Morgunblaðið - 13.10.2016, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 13.10.2016, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2016 ✝ Ágústa FanneyGuðmundsdótt- ir fæddist í Syðri- Úlfsstaðahjáleigu, Austur-Landeyjum, 26. ágúst 1935. Hún andaðist á Hjúkrunarheim- ilinu Eiri 28. sept- ember 2016. Foreldrar henn- ar voru Guðmund- ur Guðmundsson, bóndi í Skipagerði, Vestur- Landeyjum, f. 13 júní 1897, d. 20. desember 1975, og Guðleif Gunnarsdóttir húsfreyja, f. 18. nóvember 1901, d. 20. desem- ber 1985. Ágústa var yngst systkina sinna en þau eru: Gunnar Guðmundsson, fyrrum bóndi í Vatnskoti í Þykkvabæ, f. 1933, og Matthías Guðmunds- son, fyrrum verkamaður í Kópavogi, f. 1934. Þann 27. desember 1963 giftist Ágústa lífsförunaut sínum Gunnlaugi Þórhallssyni verslunarstjóra frá Grenivík, f. 12. maí 1931. Gunnlaugur er sonur hjónanna skólanemi, f. 1994, sambýlis- kona Guðmundar er Dagbjört Margrét Pálsdóttir viðskipta- fræðingur MBA, f. 1979, og á hún tvo syni. Ágústa Fanney hlaut sína grunnmenntun í farskóla og fór síðan 16 ára í húsmæðraskóla í Hveragerði, síðan sá hún um heimili foreldra sinna í Skipa- gerði að mestu næstu tvö árin meðan móðir hennar glímdi við erfið veikindi. Í framhaldi af því starfaði hún við fiskvinnslu í Keflavík þar sem hún kynntist eiginmanni sínum Gunnlaugi sem þá starfaði við bygginga- vinnu á flugvellinum. Þau opin- beruðu 12. maí 1956. Fyrstu ár- in bjuggu þau á ýmsum stöðum þar til þau eignuðust sína fyrstu íbúð í Njörvasundi í Reykjavík, en lengst af hafa þau búið í Urriðakvísl þar sem Gunnlaugur býr enn. Ágústa var heimavinnandi húsmóðir en starfaði einnig við skúringar og verslunarstörf hjá KRON með eiginmanni sínum sem var verslunarstjóri þar. Síðar að- stoðaði hún við barnagæslu og heimilisstörf hjá fjölskyldu í Reykjavík. Útför Ágústu fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 13. októ- ber 2016, og hefst athöfnin klukkan 13. Þórhalls Gunn- laugssonar bónda á Finnastöðum og Vigdísar Þorsteins- dóttur húsmóður. Ágústa og Gunn- laugur eignuðust tvö börn en þau eru: 1)Vigdís Arn- heiður lífeindafræðingur, f. 1957, gift Guð- mundi Inga Gísla- syni húsasmíðameistara, f. 1955. Börn þeirra eru: a) Valur verkfræðingur, f. 1980, kvænt- ur Emely Lawson ljósmóður, f. 1981, og eiga þau tvo syni. b) Fanney lyfjafræðingur, f. 1985, sambýlismaður Ólafur Garðar Halldórsson hagfræðingur, f. 1984, og á hann einn son. c) Haukur háskólanemi, f. 1994. 2) Guðmundur Leifur húsa- smíðameistari, f. 1961, og á hann tvö börn með fyrrverandi eiginkonu, Helgu Sigurð- ardóttur, f. 1965. Börn þeirra eru: a) Júlía háskólanemi, f. 1992. b) Gunnlaugur há- Nú ertu horfin á vit feðra þinna, elsku mamma mín, sakna ég þín mikið þó svo að þú hafir verið farin að sumu leyti fyrir nokkrum árum þegar gleymska hugans tók völdin, en minning- arnar lifa. Betri móður hefði ég ekki getað átt, við vorum líka svo nánar og góðar vinkonur og ekki leiddist mér það, er ég var stundum spurð að því hvort við værum systur þegar við vorum saman, því ég var svo stolt af því að eiga svona fallega og unglega mömmu. Þú varst svo ljúf og