Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2015, Page 29
Umræða 29Helgarblað 6.–9. mars 2015
Ef allt fer á versta veg er
þetta reiðarslag
Þeir smakka þetta
annað slagið
Það hlaut að
koma að þessu
Andrea Kristín Jónsdóttir sveitarstjóri á Hólmavík leitar að leiðum til að halda í kvótann. – DV Helgi í Góu seldi KFC fyrir 2,2 milljarða árið 2013. – DV Guðmundur Magnason lokar Skífunni. – DV
Myndin Fallegt Það hefur sannarlega gengið á með skini og skúrum á landinu bláa í vetur. Enn eru lægðir í kortunum og vetur konungur virðist eiga nóg eftir. Mynd SiGtryGGur Ari
Af börnum og brjóstahöldurum
M
óðir skrifaði frásögn á
netið og segir þar frá
upplifun sem byrjaði
með símtali frá skóla
dóttur hennar. Hún
var beðin um að koma úr vinnu
þar sem dóttir hennar hefði lent í
stimpingum við annan nemanda.
Þegar hún mætir er henni heldur
brugðið við að ganga inn í her-
bergi fullt af fólki. Þarna sat dóttir
hennar ásamt skólastjóranum, um-
sjónarkennara, samnemanda og
foreldrum hans ásamt umsjónar-
manni árgangsins. Samnemandi
dóttur hennar, sem var karlkyns,
sat með blóðugt nef og konan fann
strax hvernig horft var ásakandi á
sig. Þá voru málin reifuð, dreng-
urinn hafði verið að fikta í brjósta-
haldara dóttur hennar og þrátt fyr-
ir að hún hafi beðið hann um að
hætta, sagt umsjónarkennaranum
frá því hvað hann væri að gera þá
hélt drengurinn áfram og náði að
lokum að opna brjóstahaldarann
hennar. Þegar hann náði því kýldi
hún drenginn tvisvar.
Móðirin lét sér hvergi bregða og
spurði hvort hún hefði verið köll-
uð úr vinnu til að athuga hvort hún
og dóttir hennar ætluðu að kæra
drenginn fyrir kynferðislega áreitni.
Þá kom annað hljóð í belginn. At-
vikið var „ekki svo alvarlegt“ að
mati viðstaddra og móðirin beðin
um að slaka á og hugsa aðeins hvað
hefði gengið á. Dóttirin benti rétti-
lega á að hún hefði beðið drenginn
um að hætta og þegar hún hafði
látið kennarann vita fékk hún bara
svar um að láta sem ekkert væri og
þá myndi hann hætta þessu. Móð-
irin spurði þá kennarann af hverju
hann hefði leyft þetta í stað þess að
ganga á milli og stoppa drenginn.
Í beinu framhaldi spurði hún
hvort hún mætti snerta klofið á
honum eða hvort hann gæti ekki
opnað brjóstahaldarann á móður
drengsins, svona fyrst þetta væri
allt svo smávægilegt og eðlilegt.
Það urðu allir orðlausir, kennar-
inn hélt áfram að benda á að dótt-
ir hennar hefði kýlt drenginn. Móð-
irin sagði það ekkert skrýtið, hún
hefði verið að verja sig fyrir kyn-
ferðislegri áreitni. Þetta er spurn-
ingin, hvenær hættir stríðni að vera
bara stríðni, hvenær er hún orðin
kynferðisleg áreitni og hvað kenn-
um við börnum með því að segja:
„Hundsaðu þetta bara“ ?
Verður að taka á þessu
Ef ókunnugur maður myndi strjúka
lærið á dóttur þinni eða opna
brjóstahaldara hennar án sam-
þykkis, þá yrðir þú brjáluð/brjál-
aður. Það á ekki að vera öðruvísi þó
að þar sé á ferð jafnaldri hennar. Ef
barninu líður illa vegna hegðunar
samnemenda verður að taka á því.
