Morgunblaðið - 13.10.2016, Qupperneq 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2016
1. Notandi þarf að vera með fulla áskrift og
skráður á mbl.is
2. Það er gert á forsíðu mbl.is, efst í vinstra
horninu (Innskráning · nýskráning)
3. Þú færð Morgunblaðs-appið á App Store og
Play Store
4. Kennitala er skráð sem notandanafn
5. Lykilorð er það sama og á mbl.is
SVONA SKRÁIR ÞÚ ÞIG
Ef þú þarft frekari aðstoð hafðu þá samband
við okkur í síma 569 1100
VIÐBÓT FYRIR ÁSKRIFENDUR
v
Fáðu Moggann þinn hvar sem er og hvenær sem er
Nú fylgir Morgunblaðið í rafrænni útgáfu fyrir spjaldtölvur og snjallsíma
MOGGINN
ÁSKRIFENDUR ATHUGIÐ
*RAFRÆN ÚTGÁFA MORGUNBLAÐSINS, E-MOGGINN, FÆST BÆÐI FYRIR
IPAD OG ANDROID 2.2. OG NÝRRI ÚTGÁFUR.
**GILDIR FYRIR ÞÁ SEM ERU MEÐ FULLA ÁSKRIFT.
*
**
Saxófónleikarinn og Seltirningur-
inn Björgvin Ragnar Hjálmarsson
kemur fram á tónleikum í Bóka-
safni Seltjarnarness í dag klukkan
17.30. Tónleikarnir eru hluti af
tónleikaröðinni Tónstafir, sem er
samstarfsverkefni Bókasafnsins og
Tónlistarskóla Seltjarnarness.
Björgvin Ragnar lagði upphaflega
stund á nám við tónlistarskólann
og hefur látið að sér kveða á sviði
djasstónlistar þrátt fyrir ungan
aldur.
Á tónleikunum mun Björgvin
Ragnar leika vinsæl dægurlög eft-
ir lagahöfundana Jón Múla Árna-
son og Megas. Með honum á svið-
inu verður gítarleikarinn
Rögnvaldur Borgþórsson. Aðgang-
ur er ókeypis.
Djass Björgvin Ragnar flytur dægurlög
Jóns Múla og Megasar á saxófón.
Lög Jóns Múla og
Megasar á saxófón
Hjalti Karlsson,
hönnuður og
meðstofnandi
hönnunarstof-
unnar karls-
sonwilker inc. í
New York, held-
ur fyrirlestur í
Listasafni
Reykjavíkur,
Hafnarhúsi, í
kvöld klukkan 20. Hjalti mun segja
frá hönnun nýs einkennis Lista-
safns Reykjavíkur sem var hannað
með það í huga að færa söfnin þrjú
nær hvert öðru svo ekki fari á milli
mála að Ásmundarsafn, Kjarvals-
staðir og Hafnarhús tilheyri sömu
stofnuninni – Listasafni Reykjavík-
ur. Aðgangur er ókeypis.
Einkenni Lista-
safns Reykjavíkur
Hjalti Karlsson
Mengi(berlin) er heiti sýningar sem
verður opnuð í samstarfi við Sendi-
ráð Íslands í Berlín á morgun,
föstudag, kl. 18. Á sýningunni, sem
sett verður upp í Felleshus, sameig-
inlegu rými norrænu sendiráðanna
í Berlín, verður til sýnis úrval lista-
verka sem orðið hafa til á þriggja
ára ferli Mengis eftir Ingu Birg-
isdóttur, Orra Jónsson, Söru Riel,
dj. flugvél og geimskip, Guðmund
Vigni Karlsson og Nicolas Kunysz.
Meðal verka á sýningunni eru plöt-
ur og plötuumslög, veggspjöld,
teikningar, textaverk, vídeó og
fleira, en sýningin stendur til 11.
janúar.
Staðsetning sýningarinnar er
engin tilviljun. „Berlín er eins og
frægt er mikill suðupottur lista og
sköpunar og á undanförnum árum
hefur stór hópur íslenskra lista-
manna sest þar að, drukkið í sig
næringu og um leið auðgað Berl-
ínarsenuna með eigin listsköpun,“
segir í tilkynningu frá Mengi. Á
þessu þriggja mánaða tímabili sem
sýningin stendur verða fjölmargir
listviðburðir haldnir með íslenskum
listamönnum sem allir hafa komið
fram í Mengi. Þeirra á meðal eru
Skúli Sverrisson, Óskar Guð-
jónsson, Ólöf Arnalds, amiina, Krið-
pleir leikhópur, Hildur Guðnadótt-
ir, Nordic Affect, Indriði, Jófríður
Ákadóttir (JFDR) og dj. flugvél og
geimskip auk norska tónlistar-
mannsins Arve Henriksen.
Morgunblaðið/Eggert
List Ólöf Arnalds er meðal listamanna sem koma fram á Mengi(berlin).
