Morgunblaðið - 13.10.2016, Qupperneq 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2016
www.gilbert.is
KLASSÍSK ÍSLENSK ÚR
FYRIR ÖLL TÆKIFÆRI
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þennan dag ætti að nota til þess að
skipuleggja ferðir með fjölskyldunni. Notaðu
tímann á næstunni og kauptu þér eitthvað
fallegt til þess að hengja upp inni í skáp.
20. apríl - 20. maí
Naut Skilin á milli góðs sjálfstrausts og
hroka eru ekki svo skörp, þú uppgötvar það
núna. Stjörnurnar eru sérstaklega hagstæðar
hvað félagslífið varðar.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þótt aðrir kunni að hafa réttu svörin
er óvíst að þeir hafi rétta afstöðu til mála.
Samstarfsfólk þitt virðist óvenju þrjóskt
núna.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Lífið er kennslustofa og þú ert frábær
nemandi núna þegar stjörnurnar styrkja at-
hyglisgáfuna. Sú leið sem rétt er liggur ekki
alltaf í augum uppi.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Fórn er aðdáunarverð af og til. Svo ef
þið eruð jákvæð og opin fyrir nýjungum meg-
ið þið vera viss um að allt fer á besta veg.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú leggur allt undir til þess að ná
markmiðum þínum. T.d.: Flýtur þú með
straumnum eða ertu óvirkur? Í hjarta þínu
finnur þú muninn. Klæddu þig upp á.
23. sept. - 22. okt.
Vog Loksins færðu líkamann til þess að vinna
með þér. Hugsaðu þig vel um, heimurinn
verður hérna líka á morgun og tækifærið
sömuleiðis.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Hafðu hugfast að þarfir fólks eru
mismunandi svo það sem er þér fyrir bestu
þarf ekki að eiga við um aðra. Miskunnin
blessar gefanda og þiggjanda.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú munt líklega eiga mikilvægar
samræður við yfirmenn þína og aðra yfirboð-
ara á næstu vikum. Spurningin er – hvernig?
Í dag getur þú eflaust leyst úr þessu vanda-
máli.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Himintunglin líta hentug úrræði
velþóknunaraugum. Vertu nærgætinn á öllum
sviðum. Nýttu hluta orkunnar í að færa út
kvíarnar.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Leitaðu réttar þíns og farðu fram
á það sem þú átt skilið. Möguleikarnir eru
óteljandi og það er synd að sitja með hunds-
haus og hendur í skauti. Hvort sem er
heillarðu fólk í kringum þig.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Sumt fólk hefur ósköp gaman af því
að segja þér ævisögu sína. En þegar verkinu
lýkur skaltu muna að hvíld er góð.
Ég greip í gærkvöldi Helga-fell, það gamla og góða
tímarit Magnúsar Ásgeirssonar
og Tómasar Guðmundssonar, og
þar sem það opnaðist var smá-
ljóðið „Jafnvægislögmál“:
Ef aldrei henti vitran villa
mundi flónum farnast illa.
„Úr Vísnabókinni“ var vinsæll
dálkur í Helgafelli, yfirleitt nafn-
laus. Hér eru „fjórar þenkingar“:
I.
Óeigingirnin
er með sanni
yndisleg dyggð
hjá öðrum manni.
II.
„Sannleikur varir
lengur enn lygi.“
- Máske er það af brúkun
á misjöfnu stigi.
III.
Nú gerast vorkvöldin græn og hlý
og geðslagið meyrt og ört:
Telpur á sveimi út um borg og bý
með bráðskotnum drengjum, sem
eru á ný
að reyna að koma einhverjum orðum
að því,
sem er örðugar sagt en gjört.
IV.
Að hafa síðasta orðið er undurlétt.
Ef menn kunna bara að tala rétt.
Sú tækni nær jafnan tilganginum
að taka ekki næstsíðasta orðið af hin-
um.
Þessi erindi bera yfirskriftina
þýtt og endursagt: – Bíólógísk nú-
tímaheimspeki:
Allt er á huldu um æðri stjórn að baki:
Iðranna þræll fer manneskjan á kreik.
Óræðar taugar, ofþensla eða slaki,
úrslitum ráða um synd og heilagleik.
Hormón eru örlög! Harður lögmálsagi
hreppir vort líf í kroppsins fangavist.
