Morgunblaðið - 08.10.2016, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 08.10.2016, Blaðsíða 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2016 ✝ Sveindís BjörkEiríksdóttir Meyer fæddist 22. júlí 1964 í Reykja- vík. Hún lést á heimili sínu í Wis- consin 6. sept- ember 2016. Foreldrar henn- ar eru Hanný Karlsdóttir, f. 6. október 1941, og Eiríkur Sveinsson, f. 12. desember 1941. Fóst- urfaðir er Ingvi Hallgrímsson. Systkini Sveindísar eru Karl Eiríksson, f. 2. apríl 1960, og Sigurbjörg Eiríksdóttir, f. 28. maí 1963. Þann 22. júlí 1996 giftist Sveindís Cristopher Meyer, en þau höfðu búið saman frá 1984. Börn þeirra eru: 1) Jana Ágústa, f. 8. mars 1984, maki Wesley Arneson. Synir þeirra eru Je- remy Won Reysen, f. 8. september 2005, og Jaxen Rosenthal, f. 18. febrúar 2013. 2) Christopher, f. 2. desember 1985, kvæntur Taniju Meyer. Dætur þeirra eru Lilja Grace, f. 2. apríl 2013, og Eyja Björk, f. 17. maí 2016. 3) Brooke Pearl, f. 16. des- ember 1993. Sveindís vann síðustu 17 árin á skrifstofu University of Wis- consin í Stevens Point. Útför hennar fór fram 14. september 2016 í Wisconsin Ra- pids. Sveindís bjó í Bandaríkjunum í 35 ár. Maður hennar, Cris Meyer, börn, tengdabörn og barnabörn eiga nú um sárt að binda. Missir þeirra er mikill, eins og allra þeirra sem henni tengd- ust. Við, sem þessa kveðju send- um, erum afar þakklát fyrir Sveindísi. Hún var stjúpdóttir, stjúpsystir og vinkona. Söknuð- urinn er mikill en minningarnar eigum við. Við kveðjum hana með þess- um orðum: Þau ljós sem skærast lýsa, þau ljós sem skína glaðast þau bera mesta birtu en brenna líka hraðast og fyrr en okkur uggir fer um þau harður bylur er dauðans dómur fellur og dóm þann enginn skilur. En skinið loga skæra sem skamma stund oss gladdi það kveikti ást og yndi með öllum sem það kvaddi. Þótt burt úr heimi hörðum nú hverfi ljósið bjarta þá situr eftir ylur í okkar mædda hjarta. (FGÞ) Elsku Hanný, Ingvi, Kalli og Sibba, systirin sem flutti út og hjúkraði henni til síðustu stund- ar, sem verður seint fullþakkað. Okkar innilegustu samúðar- kveðjur til ykkar allra. Eygló, Tom, Bryndís, Jeff og Grétar í Wisconsin. Sveindís Björk Eiríksdóttir Meyer✝ Jón Guð-mundsson frá Óslandi fæddist 6. apríl 1931 á Siglu- firði. Hann lést á Dvalarheimili aldr- aðra á Sauðárkróki 1. október 2016. Foreldrar hans voru hjónin Guð- mundur Jónsson, f. 1891, d. 1961, og Ingibjörg Jóns- dóttir, f. 1901, d. 1956. Systkini Jóns eru Guðrún M., f. 1920, d. 1963; Jóhann P., f. 1924; Anna S., f. 1926, d. 1975; Þorgerður, f. 1927, d. 2008; Oddur, f. 1932, d. 1932; Oddrún S., f. 1936, d. 2001, og Sigurður H., f. 1941. Jón flutti tveggja ára að aldri frá Siglufirði og ólst upp í fram- sveitum Skagafjarðar. Jón kvæntist 21. júlí 1957 Þóru Sigrúnu Kristjánsdóttur, f. 11. sept. 1936. Þau bjuggu á Sauðárkróki þar til þau fluttu í Ósland í Óslandshlíð 1959 og bjuggu þar ásamt Kristjáni, föð- ur Þóru. Jón og Þóra eignuðust sjö börn, tólf barnabörn og tvö barnabarnabörn. Börn þeirra eru 