Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2015, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2015, Blaðsíða 29
Umræða 29Helgarblað 6.–9. mars 2015 Ef allt fer á versta veg er þetta reiðarslag Þeir smakka þetta annað slagið Það hlaut að koma að þessu Andrea Kristín Jónsdóttir sveitarstjóri á Hólmavík leitar að leiðum til að halda í kvótann. – DV Helgi í Góu seldi KFC fyrir 2,2 milljarða árið 2013. – DV Guðmundur Magnason lokar Skífunni. – DV Myndin Fallegt Það hefur sannarlega gengið á með skini og skúrum á landinu bláa í vetur. Enn eru lægðir í kortunum og vetur konungur virðist eiga nóg eftir. Mynd SiGtryGGur Ari Af börnum og brjóstahöldurum M óðir skrifaði frásögn á netið og segir þar frá upplifun sem byrjaði með símtali frá skóla dóttur hennar. Hún var beðin um að koma úr vinnu þar sem dóttir hennar hefði lent í stimpingum við annan nemanda. Þegar hún mætir er henni heldur brugðið við að ganga inn í her- bergi fullt af fólki. Þarna sat dóttir hennar ásamt skólastjóranum, um- sjónarkennara, samnemanda og foreldrum hans ásamt umsjónar- manni árgangsins. Samnemandi dóttur hennar, sem var karlkyns, sat með blóðugt nef og konan fann strax hvernig horft var ásakandi á sig. Þá voru málin reifuð, dreng- urinn hafði verið að fikta í brjósta- haldara dóttur hennar og þrátt fyr- ir að hún hafi beðið hann um að hætta, sagt umsjónarkennaranum frá því hvað hann væri að gera þá hélt drengurinn áfram og náði að lokum að opna brjóstahaldarann hennar. Þegar hann náði því kýldi hún drenginn tvisvar. Móðirin lét sér hvergi bregða og spurði hvort hún hefði verið köll- uð úr vinnu til að athuga hvort hún og dóttir hennar ætluðu að kæra drenginn fyrir kynferðislega áreitni. Þá kom annað hljóð í belginn. At- vikið var „ekki svo alvarlegt“ að mati viðstaddra og móðirin beðin um að slaka á og hugsa aðeins hvað hefði gengið á. Dóttirin benti rétti- lega á að hún hefði beðið drenginn um að hætta og þegar hún hafði látið kennarann vita fékk hún bara svar um að láta sem ekkert væri og þá myndi hann hætta þessu. Móð- irin spurði þá kennarann af hverju hann hefði leyft þetta í stað þess að ganga á milli og stoppa drenginn. Í beinu framhaldi spurði hún hvort hún mætti snerta klofið á honum eða hvort hann gæti ekki opnað brjóstahaldarann á móður drengsins, svona fyrst þetta væri allt svo smávægilegt og eðlilegt. Það urðu allir orðlausir, kennar- inn hélt áfram að benda á að dótt- ir hennar hefði kýlt drenginn. Móð- irin sagði það ekkert skrýtið, hún hefði verið að verja sig fyrir kyn- ferðislegri áreitni. Þetta er spurn- ingin, hvenær hættir stríðni að vera bara stríðni, hvenær er hún orðin kynferðisleg áreitni og hvað kenn- um við börnum með því að segja: „Hundsaðu þetta bara“ ? Verður að taka á þessu Ef ókunnugur maður myndi strjúka lærið á dóttur þinni eða opna brjóstahaldara hennar án sam- þykkis, þá yrðir þú brjáluð/brjál- aður. Það á ekki að vera öðruvísi þó að þar sé á ferð jafnaldri hennar. Ef barninu líður illa vegna hegðunar samnemenda verður að taka á því. Ein lélegasta afsökun fyrr og síðar hjá kennurum sem nenna ekki að taka á málunum hefur verið: „Hann er bara skotinn í þér.