Morgunblaðið - 08.10.2016, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 08.10.2016, Blaðsíða 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2016 ✝ Halldór Hart-mannsson fæddist að Þrasa- stöðum í Fljótum í Skagafirði 25. september 1942. Hann lést á Heil- brigðisstofnun Suðurlands 30. ágúst 2016. Foreldrar hans voru Hartmann Guðmundsson bóndi og Kristín Halldórsdóttir húsfreyja. Systkini Halldórs eru Erna Hartmannsdóttir, Guðmundur Hartmannsson, Birgir Hart- mannsson, Kári Hartmannsson, jánsdóttur Jacobsen, þann 29. ágúst 2009. Halldór ólst upp á Þrasastöð- um í Fljótum í Skagafirði. Ung- ur að árum flytur hann til Grindavíkur þar sem hann starfaði við fiskvinnslu. Síðar flytur hann til Neskaupstaðar þar sem hann vann við fisk- vinnslu og var fiskmatsmaður. Halldór flytur að Sólheimum í Grímsnesi þann 10. mars 2001 en þá hafði hann kynnst Maríu, heitkonu sinni, á Heilsustofn- uninni í Hveragerði. Þau Mæja og Dóri voru afar náin og voru virk í mannlífinu á Sólheimum. Tóku þátt í leik- félaginu, skátastarfinu, kórn- um og sönglífinu svo eitthvað sé nefnt. Þau nutu þess að ferð- ast bæði innan lands og erlend- is. Útför Halldórs fór fram frá Selfosskirkju þann 10. sept- ember 2016. Grétar Hartmanns- son og Ingibjörg Hartmannsdóttir. Halldór var kvæntur Laufeyju Sigurjónsdóttur, þau slitu sam- vistum. Sonur þeirra er Magnús Halldórsson, f. 9. ágúst 1960. Eig- inkona hans er Þóra Laufey Pét- ursdóttir. Dætur þeirra eru Að- alheiður Magnúsdóttir, Laufey Magnúsdóttir og Ágústa Magn- úsdóttir. Halldór kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinn, Maríu Krist- Mig langar að skrifa hér örfá orð um mætan mann, sem ég kynntist þegar ég hóf störf á Sólheimum í nóvember 2014. Mann sem nú er fallinn frá en það er hann Halldór Hartmanns- son, sem ég þekkti í raun aldrei undir öðru nafni en Dóri, og um leið kynntist ég Maríu Jacobs, eða Mæju konunni hans og nú- verandi vinkonu minni. Mæja og Dóri voru alltaf nefnd í sömu andránni, enda voru þau einstak- lega samhent og samrýnd hjón sem áttu fallegt samband og ein- hvern tímann sagði hún Mæja mér að þau rifust aldrei – og það er nú meira en sagt er um marga. Dóri, ásamt Mæju sinni, var virkur í félagsstarfi, söngmaður mikill og naut sín bæði í Sól- heimakórnum og í söng í mess- um. Það sem var kannski mest áberandi var hvað hann var mik- ill „nagli“ þ.e.a.s. að eflaust hef- ur hann verið orðinn mjög veik- ur, en tók t.d. þátt í uppfærslu Sólheimaleikhússins á Galdra- karlinum í OZ þar sem þau Mæja léku frænku og frænda Dórótheu og gerðu það eftir- minnilega. Eitt ferðalag sem við áttum saman, er mér minnisstætt, það var þegar við sóttum jarðarför til Reykjavíkur þar sem ég var bílstjóri á þeirra bíl. Á heimleiðinni þurfti ég að taka með mér hundinn hennar dóttur minnar, og þau sögðu það nú ekki vanda. Hann sat mestallan tímann í fangi Mæju, í framsætinu, en við og við hoppaði hann aftur í til Dóra sem hló við bægslaganginn – og það var ekki verið að pirra sig. Það má eiginlega segja að elsku Dóri hafi brosað fram á síðasta dag, jafnvel í gegnum sársauka og verki. Þrátt fyrir að starfi mínu lyki á Sólheimum, þá lauk ekki vin- áttunni. Ég náði að heimsækja Dóra nokkrum sinnum á Heil- brigðisstofnun Suðurlands, þar sem hann hældi starfsfólki, og þrátt fyrir að vera orðinn eins veikur og raun bar vitni – þá