Morgunblaðið - 08.10.2016, Side 45
DÆGRADVÖL 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2016
TWIN LIGHT gardínum
Betri birtustjórnun með
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
40 ára
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is
OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18
Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu
Íslensk framleiðsla eftir máli
Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Staðreyndin er að fjármálin þín eru
ekki eins og þú vilt hafa þau. Sér fólk ekki
hversu sjálfstæður þú ert?
20. apríl - 20. maí
Naut Þú þarfnast andagiftar jafn mikið og
matar og lofts. Gerðu það upp við þig hvað er
mest áríðandi og taktu svo einn hlut fyrir í
einu.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Nú á dögum eru svo margir vizku-
brunnar að leita í að menn standa oft ráð-
þrota. Ein snjöll ákvörðun hefur góð áhrif á
fjármálin.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú þarft að hafa mikið fyrir hlutunum
sem er allt í lagi ef þú bara gætir þess að
skila vel unnu verki. Sinntu því ekki heldur
haltu þínu striki og láttu álit annarra lönd og
leið.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú munt hugsanlega flytja eða skipta
um vinnu á næstu tveimur árum. Láttu hug-
myndirnar flæða og gerðu breytingar.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Flestir ástvinir þínir þurfa hjálp endr-
um og sinnum, en endalaus þörf er slæmur
ávani. Búðu þig undir innkaup á málningu og
snurfusaðu dálítið í kringum þig.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú þarft að finna upp á einhverju til að
brjóta upp rútínu dagsins. Sýndu varkárni í
peningamálum og ekki eyða um efni fram
einungis til þess að skemmta þér.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Nú er rétt að huga að ferðaáætl-
unum, sem hafði verið slegið á frest eða af-
lýst. Bættu sambandið við eina manneskju,
einbeittu þér að einu verkefni, eða hringdu
eitt símtal.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú ert reiðubúinn til að leggja þig
fram við að bæta afkomu þína með nýjum
hætti. En þú ættir að hugsa þig tvisvar um.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú ert uppfullur af hugmyndum og
fleiri streyma að þér úr öllum áttum. Vertu
samstarfsmönnum þínum ljúfur. Reyndar
ákveður þú að hlakka bara til.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú sérð ekki fram úr augum vegna
anna og þarft að komast frá í smátíma.
Breytt hugarfar kemur sér líka vel. Kannski
eru þau af andlegum toga á einhvern hátt.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þér verður ekkert úr verki ef þú ætlar
þér of mikið í einu. Gott ráð gegn því er að
gefa einhverjum hlut, sem þér er ekki sama
um. Segja má að þessi viðfangsefni séu þema
mánaðarins.
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Færni handar að færa til betri vegar.
Formaður glöggur sér og nýtir þegar.
Af kvenfólki það sungið er og seggjum.
Sést það líka í hlöðnum bæjarveggjum.
Harpa á Hjarðarfelli á þessa
lausn:
Hafa á verki fimir fingur lag.
Formaður sér lag á eftir broti.
Á tyllidögum tekið oft er lag.
Torflag enn má sjá í veggjabroti.
Þetta er svar Guðrúnar Bjarna-
dóttur:
Oft er farsælt að
stoppa laghent í lopavettling,
lagi beita, sér völd að tryggja,
syngja lögin (í kór) um kettling
og kofaveggi í lögum byggja.
Árni Blöndal leysir gátuna þann-
ig:
Með lagi er best að bæta orðið tjón,
brot í öldulögum formenn nýta,
lögin sungin löngum hér um Frón,
lög í hlöðnum görðum víða líta.
Helgi Seljan segir fátt betra til
upplyftingar andans úr andleysinu
venjulega en að fást við gátur hvers
konar. Ráðningin er hér:
Lag á mörgu lagnir hafa,
lag á sjónum dýrmætt er.
Lag er sungið létt án vafa,
lag af torfi í vegginn fer.
Guðmundur skýrir gátuna þann-
ig:
Lag er færni gallaðan grip að bæta.
Glöggur formaður lagi þarf að sæta.
Lag af konum sungið er og seggjum.
Sjá má lag í hlöðnum bæjarveggjum.
Og lætur limru fylgja:
Er Vernharður vörður laga
fékk Valgerðar ofan af Skaga,
að orði varð Jóni,
sem er örlagaróni.
