Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2015, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2015, Blaðsíða 30
Helgarblað 6.–9. mars 201530 Umræða Stóra morfísmálið Umsjón: Henry Þór Baldursson Vinsæl ummæli við fréttir DV í vikunni B -dagurinn var núna um daginn, 1. mars, en þann dag var bjórinn loksins gefinn frjáls á Íslandi fyrir aldarfjórðungi eða svo, og af því tilefni munu ungliðasam- tök Samfylkingar og Sjálfstæðis- flokks hafa ákveðið að efna til sam- eiginlegrar skemmtunar. Það olli hneykslun margra, að fólk með ólík- ar stjórnmálaskoðanir ætlaði að slíðra sverðin og gleyma öllu pexi eina kvöldstund og hafa gaman – maður sá á kommentum á fjasbók að þetta töldu ýmsir hina verstu óhæfu. En ég verð reyndar að segja fyrir mína parta að mér fannst þetta gott hjá ungliðunum; ég tel það mik- inn misskilning á stjórnmálabaráttu og hugmyndaátökum að þeir sem aðhyllist ólík sjónarmið þurfi að vera einhvers konar fjandmenn, að þeir geti ekki glaðst saman, enda er það í algerri andstöðu við mína eig- in reynslu og að sjálfsögðu fjölda annarra. Ég á vini og ættingja sem eru á allt annarri línu í pólitík, ég hef þekkt fólk í áratugi án þess að hafa nokkurn tíma leitt að því hugann hvað það kýs í kosningum eða hugs- ar um stjórnmál. Rokið upp með illyrði Og af því ég nefndi fjasbók og kommentakerfin þá fer óskaplega í taugarnar á mér hvað menn eru fljót- ir að rjúka upp með illyrði ef einhver berst í tal sem þeir eru ósammála. Ég hef stöku sinni jagast á þeim vett- vangi við fólk sem er á annarri línu í pólitík og þá stökkva gjarnan á vagn- inn menn sem vilja leggja mér lið með því að kalla þann sem ég er að karpa við „gerpi“ og eitthvað álíka leiðinlegt. Ég held að menn þurfi að fara að venja sig af svona ósiðum og reyna að muna að heimurinn yrði ekkert skemmtilegri við það að allir gerðust sammála um allt. „Gnarrískir samfóistar“ Ég reyni ekkert að leyna því að ég sé vinstrimaður og krati og fleira sem mörgum þykir hið versta mál – núorðið er nokkuð í tísku að kalla menn eins og mig „samfóista“ eða jafnvel „gnarrískan samfóista“ – sem er reyndar fullmikið í lagt hvað sjálfan mig snertir. En hvað sem því líður þá á ég oftast gott með að umgangast fólk af öðrum stað í litrófi stjórnmálanna; sumt eru nánir persónulegir vinir eins og ég nefndi, aðra hittir maður á manna- mótum og við hátíðleg tilefni. Ég held að vandfundið væri það átaka- mál í íslenskri pólitík þar sem við Guðni Ágústsson erum sammála, en það breytir ekki því að okk- ur þykir gaman að hittast, skiptast á sögum og sjónarmiðum. Guðni hefur líka þann mikla megin- kost að hafa húmor fyrir sjálfum sér; eitt sinn var ég fenginn til að vera veislustjóri hjá knattspyrnu- félaginu Víkingi, en Guðni átti að vera ræðumaður kvöldsins og aðal- atriði dagskrárinnar. Eftir forréttinn þegar ég reiknaði með að fara að kynna stjörnuna í pontu bárust mér um það boð úr anddyri hússins að Guðni hefði hringt, hann hefði lent í óvæntum og óviðráðanlegum töf- um og kæmi ekki fyrr en eftir einn og hálfan tíma. Nú var veislustjór- anum vandi á höndum, með fullan sal af köllum og ekkert skemmti- atriði. Eftir einhverjar minniháttar reddingar fór ég í pontu og sagði að þótt Guðni tefðist myndi hann verða biðarinnar virði, ég hefði áður heyrt hann tala á manna- mótum og mig grunaði fastlega að hann myndi segja þessa sögu og svo þessa … hermdi eftir inntak- inu úr tveimur vinsælum sögum sem hann kryddar stundum mál sitt með. Loks kom Guðni, og fékk stórkostlegar móttökur, enn betri en jafnan. Síðan kom hann og sett- ist hjá mér við háborðið og sagði: „Þetta er undarlegur salur Einar Kárason. Yfirleitt er mest hlegið þegar ég klára sögur, en hér var mest gleðin þegar ég byrjaði þær!“ Ég hef rifjað upp þetta atvik að Guðna viðstöddum og hann hló að því manna mest. „Í krafti sannfæringar“ Einn er sá maður sem margt vinstrafólk tortryggir mjög og það er Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrver- andi hæstaréttardómari. En hon- um finnst mér skemmtilegt að vera ósammála um margt, og það að við deilum ekki öllum skoðunum hefur aldrei komið í veg fyrir að við gæt- um átt fín og vinsamleg samskipti. Ég las bókina hans, „Í krafti sann- færingar“, sem hann sendi frá sér á síðastliðnu hausti þar segir hann meðal annars í kafla um lífsviðhorf sín: „Einnig er sérstök ástæða til að nefna annan þátt, sem að mín- um dómi er óaðskiljanlegur hluti af þeirri lífsskoðun sem hér er lýst, en það er virðing fyrir öðru fólki og skilyrðislaus