var stutt í húmorinn og brosið. En nú er komið að kveðjustund og hugur minn hjá Mæju minni sem hefur misst mikið, en hefur stað- ið sterk í mótlæti en hún hefur m.a. þakkað það því góða fólki sem á Sólheimum býr og starfar, en hún má vita að hún á það margfalt skilið miðað við hvað hún hefur verið natin við allt og alla. Alltaf tilbúin að veita hjálp- arhönd – eða prjóna eitthvað fal- legt og gefa, og þar stóð Dóri með henni. Elsku Mæja og fjölskylda Dóra, ég votta ykkur innilega samúð og Guð styrki ykkur. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson.) Jóhanna Magnúsdóttir, sóknarprestur í Skálholts- prestakalli. Kveðja frá íbúum Sólheima Í dag kveðjum við vin okkar Halldór Hartmannsson. Dóri mætti til Mæju sinnar fyrir rétt um 15 árum og síðan hafa Sólheimar verið hans heim- ili. Ljúflingsmaður sem fljótt varð hvers manns hugljúfi og vinur. Lagði sig ávallt fram um að greiða götu allra og tók á sig krók til að heilsa, brosa og spyrja frétta. Mætti með harm- onikkuna, spilaði og söng og svo Mæja með blokkflautuna, falleg- ar og eftirminnilegar stundir. Dóri var alla tíð mjög virkur í öllu starfi á Sólheimum, var for- maður íþróttafélagsins Gnýs í yf- ir áratug, virkur í skátastarfi og tók virkan þátt í leiklistarstarfi með leikfélagi Sólheima. Handverksmaður var Dóri og fengu bæði vefstofa og leirgerð að njóta starfskrafta hans og voru mörg listaverkin töfruð fram. Það voru forréttindi að fá að fylgjast með þeim samrýndu og fallegu hjónum, Mæju og Dóra, en kallið kom eftir stutta sjúkra- húsdvöl. Við minnumst Halldórs Hart- mannssonar með þakklæti og söknuð í huga og biðjum góðan guð að blessa hann og varðveita um alla framtíð. Maríu Jacobsen, eiginkonu Dóra, og aðstandendum vottum við innilega samúð. Fyrir hönd íbúa Sólheima, Guðmundur Ármann Pétursson Halldór Hartmannsson ✝ Laufey Sigríð-ur Stefánsdótt- ir fæddist í Hrísum í Fróðárhreppi 4. janúar 1928. Hún lést á Heilbrigðis- stofnun Vestur- lands á Akranesi 28. september 2016. Foreldrar henn- ar voru Stefán Ólaf- ur Bachmann Jóns- son, f. 16.1. 1891, d. 20.2. 1964, og Kristín Elínborg Sigurðardóttir, f. 9.10. 1894, d. 29.8. 1966. Systkini Laufeyjar eru Sigrún, f. 11.8. 1917, d. 6.1. 2013, Karl Bachmann, f. 25.11. 1918, d. 1.6. 1973, Lúðvík Vil- helm, f. 17.9. 1920, d. 11.9. 1940, Unnur, f. 23.6. 1922, d. 14.7. 2009, Sigurður Kristján, f. 24.12. 1923, d. 16.4. 1977, Ingveldur, f. 14.10. 1925, d. 31.1. 2002, Jón, f. 10.11. 1926, d. 18.8. 2010, Hall- fríður Kristín Hulda f. 26.2. 1930, d. 1.10. 2002, Reimar Kristinn Jörundur, f. 26.2. 1932, d. 10.8. 2013, Erla Auður, f. 10.10. 1937. Uppeldisbróðir þeirra og sonur Karls Bach- manns er Hjörtur Hafsteinn, f. 21.8. 1942. Laufey giftist 17.6. 1948 Stef- áni Ásgrímssyni, f. á Borg í Miklaholtshreppi 28.11. 1919, d. 1989. b) Lilja Sif, f. 14.6. 1979. Dætur hennar og fv. maka, Guð- mundar Veigars Sigurðssonar, f. 1975, eru: Fjóla Sif, f. 1998, Magnea Björk, f. 1999, Anna Rakel, f. 2005, Huldís Hlín, f. 2007, og Linda Dögg, f. 2013. c) Huldís Mjöll, f. 1983. Unnusti hennar er Steinar Örn Stef- ánsson, f. 1981. Börn þeirra: Kristín Birna, f. 2011, og Stefán Þór, f. 2014. d) Stefán Örn, f. 1986. Maki hans er Gestný Rós Guðrúnardóttir, f. 1987. Dóttir þeirra er Gestný Dís, f. 2009. e) Elsa Hrönn, f. 1993. Árið 1948 hófu Laufey og Stefán búskap á jörðinni Stóru- Þúfu