Morgunblaðið - 13.10.2016, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 1 3. O K T Ó B E R 2 0 1 6
Stofnað 1913 240. tölublað 104. árgangur
Frír ís
fyrir
krakka!
í október
Nánar ábls9
VILJA RAF-
MAGNSVÆÐA
BÍLAFLOTANN VISTVÆN FRAMLEIÐSLA
HEIMILDAR-
MYND UM
HERBERT
BYGG Í NASL OG MÚSLÍ 12 SANNLEIKURINN 38VIÐSKIPTAMOGGINN
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Miklar breytingar munu verða á
þeirri starfsemi sem Korputorg hýsir
þar sem móðurfélag innflutnings- og
framleiðslufyrirtækisins Íslensk-
Ameríska (Ísam) hefur fest kaup á
húsnæðinu og hyggur á að flytja alla
starfsemi Ísam í það á komandi árum.
Um er að ræða eitt stærsta atvinnu-
húsnæði landsins og er það 45.550
fermetrar að stærð. Til samanburðar
er Smáralindin ríflega 62 þúsund fer-
metrar. Bergþóra Þorkelsdóttir, for-
stjóri Ísam, segir að mikil tækifæri
felist í því að koma starfsemi fyrir-
tækisins undir eitt þak en í dag eru
rekstrareiningar þess á mörgum mis-
munandi stöðum í borginni. Má þar
meðal annars nefna skrifstofur fyr-
irtækisins og kexverksmiðjuna Frón
að Tunguhálsi, Mylluna í Skeifunni,
niðursuðuverksmiðjuna Ora að Vest-
urvör í Kópavogi og Fastus sem er í
Síðumúla.
„Við teljum að þessar öflugu
rekstrareiningar okkar muni ná að
þróast betur með þessu fyr-
irkomulagi og við erum að hugsa til
mjög langs tíma með þessu.“
Fyrsta rekstrareiningin mun flytja
í húsnæðið í ársbyrjun 2018.
„Þá mun Myllan flytjast í Korpu-
torgið og þar hyggjumst við opna
verksmiðju með nýjustu tækni. Í kjöl-
farið munum við svo koma starfsem-
inni fyrir í húsnæðinu en það veltur
meðal annars á samkomulagi við nú-
verandi rekstraraðila í húsinu,“ segir
Bergþóra.
Kaupir
Korpu-
torgið
Ísam kaupir hús-
næðið í heild sinni
MViðskiptaMogginn
Úrhellisregn gekk yfir landið í gær og fyrradag,
líkt og sjá má á ljósmyndinni að ofan sem tekin
var við Skógarfoss í gær. Mest mældist úrkoman
í Bláfjöllum, en þar var hún um 150 mm á einum
sólarhring. Mestu flóðin urðu á Barðaströnd,
Snæfellsnesi og við Mýrdalsjökul. Miklir vatna-
vextir urðu einnig í Múlakvísl, Hvítá, Krossá og
Ölfusá. Seint í gærkvöldi hafði ekki heyrst af
tjóni á mönnum eða munum af veðurofsanum.
Steypiregn víðast hvar sunnan og vestan til
Morgunblaðið/RAX
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
„Við höfum móttekið þessi skilaboð
frá þeim og þetta er í raun og veru
ákall um að við bíðum með að hækka
lífeyrisaldur almannatrygginga og við
erum að skoða það hvort það eru rök
fyrir því að láta það bíða fyrst jöfnun
lífeyrisréttinda hefur ekki klárast,“
segir Bjarni Benediktsson fjármála-
ráðherra í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi, spurður hver viðbrögð
hans væru við ályktun miðstjórnar
ASÍ. Þar segir að um hrein svik sé að
ræða varðandi jöfnun lífeyrisréttinda
og samstillingu almannatrygginga og
lífeyrissjóða. Ekki gangi að ætla al-
menningi að búa við 70 ára lífeyris-
tökualdur á sama tíma og alþingis-
menn og opinberir starfsmenn geta
farið á fullan lífeyri 65 ára.
„Það er sameiginlegur skilningur á
því að jöfnun lífeyrisréttinda og
hækkun lífeyristökualdursins í al-
mannatryggingakerfinu þurfi að
fylgjast að,“ bætir Bjarni við en hann
og forsætisráðherra hafi fundað um
málið í gær.
„Varðandi stöðuna í Salek-hópnum
þá er hún einfaldlega grafalvarleg,“
segir Bjarni en hópurinn tilkynnti í
fyrradag að ekki yrði af frekara sam-
starfi fyrr en niðurstaða lægi fyrir um
jöfnun lífeyrisréttinda.
„Það er mín skoðun að við höfum í
allt of marga áratugi látið framvindu
mála á vinnumarkaði stranda á afar-
kostum sem einstaka aðilar setja öðr-
um. Ríkið er tilbúið að standa við það
samkomulag sem gert var um jöfnun
lífeyrisréttinda en mér virðist sem op-
inberu bandalögin séu horfin frá því,
en þetta verkefni er ekki að fara
neitt.“ laufey@mbl.is
Grafalvarleg staða
Skoðar hvort rétt sé að bíða með hækkun lífeyrisaldurs
Framvinda á vinnumarkaði strandi of oft á afarkostum