1) Ingibjörg Kristín, f. 1958. Fv. m. Árni Sigfússon. Þau eiga dæturnar a) Þóru, f. 1983. K. Ellen Augland. Eiga þær dótt- f. 2000, og c) Magneu Dís, f. 2005. Barnaskólaganga Jóns var af skornum skammti. Hann fór seinna í bændaskólann á Hvann- eyri og lauk búfræðiprófi 1952 með góðum árangri. Hann stundaði síðan almenn störf allt þar til hann gerðist bóndi á Ós- landi og bjó þar til ársins 1994. Hann hóf snemma afskipti af fé- lagsmálum og var virkur þát- takandi í mótun síns samfélags. M.a. var hann oddviti Hofs- hrepps og síðustu ár starfsævi sinnar sveitarstjóri sameinaðs Hofshrepps. Hann var fulltrúi í Stéttarsambandi bænda árum saman, sat í sýslunefnd og var virkur félagi í Framsókn- arflokknum svo eitthvað sé nefnt. Hann var mikill hug- sjónamaður og af þeirri kynslóð sem studdi ötullega kaupfélags- hugsjónina. Hann var einn af stofnendum Lionsklúbbsins Höfða á Hofsósi og var félagi þar til æviloka. Árið 1995 missti hann heilsuna og fluttu þau Þóra þá til Sauðárkróks. Hann fylgdist vel með og var áfram þátttakandi í sínu samfélagi sem studdi vel við bakið á hon- um. Síðustu árin dvaldi hann þrotinn að kröftum á Dval- arheimili aldraðra á Sauð- árkróki. Útför hans fer fram frá Sauð- árkrókskirkju í dag, 8. október 2016, kl. 14. urina Kristínu Sögu Augland, f. 2014, b) Unni, f. 1988. 2) Kristján, f. 1959. Fv. k. Ingi- björg Sigurð- ardóttir. 3) Ásta Ólöf, f. 1960. M. Ingólfur Bjarni Vil- hjálmsson. Þau eiga þrjá syni a) Jón Ægi, f. 1981, k. Jóhanna S. Eiríks- dóttir, og eiga þau dótturina Ástu Ólöfu, f. 2009, b) Vilhjálm Breka, f. 1982, c) Helga Hrann- ar, f. 2002, 4) Guðmundur, f. 1962. K. Hrafnhildur Björk Jónsdóttir og á hún fimm börn og tvö barnabörn. 5) Þórir Níels, f. 1965, d. 2011. K 1) Car- olina Linder. Þau áttu dæturnar a) Ingrid Sögu, f. 1992. M. Jo- nathan Fahlen Godö, b) Kristínu Líf, f. 1995. M. Tobias Sorkka. K. 2) Áslaug Fjóla Guðmunds- dóttir; 6) Ásgeir Ingvi, f. 1966. Sambýlisk. hans er Halldóra Halldórsdóttir. Ásgeir á tvö börn a) Nóna Sæ, f. 1998, og b) Svandísi Þulu, f. 2001, d. 2006. Halldóra á tvö börn og tvö barnabörn; 7) Oddur Gunnar, f. 1969. K. Sigurlaug Einarsdóttir og eiga þau þrjú börn a) Eyþór Erni, f. 1991, b) Hafþór Pálma, Ég hef átt gott líf, sagði hann við mig nýfluttur á dvalarheim- ili aldraðra. Ekki fannst mér lífið alltaf hafa farið mjúkum höndum um hann. Jú, sagði hann. Ég eign- aðist góða konu og hóp af börn- um og barnabörnum sem hafa staðið við hlið mér í gegnum allt. Það er ekki öllum gefið. Foreldrar pabba voru al- þýðufólk og lífsbaráttan snerist um að eiga í sig og á. Skóla- gangan var takmörkuð og markaðist af aðstæðum þess tíma. Það var honum því mikið keppikefli að búa börnum sín- um þær aðstæður að þau gætu menntað sig í því sem hugur þeirra stóð til. Hann kynntist ungri stúlku úr Óslandshlíðinni, Þóru að nafni, og opinberuðu þau trúlofun sína um jólin 1956 og samvistir þeirra stóðu því í sextíu ár. Þau giftu sig árið 1957 og hófu sinn búskap á Sauðárkróki. Vorið 1959 fluttu þau í Óslandshlíðina