góð, allt- af að hugsa um aðra, aldrei man ég eftir því að ekki hafi verið til bakkelsi heima, jólakaka, hjónabandssæla, kleinur og annað góðgæti þó svo að þú mættir ekki gæða þér á þessu sjálf. Seinna varstu alltaf tilbúin að gæta barnabarna þinna þegar eftir því var falast. Við fjölskyldan vorum svo lánsöm að búa í sama hverfi og þið pabbi í hartnær 30 ár og komst þú mjög oft við hjá okkur í þínum daglegu gönguferðum. Þú varst mjög heimakær og naust þess að stjana við okkur og dunda þér við ýmsa handa- vinnu en verkin léku í höndum þér, t.d. prjónaðirðu ófáar lopa- peysur (prjónaðir um tíma fyrir Handprjónasambandið), svo átt- irðu prjónavél sem þú notaðir stundum, stundaðir útsaum og saumaðir flíkur, eins og fyrir fermingu mína þá dugði ekki að sauma eitt dress á mig heldur fékk ég tvö ásamt æðislegri kápu, ekki kunni ég nú alltaf að meta það hversu dugleg þú varst að sauma á mig allskonar tísku- flíkur því á unglingsárunum vildi ég helst keyptar búðarflíkur eins og vinkonurnar fengu. Seinna meir þegar ég var sjálf komin með börn þá þótti mér af- skaplega vænt um það þegar þú færðir þeim handunnin föt og er skírnarkjóllinn sem þú prjónaðir á frumburð minn fyrir 35 árum ennþá til og orðinn einskonar ættargripur. Sveitin þín í Skipagerði, Vest- ur- Landeyjum, var þér alltaf kær en þangað vorum við systk- inin send í sveit nokkur sumur til afa og ömmu og á ég kærar og ljúfar minningar þaðan. Þegar ég var barn þá signdir þú mig oftast fyrir háttinn og fórst með faðirvorið og kvöld- bæn sem er við hæfi að kveðja þig með. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson) Hvíl í friði, mamma mín, ég mun alltaf elska þig og varðveita minningu þína í hjarta mér. Vigdís Arnheiður. Ég man vel eftir á bernskuár- unum þegar ég fór reglulega í hjólatúr um hverfið. Oftar en ekki þá endaði ferðin með heim- sókn til afa og ömmu þar sem alltaf var vel tekið á móti mér. Ég og amma settumst niður og það var alltaf eitthvað gott að narta í. Við spjölluðum um ýmislegt, oft fékk ég að heyra um uppeldi hennar í Landeyjunum, sem mér þótti alltaf áhugavert og ég svar- aði mörgum spurningum um vel- líðan allra í minni fjölskyldu. Þegar ég var á leið heim þá kom amma út með mér, veifaði bless og bað mig að fara varlega á leiðinni heim. Síðar flutti ég til útlanda og við sáumst sjaldnar en alltaf þótti mér gaman að koma við þegar ég var á landinu. Ég var mjög dapur þegar ég frétti að hún hefði veikst og sér- staklega vegna þess að ég bjó er- lendis og sá hana sjaldan. Hvar sem ég er hef ég þó alltaf hlýjar minningar liðinna tíma. Hún amma mín var mér kær og ég hugsa oft um þá góðu tíma sem við áttum saman. Hún var einstaklega góðhjörtuð persóna og mat fjölskylduna mikils. Ég er heppin að hafa haft slíka ömmu. Valur. Elsku amma mín. Þú varst svo falleg bæði að innan sem utan og eins góðhjört- uð og hlýleg og hægt er að vera. Ég álít mig heppna að hafa átt þig að sem ömmu mína og ég minnist þín með hlýhug og þakk- læti fyrir allt það sem þú hefur kennt mér og ég þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig. Þegar ég hugsa til þín þá minn- ist ég þess meðal