Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2015, Blaðsíða 45
Lífsstíll 45Helgarblað 6.–9. mars 2015
Konur í
meirihluta
stjórnar BDSM-
félagsins
Félagið BDSM á Íslandi hélt aðal-
fund sinn í vikunni og gerðist það
í fyrsta sinn í sögu félagsins að
konur eru nú í meirihluta í stjórn.
Sjö manns sitja í stjórn félagsins.
Formaður síðustu ára, Magn-
ús Hákonarson, var kjörinn til
áframhaldandi formennsku en
mótframboðið hlaut einung-
is 10% atkvæða. Þetta er í fyrsta
sinn í sögu félagsins sem þurft
hefur að kjósa um formann á að-
alfundi. Félagsmenn í BDSM á
Íslandi eru um 50 talsins, en mun
fleiri, eða um 1.000 Íslendingar,
eru meðlimir í netdeild félagsins
sem staðsett er á samfélagsvefn-
um fetlife.com.
BDSM-senan í raunheim-
um er vaxandi en fróðir áætla að
allt að 300 Íslendingar taki virk-
an þátt í ýmiss konar viðburðum
eins og óformlegum kaffihúsa-
fundum (munch) og leikpartíum.
Áhugasamir geta kynnt sér
málið frekar á Facebook-síðu
BDSM á Íslandi.
Námskeið
um kynlíf og
sambönd
Natha Yogacenter sem er til húsa
í Bolholti 4 í Reykjavík, býður upp
á ýmiss konar tantrísk jóganám-
skeið og fyrirlestra. Þar á meðal er
námskeið í „Sacred sexuality“ þar
sem áhersla er á kynlífsþáttinn í
tantra.
Tantra er í hugum flestra tengt
kynlífi en Magdalena og Serafim,
sem reka jógastöðina, benda á að
í raun sé kynlífið lítill hluti iðk-
unarinnar. Kynlífspressunni þyk-
ir sá hluti þó óneitanlega mest
spennandi.
Á námskeiðinu „Sacred sexu-
ality“ læra nemendur að nálg-
ast kynlíf og sambönd á nýjan og
markvissan hátt en það er bæði
ætlað pörum og einstaklingum.
Námskeiðið, sem er 12 skipti,
kostar 25.000 kr. fyrir einstaklinga
en pör sem koma saman greiða
40.000 kr. Áhugasamir geta nálg-
ast upplýsingar á vefsíðunni www.
natha.is.
Konur fá líka standpínu
Snípurinn er stærri en þig grunar
Í
hugum flestra er snípurinn lít-
ill, lostafullur hnappur sem
kúrir einhvers staðar ofarlega í
píkunni inni á milli barmanna.
Það sem færri vita er að í raun
er hnappurinn bara toppurinn á
ísjakanum – brot af mun stærri og
flóknari vef sem leynist undir yfir-
borðinu.
Fósturfræðilegur uppruni vefj-
anna sem mynda snípinn er sá
sami og vefjanna sem mynda lim
karlmanna. Myndun hormóna á
fósturskeiði ræður því hvort vef-
irnir mynda að lokum lim eða sníp
og píku. Í báðum tilfellum er því
um að ræða stinningarvefi, sem
fyllast blóði og stækka við kyn-
ferðislega örvun. Gott blóðflæði
í grindarholi og heilbrigði æða er
því ekki síður mikilvægt fyrir kyn-
nautn kvenna.
Fullnæging ekki nauðsynleg
við æxlun
Hin raunverulega uppbygging
snípsins hefur ekki verið vinsælt
rannsóknarefni líffærafræðinga
og annars vísindafólks fyrr en á
allra síðustu árum – en þó eru til
eldgamlar líffærafræðiteikningar
sem sýna afstöðu vefjanna. Lík-
lega er skýringin á þessu sú að
stinning kvenna, og reyndar full-
næging kvenna, hefur nákvæm-
lega ekkert með æxlunt og viðhald
mannkyns að gera. Undir venju-
legum kringumstæðum er sáðlát
karlmanns í kjölfar stinningar og
fullnægingar nauðsynlegt, til þess
að sæði komist út úr líkama karl-
mannsins og sem leið liggur upp í
gegnum leggöng, inn um legháls,
upp í eggjaleiðara þar sem eggið
biður átekta og fangar eina sáð-
frumu ef vel liggur á því. Þannig
er kynnautn karlmannsins bein-
tengd viðhaldi mannkyns, en kyn-
nautn konunnar alls ekki.
Aukin þekking
Sem betur fer hefur áhugi auk-
ist bæði á líffærafræði kvenlegra
kynfæra og á kynsvörun og kyn-
nautn kvenna. Kynlífspressan von-
ar svo sannarlega að þeir sem sjá
um kynfræðslu í íslenskum skól-
um séu meðvitaðir um þessa nýju
þekkingu og að henni sé markvisst
komið á framfæri. Við ættum að
gera þá kröfu til menntakerfisins.
Þekking er ein forsenda þess að
lifa afslöppuðu og nautnaríku kyn-
lífi – vanþekking elur á skömm.
Kraftur í þekkingu
Þekking á uppbyggingu snípsins
hefur líka áhrif á umræðuna um
fullnægingu kvenna. Fram til þessa
hafa margir viljað aðskilja full-
nægingar sem eru framkallaðar
með örvun á sníp og fullnægingar
sem eiga uppruna sinn í leggöng-
um. Sigmund Freud setti um miðja
síðustu öld fram kenningar sínar
um fullnægingar kvenna og vildi
meina að snípsfullnæging væri full-
næging hinnar óþroskuðu konu.
