Morgunblaðið - 13.10.2016, Side 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2016
Tíminn líður hratt á gervi-hnattaöld, eins og segir ídægurlaginu; hraðar sér-hvern dag, hraðar sérhvert
kvöld. Heimildarmyndin InnSæi boð-
ar framsækna vitundarvakningu um
böl hinna buguðu ofuriðjusömu
streituþræla í hraðskreiðum vest-
rænum samtíma og miðlar mögulegri
lausn áþjánar þeirra. Áhorfendur
fara í hrífandi heimsreisu með tveim-
ur frumkvöðlum á sviði alþjóðlegs
hjálparstarfs og almannatengsla og
komast að raun um að mannlegt
innsæi getur brúað rökhugsun og
sköpunarkraft jafnt í leik og starfi.
Auk þess getur það aukið aðlög-
unarhæfni nútímamannsins að sí-
breytilegri heimsmynd hans og opn-
að fyrir nýsköpun og hugviti sem
nært getur framtíð hinnar vestrænu
heimsbyggðar. Um þessar mundir
hampar vestrænt atvinnulíf skilvirkni
á kostnað frumkvæðis og einkennist
ákvarðanataka þess nokkuð af
skammtímaávinningum og faustískri
þekkingaröflun. Þar af leiðandi búa
margir vinnandi þegnar þessa heims
við sjúklega örkumlandi streitu og
kulnun í starfi. Enn fremur eru sí-
byljandi upplýsingaáreiti og skeyt-
ingarlaust ofbeldi orðin daglegur
hluti af menningu margra samfélaga
og margir einstaklingar hafa misst
tengsl við umhverfi sitt, náttúruna,
sinn innri mann og náungann.
Hrund Gunnsteinsdóttir er hand-
ritshöfundur, sögumaður og annar
leikstjóra myndarinnar. Hún er
mannfræðingur að mennt og lauk
framhaldsnámi í þróunar- og átaka-
fræðum. Um tíma vann hún fyrir
Sameinuðu þjóðirnar á stríðshrjáðum
svæðum, í Kosovo og víðar, en hún
uggði ekki að sér og iðjusemi gerði
hana að buguðum streituþræl. Mynd-
in byggir því á reynslu Hrundar
sjálfrar af eftirköstum örmögnunar
og leið hennar og leit að betra lífi í
gegnum innsæi sitt. Hrund fékk kvik-
myndaframleiðandann og leikstjór-
ann Kristínu Ólafsdóttur til liðs við
sig. Kristín er með meistaragráðu í
alþjóðlegum almannatengslum, en
áður hafa þær Hrund starfað saman
fyrir UNIFEM-samtökin. Í mynd-
inni koma einnig fram heimsþekktir
leiðtogar og hugsuðir á sviði lista, vís-
inda og fræða sem leiða áhorfendur
inn í margræðan heim InnSæis. Við-
mælendurnir eru vel valdir en nær-
vera og eggjandi augnaráð serbnesku
gjörningslistakonunnar Marinu
Abramovics setur sérstaklega sterk-
an svip á myndina því hún kastar eins
konar álögum á áhorfendur og fær þá
til að líta inn á við, viðurkenna líkam-
leg takmörk sín og þora að takast á
við óravíddir tilfinninga sinna og hug-
arflugs.
Taugalíffræðingurinn Marti
Spiegelman bendir á að Vestur-
landabúar eru fastir í línulegri sjálfs-
stýringu og nota til þess aðeins 2-3%
af heilaorku og getu sinni. Ein-
staklingar hjóla því áfram eins og
hamstrar í linnulausu lífsgæðakapp-
hlaupi, fastir í viðjum vanans og brota-
kenndri tilveru þar sem viska hefur
vikið fyrir þekkingu og þekkingu hef-
ur verið skipt út fyrir upplýsingar sem
samanstanda af aðgreindum söfnum
staðreynda og gagna. Alræði rök-
hyggju hefur yfirskyggt allan sköp-
unarkraft og núvitund, sem hefur ger-
ræðisáhrif á umhverfið og mannlega
velferð. Sálfræðingurinn Iain McGilc-
hrist segir áhorfendum að innsæi sé
ekki bara einhver bleik og mjúk til-
finning heldur sé sjálfsskoðun nauð-
synleg fyrir heilastarfsemi mannfólks-
ins því hún auki samkennd. Ójafnvægi
í heilastarfseminni leiðir til geð-
sjúkdóma og ýmiss konar öfgastefna,
fordóma og haturs svo fátt eitt sé
nefnt. Of mikið áreiti í daglegu amstri
leiðir fólk inn í kaldar auðnir einangr-
unar og einveru og þá missir mann-
fólkið sjónar á eigin mikilvægi og
mætti náungakærleikans, sem aftur
leiðir til glundroða, spillingar og ófrið-
ar.
Ýktar nærmyndir af augum Mar-
inu Abramovics og annarra í mynd-
inni fá áhorfendur til að líta inn á við
og spegla sálir sínar. Sú innsýn opnar
gáttir inn í nýjar víddir þar sem
innsæið ræður ríkjum. Reyndar má
segja að snilldarlega útfærð kvik-
myndataka og klipping hjálpi mikið
til við miðlun á boðskap myndarinnar.
