Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2015, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2015, Blaðsíða 44
44 Lífsstíll Helgarblað 6.–9. mars 2015 Út fyrir kassann Kristín Tómasdóttir utfyrirkassann@gmail.com Ekki í skugga Maríu L íkt og alþjóð veit tapaði tón- listarmaðurinn Friðrik Dór Jónsson í úrslitum Söngva- keppni Sjónvarpsins fyr- ir Maríu Ólafsdóttur sem söng lagið Unbroken og tryggði sér þannig framlag Íslands til Eurovision-keppninnar í ár. Í kjöl- farið bauðst Friðriki Dór að slást í hóp Maríu og vera henni til halds og traust í bakraddasveitinni í Vín í Austuríki þar sem keppnin verð- ur haldin í maí. Friðrik hefur aldrei áður tekið þátt í bakraddasveit og tekst því hér á við nýtt verkefni sem hann hlakkar til að sigrast á. Mikil pressa Friðrik Dór segist vera spenntur fyrir keppninni í vor enda mikið í húfi. Sumir gera sér kannski ekki grein fyrir ábyrgð bakraddasöngv- ara en þeir spila mikilvæga rullu sem stundum er vanmetin. Frið- rik tekur hlutverkið mjög alvarlega og segir vissa pressu fylgja því. „Já, þetta verður klárlega áskorun. Það er mikil pressa að standa sig í þessu starfi því ef þú ferð út af sporinu ertu að skemma fyrir svo mörgum öðr- um en bara sjálfum þér. Ég hlakka mikið til að takast á við þetta.“ Frið- rik er nú þegar byrjaður að huga að keppninni og kynna sér galdurinn á bak við góða bakraddasöngvara. En hvað er það sem bakraddasveit þarf að hafa? Er nóg að vera bara góður söngvari? „Bakraddasveitin þarf að vera vel samhæfð í öllu sínu svo það verða líklega stífar æfingar. Það eitt og sér er nýtt fyrir mér, ég hef aldrei þurft að æfa með neinum nema sjálfum mér.“ Alls ekki í skugganum Á íslensku Wikipedia-síðunni um Friðrik segir, „hann er hafnfirskur R&B og popp-söngvari og lagahöf- undur”. Að minnsta kosti er Friðrik mörgum kunnugur en hann söng sig inn í hjörtu þjóðarinnar með laginu „Hlið við hlið” sem naut mikilla vin- sælda og var spilað í kvikmyndinni Bjarnfreðarson árið 2009. Þá hefur Friðrik glatt margar fjölskyldurnar með stuðlaginu „Glaðasti hundur í heimi”. Rétt er að minnast þess að Friðrik er bróðir sykurpúðans Jóns Jónssonar og hafa þeir báðir brallað ýmislegt í gegnum tíðina. Það mætti því búast við að Friðriki gæti þótt óþægilegt að standa í skugga Maríu enda er hann vanur sviðsljósinu og mikilli athygli. „Nei, alls ekki. Ég lít ekki á það sem svo að við í bakröddun- um séum í skugga Maríu. Í þeirri setningu finnst mér vera fólgin sú hugsun að vera í einhvers konar samkeppni og maður sé að reyna að komast út úr þessum skugga. Það er ekki tilfellið heldur erum við þarna til stuðnings Maríu og gegnum því hlutverki með glöðu geði, hvort sem það er á sviðinu eða utan þess.” Reynir fyrir sér í veislustjórn Öll ný og krefjandi verkefni ýta að- eins á þægindarammann og Friðrik segist leggja töluvert upp úr því að stíga út fyrir hann í daglegu lífi. „Ég reyni að gera það í tónlistinni en á sama tíma passa ég að gera það ekki í of stórum skrefum. Þá legg ég töluvert upp úr því að stíga út fyrir kassann á öðrum sviðum í mínu starfi eins og með því að taka að mér ný og öðruvísi verkefni. Um þessar mundir er ég t.d. að reyna fyrir mér á sviðum eins og veislustjórn.” Það er því ekki úr vegi að hafa samband við hin góðkunna Friðrik Dór ef þú leitar að veislustjóra, bak- raddasveit eða góðan R&B og popp- söngvara! n Friðrik Dór er spenntur fyrir því að taka að sér hlutverk bakraddasöngvara Áskorun Friðrik Dór segir bakraddasveit þurfa að vera vel samhæfða. „Þá legg ég töluvert upp úr því að stíga út fyrir kassann á öðrum sviðum í mínu starfi eins og með því að taka að mér ný og öðruvísi verkefni. Ástin er alltaf áhætta V ið tökum alltaf smá áhættu þegar við verðum ástfangin. Áhættan er fólgin í því að við getum lent í ástarsorg. Slík sorg er djúpstæð og hana ber ekki að vanmeta enda getur hún orskað alls kyns vanda, bæði andlega og líkamlega. Ef þú ert í ástarsorg er mikilvægt að þú hlustir á tilfinningar þínar og horfist í augu við vandann. Hér koma nokkur ráð sem tilvalið er að styðjast við í slíkum aðstæðum: 1 Forðastu að hafa samband við „ástina“ að fyrra bragði. Leitaðu frekar til vina, fjölskyldu eða annarra sem þú færð stuðning frá. 2 Mundu að því lengra sem líð-ur frá því að ástarsorgin hófst, þeim mun styttra er eftir! Tíminn vinnur á ástarsorg. Kortleggðu þær stundir sem þér þykja erfiðastar. Ef þér finnst t.d. kvöldin erfiðust þá er gott að vera búinn að skipuleggja næstu kvöld í þaula. 