 8, lau. kl. 16 á spænsku og kl. 18 er messa á ís- lensku. DÓMKIRKJAN | Slökkviliðsmessa kl. 11. Tilefnið er 220 ára afmæli kirkj- unnar, en skrúðhús hennar var fyrsta slökkvistöð Reykjavíkur. Af þessu til- efni er boðið til guðsþjónustu með þátttöku slökkviliðs- og sjúkraflutn- ingamanna. Fulltrúar þeirra munu lesa texta. Karl Sigurbjörnsson prédikar, Dómkórinn, organisti er Kári Þormar. Kjartan Örn Styrkársson spilar á tromp- et. Sunnudagaskólinn á kirkjuloftinu. Gamlir slökkvibílar verða til sýnis við kirkjuna og Kirkjunefnd kvenna býður til messukaffis . FELLA- og Hólakirkja | Messa kl. 11. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson predikar og þjónar. Kirkjukórinn syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Sunnudagaskólinn á sama tíma. Um- sjón Pétur og félagar. Kaffisopi og djús eftir stundina. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnu- dagaskóli kl. 11. Hljómsveit kirkjunnar leiðir sönginn. Guðsþjónusta kl.14. Kór og hljómsveit kirkjunnar leiðir sönginn undir stjórn Arnar Arnarsonar, organisti er Skarphéðinn Þór Hjart- arson og bassaleikari er Guðmundur Pálsson. Krílakórinn kemur líka fram og syngur undir stjórn Kirstínar Ernu Blöndal. Að lokinni guðsþjónustu hefst kaffisala Kvenfélagsins í safn- aðarheimilinu. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Kvöld- messa kl. 20. Sönghópurinn við Tjörn- ina og Fríkirkjubandið ásamt Erni Arn- arsyni gítarleikara, flytja tónlist. Stundin er í umsjón sr. Hjartar Magna Jóhannssonar. ATH. engin guðsþjónusta verður kl. 14 þennan dag. GLERÁRKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Guðmundur Guðmundsson þjónar. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Val- mars Väljaots. GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjón- usta kl. 11. Séra Arna Ýrr Sigurð- ardóttir prédikar, séra Guðrún Karls Helgudóttir þjónar fyrir altari. Kór kirkj- unnar og Vox Populi syngja. Organisti er Hákon Leifsson. Stjórnandi Vox Po- puli er Hilmar Örn Agnarsson. Sunnu- dagaskóli kl. 11. Umsjón hafa séra Sigurður Grétar Helgason og Þór Björg Sigurðardóttir guðfræðinemi. Undirleikari er Stefán Birkisson. GRAFARVOGUR - kirkjuselið í Spöng | Djazzmessa kl. 13. Dr. Sig- urjón Árni Eyjólfsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Sigurði Grétari Helgasyni. Dr. Sigurjón Árni leikur á saxófón. Sunnudagaskóli á sama tíma. Umsjón hefur Matthías Guð- mundsson. Undirleikari er Stefán Birki- sson. GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl. 10 og bænastund kl. 10.15. Barna- starf kl. 11 . Umsjón hafa Silvía, Ásta Lóa o.fl. Öll börn velkomin. Messa kl. 11. Altarisganga. Samskot í líknarsjóð. Messuhópur þjónar. Kór frá Domus vox syngur, skólastjóri er Margrét J. Pálma- dóttir. Organisti er Ásta Haraldsdóttir. Prestur sr. Ólafur Jóhannsson. Mola- sopi eftir messu. Hversdagsmessa með léttu sniði á fimmtudag kl. 18.10- 18.50. Þorvaldur Halldórsson sér um tónlist. GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Guðsþjónusta og barnastarf kl. 11. Prestur sr. Skírnir Garðarsson, org- anisti er Hrönn Helgadóttir og kór Guð- ríðarkirkju syngur. Barn verður skírt í messunni. Sunnudagaskólinn, umsjónarmenn Sigurður og