í Miklaholtshreppi. Þar bjuggu þau með blandaðan bú- skap allt til ársins 1981 þegar Stefán lést. Eftir það brá Laufey búi og fór hún að vinna á Akra- nesi og síðar í Reykjavík. Hún vann í mötuneyti Héðins og Droplaugarstaða, auk þess sinnti hún ræstingavinnu. Hún eyddi öllum sínum frítíma í Stóru-Þúfu þar sem sonur henn- ar, Ásgrímur, sinnti búskap ásamt fjölskyldu sinni, frá árinu 1975. Velferð fjölskyldunnar var Laufeyju afar hugleikin. Eftir starfslok flutti Laufey í Borg- arnes og festi kaup á þjón- ustuíbúð við Borgarbraut 65A. Þar átti hún ánægjulegt ævi- kvöld í góðum félagsskap eldri borgara. Laufey verður jarðsungin frá Borgarneskirkju í dag, 8. októ- ber 2016, og hefst athöfnin klukkan 14. 27.5. 1981. For- eldrar hans voru Ásgrímur Gunnar Þorgrímsson, f. 16.9. 1895, d. 25.8. 1983, og Anna Stef- ánsdóttir, f. 20.1. 1897, d. 24.9. 1967. Börn Laufeyjar og Stefáns eru: 1. Ás- grímur, f. 5.9. 1950, kvæntur Hólmfríði Salóme Jónsdóttur, f. 28.2. 1952. Börn þeirra: a) Laufey, f. 1975. Maki hennar er Haukur Eggertsson, f. 1975. Sonur þeirra er Eggert, f. 2016. Synir Laufeyjar og fyrrv. maka, Víðis Sigrúnarsonar, f. 1968, eru Knútur Karl, f. 2003, og Ásgrím- ur Daníel, f. 2005. b) Jón, f. 1978, unnusta hans er Sveinbjörg Zop- haníasdóttir, f. 1992. Dætur þeirra: Fríða Lív, f. 2015, og Thelma Von, f. 2016. c) Berglind Jana, f. 1982, d. 2002. 2. Anna Kristín, f. 24.11. 1955, maki hennar er Sveinn Haukur Pét- ursson, f. 26.12. 1954. Börn þeirra: a) Elva Björk, f. 1975. Maður hennar er Lýður Brynj- ólfur Skarphéðinsson, f. 1965. Börn þeirra: Skarphéðinn Hauk- ur, f. 2001, og Sara Kristín, f. 2006. Synir Lýðs eru Guðjón Pétur, f. 1987, og Kristján, f. Elsku besta amma Laufey. Þá er komið að kveðjustund. Sorg- inni í hjarta mínu er erfitt að lýsa með orðum. Þú varst alltaf svo heilsuhraust og kvartaðir aldrei yfir neinu. Það yljar mér þó að vita að afi Stefán hefur beðið með útbreiddan faðm eftir að samein- ast þér á ný eftir 35 ára aðskiln- að. Hann var þinn eini og rétti. Ég var ekki svo heppin að fá að kynnast honum, enda einungis tveggja ára gömul þegar hann kvaddi okkur. Lýsingar frá þér og mömmu gáfu mér innsýn inn í hvaða mann hann hafði að geyma og skil ég vel hvers vegna hann var kletturinn þinn stóran hluta af ævi þinni. Núna sé ég fyrir mér hamingjustund hjá ykkur báðum, það er hlý og góð tilhugsun. Sem lítil hnáta man ég vel eftir mér koma í heimsókn í Stóru- Þúfu, í gula húsið þitt, uppi á hólnum með rauða þakinu. Við systkinin sátum óþolinmóð í bíln- um á meðan pabbi keyrði lötur- hægt vestur malarvegina, og svo upp á hæðina við Hafursfellið, þá blasti fallega húsið þitt við. Mót- tökurnar voru hlýtt faðmlag og undurblítt bros þitt. Það fór aldr- ei neinn svangur þaðan út, eld- húsborðið svignaði undan kræs- ingum. Sjálf passaðirðu þig nú samt alltaf að fá þér bara smá flís á meðan við hin tróðum í okkur góðgætinu. Það var allt svo girni- legt og gott sem þú hristir fram úr erminni. Marengstertan og lagkakan með smjörkreminu sem þú bakaðir svo oft við ákveðin til- efni voru í miklu uppáhaldi hjá mér. Eftir hverja heimsókn gaukaðir þú að mér smá aur fyrir hjálpina og sem litlum stelpu- hnoðra þótti mér það alltaf spennandi. Þegar við fjölskyldan vorum á þvælingi í höfuðborginni, var iðu- lega komið við í eldhúsinu í Héðni og síðar á Droplaugarstöðum. Þar