Morgunblaðið - 13.10.2016, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 13.10.2016, Blaðsíða 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2016 Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Mannskaðaveður sem gekk yfir Ís- land 9. apríl árið 1963 er sögusvið heimildarmyndarinnar Brotið sem komin er til sýninga í Bíó Paradís. Sextán sjómenn létust þennan ör- lagaríka dag en myndin hverfist um samfélagið á Dalvík, en þaðan voru sjö af þeim sem fórust. Hugmyndin að heimildarmynd- inni kviknaði hjá Hauki Sigvaldasyni en faðir hans, Sigvaldi Stefánsson, var einn þeirra sem fórust ásamt Gunnari, bróður Sigvalda. „Upphaf- ið var það að maður vildi vita meira um pabba sinn, því ég var rétt fimm ára þegar þessi atburður átti sér stað. Ég á óljósar minningar um karl föður minn. Á þessum tíma voru þessir hlutir ekkert ræddir. Litið var á þetta sem fórnarkostnað sem sjávarsamfélög landsins þurftu að greiða í þessari mynd,“ segir Hauk- ur. Myndin er byggð upp með við- tölum við þá sem sluppu úr þessum hildarleik og aðstandendur þeirra sem fórust. Svo liðu árin og áratugirnir Hann segist sjálfur fljótlega hafa tekið að spyrja um föður sinn og þannig hafi hugmyndin kviknað. „Svo liðu árin og áratugirnir, en ekk- ert gerðist. En svo vildi til að bekkj- arsystir mín var í námi í margmiðl- unarhönnun og ég hafði sett mig í samband við hana um gerð minn- ismerkis sem yrði afhjúpað 2013 þegar 50 ár voru liðin frá atburð- inum. Hún dreg- ur lappirnar að- eins en hringir svo í mig og spyr mig hvort ekki væri gott að gera heimild- armynd um þessa atburði. Bróður- sonur minn, Stefán Loftsson, er kvikmyndagerðarmaður og ég setti mig í samband við hann og við stöndum þrjú að þessu,“ segir Hauk- ur. Brotið var frumsýnt á Dalvík í Fiskidagsvikunni í sumar. Sýning- arnar urðu á endanum sjö en auka- sýningum var bætt við vegna góðra undirtekta. Þjóðin fylgdist með í beinni Haukur hefur starfað sem smiður og ekkert komið að kvikmyndagerð fyrr en nú. „Gerð myndarinnar sjálfrar hefur staðið í á fimmta ár, en segja má að önnur vinna, sagn- fræðivinna, finna heimildarmenn og þá sem höfðu staðið í þessu hafi haf- ist fyrir tíu árum. Nú eru mér enn að berast ábendingar. En það sem er svo skrýtið er að allir muna þennan dag mjög vel þó að rúm fimmtíu ár séu liðin frá honum,“ segir Haukur. Báturinn sem faðir Hauks reri á hét Valur og var þilfarsbátur. „Þá var svokölluð Bátabylgja í útvörpum landsmanna og menn voru að hlusta á þetta í útvarpinu þegar atburðirnir áttu sér stað,“ segir Haukur. Að sögn hans var veðrið þess eðlis að óhægt var um vik við björgunar- störf. Blindbylur og ísing mikil sem gerði allar aðstæður til björgunar- starfa nær ómögulegar. Margir þessara litlu báta höfðu svo enga tal- stöð eða þá að loftnetið varð óvirkt við að fá á sig fyrstu öldu. Síðustu forvöð Haukur segist sáttur við afrakst- urinn. ,,Við skiptum okkur lítið af því sem viðmælendurnir segja og ég er mjög sáttur við að fá menn til þess að draga þessa sögu á einn stað og lýsa þessu með eigin orðum. Úr þessum hópi eru þegar fimm fallnir frá þannig að við vorum á síðustu metrunum að ná þessum drengjum,“ segir Haukur. Spurður segist hann aldrei hafa starfað á sjó. „Karl faðir minn var vélstjóri en einnig flinkur smiður. Ég á margar góðar minningar úr frumbernsku um hluti sem hann gerði. Þegar ég var fimm ára