Ein lélegasta afsökun fyrr og síðar
hjá kennurum sem nenna ekki að
taka á málunum hefur verið: „Hann
er bara skotinn í þér.“ Og hvað með
það? Það réttlætir ekki að viðkom-
andi reyndi að kyssa mig í frímín-
útum, sló mig í rassinn frammi á
gangi eða potaði í brjóstið á mér
þegar ég vildi það ekki, bað hann
um að hætta og jafnvel ýtti honum í
burtu. Við sátum nokkrar yfir kaffi-
bolla um daginn og vorum að ræða
þessi mál. Sem stelpur fengum
við áhugalaus skilaboð um að láta
þetta framhjá okkur fara, hundsa
viðkomandi eða taka þessu sem
hrósi því „hann væri bara skotinn.“
Kolröng skilaboð
Talandi um kolröng skilaboð. Voru
skilaboðin s.s. að segja ekki frá því
ef einhver snerti okkur á óviðeig-
andi hátt, að láta sem ekkert væri þó
væri verið að káfa á okkur og verst
af öllu að þykja við eftirsóknarverð-
ar ef einhver elti okkur á röndum
til að snerta okkur og kyssa, gegn
okkar vilja. Allt þetta er alveg jafn
alvarlegt þó að viðkomandi sé jafn-
aldri manns. Tólf ára stelpa sem
er kannski að byrja á kynþroska-
skeiðinu á skilið að fá heilbrigðari
skilaboð út í lífið en þetta.
Og hvaða skilaboð gefum við
ungum strákum með því sama? Að
það sé í lagi að snerta stelpur þó
að þær vilji það ekki því þær segja
ekki frá og ef þær gera það er þeim
sagt að hundsa þetta. Svona hegð-
un væri ekki liðin á kennarastof-
unni, að sögukennarinn læddist að
stærðfræðikennaranum og klipi í
rassinn á henni. Þegar hún sneri sér
að honum og spyrði hvað þetta ætti
að þýða þá kæmi líffræðikennarinn
aðvífandi og segði kæruleysislega:
„Hvaaaða, láttu bara eins og ekkert
sé, no biggie!“
Hugsum aðeins um hvaða skila-
boð við sendum börnum, það hef-
ur áhrif á þau út lífið. Jafningja-
fræðsla er orðin svo mikilvægur
þáttur af menntun barna og hana
þarf að byrja sem fyrst. Er það ekki
líka tilgangur skóla, að kenna þeim
eitthvað sem þau eiga eftir að nota
út lífið? n
Jóhanna María Sigmundsdóttir
þingkona framsóknarflokksins
Kjallari „Voru
skila-
boðin s.s.
að segja ekki
frá því ef ein-
hver snerti
okkur á óvið-
eigandi hátt.
1 Yfirýsing Heimis stang-ast á við yfirlýsingu
Júlíusar og Ólafs
Útvarpsmaðurinn Heimir Karlsson hafði
milligöngu um að finna einstakling með
MND-sjúkdóm og koma honum í kynni
við Júlíus Júlíusson, sem þóttist geta
læknað að einhverju leyti einstaklinga
með MND-sjúkdóminn.
32.426 hafa lesið
2 Jóhannes Kr. hættur í Kastljósi og er orðinn
atvinnulaus
Skýringin er sú að ráðningin hans við
RÚV er runnin út – og það fyrir rúmum
mánuði síðan. Jóhannes hefur unnið að
afhjúpun ýmissa mála á undanförnum
misserum. Skemmst er að minnast
umfjöllunarinnar um skottulækningar í
Kastljósinu í vikunni.
23.377 hafa lesið
3 Vildi komast í samband við Eddu Heiðrúnu
Backman
Júlíus Júlíusson, sem var til umfjöllunar
í Kastljósi í vikunni, bað Heimi Karlsson,
útvarpsmann á Bylgjunni, að aðstoða
sig við að komast í samband við Eddu
Heiðrúnu Backman leikkonu en hún er
með MND-sjúkdóminn.
22.541 hefur lesið
4 Tveir Íslendingar á lista Elle yfir heitustu menn-
ina á Tinder
Í það heila voru tuttugu á listanum en
fulltrúar Íslands eru þeir Þorsteinn, 29
ára, og Sverrir, 32 ára. Tinder er vinsælt
stefnumótaforrit.
22.052 hafa lesið
5 „Móðir mín var fárveik og hann taldi henni trú
um að hann gæti læknað
krabbameinið“
Guðrún Valdemarsdóttir segir það
hafa verið áfall að uppgötva að Ólafur
Einarsson, sem Kastljós fjallaði um í
vikunni, skuli enn vera að stunda skottu-
lækningar en hann sannfærði dauðvona
móður hennar fyrir mörgum árum að
hann gæti læknað hana af krabbameini
fyrir 200 þúsund krónur.
17.311 hafa lesið
Mest lesið
á DV.is