Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2015, Blaðsíða 20
20 Fréttir Helgarblað 6.–9. mars 2015
n Vitni sögðu hluti vera óskýra n Framburði Stefáns Loga og Daníels ber ekki saman
F
ramburður vitna í Ystasels-
málinu einkennist að miklu
leyti af því að allt sé „í móðu“,
eða óskýrt. Daníel Rafn
Guðmundsson hefur ver-
ið ákærður fyrir árás á Stefán Loga
Sívarsson í maí 2013. Árásin vakti
mikla athygli á sínum tíma enda
var hún gerð í miðju íbúðahverfi í
Breiðholti um hábjartan dag. Dan-
íel er ákærður fyrir að hafa slegið
og sparkað ítrekað í höfuð Stefáns
og líkama og er sagður hafa not-
að hafnaboltakylfu og hnúajárn til
verksins.
Stefán fer fram á að fá greidd-
ar fimm milljónir í miskabætur og
tvær milljónir í skaðabætur en hann
nefbrotnaði, rifbeinsbrotnaði og
skaddaðist alvarlega í munni.
Aðalmeðferð hefur nú verið
frest að og verður fram haldið und-
ir lok þessa mánaðar. Þá munu þau
vitni sem af einhverjum ástæðum
mættu ekki fyrir dóminn á þriðjudag
og fimmtudag verða kölluð til. Óvíst
er hvort að hægt verði að ljúka aðal-
meðferðinni þá, en fjöldi átti eftir að
mæta fyrir dóminn og gefa skýrslu.
Þau vitni sem komið hafa fyrir dóm-
inn hafa lýst því að átök hafi átt sér
stað, en aðeins þeir Daníel Rafn og
Stefán Logi hafa gefið skýrt til kynna
hvernig átökin hófust. Framburði
þeirra ber þó ekki saman.
Lögreglukona sem kom fyrir
dóminn og kom á vettvang eftir
átökin í Ystaseli árið 2013 sagðist
hafa rætt við skelkað vitni sem fylgst
hafði með atburðunum. „Hann var
ekki sérstaklega málglaður, hann
þorði ekki að ræða þetta. Hann var
bara mjög hræddur við aðilana á
vettvangi. Það var ekki flóknara en
það,“ sagði lögreglukonan um vitn-
ið.
Mikið uppnám
Ljóst er að Daníel Rafn var í miklu
uppnámi þegar hann hafði sam-
band við Stefán Loga Sívarsson
þann 17. maí 2013. Konan hans
hafði þá um morguninn brotnað
saman og tjáð honum að hún hefði
orðið fyrir kynferðisofbeldi í sam-
kvæmi heima hjá öðrum manni
nokkru áður. Daníel hringdi nokk-
ur símtöl en var sagt að hafa sam-
band við Stefán Loga, sem átti að
róa málin. Bæði Stefán og Daníel
sögðust hafa verið æstir í símanum
og að mögulega hefðu einhverjar
hótanir gengið á milli þeirra. Stefán
Logi segist hafa ákveðið að koma og
ræða við Daníel Rafn. Í millitíðinni
hafði Daníel samband við Jón Hilm-
ar Hallgrímsson heitinn, sem bet-
ur var þekktur sem Jón stóri. Hann
kom á heimili Daníels í Ystaseli og
var inni í húsinu þegar Stefán Logi
kom þangað.
Stefán var í fylgd með tveim-
ur mönnum, Stefáni Blackburn
og Sævari Hilmarssyni. Þegar þeir
komu að Ystaseli sagði Stefán Logi
þeim að fara sem þeir gerðu.
Handleggsbrotinn
„Ég var óvopnaður. Ég var bara
þarna til að tala við hann,“ sagði
Stefán Logi. „Við Danni vorum góðir
vinir, höfum þekkst í mörg ár. Þessi
mál tengdust mér ekki neitt,“ sagði
Stefán. Stefán Logi var illa haldinn
en hann hafði kvöldið áður ekið bif-
reið sinni á ljósastaur við Klepps-
veg. Hann var handleggsbrotinn á
báðum höndum eftir bílslysið og í
umbúðum.
Stefán Blackburn sagði fyr-
ir dómi að hann hefði verið með
Stefáni Loga þegar Daníel hringdi.
Hann sagði að Daníel hefði verið
afskaplega æstur. Aðspurður hvers
vegna hann var svo æstur sagði Stef-
án Blackburn: „Af því að hann hélt
að ég hefði nauðgað konunni sinni.“
Ósamræmi
Sögum Stefáns Loga og Daníels ber
ekki saman varðandi upphaf slags-
málanna. Daníel ber því við að Jón
Hilmar hafi farið út, með hafna-
boltakylfu, til þess að ræða við Stef-
án Loga. Á meðan hafi félagar Dan-
íels haldið honum inni á heimili
hans. Hann segist hafa farið út stuttu
síðar en þá hafi Stefán Logi náð kylf-
unni af Jóni Hilmari. Daníel segist
hafa óttast um líf sitt.
Stefán Logi segir að þegar að
hann hafi komið í Ystasel hafi sér
mætt hópur manna. „Já, það var
þarna á einhverjum tímapunkti sem
ég hélt að þetta yrði meira en bara
líkamsárás,“ sagði Stefán Logi. „Var
tilefni til að hann [Daníel] óttaðist
um líf sitt?“ spurði saksóknari Stef-
án. „Nei, ekki af minni hálfu, þeir
voru tíu til fimmtán – allir vopnað-
ir og klárir í að gera hluti. Ef hann
óttaðist um líf sitt svona mikið, af
Ástandið í Ystaseli
er eins og Á vígvelli
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is „Ef hann
óttaðist
um líf sitt
svona mikið, af
hverju hringdi
hann þá ekki í
lögregluna?