sinntir þú störfum þínum af mikilli kostgæfni og fékkst að baka og elda eins og þér einni var lagið. Nú í seinni tíð, eftir að þú komst þér fyrir á Borgarbraut- inni, áttum við ætíð góðar stundir saman yfir kaffibolla og bakkelsi þegar ég átti leið til Íslands. Samræður okkar eru mér ómet- anlegar. Þú rifjaðir upp gamlar minningar um allt mögulegt, m.a. hvernig þið afi kynntust, hvernig Stóra-Þúfa var stoppistöð fyrir aðra bændur í sveitinni, hvernig lífið gekk sinn vanagang og svo margt fleira. Stundum sagðir þú mér sömu sögurnar mörgum sinnum og það var allt í lagi því nú man ég þær vel og geymi þær í hjarta mínu. Síðasta heimsókn mín til Ís- lands var í ágúst sl. og þá heim- sótti ég þig á sjúkrahúsið á Akra- nesi. Dagurinn var einstaklega fallegur og fórum við saman út í garð og nutum sólargeislanna saman yfir kaffibolla og spjalli eins og svo oft áður. Þetta var mér dýrmæt gæðastund með þér. Þegar ég kvaddi þig og horfði í augun á þér, var eins og þú vissir að þetta væri síðasta samveru- stundin okkar. Ég átti mjög erfitt með að losa um faðmlagið með tárin í augunum og var kveðju- stundin okkur báðum ákaflega erfið. Elsku besta amma mín. Takk fyrir allar dýrmætu stundirnar. Ég mun ætíð elska þig og sakna þín. Knúsaðu afa Stefán frá mér. Þín Lilja Sif. Laufey Sigríður Stefánsdóttir Með kærleik og virðingu Útfarar- og lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Ellert Ingason Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Við önnumst alla þætti undir- búnings og framkvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir og amma, JÓNA SIGRÍÐUR GUNNARSDÓTTIR, Álfaskeiði 84, Hafnarfirði, andaðist á kvennadeild Landspítalans mánudaginn 3. október. Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 14. október klukkan 15. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Líf, styrktarfélag kvennadeildar Landspítalans. . Helga María Guðmundsdóttir, Sigurjón Valur Guðmundsson, Þórhalla Karlsdóttir, Guðjón Guðmundsson, Ína Edda Þórsdóttir, Gunnar Björn Guðmundsson, Lára Hafberg, Bjarney Gunnarsdóttir, og barnabörn. Ástkær faðir, tengdafaðir og afi okkar, EIRÍKUR ERLENDSSON, Heiðarhvammi 8, Reykjanesbæ, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudaginn 2. október. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 11. október klukkan 13. . Vilberg Eiríksson, Sigurbjörg Ó. Stefánsdóttir, Heiðrún Björk Sigmarsd., Guðbjartur Sævarsson, Aron I. Vilbergsson, Áslaug E. Guðbjartsdóttir, Arnar Gauti Vilbergsson, Birkir Freyr Guðbjartsson og aðrir aðstandendur. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÓLAFUR HAUKUR BALDVINSSON, Sólgarði, Fnjóskadal, lést á Kristnesspítala 4. október. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 13. október klukkan 13.30. Jarðsett verður í Hálskirkjugarði. . Sigrún Jónsdóttir, Sólrún María Ólafsdóttir, Qussay Odeh, Hafdís Ólafsdóttir, Jóhann Hansen, Dagný Ólafsdóttir og barnabörn. Ástkær dóttir mín og systir okkar, INGIBJÖRG ÓSKARSDÓTTIR, Suðurgötu 15, Hafnarfirði, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 4. október. Útför hennar fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði föstudaginn 14. október klukkan 13. . Elínborg Ragnarsdóttir, Ragnar Ásgeir Óskarsson, Erla Óskarsdóttir, Óskar Jón Óskarsson, Sævar Markús Óskarsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.