gamall og eftir að pabbi fór, þá ákvað ég að verða smiður og hef ekki hvikað frá því,“ segir Haukur. Brotið Heimildarmyndin segir frá örlagaríkum degi í Íslandssögunni. Sextán sjómenn fórust hinn 9. apríl 1963. Fórnarkostnaður sem aldrei var ræddur  Heimildarmyndin Brotið kemur til sýninga í Bíó Paradís  Fjallar um mannskaðaveður á Norðurlandi 9. apríl 1963 Haukur Sigvaldason Heiða Björk Vilhjálmsdóttir fræðslufulltrúi leiðir gesti um sýningu Thoru Karlsdottur, Kjólagjörningur, í Lista- safninu á Akureyri, Ketilhúsi, í dag kl. 12.15-12.45. „Á sýningunni má sjá afrakstur níu mánaða kjólagjörnings Thoru sem stóð yfir frá mars til desember 2015. Að klæða sig í nýjan kjól á hverjum morgni og klæðast kjól til allra verka í 280 daga; 40 vikur; níu mánuði er áskor- un sem þarfnast úthalds og elju. Á meðan á gjörningnum stóð tók Björn Jónsson daglega ljósmyndir af Thoru. Hann átti stóran þátt í ferlinu; hafði áhrif og kom með hugmyndir varðandi staðsetningu og vinnslu mynd- anna,“ segir í tilkynningu frá safninu. Þar kemur fram að Thora og Björn muni gefa út bók um gjörninginn og sýninguna 12. nóvember, en sýningunni lýkur daginn eftir. Thora og Björn standa fyrir hópfjármögnun á vef- síðu Karolina Fund, karolinafund.com, og er þar hægt að kaupa bókina fyrir fram. Thora útskrifaðist úr Europäische Kunstakademie í Trier í Þýskalandi 2013. Hún hefur haldið níu einkasýn- ingar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum bæði á Ís- landi og víða erlendis. Thora rekur vinnustofuna Lifandi vinnustofa í Listagilinu á Akureyri. Sýningin er opin þriðjudaga til sunnudaga kl. 12-17. Aðgangur er ókeypis á leiðsögnina í dag. Leiðsögn og bók væntanleg Rautt Thora Karlsdottir í einum kjólanna sem sjá má á sýningu hennar í Listasafninu á Akureyri. leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Djöflaeyjan (Stóra sviðið) Lau 15/10 kl. 19:30 13.sýn Mið 26/10 kl. 19:30 18.sýn Lau 12/11 kl. 19:30 23.sýn Sun 16/10 kl. 19:30 14.sýn Sun 30/10 kl. 19:30 17.sýn Fim 17/11 kl. 19:30 24.sýn Mið 19/10 kl. 19:30 15.sýn Fim 3/11 kl. 19:30 20.sýn Fös 18/11 kl. 19:30 25.sýn Fim 20/10 kl. 19:30 16.sýn Lau 5/11 kl. 19:30 21.sýn Lau 22/10 kl. 19:30 19.sýn Fös 11/11 kl. 19:30 22.sýn Kraftmikill söngleikur um skrautlegt mannlíf í braggahverfum Reykjavíkur! Maður sem heitir Ove (Kassinn) Fim 13/10 kl. 19:30 11.sýn Sun 23/10 kl. 19:30 16.sýn Fim 10/11 kl. 19:30 21.sýn Fös 14/10 kl. 19:30 12.sýn Fös 28/10 kl. 19:30 17.sýn Fös 11/11 kl. 19:30 22.sýn Sun 16/10 kl. 19:30 13.sýn Sun 30/10 kl. 19:30 18.sýn Lau 12/11 kl. 19:30 23.sýn Fim 20/10 kl. 19:30 14.sýn Lau 5/11 kl. 19:30 19.sýn Fim 17/11 kl. 19:30 24.sýn Lau 22/10 kl. 19:30 15.sýn Sun 6/11 kl. 19:30 20.sýn Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik! Horft frá brúnni (Stóra sviðið) Fim 13/10 kl. 19:30 5.sýn Fös 28/10 kl. 19:30 8.sýn Lau 19/11 kl. 19:30 11.sýn Fös 14/10 kl. 19:30 6.sýn Sun 6/11 kl. 19:30 9.sýn Sun 20/11 kl. 19:30 12.sýn Sun 23/10 kl. 19:30 7.sýn Fim 10/11 kl. 19:30 10.sýn Eitt magnaðasta leikverk 20. aldarinnar Íslenski fíllinn (Brúðuloftið) Lau 15/10 kl. 13:00 Lau 22/10 kl. 15:00 Lau 5/11 kl. 13:00 Lau 15/10 kl. 15:00 Lau 29/10 kl. 13:00 Lau 5/11 kl. 15:00 Lau 22/10 kl. 13:00 Lau 29/10 kl. 15:00 Ævintýraför með forvitnum fílsunga - kemur þú með? Ég vil frekar að Goya haldi fyrir mér vöku en einhver djöfulsins fáviti (Kúlan) Lau 