Morgunblaðið - 08.10.2016, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 08.10.2016, Blaðsíða 46
46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2016 Söfn • Setur • Sýningar LISTASAFN ÍSLANDS T E X T I 15.9 - 8.1.2017 Valin textaverk úr safni Péturs Arasonar og Rögnu Róbertsdóttur VALTÝR PÉTURSSON 24.9 - 12.2.2017 LJÓSMÁLUN – LJÓSMYNDIN OG MÁLVERKIÐ Í SAMTÍMANUM 7.5 - 9.10.2016 Athugið síðasta sýningarhelgi. SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur • KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar Leiðsögn á ensku alla föstudaga kl. 12.10 Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is. Opið alla daga kl. 11-17. Lokað á mánudögum LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR SAMSKEYTINGAR 3.9. - 28.05. 2017 Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is KAFFISTOFA heimabakaðar kökur SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR ÓGNVEKJANDI NÁTTÚRA 2.10.2016 - 7.5.2017 Leiðsögn með sýningarstjóra sunnudaginn 9. október kl. 14. Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is Sunnudaginn 9. október: Víkingasverð til sýnis milli kl. 13-17 Síðasta sýningarhelgin: Norðrið í norðrinu á 3. hæð Þriðjudagur 11. október: Hádegisfyrirlestur Þjóðminjasafnsins kl. 12. Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins Portrett Kaldals í Myndasal Kaldal í tíma og rúmi á Vegg Bláklædda konan - Ný rannsókn á fornu kumli í Horni Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17. Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög, ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira Geirfugl †Pinguinus impennis Aldauði tegundar – Síðustu sýnin Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna. Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali Kaffitár nú einnig í Safnahúsinu Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands Hverfisgötu 15, 101 Reykjavík s: 530 2210 www.safnahusid.is Sýningin opin þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17 Kaffitár opið mánudaga til föstudaga frá 8-17, 10-17 um helgar SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is „Á ekki myndlistin að geta brugðist við ástandinu í samfélaginu?“ spyr Birgir Snæbjörn Birgisson en í dag kl. 15 verður opnuð sýning á nýjum verkum hans í Sverrissal Hafn- arborgar. Hann hefur málað portrett af þingmönnunum 63 sem settust á þing vorið 2013 og einum að auki og kallar sýninguna einfaldlega Von. „Þarna birtast myndir af kjörnum fulltrúum sem sýna þá alla í sama ljósi, sem eina heild. Myndirnar benda á það sem þeir eiga sameig- inlegt og það sem skilur þá að. Þessi heild er táknmynd fyrir von okkar og þrár, óskir en líka ótta okkar. Þetta eru fulltrúar fólksins, samnefnari þjóðarinnar sem samfélagið treystir fyrir mikilvægum ákvörðunum og framkvæmdum,“ segir í kynningu Hafnarborgar en verk Birgis eru þekkt fyrir samfélagslega og pólitíska skírskotun. Samtal við samtímann Birgir segir nauðsynlegt að sam- tímalist eigi í samtali við samtímann en brýnt sé að hafa í huga að tími yf- irlýsinga og upphrópana sé liðinn; fyrir vikið reyni hann að koma að fólki með öðrum hætti en að hrópa og kalla. Meðan hann vann að þessari sýningu kveðst hann hafa dregist inn í atburðarás, þar sem hann varð sjálf- ur meiri þátttakandi en hann ætlaði. „Síðan var ég stöðugt að heyra fréttir um verkið mitt í fjölmiðlum,“ segir hann og bætir við að auðvelt geti reynst að verða meðvirkur með ástandinu í samfélaginu og boða trú meðal réttrúaðra. Birgir hefur lengi unnið með staðalmyndir um norrænt útlit og þingmennirnir á sýningunni í Hafnarborg eru allir ljóshærðir og bláeygir, auk þess sem sérkenni hafa verið afmáð. Spurður hvers vegna segir Birgir að því verði hver og einn gestur að svara fyrir sig. „Þingmenn- irnir eru samnefnari þjóðarinnar; fólk sem axlar mikla ábyrgð en er eigi að síður bara persónur eins og ég og þú.“ Birgir hefur áður unnið með von- ina, meðal annars á samsýningu í Finnlandi í fyrra. Hann vann að sýningunni í tæp tvö ár og segir það mikinn létti að koma hugmyndinni loks frá sér. „Það er yf- irleitt léttir þegar maður losar sig við verk, ef svo má að orði komast, en að þessu sinni var það óvenju mikill létt- ir. Aðkoman var mjög kröfuhörð og þetta tók á.“ Aðeins eru þrjár vikur til alþing- iskosninga en Birgir kveðst alls ekki vera að boða hvað fólk eigi að kjósa. „Ég tek enga afstöðu með eða á móti stjórnmálaflokkum og -mönnum en hvet fólk hins vegar til að kjósa von- ina!