Morgunblaðið - 13.10.2016, Page 44

Morgunblaðið - 13.10.2016, Page 44
FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 287. DAGUR ÁRSINS 2016 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR. 1. Fluttur til Bandaríkjanna 2. Með barnið á brjósti í ræðustól 3. Múlakvísl nær upp að þjóðvegi 4. Sumarhús Rutar Kára við sjóinn »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Hjaltalín flytur nýtt efni af væntan- legri plötu á tónleikum í menningar- húsi Íslendinga á Norðurbryggju í Kaupmannahöfn í kvöld kl. 22. Tón- leikarnir eru hluti af menningar- dagskrá í tilefni menningarnætur Kaupmannahafnarbúa. Morgunblaðið/Rósa Braga Hjaltalín frumflytur efni á Norðurbryggju  Í tilefni al- þjóðlegs dags sem tileinkaður er missi á meðgöngu og barnamissi stendur Tjarn- arbíó í samvinnu við Gleymmérei styrktarfélag fyrir umræðum að lok- inni sýningu á Sóley Rós ræstitækni í Tjarnarbíói í kvöld, en sýningin hefst kl. 20.30. Uppfærslan hefur hlotið af- ar góðar viðtökur hjá jafnt gagnrýn- endum sem áhorfendum. Umræður að lokinni sýningu á Sóley Rós  Söngkonan og lagahöfundurinn Kristbjörg Kari Sólmundsdóttir frumflytur eigin lög við ljóð Steins Steinars í Fríkirkj- unni í Reykjavík í kvöld kl. 20, á af- mælisdegi skálds- ins. Söngkonan Svava Kristín Ingólfsdóttir flytur nokkur lög eftir Bergþóru Árnadóttur við ljóð Steins. Sérstök gesta- söngkona verður Margrét Eir. Tónleikar á afmæl- isdegi Steins Steinars Á föstudag Suðaustlæg átt 5-10 m/s, bjartviðri norðanlands, en dálítil væta sunnan- og vestanlands. Lægir og styttir að mestu upp þegar líður á daginn. Hiti 6 til 13 stig að deginum. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 10-18 m/s og talsverð eða mikil úrkoma sunnantil á landinu, víða rigning vestanlands, en úrkomu- lítið norðaustantil. Dregur úr vindi og úrkomu í kvöld. VEÐUR „Við eigum eitthvað inni eftir keppnina og verðum að laða það fram á föstudag- inn,“ sagði Stella Ein- arsdóttir, einn liðsmanna stúlknalandsliðsins í hóp- fimleikum, eftir að sveitin hafnaði í öðru sæti í und- ankeppninni á EM í Slóveníu í gærkvöldi. Blandað ung- lingalið Íslands hafnaði í þriðja sæti og keppir því einnig til úrslita á mótinu í Slóveníu. »1 Íslensku liðin bæði í úrslit Rosengård og Breiðablik gerðu markalaust jafntefli í síðari leik lið- anna í 32 liða úrslitum Meistara- deildar Evrópu í knattspyrnu í Malmö í gærkvöldi. Íslandsmeistararnir eru úr leik í keppninni en geta borið höfuðið hátt eftir saman- lagt eins marks tap fyrir Rosen- gård sem ætla má að sé hæst skrifaða kvennaliðið á Norður- löndum. »2-3 Íslandsmeistararnir geta borið höfuðið hátt Vandræðagangur Íslandsmeistara Hauka í Olís-deildinni heldur áfram en meistararnir máttu þola á tap á heimavelli gegn erkifjendunum í FH þegar liðin áttust við í fyrsta leik 7. umferðar deildarinnar í gær. Hauk- arnir sitja þar með áfram í fallsæti, eru í næst neðsta sætinu, en FH- ingar fóru upp um þrjú sæti og eru komnir í fjórða sætið. »2-3 Vandræði Haukanna halda áfram ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.Is „Tilkoma sjónvarpsins breytti meiru á Íslandi en viðurkennt er. Að taka þátt í stofnun þess og starfa við þennan fjölmiðil var afar skemmtilegt, en það hefur ekki síður verið áhugavert að safna til og setja upp sýningu um starfsemi þess og bregða upp svipmyndum frá hálfri öld. Sjálfur starfaði ég við sjónvarpið