Andrea Ösp. Hvetjum ferm- ingarbörn og foreldra þeirra að koma í messu. Kirkjuvörður er Lovísa Guð- mundsdóttir og meðhjálpari er Guðný Aradóttir. Kaffisopi eftir messu HAFNARFJARÐARKIRKJA | Fjöl- skylduguðsþjónusta kl. 11. Barnakór kirkjunnar syngur undir stjórn Helgu og Önnu. Sunnudagskólinn tekur þátt í stundinni allan tímann ásamt með Erlu Björgu og Hjördísi Rós. Stundin verður töluvert sniðin að þörfum hinna yngri. Kaffisopi og djús eftir stundina. HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sr. Irma Sjöfn Ósk- arsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Félagar í Mót- ettukórnum syngja, organisti er Hörður Áskelsson, molasopi eftir messu. Bænastund mánudaga kl. 12, fyr- irbænamessa þriðjudaga kl. 10.30 í kórkjallara, morgunmessa miðviku- daga kl. 8 og kyrrðarstund fimmtudaga kl. 12. HÁTEIGSKIRKJA | Messa og matur, barnastarf og fræðsla klukkan 11. Org- anisti er Kári Allansson, prestur er Ei- ríkur Jóhannsson. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Guðs- þjónusta kl. 11. Sr. Kristín Pálsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Guðný Einarsdóttir. Félagar úr kór kirkjunnar leiða söng og safnaðarsvör. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjón Markúsar og Heiðbjartar. Heimsókn frá Eþíópíu kl. 12.30, Million og Ahmed Nur koma og kynna verkefni Hjálp- arstarfs kirkjunnar í heimalandi sínu. HÓLANESKIRKJA Skagaströnd | Sunnudagaskóli kl. 11. Við syngjum, hlustum á biblíusögu og lítum í fjárs- sjóðskistuna. Vala skjaldbaka og Rebbi koma í heimsókn. Við biðjum fal- legra bæna og þökkum fyrir það sem við höfum. Fáum okkur djús og kex meðan við litum fallegar myndir. HREPPHÓLAKIRKJA | Kvöldmessa með léttri tónlist kl. 20.30. Kirkjukór- inn flytur hugljúfa sálma í bland við dægurlög undir stjórn Stefáns Þorleifs- sonar organista. ÍSLENSKA Kristskirkjan | Barna- kirkja/fjölskyldusamvera kl. 11. Almenn samkoma kl. 20. Halldóra Ólafsdóttir prédikar. Kaffi og samfélag eftir stundina. KÁLFATJARNARKIRKJA | Messa kl. 14. Kirkjukór Kálfatjarnarkirkju syngur ásamt barnakór kirkjunnar undir stjórn Elísabetar Þórðardóttur organista. Prestur er sr. Kjartan Jónsson. Vænst er þátttöku fermingarbarna og að- standenda þeirra. Samfélag og kirkju- kaffi á eftir. KEFLAVÍKURKIRKJA | Heilsu og hamingjumessa kl. 11. Sunnudaga- skóli hefst á sama tíma. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arn- órs Vilbergssonar organista. Messu- þjónar taka á móti gestum og lesa texta, prestur er sr. Eva Björk Valdi- marsdóttir. Súpuþjónar reiða fram holl- ustusúpu og brauð að lokinni athöfn. Kyrrðarstund alla miðvikudaga kl 12. KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, hér- aðsprestur, prédikar og þjónar fyrir alt- ari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová kantors kirkj- unnar. Sunnudagaskólinn verður með nýju sniði í safnaðarheimilinu Borgum. LANGHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Guðbjörg Jóhannesdóttir sókn- arprestur þjónar. Organisti er Árni Heið- ar Karlsson. Félagar úr Kór Langholts- kirkju leiða safnaðarsöng. Aðalsteinn Guðmundsson kirkjuvörður og messu- þjónar aðstoða við helgihaldið. Sunnu- dagaskólinn fer fram á sama tíma. Jó- hanna