og var hann kenndur við Ósland eftir það. Eftir nærri 35 ára búskap á Óslandi fannst þeim tími til kominn að skila af sér til næstu kynslóðar og fluttu í Hofsós en pabbi var þá starfandi sveit- arstjóri. Ekki fengu þau lengi notið því árið eftir fékk hann heilablóðfall og átti við heilsu- leysi að stríða upp frá því. Þau fluttu til Sauðárkróks og móðir mín gerði honum kleift að búa heima í rúmlega sextán ár áður en hann flutti á dvalarheimili aldraðra þar sem hann naut hinnar bestu aðhlynningar til hinstu stundar. Pabbi fór snemma að starfa að félagsmál- um, var oddviti og síðar sveit- arstjóri. Hann starfaði að hagsmuna- málum bænda, eða eins og ég sagði stundum, hann kom sér í allar nefndir og ráð sem hægt var, enda bjó hann það vel að eiga stóran hóp af börnum og eiginkonu sem sáu um búskap- inn. Hann hafði yndi af hestum og ætlaði að njóta þess áhuga- máls í ríkari mæli eftir að hann hætti búskap á Óslandi. Pabbi var skapríkur maður, gat verið fljótur upp ef því var að skipta en heiðarlegur fram í fingur- góma og naut trausts síns sam- ferðafólks. Það hlýtur því að hafa verið honum gríðarlega erfitt að vera kippt út úr hringiðu lífsins í einu vetfangi rúmlega sextug- um að aldri. En þrjósku átti hann nóga og hún hélt honum gangandi til hinstu stundar. Máltækið „Skipað gæti ég væri mér hlýtt“ átti oft við þessi síðustu ár. Ef honum datt eitthvað í hug þá kallaði hann mig á sinn fund og fól mér framkvæmdina. Ég lærði það í gegnum tíðina að treina mér verkefnin. En það er nú þannig að fáir komast áfallalaust gegnum lífið og það hlífði honum svo sann- arlega ekki. Rúmlega þrítugur að aldri hafði hann misst báða foreldra sína og elstu systur. Þá lenti hann í þeirri erfiðu lífs- reynslu að þurfa að fylgja barnabarni sínu til grafar fyrir tíu árum og einum sona sinna árið 2011. En þrátt fyrir allt fannst honum hann hafa átt gott líf. Þetta snýst víst um það að vera þakklátur fyrir það sem maður hefur. Að leiðarlokum þakka ég fyr- ir traustan föður sem lét sig varða líf og störf afkomenda sinna þótt örlögin höguðu því þannig til að hlutverkin snerust við þegar ég var einungis 35 ára og hann fór að sækja stuðn- ing til mín. Hvíldu í friði elsku pabbi og hafðu þökk fyrir allt. Ásta Ólöf Jónsdóttir. Nú hefur Jón Guðmundsson frá Óslandi, mágur minn, lokið sinni vegferð í þessu lífi. Langri og hetjulegri baráttu hans við illvíga fötlun er lokið. Við þessi tímamót hrannast minningarn- ar upp og hugurinn leitar nær sex áratugi aftur í tímann, en árið 1958 byrjuðu hann og Þóra systir mín búskap á æskuheim- ili okkar á Óslandi í Skagafirði. Þá var móðir okkar látin og fað- ir minn var í heimili hjá þeim meðan heilsan leyfði. Ég átti þarna athvarf næstu árin þegar leitað var heim frá vinnu og skólanámi og Svava, yngri systir mín, var einnig hjá þeim í heimili ung að árum. Það voru mikil umsvif sem fylgdu þessum unga manni. Jón og Þóra komu frá Hólum þar sem hann var ráðsmaður á búinu. Hann var einnig kunnugur víða um sveitir gegnum vinnu hjá