viðurkenning á rétti þess til að haga eigin lífi á þann hátt sem það sjálft það kýs, eins lengi og það skaðar ekki aðra. Mannfólkið er fjölbreytilegt og einstakir menn hafa ólíkar kenndir, hvatir og lang- anir í lífinu. Allir eiga þar að mínum dómi sama rétt. Ekkert okkar hefur heimild til að sitja yfir hlut annarra með því að bjóða og banna, eins og sumir vilja sífellt gera. Sumir vilja flokka mannfólkið eftir þjóðerni, litarhætti, trúarbrögðum, kynferði, kynhneigð, gáfum eða hverju því öðru sem greinir einn mann frá öðrum og láta menn njóta misjafns réttar eftir því hverjum þessara „flokka“ þeir tilheyra. Til þess hafa menn ekki heimild af þeirri ein- földu ástæðu að einn á ekki að ráða neinu um einkahagi annars. Svo einfalt er það.“ Menn getur greint á um ýmis- legt, en svona lífsviðhorfum eins og hér er lýst ætti flest sæmilegt fólk að geta verið sammála. „Hverra erinda?“ Annað sem mér finnst mjög óþarft í hérlendri pólitískri umræðu er sú tilhneiging að saka þá sem menn eru ósammála um að þeir séu að „ganga erinda einhverra“ – að þeir séu einhvers konar málaliðar eða strengjabrúður hvers konar afla. Þannig má Jón Steinar helst ekki sjást eða heyrast án þess sumir haldi að þar sé kominn sjálfur Sjálf- stæðisflokkurinn í allri sinni dýrð, og gott ef glittir ekki í Davíð Odds- son fyrir aftan hann. Þetta er þeim mun einkennilegra sem Jón Steinar hefur margoft tekið upp mál sem á engan hátt eru á áhuga- eða hags- munasviði hægriaflanna; má þar nefna Spegilsmálið á sínum tíma en um það birti hann stórmerki- leg og framsækin skrif fyrir mörg- um árum. Og um það leyti sem nú- verandi ríkisstjórn tók við völdum, á vordögum 2013, skrifaði hann grein sem birtist í Morgunblaðinu og snerti helsta mál stjórnarinnar, „skuldaleiðréttinguna“ svonefndu: „Nú skal verja fjármunum sem ríkið aflar til að greiða einstökum borgurum hreinar skaðabætur fyrir Einar Kárason rithöfundur skrifar Þér að segja Vinir mínir pólitísku fjandmennirnir„Ég reyni ekkert að leyna því að ég sé vinstrimaður og krati og fleira sem mörgum þykir hið versta mál – núorðið er nokkuð í tísku að kalla menn eins og mig „sam- fóista“ eða jafnvel „gnar- rískan samfóista“ – sem er reyndar fullmikið í lagt hvað sjálfan mig snertir. Jón Steinar Gunnlaugsson „Þannig má Jón Steinar helst ekki sjást eða heyrast án þess sumir haldi að þar sé kominn sjálfur Sjálfstæðisflokk- urinn í allri sinni dýrð, og gott ef glittir ekki í Davíð Oddsson fyrir aftan hann.“ Mynd SiGtRyGGUR ARi Könnun Ætti að tekjutengja sektir við umferðarlaga- brotum á Íslandi? n Já n Nei n Veit ekki 20,5% 77,6% 1,9% 210 þátttAKEndUR „Ég bara neita að trúa því að þeir láti hann fara, þetta er langbesti rannsóknarblaðamaður sem Ísland hefur átt,“ segir Jósef Róbertsson um brotthvarf Jóhannesar Kr. Kristjánssonar úr fréttaskýr- ingaþættinum Kastljósi á RÚV. Fréttin vakti mikla athygli og greinilegt að almenningur hefur verið ánægður með vinnubrögð hans. „Þetta er ekki fyndið, ekki baun. Margir hafa upplifað að sjá svikara vekja falsvonir hjá dauðvona ástvinum. Þetta er átakan- lega sorglegt að til skuli vera menn af þessum toga,“ segir ingibjörg Hekla F. Ottesen um frétt DV þar sem greint var frá umfjöllun Kastljóss um Júlíus Júlíusson og að- ferðir hans til að reyna að selja Guðjóni Sigurðssyni, formanni MND-félagsins, meðferð fyrir hálfa milljón króna. „Hættu strax, það er það besta sem þú getur gert,“ segir Jakob Kolbeins Löve um frétt DV þar sem var fjallað um viðtal Morgunblaðsins við Sig- ríði Björk Guðjónsdóttur, lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins. Hún sagði að það hafi ekki hvarflað að henni að segja af sér vegna lekamálsins eða niðurstöðu Persónuverndar sem komst að þeirri niðurstöðu að lögreglustjórinn hafi ekki haft heimild til þess að senda gögn á Gísla Frey Valdórsson, fyrrverrandi aðstoðarmann Hönnu Birnu Kristjáns- dóttur. „Þannig að kannski fer að verða til aur þarna til að endurgreiða 1.500.000.000 sem skatt- greiðendur á Íslandi tóku á sig þegar skuldir fyrirtæk- isins voru felldar niður fyrir nokkrum árum?“ segir árni tryggvason um frétt DV um að lífeyrissjóðir hefðu keypt fjórðungshlut í pítsufyrir- tækinu Domino's. „Þetta eru hrein- ræktaðir djöflar sem gera svona og sem betur fer verða þeir þurrkaðir út á næstu árum.“ Tónlistarmaðurinn Gylfi Ægisson lét sig varða frétt frá Sýrlandi þar sem ódæðismenn hentu manni fram af svölum fyrir þær sakir að vera samkynhneigður. 31 13 5 4 22
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.