annars þegar við bökuðum kanilsnúða saman, fórum í göngutúra og tíndum blóm, þegar þú fórst með fað- irvor fyrir mig áður en ég fór að sofa og aðfangadaganna sem voru hjá þér og afa ásamt mun fleiri stundum sem við áttum saman. Ég minnist þess hve góða nærveru þú hafðir, hve fal- legt og blíðlegt bros þitt var og hversu mikla umhyggju þú sýnd- ir öllum í kringum þig. Ég man hve mikið ég leit upp til þín á yngri árunum því fyrir mér varstu stórglæsileg og ein af mínum fyrirmyndum í gegnum lífið. Elsku amma mín, megi Guð geyma þig og varðveita. Júlía Guðmundsdóttir. Í dag fylgjum við þér, elsku amma mín, til grafar og langar mig að minnast þín í nokkrum orðum. Þú varst ein hjartahlýjasta manneskja sem ég hef kynnst og svo rosalega falleg bæði að innan og utan. Þér var alltaf svo um- hugað um aðra og hugsaðir svo vel um alla. Þú varst rosalega myndarleg í eldhúsinu, alltaf að baka þrátt fyrir að þú mættir ekki borða bakkelsið sjálf. Þegar ég var lítil stelpa fannst mér svo notalegt að gista hjá þér og afa. Þú útbjóst alltaf kvöld- snarl handa mér, bjóst um rúmið sem var sem næst ykkar rúmi, fórst með bænir með mér og signdir mig svo. Þú tókst þér alltaf góðan göngutúr á daginn og komst oft í heimsókn til okkar krakkanna þegar við vorum ein heima. Gafst okkur að borða og tókst úr uppþvottavél- inni. Í þessum gönguferðum tíndir þú oft jurtir sem þú not- aðir í te ef einhver var með kvef. Við vorum svo nánar og það var mér mjög erfitt þegar þú veiktist. Þrátt fyrir veikindin varstu alltaf svo góð og talaðir fallega til allra og um alla og sagðir svo Guð blessi þig. Það var ekki annað hægt en að líka vel við þig og líða vel í návist þinni. Mamma sagði mér einu sinni hjartnæma sögu um hvað nafnið Fanney var í miklu uppáhaldi hjá þér og þér þótti svo leitt að það væri nánast aldrei notað og var ég þess vegna skírð í höfuðið á þér en aðeins seinna nafninu þínu. Eftir þessa sögu kunni ég ennþá betur að meta nafn mitt og gæti ég ekki hugsað mér að heita eitthvað annað. Þú settir fjölskylduna alltaf í fyrsta sæti. Ég elska þig, amma mín. Ég vona að þú sért komin á góðan stað. Guð blessi þig. Þitt barnabarn, Fanney. Hversvegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði) Við fjölskyldan áttum því láni að fagna á haustdögum 1993 að Ágústa kom til okkar. Með hlýju, kærleika, umhyggju, jákvæðni og einstöku umburðarlyndi vann hún hug og hjörtu okkar allra. Verkefnin mörg, börn, vinir og kettir. Að baka jólaköku með börnunum, fylgja og sækja í skólann, kettir alltaf með líkt og lífverðir, ótal margt annað sem geymt er í minningunni. Eftir tíu ár tóku önnur verk við en vináttan og trygglyndið hélst. Ávallt spurði hún um börnin og svo bættust við tengdabörn og barnabörn. Þetta gladdi hana sem hennar eigin börn væru. Eitt sinn sagði Gulli, maður- inn hennar: „Ágústa er falleg- asta kona sem ég hef séð.“ Orð að sönnu, glæsileg var hún svo eftir var tekið og hjartahlý. Við hjónin og börnin sendum Gulla og fjölskyldu okkar dýpstu sam- úðarkveðjur um leið og við þökk- um samfylgdina. Sveinbjörg (Dista). Ágústa Fanney Guðmundsdóttir ✝ Guðný BjörgGísladóttir var fædd á Eskifirði 9. október 1928. Hún lést á Heilbrigð- isstofnun Vest- mannaeyja 7. októ- ber 2016. Foreldrar Guð- nýjar voru Gísli Jónsson, f. 15.7. 