Morgunblaðið - 13.10.2016, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2016
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18 - fös: 12-17 - www.facebook.com/spennandi
20% afsláttur af öllum jökkum 13.-14.okt.!
Vertu upplýstur!
blattafram.is
MÖRG ÞEKKJUM VIÐ BÆÐI
ÞOLENDUR OG GERENDUR
KYNFERÐISOFBELDIS
PERSÓNULEGA.
ERUM VIÐ AÐ SAMÞYKKJA
ÞAÐ MEÐ ÞÖGNINNI?
Ullar- og
silkinærfatnaður
Kíktu á heimasíðuna
lifstykkjabudin.is
LAUGAVEGI 82 101 REYKJAVÍK SÍMI 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Póstsendum
Skoðið laxdal.is
Laugavegi 63 • S: 551 4422
GARDEUR
BUXNATILBOÐ
VANDAÐAR VETRABUXUR
20% AFSLÁTTUR
PEYSUÚRVAL
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Úrskurður forsætisráðuneytisins í
kæru Skotveiðifélags Íslands
(SKOTVÍS) vegna sölu Húnaþings
vestra á rjúpnaveiðileyfum á þjóð-
lendum innan marka sveitarfélags-
ins kom forsvarsmönnum sveitar-
félagsins á óvart, að sögn Guðnýjar
Hrundar Karlsdóttur sveitarstjóra.
„Við höfum áhyggjur af stöðu
sveitarfélagsins í málinu og þurfum
tíma til að fara betur yfir úrskurðinn
áður en við tökum ákvörðun um
framhaldið,“ sagði Guðný Hrund.
Hún sagði að sveitarfélagið hefði tal-
ið að fara ætti eftir þjóðlendulögum
varðandi þetta mál, en ráðuneytið
hefði vísað í lög um veiðar á villtum
fuglum og spendýrum.
Guðný Hrund sagði að áður en úr-
skurðurinn hefði verið kveðinn upp
hefði landbúnaðarráð sveitarfé-
lagsins talið að halda ætti upptekn-
um hætti varðandi sölu leyfa til
rjúpnaveiða á þjóðlendunum. Leggja
á fundargerðina fyrir sveitarstjórn í
dag. Guðný Hrund sagði að úrskurð-
ur forsætisráðuneytisins myndi
óhjákvæmilega hafa áhrif á af-
greiðslu þessa liðar fundargerðar-
innar.
SKOTVÍS fagnar úrskurðinum
SKOTVÍS sagði í yfirlýsingu að
úrskurður forsætisráðuneytisins
hefði komið fyllilega til móts við þau
sjónarmið sem félagið hefði lagt
fram í kæru sinni. Úrskurðurinn
væri sá fyrsti sinnar tegundar í ráðu-
neytinu og væri stefnumarkandi.
„Hann er ekki aðeins fagnaðarefni
fyrir þá skráðu 12.000 veiðikortahafa
sem er að finna í landinu, heldur alla
þá íslensku þegna sem vilja stunda
útivist í þjóðlendum landsins.
Af úrskurðinum má einnig vera
ljóst að öðrum sveitarfélögum er
ekki heimilt að selja veiðileyfi inn á
skilgreindar þjóðlendur hvort sem
það er til framleigu eða beinnar
leyfissölu, og að lög um fuglaveiðar í
þjóðlendum eru í fullu gildi,“ sagði í
yfirlýsingu SKOTVÍS.
Húnaþing vestra
hugsar sinn gang
SKOTVÍS fagnar niðurstöðunni
Morgunblaðið/Sverrir
Úrskurðurinn Óheimilt er að selja
rjúpnaveiðileyfi á þjóðlendum.
Börn með annað móðurmál en ís-
lensku sem eru að hefja skólagöngu
í grunnskólum borgarinnar skulu
tímabundið njóta undanþágu frá
greiðslu fyrir dvöl á frístunda-
heimili. Meirihluti skóla- og frí-
stundaráðs samþykkti þetta í gær
en samþykktin nær til 6-9 ára barna
í 1.-4. bekk. Talið er í skýrslu
starfshóps um móðurmálskennslu
barna með annað móðurmál en ís-
lensku að með þessu gefist börn-
unum tækifæri til að vinna með fé-
lagslega tungumálið og efla megi
þátttöku tví- og margtyngdra
barna í íslenskri barnamenningu.
Vilja efla þátttöku í
íslenskri menningu