Morgunblaðið - 08.10.2016, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 08.10.2016, Qupperneq 48
48 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2016 Tinna Sverrisdóttir, Reykjavík- urdóttir og leikkona, leiðir rapp- námskeið sem hefst kl. 11 og stend- ur til kl. 15 í dag í húsnæði Tónlistarsafns Íslands að Hábraut 2, gegnt Gerðarsafni. Dagskráin er liður í Fjölskyldustundum Menn- ingarhúsanna í Kópavogi sem haldnar eru í dag í Tónlistarsafni Íslands og Gerðarsafni. Tinna mun ekki aðeins kenna rapp heldur einnig fjalla um hvern- ig má bæta eigin textaskrif og kenna æfingar sem efla sjálfstraust og skapandi hugsun. Námskeiðið er opið öllum stelpum á aldrinum 13 – 16 ára og er ókeypis. Klukkan 13 hefst svo námskeið fyrir 9 - 12 ára krakka í Gerð- arsafni þar sem viðfangsefnið er skúlptúr og gerðar verða tilraunir og hugmyndir ræddar í tengslum við yfirstandandi skúlptúrsýningar í safninu. Skúlptúrnámskeiðið er einnig opið öllum og þátttaka ókeypis. Rappari Tinna Sverrisdóttir mun kenna stelpum að rappa í Tónlistarsafni Íslands í dag. Rappnámskeið í Tónlistarsafni Íslands Skáldin Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, Gyrðir Elíasson og Sigurbjörg Þrastardóttir koma fram á tveimur ljóða- dagskrám í Reykjavík um helgina ásamt kanadísku skáldunum Chantal Neveu, Daniel Canty og François Turcot. Þau hafa unnið saman í þýðingasmiðjum og kynna afraksturinn og ljóðlist hvert annars á Kaffislipp í dag kl. 16 og á Ársafni – Menningarhúsi í Árbæ á morg- un kl. 14. Hvor viðburður um sig stendur í um klukku- tíma og ekki verður um sömu dagskrá að ræða þessa tvo daga. Kanadísku skáldin heimsækja Reykjavík nú í október en þau koma frá Quebéc-fylki og eru frönskumælandi. Hér hitta þau ís- lenska kollega sína og vinna með þeim að ljóðaþýðingum og öðru skáldlegu starfi. Samvinnan heldur síðan áfram með það að markmiði að skáldin vinni að sameiginlegri útgáfu. Íslensk og kanadísk skáld koma saman Gyrðir Elíasson Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, heldur erindi á lokasamveru Listahátíðar Seltjarnarneskirkju kl. 16 á sunnudag er hún nefnir „Trú í návist vestfirskra fjalla“ en yfirskrift hátíðarinnar þetta árið er Fjöll og trú. Agnes ólst upp á Ísafirði og kynntist þar gleðinni af fjöllunum og vernd þeirra, en sem prestur í Bolung- arvíkurprestakalli 1994-2012 kynntist hún ógn og hættu fjallanna í formi snjóflóða. Hún fjallar um þessa reynslu sína í ljósi 121. Davíðssálms, „Ég hef augu mín til fjallanna“. Á samverunni á morgun verður einnig lúðrablástur nemenda úr Tónlistarskóla Seltjarnarness og félagar úr Kammerkór kirkjunnar undir stjórn Friðriks Vignis organista leiða söng íslenskra laga um fjöll. Þá stendur yfir í kirkju og safnaðarheimili sýning á málverkum af íslenskum fjöllum eftir marga af okkar fremstu listmálurum, yfir 30 málverk sýnd. Sú sýning mun standa út mánuðinn. Fyrr um daginn, þ.e. kl. 10 á sunnudagsmorgun verður haldið fræðsluerindi í kirkjunni þar sem þeir Íslendingar sem fyrstir gengu á Everest, þ.e. þeir Björn Ólafsson, Einar K. Stefánsson og Hallgrímur Magnússon, segja frá reynslu sinni. Biskupinn ræðir um fjöll og trú Agnes M. Sigurðardóttir Söngvararnir Valdimar Guðmunds- son, Snorri Helgason og Teitur Magnússon, sem víða hafa komið við í tónlistinni, kynna samstarf sitt í fyrsta skipti opinberlega í Havarí á Karlsstöðum í kvöld. Með í för verður gítarleikarinn Örn Eldjárn auk þess sem Jón Mýr- dal leikur á slagverk. Tónleikarnir hefjast klukkan 21 og verður eldhúsið opið. Miðaverð er 3.000 krónur og forsala er á vefnum tix.is. Söngelskur Valdimar Guðmundsson. Þrír söngvarar saman í Havarí Í tilefni þess að í ár eru liðin 260 ár frá fæðingu W.A. Mozart hyggst Frímúr- arareglan heiðra tónskáldið í Frí- múrarahúsinu við Bríetartún í dag kl. 16. Þar koma m.a. fram Sigríður Ósk Kristjánsdóttir, Jóhann Friðgeir