Búnaðarsambandi Skagfirð- inga. Hann var stjórnsamur og unnið var kappsamlega að framförum í búskap, auk þess sem börnum á heimilinu fjölg- aði hratt og varð þeim hjónum sjö barna auðið, en sex eru nú á lífi. Eftir að ég hafði flust austur á land og eignast þar fjölskyldu var fastur þáttur í tilverunni að fara í Ósland á sumrin og vera þar í nokkra daga. Þetta stóra heimili stóð okk- ur opið. Þar voru börnin þeirra og ætíð voru börn þar einnig í sveit og stundum þurfti að borða í tveimur áföngum til að koma öllum fyrir við matborðið. Börnin okkar voru treg til að fara út af heimilinu eftir að komið var norður og þau tvö eldri voru þar um tíma og fengu reynsluna af sveitastörfum. Jón var félagsmálamaður og dró ekki af sér í þeim málum frekar en öðru sem hann tók sér fyrir hendur. Honum var falinn mikill trúnaður í sveit- arstjórnarmálum, Stéttarsam- bandi bænda og stjórnarseta í Heilbrigðisstofnun Skagfirðinga árum saman, svo eitthvað sé nefnt. Þegar kom að því að hann og Þóra hættu búskap varð hann sveitarstjóri í Hofs- ósi. En fyrir tveimur áratugum varð Jón fyrir því áfalli að fá heilabilun og var eftir það í hjólastól í nær tvo áratugi. Þetta var gríðarlegt áfall og hann barðist við af miklum hetjuskap að halda áfram þátt- töku í lífinu og tilverunni eins og komið var. Hetjuskapur systur minnar, að standa við bakið á honum við þessar aðstæður, var ekki minni og sama má segja um börnin og er á engan hallað þótt Ásta dóttir þeirra sé nefnd í þessu sambandi, sem um margra ára skeið hefur búið í nágrenni við foreldra sína og verið þeim hjálparhella. En nú er þessu stríði Jóns Guðmundssonar lokið og að leiðarlokum er mér og minni fjölskyldu efst í huga að þakka fyrir allt, öll samskiptin í gegn um áratugina og góða vináttu og fjölskyldubönd sem eru okk- ur öllum svo mikils virði. Við Margrét og okkar fólk vottum Þóru systur minni og allri fjöl- skyldunni innilega samúð. Jón Kristjánsson. Jón Guðmundsson frá Ós- landi er látinn. Við fráfall hans verður okkur systkinunum hugsað til æsku okkar og uppvaxtar, þar sem Jón var ein af styrkustu stoðum stórfjölskyldunnar, en mikill samgangur var milli Óslands og Ártúns, börnin mörg og á svip- uðum aldri. Það var mikið fjör á Óslandi þegar allt að 13 börn voru sam- an í einu með tilheyrandi há- vaða og látum, til dæmis inni á ganginum í fótbolta! Aldrei munum við til þess að Jón hafi skammað okkur, en stillti til friðar og hægði á okk- ur ef svo bar undir! Einu sinni munum við þó að yngri hóp- urinn gekk fram af honum við matarborðið, var að bölva. Jón sagði þá hastur: „Hættiði þessu andskotans bölvi“ og svo hló hann. Þegar stelpurnar fóru ein eða fleiri inn eftir var alltaf tek- ið vel á móti okkur og jafnvel spurt með glotti: „Ætlið þið að stansa lengi?