Fúnksjónir kirtla fjarri meðallagi
framkalla Ribbentrop og Jesúm Krist.
Og svo er það Vandræðadrengur:
Hvernig sem ég aga ‘ann
og amstra við að laga ‘ann
með fáryrðum og frekju
eða föðurlegri gæsku„
er um hann sama sagan
og sjálfan mig í æsku.
Hér er vísa af öðrum toga:
Mídas gerði í gamla daga
gull úr öllu nálægt sér.
Broddum vorra byggðarlaga
breytir gull í hvað sem er.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Tínt upp úr
Vísnabók Helgafells
Í klípu
„HEY, SLÚBBI! HVAÐ ER AÐ FRÉTTA,
MÚFFUSPAÐI? SÆL, DÚLLÍTA! SÉÐIG,
GARNAFLÆKJA! BLESSAÐUR, NJÓLI...“
ÓKEYPIS
GÆLU-
NÖFN
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„FYRIRGEFÐU AÐ ÉG VAKTI ÞIG!“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að sjá um heimilis-
verkin svo hún geti
farið á kvöldnámskeið.
ODDI ER STAÐGENGILL
MINN Í DAG.
FULLKOMIÐ!
HRÓLFUR, EINN
DAGINN MUNTU HITTA
SKAPARA ÞINN...
SPARK!
ÉG HÉLT AÐ ÉG VÆRI
BÚINN AÐ ÞVÍ!
ERTU AÐ
SEGJA AÐ ÉG SÉ
ÆTTLEIDDUR
?!
Leonard Cohen hefur á gamalsaldri verið iðinn við að semja nýja
tónlist og gefa út. Síðar í þessum
mánuði kemur út eftir hann ný plata,
You Want It Darker. Hann er 82 ára
gamall. Í grein um Cohen eftir David
Remnick í tímaritinu New Yorker
segir að þrátt fyrir hrakandi heilsu
sé hann jafn skýr í kollinum og leggi
jafn hart að sér og nokkru sinni og
vakni nokkru fyrir dagrenningu til að
skrifa. Í greininni segir Cohen að nú
sé færra til að dreifa athyglinni en
þegar hann þurfti að gegna skyldum
á borð við að vera fyrirvinna, eig-
inmaður og faðir. „Það eina sem
vinnur gegn fullri framleiðslu er bara
ástand líkama míns,“ segir Cohen.
Síðar í greininni segir hann að í viss-
um skilningi hafi hann aldrei haft það
betra.
x x x
Remnick fer yfir feril Cohens ígreininni allt frá rótum hans í
samfélagi gyðinga í Montreal, til
sambandsins við hina norsku Mari-
anne Ihlen og vináttu hans við Bob
Dylan. Rifjað er upp samtal þeirra
þegar Dylan spurði Cohen hversu
lengi hann hefði verið að skrifa lagið
Hallelúja. „Tvö ár,“ laug Cohen. Í
raun tók það hann fimm ár. Cohen
sagði við Dylan að hann kynni sér-
staklega að meta lagið „I and I“ á
plötunni Infidels og spurði hvað hann
hefði verið lengi að semja það. „Um
fimmtán mínútur,“ svaraði Dylan.
„Svona eru spilin gefin,“ sagði Cohen
þegar hann var spurður um þetta
samtal.
x x x
Mjög fróðlegt er að lesa um sviðs-ótta Cohens langt fram á fer-
ilinn. Ekki er síður gaman að lesa um
yfirvegun hans og öryggi í tónleika-
ferðinni sem hann fór í 2007 og stóð
nánast óslitið til 2013. Hann var til-
neyddur eftir að umboðsmaður hans
hafði hlunnfarið hann um milljónir
dollara og tæmt reikningana hans.
Ólíklegt er að Cohen fari í fleiri
tónleikaferðir. „Það sem hefur
breyst er nándin við dauðann,“ segir
hann. „Ég er snyrtilegur náungi. Mig
langar til að hnýta lausa enda ef ég
get. Ef ég get það ekki er það líka í
lagi. En það er í eðli mínu að ljúka því
verki sem ég hef hafið.“
víkverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn er öllum góður, og miskunn
hans er yfir öllum, sem hann skapar
(Sálm. 145:9)