Þar takast á ýktar nærmyndir og
fjarmyndir, ýmist úr lofti eða af láði,
af lifandi verum, misgróskumiklum
lífríkjum og erilsömu borgarlands-
lagi. Mögnuð grafík og stórbrotið
myndefni í anda National Geograpic
er dáleiðandi og biðlar til allra skyn-
færa. Kvikmyndatakan einkennist af
breytilegri skerpu þar sem athygli
áhorfenda er beint frá viðfangsefnum
í forgrunni til þess sem er fjær í bak-
grunni. Þannig skapast samræður
milli hins agnarsmáa og þess risa-
vaxna. Myndefnið hreyfist, dansar og
umbreytist í einskonar kviksjá lita,
mynstra og speglana. Áhrifin eru
heillandi og heildarútkoman verður
sérlega sterk með viðbættri seiðandi
undirleikstónlist og kynngimögn-
uðum, táknrænum hreyfimyndum.
InnSæi minnir áhorfendur á að
heimurinn er undraverður og að hann
verður seint kortlagður til hlítar.
Mannfólkið þarf að virða eigin tak-
markanir í hraða og amstri samtím-
ans. Það þarf að læra að hlusta á
innsæi sitt og forðast að selja streitu-
djöflinum sál sína og mannlega sam-
kennd til þess eins að ná frama, vel-
megun eða til að öðlast takmarka-
lausa þekkingu. Því sú sala er þegar á
hólminn er komið, og eins og Faust
fékk að reyna, aðeins tortímandi kvöl
og pína.
Innsæi sem linar
kreppu streituþræla
Bíó Paradís
InnSæi – The Sea Within bbbbm
Leikstjórn: Hrund Gunnsteinsdóttir og
Kristín Ólafsdóttir. Handrit: Hrund
Gunnsteinsdóttir. Stjórn kvikmynda-
töku: Faye. Klipping: Nick Fenton og
Sotira Kyriacou. Sjónrænar tæknibrell-
ur og grafískar hreyfimyndir: Tim Borg-
mann. Leirhreyfimyndir: Linda Loeskow.
Tónlist: Úlfur Eldjárn. Heimildarmynd.
77 mín. Ísland, Bretland og Danmörk
2016.
HJÖRDÍS
STEFÁNSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Álög „Viðmælendurnir eru vel valdir en nærvera og eggjandi augnaráð serbnesku gjörningslistakonunnar Marinu
Abramovics setur sérstaklega sterkan svip á myndina því hún kastar eins konar álögum á áhorfendur.“
Gunnar Guð-
björnsson tenór
og Helga Bryn-
dís Magnúsdóttir
píanóleikari
munu flytja ís-
lensk sönglög í
Fríkirkjunni í
Reykjavík í dag.
Tónleikarnir
hefjast klukkan
12 og taka um
hálfa klukkustund.
Aðgangseyrir er 1.500 krónur.
Ekki verður tekið við greiðslu-
kortum. Flytjendurnir lofa huggu-
legri hádegisstund í miðbænum
þar sem klassísk sönglög verða í
fyrirrúmi.
Sígild sönglög
Gunnar
Guðbjörnsson
Í tilefni 90 ára afmælis Ljósmynd-
arafélags Íslands stendur félagið
fyrir ljósmyndasýningu í nóvember
í Kringlunni. Öllum atvinnu-
ljósmyndurum landsins, jafnt innan
og utan félagsins, er boðið til þátt-
töku á þessum tímamótum með fé-
laginu. „Félagið hefur í gegnum ár-
in efnt til sýninga af slíkum
tilefnum og ákvað núverandi stjórn
félagsins að feta í fótspor fyrir-
rennara sinna og efna til afmælis-
sýningar,“ segir í tilkynningu. Þar
kemur fram að settir hafi verið upp
nokkrir flokkar ljósmyndunar með
það að markmiði að stuðla að
breidd í þátttöku atvinnuljósmynd-
ara. Flokkarnir eru: auglýsinga-
ljósmyndun, allar tegundir af port-
rettum, landslag, frásagnamyndir,
seríur og brúðkaup.
Senda skal myndirnar inn í staf-
rænu formi gegnum wetr-
ansfer.com á netfang félagsins:
ljosmynd@ljosmyndarafelag.is.
Valnefnd sýningarinnar skipa
Vilhelm Gunnarsson, Ragnar Th.
Sigurðsson, Sigríður Kristín Birnu-
dóttir, Bryndís Loftsdóttir og
Sverrir Björnsson. Skilafrestur er
til 18. október. Allar nánari upplýs-
ingar má nálgast á vefnum
ljosmyndarafelag.is/90ara/
Afmælissýning á 90 ára afmæli
Velkomið Öllum atvinnuljósmyndurum
landsins er boðin þátttaka á sýningunni.
Mikið úrval af snögum
og snagabrettum
Snagabretti frá kr. 980
Snagar frá kr. 265
Opið
virk
a
dag
a frá
9-18
lau
frá 1
0-16
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
MIDDLE SCHOOL 6
MAGNIFICENT 7 9, 10:30
FRÖKEN PEREGRINE 6, 8
BRIDGET JONES’S BABY 8
EIÐURINN 10:35
STORKAR 2D ÍSL.TAL 6
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar