Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2015, Page 24
Helgarblað 6.–9. mars 201524 Fréttir Erlent
„En svo féll sprengja
á heimili okkar“
n Átakanlegar frásagnir sýrlenskra barna n Tryggja þarf menntun n 5,6 milljónir barna á vergangi
H
inn 15. mars næstkomandi
verða liðin fjögur ár frá því
að stríðið í Sýrlandi braust
út. Fjöldi flóttamanna frá
Sýrlandi er sá mesti sem
heimsbyggðin hefur staðið frammi
fyrir undanfarna tvo áratugi. Börn eru
oftar en ekki þau sem verða verst úti
í stríðsátökum þrátt fyrir að þau beri
aldrei sök í stríði. Það er þó framtíð
þeirra, líf og heilsa sem er lögð að veði
og greiða þau oft dýru verði.
Börnin í Sýrlandi munu að öllum
líkindum fá það verkefni í hendurnar
að byggja upp sýrlenskt samfélag á
nýjan leik, þegar fram líða stundir.
Hvort sem börnin eru enn í Sýrlandi
eða hluti af þeim flóttamönnum sem
flúið hafa þarf að tryggja menntun
þeirra og leggja þannig grunninn að
framtíð þeirra. Skólastarfið verður að
auki fastur punktur í tilveru barnanna
og gerir þeim mögulegt að vera börn á
ný. Þau fá að leika, læra, hitta vini sína
og finna stöðugleika í miðri ringulreið
stríðsins. Í skólanum fá börnin einnig
sálræna aðstoð hjá faglærðum ráð-
gjöfum til að hjálpa þeim að vinna úr
erfiðri lífsreynslu sinni.
Læknar framtíðarinnar
„Börnin í dag eru læknar, kennarar,
verkfræðingar og smiðir framtíðar-
innar,“ segir UNICEF, Barnahjálp
Sameinuðu þjóðanna. UNICEF
veitir börnum neyðarhjálp á borð
við heilsugæslu, hreint drykkjarvatn,
sálrænan stuðning, hlý vetrarföt og
menntun, bæði innan Sýrlands en
þar eru fleiri en 5,6 milljónir barna á
vergangi, en einnig í nágrannaríkjun-
um þangað sem fleiri en 1,9 milljónir
barna hafa flúið. Mikilvægt er að gera
hversdagsleika barnanna eins bæri-
legan og unnt er. Fæstir geta sett sig
í spor barnanna sem hafa upplifað
ólýsanlegar hörmungar, ástvinamissi
og erfiðleika. Sum þeirra eru foreldra-
laus og hafa jafnvel systkini sín á sínu
framfæri.
Skólastarf og menntun skipar
stóran þátt í að gera börnum kleift
að leika, læra, hitta vini sína og finna
fastan punkt í tilveru sem hefur ver-
ið snúið á hvolf í ringulreið stríðsins.
Í skólanum fá börnin einnig sálræna
aðstoð hjá faglærðum ráðgjöfum til
að hjálpa þeim að vinna úr erfiðri lífs-
reynslu sinni.
Betri framtíð
„Við viljum líka gera allt hvað við
getum til að búa þessum börnum
betri framtíð og þess vegna ætlum
við í þessari neyðarsöfnun sem við
höldum af stað í með Fatimusjóðnum,
að leggja áherslu á menntun sýr-
lenskra flóttabarna sem nú hafast
við í Jórdaníu,“ segir í yfirlýsingu frá
UNICEF á Íslandi. Mikil áhersla er
lögð á að öll börn geti notið menntun-
ar með þeim leiðum sem færar eru
hverju sinni. Óformleg menntun, svo
sem starfsþjálfun, lífsleikninám eða
námskeið sem haldin eru á barnvæn-
um svæðum, eru dæmi um aðgerðir
UNICEF á svæðinu.