15/10 kl. 19:30 Frums Fös 21/10 kl. 19:30 3.sýn Lau 29/10 kl. 19:30 5.sýn Mið 19/10 kl. 19:30 2.sýn Fim 27/10 kl. 19:30 4.sýn Frumlegt og ögrandi samtímaverk Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Fös 14/10 kl. 20:00 Mið 26/10 kl. 20:00 Lau 5/11 kl. 20:00 Mið 19/10 kl. 20:00 Fös 28/10 kl. 20:00 Fös 21/10 kl. 20:00 Mið 2/11 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Yfir til þín - Spaugstofan (Stóra sviðið) Fös 21/10 kl. 19:30 28.sýn Lau 29/10 kl. 19:30 30.sýn Fim 27/10 kl. 19:30 29.sýn Fös 4/11 kl. 19:30 31.sýn Sprellfjörug gleðisýning fyrir alla fjölskylduna! Lofthræddi örnin Örvar (Kúlan) Lau 19/11 kl. 15:00 Lau 26/11 kl. 13:00 Lau 26/11 kl. 15:00 Hrífandi einleikur fyrir börn um hugrekki. Leitin að jólunum (Þjóðleikhúsið) Lau 26/11 kl. 11:00 Sun 27/11 kl. 11:00 Lau 26/11 kl. 13:00 Sun 27/11 kl. 13:00 Sívinsælt aðventuævintýri Þjóðleikhússins komið í sölu 11 leikárið í röð. AUGLÝSING ÁRSINS – ★★★★ – M.G. Fbl. MAMMA MIA! (Stóra sviðið) Fim 13/10 kl. 20:00 99. s. Sun 23/10 kl. 20:00 106. s. Lau 5/11 kl. 20:00 113. s. Fös 14/10 kl. 20:00 100. s. Fim 27/10 kl. 20:00 107. s. Fös 11/11 kl. 20:00 114. s. Lau 15/10 kl. 20:00 101. s. Fös 28/10 kl. 20:00 108. s. Lau 12/11 kl. 20:00 115. s. Sun 16/10 kl. 20:00 102. s. Lau 29/10 kl. 20:00 109. s. Sun 13/11 kl. 20:00 116.s Fim 20/10 kl. 20:00 103. s. Sun 30/10 kl. 20:00 110. s. Fim 17/11 kl. 20:00 117.s Fös 21/10 kl. 20:00 104. s. Fim 3/11 kl. 20:00 111. s. Fös 18/11 kl. 20:00 118.s Lau 22/10 kl. 20:00 105. s. Fös 4/11 kl. 20:00 112. s. Lau 19/11 kl. 20:00 119.s Gleðisprengjan heldur áfram! Blái hnötturinn (Stóra sviðið) Lau 15/10 kl. 13:00 Auka. Lau 29/10 kl. 13:00 9. sýn Lau 5/11 kl. 13:00 11.sýn Sun 16/10 kl. 13:00 7. sýn Sun 30/10 kl. 13:00 10.sýn Sun 6/11 kl. 13:00 12.sýn Sun 23/10 kl. 13:00 8. sýn Mið 2/11 kl. 19:00 aukas. Lau 12/11 kl. 13:00 13.sýn Nýr fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar Sending (Nýja sviðið) Fim 13/10 kl. 20:00 12.sýn Fim 20/10 kl. 20:00 13.sýn Allra síðustu sýningar! Njála (Stóra sviðið) Mið 19/10 kl. 20:00 Sun 6/11 kl. 20:00 Mið 26/10 kl. 20:00 Fim 10/11 kl. 20:00 Njáluhátíð í forsal frá kl. 18:45. Kjötsúpa og fyrirlestur. Hannes og Smári (Litla sviðið) Fös 14/10 kl. 20:00 3. sýn Lau 22/10 kl. 20:00 6. sýn Sun 30/10 kl. 20:00 9. sýn Lau 15/10 kl. 20:00 4. sýn Sun 23/10 kl. 20:00 7. sýn Fim 3/11 kl. 20:00 aukas. Sun 16/10 kl. 20:00 5. sýn Lau 29/10 kl. 20:00 8. sýn Lau 5/11 kl. 20:00 10.sýn Samstarfsverkefni við Leikfélag Akureyrar Extravaganza (Nýja svið ) Fös 28/10 kl. 20:00 Frums. Fös 4/11 kl. 20:00 4. sýn Fim 10/11 kl. 20:00 7. sýn Lau 29/10 kl. 20:00 2. sýn Lau 5/11 kl. 20:00 5. sýn Sun 13/11 kl. 20:00 8. sýn Sun 30/10 kl. 20:00 3. sýn Sun 6/11 kl. 20:00 6. sýn Mið 16/11 kl. 20:00 9.sýn Nýtt verk eftir Sölku Guðmundsdóttur Brot úr hjónabandi (Litla sviðið) Fös 4/11 kl. 20:00 Frums. Fim 17/11 kl. 20:00 7.sýn Sun 27/11 kl. 20:00 13.sýn Sun 6/11 kl. 20:00 2.sýn Fös 18/11 kl. 20:00 8.sýn Lau 3/12 kl. 20:00 14.sýn Mið 9/11 kl. 20:00 3.sýn Lau 19/11 kl. 20:00 9.sýn Þri 6/12 kl. 20:00 15.sýn Fim 10/11 kl. 20:00 4.sýn Sun 20/11 kl. 20:00 10.sýn Mið 7/12 kl. 20:00 16. sýn Lau 12/11 kl. 20:00 5.sýn Fös 25/11 kl. 20:00 11.sýn Sun 13/11 kl. 20:00 6.sýn Lau 26/11 kl. 20:00 12.sýn Átakamikið verk eftir Ingmar Bergman Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.