Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2015, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2015, Qupperneq 8
8 Fréttir Helgarblað 6.–9. mars 2015 Ó lga ríkir meðal starfsmanna Isavia vegna launakjara Kristjáns Jóhannssonar, for­ manns og nú einnig fram­ kvæmdastjóra Félags flug­ málastarfsmanna ríkisins, FFR. Félagsmenn þurfa einnig þessa dag­ ana að taka afstöðu til þess hvort stéttarfélag þeirra efni til samstarfs við SFR, stéttarfélag í almannaþjón­ ustu. Samkvæmt heimildum DV eru félagsmenn, sem eru alls um 370, ekki á einu máli um ágæti samstarfs um starfsemi og rekstur félaganna. Nýlega varð að ráði að kjörinn formaður FFR, Kristján Jóhannsson, yrði jafnframt framkvæmdastjóri fé­ lagsins og helgaði sig málefnum þess í fullu starfi. Einhverjir starfsmenn Isavia vildu fá að vita um launakjör hans, vinnuskyldu og fjárhag fé­ lagsins og vörpuðu fram spurning­ um þar um. Töldu þeir órökstutt að FFR þyrfti framkvæmdastjóra í fullu starfi auk þess sem fjárhagur félags­ ins væri bágborinn. Íþyngjandi fyrir FFR Kristján hefur sagt í fjölmiðlum að starfsmenn Isavia séu brenndir eftir verkföll á síðasta ári og talar nú fyrir samstarfi FFR og SFR, en félagsmenn taka afstöðu til þess á næstunni í al­ mennri atkvæðagreiðslu. Svörin sem Kristján fram­ kvæmdastjóri gaf fyrirspyrjendum innan félagsins sýna að tekjur hans hjá félaginu eru nálægt einni milljón króna á mánuði. Iðgjöld sem greidd eru til FFR nema um 1,8 milljónum króna á mánuði og námu tekjur fé­ lagsins af þeim rúmri 21 milljón króna í fyrra. Tekjur Kristjáns skiptast þannig að mánaðarlaun eru 771 þúsund krónur og bílastyrkur um 166 þús­ und krónur á mánuði. Að meðtöld­ um launatengdum gjöldum nemur heildarkostnaður FFR vegna fram­ kvæmdastjórans ríflega 1,1 milljón króna á mánuði eða um 13 milljónum króna á ári. Grunsemdir um oftöku launa DV hefur undir höndum tölvupóst og bréf sem farið hafa á milli félags­ manna og Kristjáns vegna málsins. Í einum þeirra, frá stjórnarmanni FFR, er því haldið fram að Kristján hafi sagt ósatt um heildarkostnað vegna starfa sinna í þágu félagsins þar sem hann hafi „látið bókara fé­ lagsins borga sér sérstaklega fyrir alla fundarsetu og samningafundi í síðustu kjarasamningum við Isavia. Þannig að launin voru tvöföld. Þetta gerði hann án vitundar stjórnar á sínum tíma,“ segir í tölvupósti frá stjórnarmanni FFR. „Það sem ég segi þér núna er búið að plaga mig talsvert síðan ég áttaði mig á hvernig málum er háttað. Ég fagna því að gagnrýnd sé hugsanleg samvinna við SFR, en ýmislegt hefur gengið á bak við tjöldin,“ segir í öðr­ um tölvupósti frá stjórnarmanni til starfsmanns, sem kveðst hafa fundið eitt og annað ámælisvert í bókhaldi félagsins. Fleira kemur til Meðal þess sem sætir gagnrýni af hálfu félagsmanna er dráttur á skip­ un stjórnar yfir svonefndum starfs­ menntasjóði sem fluttur var úr fjár­ málaráðuneytinu til félagsins við gerð síðustu kjarasamninga félags­ manna. Hvorki hefur sjóðnum verið settar starfsreglur né heldur hafa fé­ lagsmenn verið upplýstir um endur­ menntunarstyrki, en í sjóðnum eru hátt í fimm milljónir króna. Kristján svaraði fyrir