1896, d. 30.3. 1960, og Jóna Ingibjörg Einarsdóttir, f. 11.2. 1907, d. 16.11. 1978. Guðný var önnur í röðinni af sjö systkinum. Elstur var Jón Þorbergur, f. 6.9. 1927, d. 26.1. 1991. Á eftir Guðnýju komu: Sigrún, f. 22.5. 1930, d. 20.4. 2010, Einar Haraldur, f. 22.6. 1932, Halldór Kristinn, f. 7.10. 1934, d. 1.4. 2014, Oddný, f. 8.5. 1936, og Bjarki, f. 27.2. 1938. Guðný giftist Sigurði Val- geiri Sveinssyni frá Reykjavík, f. 10.2. 1930, d. 17.4. 2003. Guðný og Valgeir áttu saman tólf börn og að auki eina fóst- Gísli, f. 1957. Jón, f. 1959. Maki Þórdís Er- lingsdóttir. Börn þeirra eru: Agnar Mar, f. 11.11. 1982, d. 26.9. 1985. Hersir Mar, Alex- ander Örn, f. 19.3. 1990, d. 16.4. 1995, og Ívar Örn. Elín Perla, f. 1961. Börn hennar eru: Aron Poul, Kamilla Towe og Sara María. Valgeir, f. 1962. Börn hans eru: Andri Fannar og Sesselja Líf. Íris, f. 1963. Börn hennar eru: Anna María, Elsa Valdís, Bjarni Jón og fóstursonur Gunnar. Kristinn Bjarki, f. 1966. Maki Þórunn Rúnarsdóttir. Börn þeirra eru: Sveinn Ágúst, Dani- el Andri, Sigdór Yngvi og Ind- íana Guðný. Anna María, f. 1968. Börn hennar eru: Sævar Þór, Mardís Ögn og Baldur Bragi. Fósturdóttir: Sigfríður Kon- ráðsdóttir, f. 1964. Maki Val- geir Ólafur Kolbeinsson. Börn þeirra eru: Kolbeinn og Guðný. Barnabarnabörn Guðnýjar og Valgeirs eru orðin 35 talsins og eitt barnabarnabarnabarn. Útför hennar fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum í dag, 13. október 2016, kl. 14. urdóttur til nokk- urra ára. Börn Guðnýjar og Valgeirs eru: Bjarney Jóna, f. 1950. Maki Björn Jóhann Guðjohn- sen. Börn hennar eru: Valgeir Yngvi og Fanney Jóna. Sveinn Rúnar, f. 1951. Maki Þóra Guðjónsdóttir. Börn þeirra eru: Nökkvi, Guðjón Emil, drengur, f. 6.11. 1980, d. sama dag, og Leó Snær. Drengur, f. 6.10. 1952, d. sama dag. Ingibjörg Soffía, f. 1954. Börn hennar eru: Aðalheiður Ósk, stúlka skírð Guðný Björg, f. 1974, d. 1974, Guðný Björg, Inga Rún og Antje Valgerður. Elsa, f. 1955. Maki Guð- mundur Guðlaugsson. Börn þeirra eru: Stúlka, f. 1973, d. sama dag. Birkir Ívar og Þórey Friðrikka. Elsku mamma. Einhvern veginn í minni barnslegu trú fannst mér að þú yrðir alltaf hérna hjá okkur. Því þú varst jú kletturinn okkar allra eða eins og sumir sögðu lands- móðirin mikla, sem er hverju orði sannara enda áttir þú 12 börn á 18 árum. Og allir vinir okkar, sem ekki voru fáir, þurftu jú sitt pláss sem alltaf var til staðar hjá þér. Þó svo að vinnudagarnir væru langir og erfiðir var það ótrúlegt að þú skiptir aldrei skapi. Margar minningar á ég um þig, eins og þessa um ykkur ekkjurnar þrjár. Þig, Friðrikku og Ásu. Það var gaman þegar þið hittust og settuð góða tónlist á fóninn, svo sem Villa Vill og Creedens …, alveg yndislegar og smá konna með. Þá komuð þið með þessa dásamlegu setningu: Skál fyrir lifendum og dauð- um. Elska þig, mamma mín. Anna María. Þær eru ótalmargar minning- arnar af þér á Helgafellsbraut- inni. Þetta stóra hús var nánast undantekningarlaust