„Hver hefur sinn djöful að draga.“
Og að lokum er ný gáta eftir Guð-
mund:
Þykir vera gripur góður.
Griðastaður elskendanna.
Þar eru kjörnar kjaftaskjóður.
Kemur þar saman fjöldi manna.
Ég greip Blöndu úr bókaskápn-
um og við mér blasti þetta:
„Svo er sagt að eitt sinn hafi Hall-
grímur (læknir) verið spurður að
heiti, annaðhvort á bæ eða á förn-
um vegi, og hann þá svarað:
Mitt er heiti Hallgrímur,
hjörva beitir Jónssonur,
um allar sveitir alþekktur,
að því leyti hvimleiður.“
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Allt vill lagið hafa
Í klípu
„ÉG MYNDI ALDREI GERA FLUGU MEIN.
ÉG SÉRHÆFI MIG Í FÓLKI.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„AF HVERJU AÐ STANDA Í ÞESSU?
VIÐ KEYRÐUM FRAMHJÁ 10
FISKBÚÐUM Á LEIÐINNI.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar hann mýkist
allur upp fyrir þig.
HVAÐ HAFIÐ ÞIÐ TVEIR
VERIÐ AÐ BRALLA?
VIÐ VORUM BARA AÐ BÍÐA
EFTIR AÐ SÆTASTA STELPA Í
HEIMI LITI VIÐ!
OG ÞÁ ÆTLA
ÉG AÐ FÁ
LIFRARPYLSU.
OOOH!
ÉG KEYPTI
VEÐHLAUPAHEST!
HANN SKORTIR BARA
SJÁLFSTRAUST...
HANN ER SVO
EYMDARLEGUR.
BRÓÐIR HANS
VAR ALLTAF Í
UPPÁHALDI...
Víkverji er ákaflega þakkláturfyrir árafjöldann sinn og gleðst
yfir því einlæglega að fá að eldast
því það er ekki öllum gefið. En Vík-
verji er samt núna að uppgötva
sterkt síðustu ár að hann er ekki
lengur tvítugur þó hann sé það inni-
lega í hjarta sínu.
Hann gerir enn unglingalega
hluti eins og að nenna ekki að taka
til í herberginu sínu. Innst inni er
hann alltaf að bíða eftir að móðir
hans skammi hann fyrir það en allt
kemur fyrir ekki. Að endingu verð-
ur hann leiður á ruslinu í kringum
sig og gerir þetta sjálfur. Eðlilega
verandi kominn á fertugsaldur.
Hann var samt minntur harka-
lega á árafjöldann þegar hann fór
með vinkonum sínum á Justin Bie-
ber tónleikana hér á landi fyrir all-
nokkru þegar ungir, álitlegir piltar
renndu hýru auga til vinkvenna-
hópsins. Að Víkverji hélt. Þá
hnippti einn þeirra í eina vinkonuna
og spurði hana hvort hún hefði ekki
þjálfa sig í 7. flokki. Hún gat ekki
þrætt fyrir það og gaf honum eina
lúðalega fimmu.
x x x
En að öðru. Víkverji verður hrein-lega að hrósa Tokyo sushi í
Krónunni fyrir einstaklega góða
þjónustu. Honum datt skyndilega í
hug að bregða undir sig betri fæt-
inum og bruna austur í sveit um
helgi. Af því tilefni þótti honum til-
valið að koma færandi hendi með
einn veislubakka sneisafullan af
sushi fyrir sveitafólkið.
Örlítið bragð af öðrum heimi slær
yfirleitt í gegn á sveitabænum, sér-
staklega þegar búið er að fylla mag-
ann af ilmandi kjötsúpu rétt áður.
x x x
Á vefsíðu fyrirtækisins, Tokyosushi, er tekið fram að það
þurfi að panta veislubakka með
dags fyrirvara. Víkverji ákvað að
kanna það samt fyrst hvort það
væri möguleiki að fá einn bakka
samdægurs. Eftir eitt símtal var
lítið mál að kippa því í liðinn.
Veislubakkinn yrði tilbúinn eftir
rúman klukkutíma.
Takk fyrir þessa einstaklega
góðu þjónustu. Víkverji er ekki frá
því að sushi-ið hafi bragðast mun
betur fyrir vikið. víkverji@mbl.is
Víkverji
Berið hvert annars byrðar og uppfyllið
þannig lögmál Krists.
(Gal. 6.2)