sitt leyti spurningum starfsmanna um kjör sín og störf í þágu FFR snemma í síð­ asta mánuði. Fyrrverandi starfsmað­ ur hafi verið í um hálfu starfi í þágu félagsins og fengið fyrir það 250 þús­ und króna þóknun á mánuði, en sá hætti fyrir réttu ári. Fram kemur að Kristján hafi þá tekið yfir verkskyldur í þágu FFR, þar á meðal við gerð kjarasamninga, og ákveðið að formaður skyldi jafnframt gegna starfi framkvæmdastjóra FFR. Formaður snýst til varnar Fyrir um mánuði sá Kristján sig knúinn til að útskýra mál sitt á vef FFR þar sem hann taldi að reynt hefði verið að „gera forystu félagsins tortryggilega í augum félagsmanna“. Þar er farið yfir langar og harka­ legar samningaviðræður um kaup og kjör í fyrra. „Eins og öllum má vera ljóst fylgdi ofangreindum verk­ fallsaðgerðum og samningaviðræð­ um nokkur kostnaður fyrir félagið. Kostnaður við gerð kjarasamnings og verkfalls átök í aðdraganda hans er eitthvað sem kemur félagsmönn­ um til góða á næstu árum, en kostn­ aðurinn verður hins vegar allur gjaldfærður á síðasta ári. Vonandi þarf ekki að grípa aftur til slíkra að­ gerða í kjarabaráttu félagsins á allra næstu árum. Fyrirsjáanlegt er því að afkoma félagssjóðs og uppgjör ársins 2014 muni bera þessa nokkur merki.“ Fram er komið að tap varð á starf­ semi FFR á síðasta ári og gerir Krist­ ján ráð fyrir því í umfjöllun sinni að starfsemi FFR verði umfangsminni næstu árin og afkoma félagsins í jafnvægi. Reikningar félagsins verða lagðir fram á aðalfundi félagsins eigi síðar en í lok apríl næstkomandi. Kristján segir loks að einhugur sé um að leggja það til við félagsmenn að ganga til samstarfs við SFR um rekstur félaganna. Síðar hefur það gerst, eins og einnig er upplýst á vef FFR, að stjórn félagsins samþykkti í lok febrúar að efna til allsherjar­ atkvæðagreiðslu um samkomulag sem FFR hefur nú gert við SFR. Óvíst er hins vegar um niður­ stöðu atkvæðagreiðslunnar og er að sjá sem umræða innan félagsins um kjör og störf formannsins og fram­ kvæmdastjórans fyrir félagið hafi dregist inn í og truflað umræður inn­ an félagsins um samstarf FFR, Fé­ lags flugmálastarfsmanna ríkisins, og SFR. n Verkalýðsforingi sagður oftaka laun n Starfsmenn Isavia krefja formann sinn svara um launakjör n Með milljón á mánuði Jóhann Hauksson johannh@dv.is Flugumferðarstjórn Ólga er á meðal starfsmanna Isavia. Isavia Flugmála- starfsmenn ríkisins eru um 370 hjá Isavia. Formaður og stjórn FFR vilja samstarf við SFR og greiða um það atkvæði á næstunni. Mynd SIGtRyGGuR ARI Formaður og framkvæmdastjóri Hluti starfsmanna Isavia er tortrygginn vegna launamála Kristjáns Jóhannssonar, formanns Félags flugmálastarfsmanna ríkisins. „Ýmislegt hefur gengið á bak við tjöldin VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | WWW.VR.IS Kosning til stjórnar VR 2015–2017 Rafræn allsherjaratkvæðagreiðsla meðal félags­ manna VR vegna kjörs í sjö stjórnarsæti og þrjú til vara hófst 5. mars og lýkur kl. 12 á hádegi þann 12. mars. Kosningin er skv. 20. gr. laga VR. Allar nánari upplýsingar fást á vr.is eða á skrifstofu félagsins í síma 510 1700. Kjörstjórn VR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.