Morgunblaðið - 13.10.2016, Page 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2016
Verði Sjálfstæðisflokkurinn utan
ríkisstjórnar eftir næstu kosningar
er vinstristjórn það eina sem er í
spilunum. Þetta er raunveruleg
hætta, sagði Bjarni Benediktsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins og
fjármálaráðherra, á fundi með fólki
úr Samtökum eldri sjálfstæðis-
manna í Valhöll í gær. Þar fór Bjarni
yfir breytingar á almannatrygginga-
kerfinu, en lög þar að lútandi eru nú
að ganga í gegn. Lögunum segir
Bjarni fylgja miklar kjarabætur
enda verði skerðingar minni og ýms-
ar reglur og bótaflokkar einfaldaðar.
Hagur eldra fólks muni vænkast
mjög með þessu.
Í ræðu sinni á fundinum í gær
sagði Bjarni að sér þætti núverandi
stjórnarandstöðuflokkar nálgast
mörg af stærstu málum líðandi
stundar af nokkurri léttúð. Nefndi
hann þar stjórnarskrármál, fisk-
veiðistjórnunarkerfi og aðild að
Evrópusambandinu. Minna færi fyr-
ir umræðum um til dæmis að Salek-
samkomulagið um jöfnun lífeyris-
réttinda væri í upplausn. „Við meg-
um ekki gleyma okkur í umræðum
um loftslagsmál þegar við erum með
önnur mál alveg í kleinu. Það er
raunar alveg ótrúlegt hvernig mörg
aðalmál samtímans eru jaðarsett,“
sagði Bjarni, sem segir stöðu ís-
lensks samfélags nú um stundir al-
mennt góða. Ríkisstjórnin hafi á
kjörtímabilinu náð góðum árangri í
mörgum málum og því segist Bjarni
ganga óttalaus til alþingiskosninga
nú í lok mánaðarins. „En ég ber
kvíðboga gagnvart myndun næstu
ríkisstjórnar, en þar verðum við auð-
vitað að vinna úr niðurstöðum kosn-
inganna hverjar sem þær verða,“
segir Bjarni og bætir við að sér þyki
gagnrýni á Sjálfstæðisflokkinn bit-
lítil. „Þeir flokkar sem haldið hafa
þeim málflutningi uppi eru smám
saman að hverfa, svo sem Samfylk-
ingin,“ sagði Bjarni í ræðu sinni í
gær. sbs@mbl.is
Segist kvíða stjórnarmyndun
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Valhöll Bjarni Benediktsson og Halldór Blöndal á fundinum í gær.
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
„Kosningalögin gera það ekki að
skilyrði að frambjóðandi hafi lög-
heimili í kjördæminu sem hann býð-
ur sig fram í,“ segir Þórhallur Vil-
hjálmsson, ritari Landskjörstjórnar.
„Aftur á móti er
það skýrt að með-
mælendur eða
þeir sem skrifa
undir listann til
að hann verði lög-
legur verða að
vera úr kjördæm-
inu.“
Athygli hefur
vakið að margir
frambjóðendur
eru alls ekki bú-
settir í kjördæminu þar sem þeir eru
í framboði og hafa ekki einu sinni
lögheimili þar. En það hefur alltaf
verið löglegt, svo framarlega sem
menn eru kjörgengir og hafi kosn-
ingarétt. Elstu menn í stjórnsýsl-
unni minnast þess ekki að umræða
hafi verið tekin um að breyta því.
Þannig var Steingrímur Hermanns-
son lengst af þingmaður fyrir Vest-
firði en búsettur í Garðabæ.
Þessu er öðruvísi farið í sveit-
arstjórnarkosningum; þar þarf fólk
að hafa lögheimili í því sveitarfélagi
sem það býður sig fram í.
Ekki verið umdeilt
„Ég þekki söguna ekki nógu vel
en ég veit ekki til þess að þetta hafi
verið deilumál,“ segir Þórhallur hjá
Landkjörstjórninni.