“ Við, sem eldri erum í systk- inahópnum kynntumst Jóni svo í leik og starfi, í brids, söng- félaginu Hörpunni og Lions- klúbbnum Höfða. Jón var mikill samvinnumað- ur og félagsmálamaður og hlífði sér hvergi og var fljótt trúað til trúnaðarstarfa í þágu sveitar- stjórnar og nærsamfélagsins, enda málafylgjumaður góður og var oddviti um áratugaskeið. Hann vann fyrir bændur á landsvísu, dró ekki af sér og var hreinskilinn svo fólk vissi hvar það hafði hann og treysti honum. Jón var tilfinningamaður, gat runnið fljótt í skap, sagði þá meiningu sína með afgerandi hætti, svo eftir var tekið, en svo strax úr honum aftur Hann var í raun mjög glað- sinna, hrókur alls fagnaðar og hló sínum smitandi hlátri þann- ig að allur salurinn hló með ef svo bar undir. Jón var skorpumaður til verka og gat þá gengið mikið á við verkstjórn á strákunum og stelpunum. Jón Guðmundsson reyndist okkur fjölskyldunni einstaklega vel á erfiðum tímum og bæði föður okkar og móður við skiln- að þeirra. Segja má að hann hafi verið eins og gamall sveitungi okkar orðaði það: „Eins og kletturinn í hafinu, haggaðist ekki“ þótt straumar gætu orðið stríðir. Á þessari stundu er okkur systkinunum efst í huga inni- legt þakklæti fyrir allan stuðn- inginn sem Jón taldi aldrei eftir sér, jafnvel að brjótast í ófærð fram í Varmahlíð að ná í Krist- ínu. Margar ógleymanlegar stundir koma upp í hugann, en upp úr stendur þegar Jón bað Pálma frænda okkar Rögg að yrkja eitthvað um hann á sex- tugsafmælinu og hlífa sé hvergi. Það gerði Pálmi, svo að sal- urinn lá í hláturkrampa en mest hló Jón þó sjálfur. Við systkinin þökkum fyrir þá gæfu að hafa átt Jón sem vin. Eftir stöndum við andlega ríkari. Þökkum líka alla þolin- mæðina og skilninginn! Elsku Þóra , börn, makar og barnabörn. Innilegar samúðar- kveðjur, Guð blessi ykkur og styrki og orni ykkur við góðar minningar. Þegar þau hittast þarna uppi, Jón, Þórir Níels, mamma og Hulda og Valdi, þá verður sko hlegið! Fyrir hönd systkinanna frá Ártúni, Kristján Björn Snorrason. Jón Guðmundsson HINSTA KVEÐJA Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Þínar langafastelpur, Ásta Ólöf og Kristín Saga. Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma, ÞURÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR, lést þann 23. september síðastliðinn á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð á Akureyri. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir til starfsfólks Bakkahlíðar og Bandagerðis fyrir einstaka alúð og hlýju við umönnun hennar. . Elín Helga Káradóttir, Ívar J. Arndal, Margrét Helga Ívarsdóttir, Jóhann Kári Ívarsson. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SVANHVÍTAR REYNISDÓTTUR, Hrísmóum 1, Garðabæ. Fyrir hönd aðstandenda, . Magnús Andrésson, Ingunn Guðmundsdóttir, Sverrir Andrésson, Kolbrún Gunnlaugsdóttir, Margrét Andrésdóttir, Sigurjón Leifsson, Pétur Andrésson, Jóna Sæmundsdóttir, Björn Björnsson, Hrönn Hrafnkelsdóttir. Við þökkum innilega auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu vegna andláts og útfarar hjartfólgins sonar míns og frænda okkar, HALLDÓRS STEINS HALLDÓRSSONAR, Blönduhlíð 6, sem lést 11. september 2016. . Anna Björg Halldórsdóttir, Halla Sólveig Halldórsdóttir og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.