“ Og hvað með það? Það réttlætir ekki að viðkom- andi reyndi að kyssa mig í frímín- útum, sló mig í rassinn frammi á gangi eða potaði í brjóstið á mér þegar ég vildi það ekki, bað hann um að hætta og jafnvel ýtti honum í burtu. Við sátum nokkrar yfir kaffi- bolla um daginn og vorum að ræða þessi mál. Sem stelpur fengum við áhugalaus skilaboð um að láta þetta framhjá okkur fara, hundsa viðkomandi eða taka þessu sem hrósi því „hann væri bara skotinn.“ Kolröng skilaboð Talandi um kolröng skilaboð. Voru skilaboðin s.s. að segja ekki frá því ef einhver snerti okkur á óviðeig- andi hátt, að láta sem ekkert væri þó væri verið að káfa á okkur og verst af öllu að þykja við eftirsóknarverð- ar ef einhver elti okkur á röndum til að snerta okkur og kyssa, gegn okkar vilja. Allt þetta er alveg jafn alvarlegt þó að viðkomandi sé jafn- aldri manns. Tólf ára stelpa sem er kannski að byrja á kynþroska- skeiðinu á skilið að fá heilbrigðari skilaboð út í lífið en þetta. Og hvaða skilaboð gefum við ungum strákum með því sama? Að það sé í lagi að snerta stelpur þó að þær vilji það ekki því þær segja ekki frá og ef þær gera það er þeim sagt að hundsa þetta. Svona hegð- un væri ekki liðin á kennarastof- unni, að sögukennarinn læddist að stærðfræðikennaranum og klipi í rassinn á henni. Þegar hún sneri sér að honum og spyrði hvað þetta ætti að þýða þá kæmi líffræðikennarinn aðvífandi og segði kæruleysislega: „Hvaaaða, láttu bara eins og ekkert sé, no biggie!“ Hugsum aðeins um hvaða skila- boð við sendum börnum, það hef- ur áhrif á þau út lífið. Jafningja- fræðsla er orðin svo mikilvægur þáttur af menntun barna og hana þarf að byrja sem fyrst. Er það ekki líka tilgangur skóla, að kenna þeim eitthvað sem þau eiga eftir að nota út lífið? n Jóhanna María Sigmundsdóttir þingkona framsóknarflokksins Kjallari „Voru skila- boðin s.s. að segja ekki frá því ef ein- hver snerti okkur á óvið- eigandi hátt. 1 Yfirýsing Heimis stang-ast á við yfirlýsingu Júlíusar og Ólafs Útvarpsmaðurinn Heimir Karlsson hafði milligöngu um að finna einstakling með MND-sjúkdóm og koma honum í kynni við Júlíus Júlíusson, sem þóttist geta læknað að einhverju leyti einstaklinga með MND-sjúkdóminn. 32.426 hafa lesið 2 Jóhannes Kr. hættur í Kastljósi og er orðinn atvinnulaus Skýringin er sú að ráðningin hans við RÚV er runnin út – og það fyrir rúmum mánuði síðan. Jóhannes hefur unnið að afhjúpun ýmissa mála á undanförnum misserum. Skemmst er að minnast umfjöllunarinnar um skottulækningar í Kastljósinu í vikunni. 23.377 hafa lesið 3 Vildi komast í samband við Eddu Heiðrúnu Backman Júlíus Júlíusson, sem var til umfjöllunar í Kastljósi í vikunni, bað Heimi Karlsson, útvarpsmann á Bylgjunni, að aðstoða sig við að komast í samband við Eddu Heiðrúnu Backman leikkonu en hún er með MND-sjúkdóminn. 22.541 hefur lesið 4 Tveir Íslendingar á lista Elle yfir heitustu menn- ina á Tinder Í það heila voru tuttugu á listanum en fulltrúar Íslands eru þeir Þorsteinn, 29 ára, og Sverrir, 32 ára. Tinder er vinsælt stefnumótaforrit. 22.052 hafa lesið 5 „Móðir mín var fárveik og hann taldi henni trú um að hann gæti læknað krabbameinið“ Guðrún Valdemarsdóttir segir það hafa verið áfall að uppgötva að Ólafur Einarsson, sem Kastljós fjallaði um í vikunni, skuli enn vera að stunda skottu- lækningar en hann sannfærði dauðvona móður hennar fyrir mörgum árum að hann gæti læknað hana af krabbameini fyrir 200 þúsund krónur. 17.311 hafa lesið Mest lesið á DV.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.