Með kynferðislegum þroska átti full-
nægingin að færast inn í leggöngin
og kona að fá fullnægingu við sam-
farir. Þessar hugmyndir, sem bera
vitni um lítinn skilning á raunveru-
legum þörfum kvenna, gerðu lítið
úr konum sem kynverum og urðu
því miður lífseigar.
Meira en yfirborðið
Rannsóknir hafa ítrekað leitt í ljós
að um þrír fjórðu allra kvenna þurfa
markvissa örvun á sníp til þess að
fá fullnægingu. Þá er átt við þann
hluta snípsins sem aðgengilegur
er við yfirborðið. Það er sem sagt
ekki svo algengt að konur fái full-
nægingu við samfarir einar saman.
Þrátt fyrir þessa vitneskju er ótrú-
lega mikið af konum sem upplifa sig
á einhvern hátt ófullkomnar ef þær
þurfa að örva sníp með fingrum eða
titrara til þess að fullnæging í sam-
förum sé möguleg.
Nýja þekkingin á snípnum varp-
ar líka ljósi á það hvers vegna alls
konar örvun á píkunni getur fram-
kallað kynnautn hjá konum. Stinn-
ingarvefir snípsins liggja undir innri
börmunum og eru aðgengilegir
gegnum barmanudd, sleikingar eða
legganganudd. Snípurinn er þarna í
öllu sínu veldi og auðvitað ættu ást-
menn og -konur að leggja metnað
sinn í að sinna honum eins og hann
leggur sig. Húrra fyrir snípnum! n
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is
Mynd: SiRRý MARgRét LáRuSdóttiR
Hlutverk
snípsins
Snípurinn hefur aðeins eitt
hlutverk, og það er að veita
konunni unað. Hann hefur enga
þýðingu í æxlun eða viðhaldi
mannkyns. Í snípshöfðinu – þeim
hluta sem er aðgengilegur efst í
píkunni, milli barmanna – eru
8.000 kynnæmir tauga
Stærðin
skiptir máli
… eða öllu heldur staðsetningin.
Í rannsókn sem birtist í Journal
of Sexual Medicine kom fram að
hjá konum sem áttu erfitt með að
fá fullnægingu var algengara að
snípurinn væri staðsettur lengra
frá leggöngunum.
„Sem betur fer
hefur áhugi auk-
ist bæði á líffærafræði
kvenlegra kynfæra og á
kynsvörun og kynnautn
kvenna.
Snípshöfuð
Snípshetta
Snípsleggir/
stinningarvefur
Kona spáir í þríkant
Er sanngjarnt að prófa ekki smá krydd í kynlífið ef makinn þráir það?
S
æl Ragga. Mig langar að
leita til þín vegna pælinga
um „3some“ sem ég hef verið
að stunda með manni mín-
um. Við höfum gert þetta
nokkrum sinnum með auka karl-
manni og ég hef haft nokkuð gaman
af. Ég hef samt ekki fengið fullnægingu
með neinum af þessum gestaleikur-
um í kynlífi okkar. Nú er minn mað-
ur alveg óður í að fá aðra konu til að
leika við okkur. Málið er bara að ég er
ekkert spennt fyrir konum og langar
ekkert að gera það. Hvað á ég að gera?
Er ég algjörlega geld og hundleiðinleg
ef ég læt þetta ekki eftir honum? Ég
veit um ýmislegt sem er í gangi í kyn-
lífi vinkvenna minna, sumt finnst mér
spennandi en annað ekki. Þetta finnst
mér akkúrat ekkert spennandi. Er ég
verri manneskja ef ég segi bara nei?
Mér finnst rétt að setja einhver mörk
– en ég vil líka vera góð við manninn
minn. Með von um svar. Góðar kveðj-
ur, Jóna.
Hæ Jóna. Ég get eiginlega ekki
svarað spurningunni þinni með af-
gerandi hætti – hins vegar get ég
gefið þér eitthvað til að hugsa um
sem kannski hjálpar þér að taka
ákvörðun. Almennt séð gildir það í
kynlífi að við eigum að setja mörk og
forðast að gera hluti sem eru okkur
á móti skapi. Lífið er hins vegar ekki
svarthvítt því það er líka góð latína
að hlusta á þarfir mótaðilans og sýna
ákveðinn sveigjanleika í því sem sett
er á dagskrá. Sumir hlutir eru þess
eðlis að þeir hreinlega slökkva á kyn-
löngun en aðrir hlutir lenda á gráu
svæði – kveikja kannski ekkert sér-
staklega í okkur, en eru samt ekki frá-
hrindandi. Kynlíf er alltaf einhvers
konar málamiðlun því það er sjaldan
sem gjörsamlega allt passar saman.
Þú færð eitthvað út úr því að stunda
kynlíf með karlkyns gestaleikurum
og nú er karlinn spenntur fyrir því að
hafa konu með í bólinu. Mér finnst
eiginlega að þú ættir að spá í að prófa
– það er ekkert sem segir að þú þurf-
ir að kafa ofan í kynfæri konunn-
ar – karlinn þinn getur séð um það.
Kannski finnst honum spennandi að
þú horfir á hann hamra aðra konu.
Ef þetta hljómar ekki skelfilega gætir
þú prófað að slá til. Annar möguleiki
væri að fá annað par til liðs við ykkur.
Það mundi kannski gefa þessu nýja
vídd. Ef þetta hljómar hörmulega
þarftu að setja mörk og neita honum
um bónina. Ræddu málið við mann-
inn þinn – ég er handviss um að þið
finnið á þessu góða lausn sem allir
geta sætt sig við. n
Bestu kveðjur, Ragga.
„Hvað á
ég að
gera? Er ég al-
gjörlega geld og
hundleiðinleg ef ég læt
þetta ekki eftir honum?