fjölmennt af skemmtilegum frændum og frænkum og mikið líf og fjör. Í þessu stóra húsi og í þessu fjöl- menni var auðvelt að láta sig hverfa í eitthvert horna hússins og bardúsa og fikta við eitthvað skemmtilegt. Alltaf endaði það án stórslysa þó svo að oftast hafi hurð skollið nærri hælum. Eftir því sem árin líða fjölgar minningunum. Jafnvel þótt erf- iðara hafi orðið að láta sig hverfa í eitthvert hornið, vegna eftirlits, fækkaði prakkarastrikunum ekki. Við munum eftir kúreka- og indíánaleikjunum þegar ösku- bakkinn var notaður sem eld- stæði til að senda alvöru reyk- merki að hætti indíána. Við munum eftir silkirúmteppinu sem var orðið gagnslitið eftir sleðaferðir niður tröppurnar og allar stytturnar sem brotnuðu við hamaganginn. Við munum eftir öllum lundapysjunum sem við náðum og voru geymdar hjá þér, sjaldnast sóttar af okkur en alltaf sleppt. Þrátt fyrir prakkarastrikin og eflaust mikið umstang í kringum okkur er okkar helsta og besta minning um þig sú að Helgafells- brautin var eins konar „stikkfrí“ fyrir okkur frændurna. Á barns- aldri var þetta staður til að koma og kvarta yfir foreldrunum og á okkur var hlustað með athygli, skilningi og brosi. Seinna varð þetta staður til þess að koma á og fylgjast með yngstu systkinum foreldra okkar, læra skemmti- lega hluti, nokkrum árum of snemma, hlusta á nýjustu tónlist- ina og hafa gaman. Á unglingsár- unum varð Helgafellsbrautin staður þar sem við gátum komið og látið gera við skyrtur eftir brölt helgarinnar. Umfram allt var Helgafells- brautin skemmtilegur og spenn- andi staður til að koma á, alltaf líf, alltaf fjör og alltaf vel hugsað um okkur. Eins og þú sagðir svo oft var þetta bara yndislegt. Elsku Guðný amma, takk fyrir alla umhyggjusemina. Takk fyrir að leyfa okkur að vera prakkarar án þess að skamma okkur – of mikið. Takk fyrir öll blíðu brosin og góðu orðin. Takk fyrir að vera yndisleg. Takk fyrir að vera amma okkar. Birkir Ívar, Guðjón Emil og Valgeir Yngvi. Elsku langamma, takk fyrir að vera alltaf svona yndisleg og góð við alla í kringum þig. Elska þig endalaust og sakna þín. Megir þú hvíla í friði. Jesú Kristur, ég kem til þín. Kær þú komst að vitja mín. Í sátt ég þér mína sálu ber, úr sefa fólksins ég aldrei fer. Glaður inn um hið gyllta hlið, Guð mér færi eilífan frið. Ég fegin mínu fegursta skarta, frjáls, þið berið öll mitt hjarta. Adela Björt Birkisdóttir. Guðný Björg Gísladóttir Elskulegur sonur og bróðir, JÓN PÁLL BLÖNDAL SIGURÐSSON, Stafholtsey, verður jarðsunginn frá Reykholtskirkju laugardaginn 15. október klukkan 13. . Sigríður Blöndal, Jóhanna Sigurðardóttir, Pálfríður Sigurðardóttir og fjölskylda. Innilegar þakkir fyrir sýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu, KATRÍNAR RÓSAMUNDU FRIÐRIKSDÓTTUR hjúkrunarfræðings, Hamarstíg 1, Akureyri. Bestu þakkir fær starfsfólk heimahlynningar á Akureyri og starfsfólk Sjúkrahússins á Akureyri. Minningin lifir. Fyrir hönd aðstandenda, . Franz Árnason, Sigríður Rut Franzdóttir, Leifur Reynisson, Davíð Brynjar Franzson, Alexandra Suppes, barnabörn og aðrir aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.