Landskjörstjórnin er kosin til
fimm ára í senn. Þótt Innanrík-
isráðuneytið sjái um framkvæmd
kosninganna ákveður Landkjör-
stjórnin kjördæmamörkin í Reykja-
vík, en atkvæðamagn á milli kjör-
dæma þarf að vera nokkurn veginn
jafnt.
Þurfa ekki
að vera í
kjördæminu
Kjörgengir geta
boðið sig fram
Þórhallur
Vilhjálmsson
Barnavernd Kópavogsbæjar hefur
til skoðunar mál leikskólabarns
sem talið er að hafi verið beitt of-
beldi af hálfu starfsmanns leikskóla
í Reykjavík. Sigríður Björg Tóm-
asdóttir, upplýsingafulltrúi Kópa-
vogsbæjar, staðfesti þetta í samtali
við mbl.is í gær.
Þá segir hún að í öllum tilvikum,
þegar barnavernd telji grun leika á
um ofbeldi gegn barni, sé lögreglu
gert viðvart.
Vísir hefur greint frá því að
barnaverndarnefnd Reykjavíkur
hafi verið vanhæf í málinu vegna
tengsla við starfsmann. Hafi málinu
því verið vísað til næsta sveitarfé-
lags. Þá er leikskólinn sagður
einkarekinn.
Rannsaka ofbeldis-
mál á leikskóla
Málþing 2016
Nýjar íbúðir í Reykjavík
Borgarstjórinn í Reykjavík býður til málþings um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Reykjavík
föstudaginn 14. október 2016. kl. 8.30 - 12.00 í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Dregin verður upp heildstæð mynd af framkvæmdum og framkvæmdaáformum á
húsnæðismarkaði í Reykjavík. Áhersla verður lögð á samþykkt verkefni og framkvæmdir
sem eru nýlega hafnar, en einnig verður gefin innsýn í verkefni á undirbúningsstigi.
Dagskrá í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur föstudaginn 14. október 2016:
kl. 8.00 Létt morgunhressing
kl. 8.30 Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri: Uppbygging íbúðarhúsnæðis í Reykjavík.
kl. 09.30 Kynning á ýmsum uppbyggingarverkefnum:
• Þórunn Sveinbjörnsdóttir, Félag eldri borgara: Uppbygging á vegum FEB
• Kristján Sveinlaugsson, Þingvangur: Brynjureitur / Hljómalindarreitur
• Arnhildur Pálmadóttir, PK arkitektar: Hafnartorg
• Hildur Gunnarsdóttir, Reykjavíkurborg: Stúdentaíbúðir við Háskólann í Reykjavík
• Gunnar Valur Gíslason, Eykt: Höfðatorg
• Guðrún Ingvarsdóttir, Búseti: Uppbygging á vegum Búseta
• Ólöf Örvarsdóttir, Reykjavíkurborg: Almenna íbúðafélagið
• Ingunn Lilliendahl, Tark arkitektar: RÚV-reitur
• Páll Hjaltason, +Arkitektar: BYKO-reitur og Elliðabraut
• Guðrún Björnsdóttir, Félagsstofnun stúdenta: Stúdentaíbúðir á vegum FS
• Hannes Frímann Sigurðsson: Hömlur ehf.: Ráðstöfun lóða í Vogabyggð
• Davíð Már Sigurðsson, ÞG-verktakar: Bryggjuhverfi
• Björn Guðbrandsson, Arkís: Ártúnshöfði – rammaskipulag
kl. 11.00 Þorsteinn R. Hermannsson, Reykjavíkurborg: Borgarlínan og þétting byggðar
kl. 11.15 Snædís Helgadóttir, Capacent: Greining á fasteignamarkaði - Ný skýrsla Capacent
kl. 11.45 Umræður
kl. 12.00 Lok málþings
Allir velkomnir.
FA
R
10
16
- 0
3
www.reykjavik.is/ibudir
– nýjar íbúðir í Reykjavík