Þriggja ára afrakstur
Mengis á sýningu í Berlín
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
„Ég hef aldrei verið vondur maður og
aldrei gert neinum neitt, þannig að ég
hef engar áhyggjur. Ég hef bara verið
tónlistarmaður og reynt að gera mitt
besta,“ segir Herbert Guðmundsson
tónlistarmaður um nýja heimildar-
mynd um líf sitt.
Herbert skrifaði
undir samning
þess efnis að hann
fengi ekki að sjá
myndina áður en
hún yrði sett í sýn-
ingu. Heimildar-
myndin er afrakst-
ur vinnu
kvikmyndagerð-
armannanna Frið-
riks Grétarssonar
og Ómars Sverrissonar sem fylgt hafa
Herberti eftir undanfarin fimm ár.
Myndin ber nafnið Can’t Walk
Away eftir þekktasta lagi Herberts og
verður frumsýnd í Sambíóunum Eg-
ilshöll á laugardaginn kemur.
Sagan mín er svolítið „djúsí“
Í myndinni er varpað ljósi á líf og
drauma, sigra og ósigra Herberts.
Að sögn Herberts kviknaði hug-
myndin hjá Friðriki í kjölfar þess að
hann gerði myndband við lag Her-
berts, „Time“. „Svo var til hellingur af
efni inni á RÚV og Tímarit.is, auk þess
sem til eru viðtöl við samferðamenn,
þannig að til er fullt af efni. Nóg kjöt á
beinunum eins og menn segja.“
Herbert viðurkennir að í fyrstu hafi
honum þótt óþægilegt að hafa kvik-
myndagerðarmennina með í för en svo
hafi það vanist. „Sagan mín er svolítið
„djúsí“ þar sem ég er búinn að vera í
þessum bransa frá því upp úr 1970,“
segir Herbert.
Hann segir að hann hafi ekki dregið
neitt undan í viðtölum í myndinni.
„Sannleikurinn gerir mann frjálsan,“
segir Herbert og bætir við. „Þetta er
tónlistin, einkalífið, skilnaðir, dópið og
fleira, bara allt. Þetta verð-
ur alvöru heimildarmynd,“
segir Herbert.
Ekki fengið
viðurkenningu
Herbert varð fyrst þekkt-
ur á Íslandi þegar honum
bauðst staða aðalsöngvara í
hljómsveitinni Tilveru, en á
þeim tíma voru þekktustu
hljómsveitir landsins ásamt
Tilveru, Ævintýri og Trúbrot.
Friðrik segir að gerð hafi ver-
ið rannsóknarvinna áður en verkefnið
hófst. Það sem vakti ekki síst áhuga
var baksaga Herberts og hans per-
sónulegu málefni. „Okkur finnst eins
og hann hafi aldrei fengið almennilega
viðurkenningu sem flestir tónlist-
armenn hafa fengið,“ segir
Friðrik.
Hann segir að ýmislegt
beri á góma við gerð mynd-
arinnar. „Það er ýmislegt
sem hann hefur mátt þola
úr barnæsku sem og síðar
á lífsleiðinni. Svo virðist
sem hann hafi nær alla tíð
verið í mótvindi, en alltaf
náð að standa uppréttur.
Það var í raun það sem
vakti áhuga minn og
Ómars á þessu verkefni,
persóna hans,“ segir Friðrik.
Tók tíma að sannfæra Herbert
Hann segir að nokkurn tíma hafi
tekið að sannfæra Herbert um ágæti
þess að gera myndina. „Ég held að
fólk eigi eftir að líta Herbert öðrum
augum eftir að það sér myndina. Þetta
verði ekki bara Hebbi sem gerði
„Can’t Walk Away“, heldur að þarna
sé miklu meira á bakvið og að hann fái
meiri viðurkenningu. Vonandi hjálpar
þetta honum því hann hefur gert mik-
ið af efni sem fólk er ekkert að hlusta
á. Í stuttu máli er þetta einlæg og
sannsöguleg mynd um hans líf og
hvergi er neitt dregið undan,“ segir
Friðrik.
Hann segist ekki vera aðdáandi tón-
listar Herberts, en hann hafi hins veg-
ar alltaf munað eftir því þegar hann sá
myndbandið sem Herbert gerði við
„Can’t Walk Away“. „Mér fannst það
alltaf svolítið flott, sérstaklega miðað
við myndböndin sem verið var að gera
á Íslandi á þessum tíma.“
„Sannleikurinn
gerir mann frjálsan“
Can’t walk away er heimildarmynd um Herbert Guðmundsson Hispurslaus
frásögn Skrifaði undir samning um að hann fengi fyrst að sjá myndina í bíó
Allt „Þetta er tónlistin, einkalífið, skilnaðir,
dópið og fleira, bara allt. Þetta verður alvöru
heimildarmynd,“ segir Herbert Guðmundsson.
Friðrik
Grétarsson