3 Það dugar stundum að koma tilf-inningunum á blað. Skrifaðu nið- ur tilfinningar þínar. Þú getur til dæm- is skrifað bréf til „ástarinnar“ um allt sem þú ert að hugsa. Ekki senda bréfið samt, þetta er bara fyrir þig. 4 Rifjaðu upp allt sem hefur farið í taugarnar á þér við „ástina“. 5 Fáðu þér bangsa! Fólk hefur jafn-vel gengið svo langt að fá sér hvolp í þessum aðstæðum. 6 Bíómyndir eru frábærar þegar kemur að því að láta tímann líða hraðar! Ef þér finnst tíminn líða hægt og þú ert föst/fastur í ástarsorg er ráð að horfa á góðar teiknimyndir, dýra- lífsmyndir, spennumyndir eða jafnvel hryllingsmyndir. 7 Forðastu ástarvellur eins og heit-an eldinn! 8 Ef ástarsorgin er orðin að djúp-stæðri þráhyggju og þú hugsar vart um annað getur verið sniðugt að gefa sér ákveðinn tíma á hverjum degi þar sem leyfilegt er að fá útrás fyrir þessar hugsanir, til dæmis á milli kl. fimm og sjö. Á þeim tíma máttu hugsa eins og þú vilt um allt sem tengist ást- arsorginni. 9 Ef þú hlustar mikið á tónlist er mjög sniðugt að skipta út tón- listinni sem þú hefur verið að hlusta á að undanförnu. 10 Kynntu þér nýjar hljómsveit-ir og nýjar tónlistarstefnur og einbeittu þér að „feel good“-lögum! 11 Taktu til í þínu nánasta um-hverfi. Reyndu að halda öllu eins hreinu og fínu og þú mögulega getur. 12 Leitaðu að nýjum áhugamál-um. 13 Lakkaðu á þér neglurnar, bæði tær og fingur (hvort sem þú ert karl eða kona). 14 Farðu í klippingu. 15 Líttu í kringum þig. Eru fleiri fiskar í sjónum? Hér má notast við Facebook, útilokunaraðferðina, uppástungur frá vinkonum og fleira. Ástarsorg er oft fylgifiskur þess að verða ástfanginn Ljúffengt kanínukjöt Sigurbjörg Birgisdóttir mat- gæðingur gerði sér lítið fyrir og prófaði að matreiða kanínukjöt sem hún keypti á matarmarkaði Búrsins í Hörpu. Sigurbjörg leit- aði upplýsinga um matseldina á heimasíðunni www.kanina.is og var ánægð með afraksturinn. Þá mælir hún með rauðvínsflösk- unni Fratelli Alessandria Barolo með kanínusteikinni. Kanína að hætti veiðimannsins – með ólífum og rauðvíni n Hveiti n Jómfrúarólífuolía n 50 g smjör n 600 g kanína, hlutuð í 4–6 stóra bita n 1 laukur, fínt skorinn n 1 gulrót, fínt skorin n 1 stikill sellerí, fínt skorinn n 2 hvítlauksgeirar, afhýddir og marðir n 1 grein af rósmarín, 2 lárviðarlauf og 5–10 blöð af ferskri salvíu n 1 glas af rauðvíni n 350 g af tómatpúrre n 100 g af ólífum, svörtum og grænum og steinlausum n 300 ml kjúklingasoð, heimatilbúið eða úr teningi Þerrið kanínukjötið og veltið því upp úr hveiti. Steikið upp úr tveimur matskeiðum af jómfrúar- ólífuolíu og 50 g af smjöri þangað til kjötið er fallega gullið að utan. Kjötið er þá tekið af pönnunni og sett til hliðar. Best er að nota pott úr pottastáli eða pönnu með þykk- um botni. Aðalatriðið er þó að til sé lok á pottinn/pönnuna. Því næst er grænmetið skorið niður og steikt upp úr olíu á pönnunni ásamt tveimur hvítlaukum sem eru afhýddir og marðir. Við þetta er bætt rósmaríni, salvíu og lárvið- arlaufum. Steikið grænmetið í nokkr- ar míntútur en því næst bætið við rauðvínsglasi og leyfið áfenginu að sjóða upp. Næst er sett á pönnuna tómatpúrre ásamt kjúklingakrafti. Að lokum er ólífunum bætt við ásamt salti og pipar eftir smekk. Lokið er sett á pönnuna og leyft að krauma við lágan hita í eina og hálfa klukkustund. Lokið er svo tekið af síðustu 15 mínúturnar til að leyfa sósunni að sjóða niður. Skreytið með ferskri steinselju og berið fram með kartöflum, fersku pasta, eða nýbökuðu brauði og að sjálfsögðu glasi af góðu rauðvíni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.