“ Finna þarf leið inn fyrir sjónhimnu fólks Birgir segir pólitíska list oft hafa verið atkvæðameiri á Íslandi og furð- ar sig á því hvers vegna fleiri mynd- listarmenn blanda sér ekki í hina póli- tísku umræðu með afgerandi hætti. „Vettvangurinn er frábær og hefur verið það lengi. Á ýmsu hefur gengið í íslensku samfélagi undanfarin ár og margt hefur breyst eftir hrun. Af mörgu er að taka og allt sem við þurf- um að gera er að finna leið innfyrir sjónhimnu fólks. Og inn í heim þess.“ Sýningarstjóri sýningarinnar er Mika Hannula en þeir Birgir Snæ- björn hafa unnið saman að ýmsum verkefnum síðan 2002. Listamanns- spjall fer fram á morgun kl. 14 og samtal um sýninguna verður haldið fimmtudaginn 20. október kl. 20. Ljósmynd/Áslaug Íris Friðjónsdóttir Pólitískur Birgir Snæbjörn Birgisson myndlistarmaður segir pólitíska list oft hafa verið atkvæðameiri á Íslandi. „Hvet fólk til að kjósa vonina!“  Birgir Snæbjörn Birgisson hefur málað portrett af alþingismönnunum 63 og sýnir í Hafnarborg Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is Hjörleifur Valsson fiðluleikari og Ourania Menelaou píanóleikari munu frumflytja verk eftir Oldrich František Korte, Petr Eben, William Bolcom og George Antheil í Lista- safni Sigurjóns Ólafssonar í Reykja- vík, þriðjudaginn 11. október kl. 20. Verkin hafa lítið sem ekkert verið spiluð áður og tónlistin lítið þekkt. „Tónlistin er alveg hreint æðisleg og virkilega áhugaverð. Þetta er tónlist sem er kannski þekkt meðal tónlistarnörda og í tónlistarheim- inum í sumum löndum en þessi verk sem við spilum hafa lítið sem ekkert verið flutt, og ekkert hér á landi,“ segir Hjörleifur. „Það eru ýmsar ástæður fyrir því að þetta hefur ekki verið mikið spilað.“ Heimspekilegar samræður Elsta verkið sem Hjörleifur og Menelaou spila er frá ca. 1920. Þau frumfluttu tónlistina í Prag í Tékk- landi í vor og segir Hjörleifur það hafa verið ótrúlega upplifun. Tón- listin hafi verið einstök. „Við byrj- um á verki eftir Korte sem eru fjórir kaflar. Hann var tónskáld og heim- spekingur og skildi einnig eftir sig dálítið af ritum. Þetta verk er skrif- að í kringum 1970 og eru þetta heimspekilegar samræður sem maður á innra með sjálfum sér. Þetta er mjög innhverf en sterk tón- list, einstaklega „expressív“,“ segir Hjörleifur. Hann ræðir einnig George Anfil og útskýrir hvernig hann nær að draga tónlistina út á ystu mörk hins mögulega. „Það eru miklir effektar og þetta er krass- andi tónlist. Það reynir mikið á hljóðfærin. Það er aldeilis ekki að ástæðulausu að Anfil var kallaður „The bad boy of music“,“ segir hann og hlær. Heppin að finna nótur „Ourania er tónlistarfræðingur og hefur verið að kafa mikið ofan í tónlist 20. aldarinnar. Hún var með þema þar sem hún gróf upp ýmis lít- ið þekkt tónskáld, sem höfðu þó vakið athygli á meðan þau lifðu og höfðu jafnvel verið fræg á sínum tíma. Í gegnum tónlistarsöguna voru margir þannig, til dæmis voru miklu fleiri stjörnur á tímum Moz- art en Mozart sjálfur,“ segir Hjör- leifur. „En hún vissi sum sé um þessa tónlist og fór að kynna mér hana. Við fórum að skoða þetta bet- ur og urðum mjög heilluð.“ Að- spurður hvort ekki hafi verið erfitt að komast í nótur segir Hjörleifur þau hafa verið heppin. „Ourania er lektor við tvo háskóla og hefur því góðan aðgang að grunnum og bóka- söfnum, svo við vorum heppin.“ Eigin tónleikaröð í Prag Hjörleifur og Menelaou stunduðu nám við sama skóla í Prag á árunum 1993-96 og fóru að spila mikið sam- an. Þau voru saman í kammerhóp og Menelaou kom til Íslands með Hjörleifi 1995 en þau spiluðu hér saman þá. „Við erum með okkar eigin tónleikaröð í Prag og vorum einmitt að spila þar í fyrradag, það er reyndar allt annað prógramm,“ segir Hjörleifur sem hefur verið mjög virkur í íslensku tónlistarlífi um margra ára skeið en er búsettur í Noregi. „Við spænum reyndar beint til Óslóar og höldum tvenna tónleika þar eftir tónleikana hér.“ Minningartónleikar á Ísafirði Tvíeykið kemur einnig fram sam- an á árlegum minningartónleikum Ragnars H. Ragnars og Sigríðar Jónsdóttur á morgun, sunnudag, kl. 17 í Hömrum á Ísafirði. Tónlistar- skólinn á Ísafirði og Tónlistar- félagið á Ísafirði hafa haldið minn- ingartónleikana um árabil. Hjörleifur er ættaður af Vest- fjörðum og voru hjónin Ragnar og Sigríður miklir áhrifavaldar í lífi hans. „Ég hef spilað á minningar- tónleikunum einu sinni áður og hef gaman af því að spila á þeim. Ég tel mig vera Ísfirðing þó ég sé ekki fæddur þar. Ég lærði við þennan tónlistarskóla undir handleiðslu þessara hjóna sem stofnuðu Tónlist- arskólann á Ísafirði. Það er mjög gaman að koma að þessu.“ Morgunblaðið/Ófeigur Músíkfélagar Hjörleifur Valsson og Ourania Menelaou. Spila verk eftir vonda strákinn í tónlist  Hjörleifur og Ourania Menelaou frumflytja lítið þekkta en magnaða tónlist á tvennum tónleikum hér á landi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.