fyrsta áratuginn og því er þetta að nokkru mín eigin saga,“ segir Björn G. Björnsson leikmyndahönnuður og sýningahönn- uður. Fjórtán skjáir á Markúsartorginu Á fimmtíu ára afmæli sjónvarpsins á dögunum var á svonefndu Markúsartorgi, miðrými útvarps- hússins við Efstaleiti, opnuð sýning þar sem brugðið er ljósi á þessa hálfrar aldar sögu. Lifandi myndir, til að mynda brot úr sjónvarpsþáttum, leiknu efni og fréttum, eru á fjórtán skjám og á um 30 veggspjöldum eru myndir og frásagnir úr starf- semi stofnunarinnar. Þar eru einnig leikbúningar, sviðsmyndir úr kunnum þáttum og leikverkum, ýmis tæknibúnaður og svo sjónvarps- og útvarps- tæki, frá löngum tíma. Raunar nær sýningin til Ríkisútvarpsins alls, það er einnig hljóðvarpsins en starfsemi þess hófst 1930. „Það var í nóvember í fyrra sem kallað var til mín um að setja upp þessa sýningu. Þetta hefur verið áhugavert verkefni og ýmsir merkir munir úr Ríkisútvarpinu voru til þegar farið var að leita,“ sagði Björn sem fylgdi Morgunblaðinu um sýn- inguna í gær. Þar má, auk framangreinds, sjá til dæmis þekktar leikbrúður eins og Glám, Skrám og Pál Vilhjálmsson og svo búninga söngkvenna sem hafa verið fulltrúar Íslands í Eurovision. Svo mætti áfram telja. „Stofnun sjónvarpsins árið 1966 er einn stærsti atburðurinn í íslenskri fjölmiðlasögu. Sé horft fram hjá líðandi stund er ljóst að Ríkisútvarpið geymir drjúgan hluta af nútímasögu þessarar þjóðar, bæði í máli og myndum; andlit hennar og svipbrigði, raddir og fas, og viðburði sem settu mark sitt á söguna. Þarna get ég nefnt frétta- myndir frá til dæmis eldgosum, þorskastríðum og fleiri stórviðburðum. Margir sem sinntu dag- skrárgerð í sjónvarpinu á þessum fyrstu árum fóru seinna út í stjórnmál eða önnur trúnaðarstörf. Fáir höfðu annars betri tök á sjónvarpsmiðlunum í fyrstu en Kristján Eldjárn í þáttunum Munir og minjar og framhaldið af þeirri sögu þekkja allir,“ nefnir Björn G. Björnsson og heldur áfram: Logar, Skálholt og Lénharður fógeti „Ég kom til starfa hér 1. ágúst 1966 og sá um leikmyndirnar. Strax þá í mánuðinum voru fyrstu þættirnir teknir upp, til dæmis með Logum úr Vestmannaeyjum og svo okkur félögunum í Sav- anna-tríóinu. Boltinn fór fljótlega að rúlla og þótt byrjendabragur væri á mörgu var fljótlega farið í upptökur á stórum leikverkum, eins og til dæmis Galdra-Lofti, Skálholti, Lénharði fógeta og svo mætti áfram telja. Allar upptökur af leiknu efni eru varðveittar og hafa elst ágætlega, þó þær séu sannarlega barn síns tíma.“ Geymir drjúgan hluta af nútímasögu þessarar þjóðar Morgunblaðið/Sigurður Bogi Leikmynd Björn G. Björnsson sýningarhönnuður með Boga í baksýn og kort frá illviðrisdegi 1982  Sýning í Sjónvarpinu sem er 50 ára  Leikið efni, fréttir, tæki og ýmsir munir Áhersla er lögð á fyrstu áratugina í sögu sjón- varpsins á sýningunni í Efstaleiti. Nútíminn er samt nærri og á skjám rúlla myndskeið af at- burðum allt til líðandi árs. „Fjölmiðill er lif- andi fyrirbæri sem breytir samfélaginu og skráir sögu þess um leið. Sjónvarpið hefur verið heimilisvinur í hálfa öld,“ segir Björn, sem bætir við að sýningin í Útvarpshúsinu verði uppi næstu þrjú til fjögur árin. Hún verð- ur opin gestum alla laugardaga á næstunni en áður þurfa þeir að skrá sig á vefsetrinu ruv.is Sjónvarpið heim- ilisvinur í hálfa öld HEIMILISVINUR Í HÁLFA ÖLD

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.