og Snævar taka á móti hressum börnum á öllum aldri. Kaffi, djús og ávextir í safnaðarheimili eftir stundina. Starf eldri borgara alla miðvikudaga kl. 12-15.30. LÁGAFELLSKIRKJA | Taize kvöld- guðsþjónusta kl. 20. Guðsþjónustan einkennist af einföldum bænasöng, stuttum ritningarlestrum og bænum. Kirkjukór Lágafellssóknar leiðir söng undir stjórn Kjartans Jósefssonar Ogni- bene. Prestur er Arndís G. Bernhar- dsdóttir Linn. LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnu- dagaskóli kl. 11. Messa með alt- arisgöngu kl. 20. Kveðjumessa fyrir sr. Svein Alfreðsson. Allir prestar kirkj- unnar þjóna. Kór Lindakirkju undir stjórn Óskars Einarssonar og Ávextir andans leiða tónlistina. Sr. Guð- mundur Karl Brynjarsson og Guðni Már Harðarson þjóna í messunni. Sveinn Alfreðsson prédikar. Kaffi og spjall eftir messuna. NESKIRKJA | Messa og barnastaf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju syngja og leiða safn- aðarsöng. Organisti er Steingrímur Þór- hallsson. Prestur er Skúli S. Ólafsson. Söngur, sögur og gleði í sunnudagskól- anum. Umsjón Stefanía, Guðrún og Ari. Samfélag og kaffi á Torginu eftir messu. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Guðsþjón- usta kl 14. Prestur Pétur Þor- steinsson. Messugutti Petra Jóns- dóttir. Graduale Nobili syngur og leiðir messusvör og sálma undir stjórn org- anistans, Árna Heiðars Karlssonar. Ólafur Kristjánsson tekur á móti öllum. Eftir messuna er kaffihlaðborð til styrktar kór og safnaðarstarfinu. Frjáls framlög. SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 14 í Kristniboðssalnum Háaleit- isbraut 58-60. 3. hæð. Ræðumaður Guðlaugur Gunnarsson. Túlkað á ensku. Barnastarf. SELFOSSKIRKJA | Fjölskyldumessa sun. kl. 11. Barna- og unglingakórinn syngur. Stjórnandi Edit A. Molnár. Um- sjón með stundinni hafa Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir æskulýðsfulltrúi og sr. Guðbjörg Arnardóttir. Súpa og brauð á eftir í safnaðarheimilinu. Kvöldmessa kl. 20, Jónína Aradóttir sér um tónlistina, hún er frá Hofi í Öræfasveit og hefur stundað nám í nú- tímatónlist í Danmörku og Los Angel- es. Prestur er Guðbjörg Arnardóttir. SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11, Biblíusaga, söngur, brúðuleikrit og nýr límmiði. Guðsþjónusta kl. 14, sr. Bryndís Malla Elídóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Tómas Guðni Eggertsson og Kór Seljakirkju syngur. SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslumorgunn kl. 10. Fyrstu Íslend- ingarnir á tindi Everest. Björn Ólafs- son, Einar K. Stefánsson og Hallgrímur Magnússon tala. Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11. Sóknarprestur þjónar. Organisti er Glúmur Gylfason. Félagar úr Kamm- erkór kirkjunnar syngja. Leiðtogar sjá um sunnudagaskólann. Kaffiveitingar og samfélag eftir athöfn. Hátíð- arsamkoma í tilefni af Listahátíð kl. 16. Fögur tónlist flutt. Biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir, talar um trú í návist vestfirskra fjalla. SIGLUFJARÐARKIRKJA | Hátíðar- guðsþjónusta kl. 14. Minnst verður 40 ára vígsluafmælis sr. Vigfúsar Þórs Árnasonar. Einnig verður minnst 155 árstíðar sr. Bjarna Þorsteinssonar. Sr. Vigfús prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Sigríði Mundu Jónsdóttur. Kór Siglufjarðarkirkju syngur undir stjórn Guito Thomas, forsöngvari Þor- steinn Bjarnason. Kaffiveitingar í safn- aðarheimilinu. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa 9.10. kl. 11. Jóhanna Magn- úsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti Jón Bjarnason. Kammerkór Seltjarnarneskirkju syngur. STÓRA Núpskirkja | Guðsþjónusta kl. 11. Kirkjukórinn leiðir söng undir stjórn Þorbjargar Jóhannsdóttur. STRANDARKIRKJA | Veiði- mannamessa kl. 14. Veiðimenn í Hlíð- ardalsvatni fjölmenna að venju. Bjarni Eiríkur Sigurðsson stígur í stólinn. Baldur Kristjánsson og Guðmundur Brynjólfsson þjóna fyrir altari. Kór Þor- lákskirkju syngur. Organisti er Miklos Dalmay. Meðhjálpari er Sylvía Ágústs- dóttir. VÍDALÍNSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar í kór Vídal- ínskirkju syngja og Jóhann Baldvins- son er organisti. Sunnudagaskóli á sama tíma. Kaffi og djús að lokinni messu. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Guðsþjónusta kl. 11. Kór Víð- istaðasóknar syngur undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur. Prestur: Bragi J. Ingibergsson. Sunnudagaskól- inn kl. 11 uppi í suðursal. Umsjón: María og Bryndís. Hressing í safn- aðarsalnum eftir guðsþjónustu. ORÐ DAGSINS: Brúðkaupsklæðin (Matt 22) Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Siglufjarðarkirkja ✝ Sigríður Þor-laug Jak- obsdóttir fæddist í Bolungarvík 29. október 1939. Hún lést á Heilbrigðis- stofnun Vestfjarða á Ísafirði 24. sept- ember 2016. Foreldrar henn- ar voru Jakob S. K. Þorláksson, skip- stjóri, f. 11.1. 1916, d. 19.3. 1970, og Valgerður Finn- bogadóttir, f. 10.11. 1918, d. 11.5. 2005. Systkini Sigríðar eru: 1) Finnbogi, f. 1.2. 1941, maki Erna Hávarðardóttir, f. 13.7. 1943, 2) Álfdís, f. 20.5. 1944, maki Dag- bjartur Þorbergsson, f. 27.10. 1941 og 3) Flosi Valgeir, f. 4.1. 1953, maki Jónína Brynja Ás- geirsdóttir, f. 9.8. 1953. Sigríður giftist 2.6. 1962 Ragnari Inga Hálfdánssyni vél- stjóra í Bolungarvík, f. 9.4. 1937. Foreldrar hans voru Elín Þor- björnsdóttir, f. 20.5. 1916, d. 1.6. 1978, og Hálfdán Örnólfsson, f. 28.11. 1913, d. 23.11. 1991. Börn Sigríðar og Ragn- ars Inga eru: 1. Val- gerður, f. 4.4. 1960, maki Barði Ing- valdsson, börn Val- gerðar og Lárusar Ágústs Lárussonar, f. 19.5. 1961, d. 2.10. 1997, a) Eiríkur Ingi, f. 13.10. 1980, hans sonur Val- garður Orri, f. 27.7. 2011; b) Jak- ob, f. 1.12. 1988 og c) Andri Þór, f. 9.11. 1995. 2. Ragnheiður Elín, f. 18.9. 1963, maki Yngvi Örn Stefánsson, f. 3.4. 1956, barn þeirra Teadóra Ýr, f. 22.6. 2004. 3. Þorlákur, f. 24.1. 1974, maki Sóley Guðfinna Arnórsdóttir, f. 6.2. 1978, börn þeirra a) Tekla, f. 6.11. 1999, b) Sigríður Þorlaug, f. 21.1. 2010 og c) Huldar Ágúst, f. 17.9. 2013. Sigríður verður jarðsunginn frá Hólskirkju í Bolungavík í dag, 8. október 2016, og hefst at- höfnin klukkan 14. Elsku mamma mín. Það verð- ur tómlegt án þín heyra rödd þína ekki meir Takk fyrir stuðninginn sem þú veittir mér og hvað þú sóttir eftir að fá syni mína á sumrin tll þín sem var ómetanlegt fyrir þá og mig .Það hlýtur að hafa stundum reynt á þolrifin. elsku mamma leiðin þín síðustu árin voru tor- færð en þú passaðir alltaf að bið systkynin þyirftum ekki að hafa áhyggjur af því. En nú er leiðin þín elsku mamma greið eða því vil ég trúa. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma, öll börnin þín svo blundi rótt. (Matthias Jochumsson) Þín, Valgerður Í dag kveð ég Siggu Laugu, tengdamóður mína. Sigga var mér afskaplega góð, allt frá því að ég hitti hana fyrst 17 ára stelpa sem fór að venja komur sínar á Traðarstíginn með Þor- láki. Mér var strax tekið af áhuga og alúð, fljótlega var farið að spá í hvort ég væri nógu vel klædd og það leið ekki langur tími þar til að ég fékk fyrstu handprjón- uðu vettlingana af mörgum að gjöf. Sigga hafði sterkar skoðanir á mönnum og málefnum, fylgin sér, trú sinni sannfæringu og óvægin við mann ef henni fannst eitthvað mega betur fara. Við vorum ekki alltaf sammála en á milli okkar óx virðing og vinátta, vinátta sem ég á eftir að sakna. Við Þorlákur eigum saman þrjú börn, Teklu, Sigríði Þor- laugu og Huldar Ágúst. Barnabörnin áttu hug hennar og hjarta. Alltaf var verið að spá í hvernig þeim gengi og hvort þau vanhagaði um eitthvað, það voru ófáar prjónaflíkurnar sem gerðar voru handa þeim, ástúð hennar til þeirra og okkar allra var aldrei vafamál. Elsku Sigga, hafðu þakkir fyr- ir allt og guð geymi þig. Sóley Guðfinna Arnórsdóttir. Elsku amma. Nú ertu farin og minnigarnar streyma um hugann. Öll skiptin sem ég var hjá þér og afa í pöss- un þegar ég var lítil. Öll prakk- arastrikin sem að ég gerði og ég held að þú hafir haft lúmskt gaman af. Þú varst alltaf að sýna mér eitthvað skemmtilegt til að gera eins og perla, lita og prjóna. Þú gerðir svo góðan mat, besta kjúkling í heimi! Meira að segja ristaða brauðið þitt var best. Elsku amma, ég mun sakna þín mikið og hugsa til þín oft. Þín Tekla. Sigríður Þ. Jakobsdóttir Sjaldan hef ég fengið eitraða ör í hjartað, en það gerðist 27. ágúst 2016. Mér brá þá verulega við að sjá, að þessi frændi minn var látinn. Var þetta virkilega svo? Jú, myndin tók af allan vafa. Við höfðum hist allnokkrum sinnum á meðferðarstofu á SAk, sem ég kýs að kalla númer eitt. Báðir þurftum við á góðum stól að halda, en ég þekkti ekki þenn- an sköllótta mann í fyrsta skipt- ið, sem sat þarna á móti mér. Hann þekkti aftur á móti mig og greindi mér frá sér. Árni faðir hans og ég vorum þremenning- ar. Hann mundi ég vel, góðan Magnús Árnason ✝ Magnús Árna-son fæddist 27. maí 1952. Hann lést 27. ágúst 2016. Útför Magnúsar fór fram 5. sept- ember 2016. gæðadreng og ég sá alltaf betur og betur hve mjög Magnús líktist föður sínum. Þegar ég var að fara fyrstu læknisferðir mínar til Siglufjarð- ar fyrir löngu síðan, settu foreldrar Magnúsar mig til gistingar í stofu sinni. Þetta sá ég allt þessi skipti, sem við frændi sátum saman á stofu eitt á SAk, báðir með nál í handlegg, þiggjandi eitur, sem átti að drepa krabbann. Það dugði Magnúsi greinilega ekki. Þess vegna brá mér ótrúlega, eins og segir í annarri málsgrein. Mér þótti minningargrein dóttur Magnúsar falleg og ég varð hrærður og sá í henni bæði af- ann og pabbann. Hef þetta ekki lengra, en við sjáumst, frændi, innan tíðar. Farðu í friði Guðs. Eiríkur Páll Sveinsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.