Valdimarsson, Ásgeir Páll Ágústs- son, Dagmar Kristinsdóttir, Anna Sigríður Helgadóttir, Anna Klara Georgsdóttir og Margrét Hannes- dóttir. Frímúrarakórinn syngur nokkur verk eftir Mozart tengd Reglunni og Kammerkór Bústaða- kirkju syngur líka nokkur kórverk. Stjórnandi tónleikanna er Jónas Þórir og á píanó leikur ásamt hon- um Antonía Hevesí en á fiðlu leikur Matthías Stefánsson. Miðaverð er 4.000 krónur og rennur ágóðinn að fullu til styrktar nýjum flygli Regl- unnar. Tónleikar til heið- urs W.A. Mozart Wolfgang Amadeus Mozart Bridget Jones siglir inn í fimmtugsaldurinn í glænýjum kafla, nú orðin einhleyp, á fullu í ræktinni og vinnur sem framleiðandi hjá sjón- varpsstöð. Metacritic 59/100 IMDb 7,4/10 Laugarásbíó 18.00, 20.00 Sambíóin Kringlunni 17.20, 20.00, 22.10 Sambíóin Keflavík 20.00 Smárabíó 14.00, 17.00, 19.30, 20.00 Háskólabíó 15.00, 18.00, 21.00 Borgarbíó Akureyri 20.00 Bridget Jones’s Baby 12 Þegar Finnur hjartaskurðlækn- ir áttar sig á að dóttir hans er komin í neyslu og kynnir þekktan dópsala fyrir fjöl- skyldunni sem nýja kærast- ann, koma fram brestir í einkalífinu. IMDb 7,7/10 Laugarásbíó 18.00, 20.00, 21.00, 22.35 Smárabíó 17.20, 20.00, 22.25 Háskólabíó 15.00, 18.10, 21.10 Eiðurinn 12 Myndin fjallar um atburðina árið 2010 á olíuborballi BP olíufyrirtækisins á Mexíkóflóa, og það sem gerðist á síð- ustu 48 tímunum áður en sprenging varð um borð með þeim afleiðingum að 11 manns létu lífið. Metacritic 65/100 IMDb 7,6/10 Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.20 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.20 Sambíóin Akureyri 20.00, 22.30 Sambíóin Keflavík 22.30 Deepwater Horizon 12 The Girl on the Train 16 Metacritic 47/100 IMDb 6,8/10 Sambíóin Álfabakka 12.30, 15.00, 17.30, 20.00, 22.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 21.30, 22.40 Sambíóin Akureyri 20.00, 22.30 Sambíóin Keflavík 20.00 Tristan und Isolde Sambíóin Kringlunni 16.00 Skiptrace 12 Metacritic 50/100 IMDb 5,7/10 Sambíóin Egilshöll 15.10, 17.40, 20.00 Sully 12 Morgunblaðið bbbbn Metacritic 74/100 IMDb 7,9/10 Sambíóin Álfabakka 17.50, 20.00, 22.00 Sambíóin Egilshöll 20.00, 22.10 Sambíóin Kringlunni 20.00 Middle School Laugarásbíó 14.00, 16.00, 18.00 Smárabíó 13.00, 15.20, 17.35 Borgarbíó Akureyri 15.40, 17.40 War dogs 16 Metacritic 57/100 IMDb 7,2/10 Sambíóin Álfabakka 20.00 Sambíóin Egilshöll 22.20 Pete’s Dragon Bönnuð yngri en 6 ára. Metacritic 71/100 IMDb 7,2/10 Sambíóin Álfabakka 12.40, 15.00 Sambíóin Egilshöll 13.00, 15.10 Don’t Breathe 16 Metacritic 71/100 IMDb 7,6/10 Smárabíó 22.40 Mechanic: Resurrection 16 Metacritic 38/100 IMDb 5,8/10 Sambíóin Álfabakka 22.20 Heimili fröken Peregrine fyrir sérkennileg börn 12 Metacritic 53/100 IMDb 7,2/10 Laugarásbíó 14.00, 17.00, 20.00 Smárabíó 13.30, 14.00, 16.30, 17.00, 19.50, 22.40 Háskólabíó 15.10, 18.10, 21.00 Borgarbíó Akureyri 17.40, 22.20 Suicide Squad 12 Metacritic 40/100 IMDb 6,7/10 Sambíóin Álfabakka 17.20 Storkar Laugarásbíó 14.00, 16.00 Sambíóin Álfabakka 12.00, 13.00, 14.00, 15.00, 16.00, 18.00, 20.00 Sambíóin Egilshöll 13.00, 14.00, 15.00, 16.00, 18.00 Sambíóin Kringlunni 12.00, 12.50, 14.00, 15.00, 16.00, 18.00 Sambíóin Akureyri 14.00, 16.00, 18.00 Sambíóin Keflavík 14.00, 16.00, 18.00 The Magnificent Seven 12 Metacritic 54/100 IMDb 7,2/10 Laugarásbíó 18.00, 21.00, 22.30 Sambíóin Keflavík 22.30 Smárabíó 19.50, 22.20, 22.40 Borgarbíó Akureyri 20.00, 22.20 Leynilíf Gæludýra Metacritic 61/100 IMDb 6,7/10 Sambíóin Álfabakka 12.00, 14.00, 16.00, 18.00 Sambíóin Keflavík 14.00 Smárabíó 15.15 Robinson Crusoe IMDb 5,3/10 Sambíóin Álfabakka 13.40, 15.40 Sambíóin Egilshöll 13.00 Sambíóin Akureyri 14.00, 16.00 Sambíóin Keflavík 16.00 Níu líf Metacritic 11/100 IMDb 4,4/10 Smárabíó 13.00 Kvikmyndir bíóhúsannambl.is/bio – með morgunkaffinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.