Í dag eru fleiri en 220.000 sýr-
lensk börn á skólaaldri flóttamenn
í Jórdaníu. Mörg þeirra sækja skóla
í flóttamannabúðunum þar sem
þau búa eða í almenningsskólum í
Jórdaníu. Margir skólar eru hins vegar
orðnir fullir svo nú eru 60.000 börn
sem geta hvorki sótt skóla né aðra
menntun. Jórdanía hefur tekið á móti
623.974 flóttamönnum frá Sýrlandi,
þar af eru 322.395 börn. Við landa-
mærin hafa risið gríðarlega stórar
flóttamannabúðir, Za‘atari, með um
83.000 þúsund íbúa og Amman-búð-
irnar með 164.929 þúsund íbúa. n
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
Fatímusjóður
Sjóðinn stofnaði Jóhanna Kristjóns
dóttir árið 2005 til að styðja við börn í
Jemen til náms, en sjóðurinn hefur kom
ið að mörgum verkefnum í MiðAustur
löndum og í Afríku frá stofnun hans.
Árið 2013 afhentu fulltrúar Fatímu
sjóðsins UNICEF á Íslandi tveggja
milljóna króna framlag í neyðarsöfnun
UNICEF fyrir sýrlensk börn á flótta.
Stuðningnum var varið bæði í verkefni
innan Sýrlands og í flóttamannabúðir
sem komið hefur verið upp í nágranna
ríkjunum – Tyrklandi, Líbanon, Jórdaníu
og Írak – þangað sem mestur straumur
sýrlenskra flóttamanna hefur legið.
Neyðarsöfnun
Hægt er að leggja neyðarsöfnuninni
lið með því að senda SMSið BARN í
númerið 1900 (1.490 krónur) og gefa
þannig sýrlensku flóttabarni pakka af
skólagögnum.
Byssukúlur, sært fólk og
göt eftir sprengjur
Í skólum og barnvænum svæðum UNICEF
fá börn sálrænan stuðning og hjálp við að
vinna úr erfiðri reynslu sinni.
Skólinn skiptir ekki aðeins máli fyrir
menntun barnanna og framtíð heldur
skapar hann mikilvægan fastan punkt í
tilveru sem hefur verið umturnað í ringul
reið stríðsátaka.
Layla, 8 ára stúlka frá Sýrlandi, flúði
yfir til Jórdaníu ásamt fjölskyldu sinni. Í
skóla sem studdur er af UNICEF teiknaði
Layla meðfylgjandi mynd í listmeðferðar
tíma. Hún hafði verið beðin um að sýna
það sem hún var hræddust við og var það
verkefni sem kennarar hennar höfðu sett
henni fyrir. Ef horft er á myndina þarf
að lesa textann frá vinstri til hægri. Þar
segir: Vígamenn frá öryggissveitunum,
byssukúlur, sært fólk, göt eftir sprengjur.
Inni í húsinu skrifaði hún orðið eyðilegging.
„Ég var þarna þegar þetta gerðist,“ segir
Layla.
„Allt er fallegra í Sýrlandi
– eins og það var“
Tvö ár eru liðin frá því að Safi flúði frá Sýrlandi ásamt fjölskyldu sinni
Með hjálp UNICEF gengur Safi í skóla
og dreymir um að verða læknir
þegar hann verður stór.
„Ég vil verða læknir svo ég
geti hjálpað fólki sem lendir í
stríði og bjargað lífi þeirra. Ég er
frá Latakia og er níu ára gamall.
Uppáhaldsfagið mitt í skólanum
heima í Sýrlandi var stafsetning og
réttritun. Skólanum mínum í Sýrlandi
var lokað vegna stríðsins. Flugvél lét
sprengju falla á skólann og allir gluggarnir
brotnuðu. Ég er samt ekki hræddur við
flugvélar, ég er bara hræddur við birni og
hunda,“ segir Safi.
Allt breyttist í lífi Safi þegar
sprengja féll á heimili hans.
Hann verður fyrir aðkasti
vegna áverka sem hann
varð fyrir í sprengju
árásinni.
„En svo féll sprengja
á heimili okkar og ég fékk
sprengjubrot í andlitið og
bakið. Hin börnin eru stundum
hrædd við mig vegna þess að ég er
með ör á andlitinu og vilja ekki leika við
mig. Ég veit að okkur er óhætt hér en ég
sakna samt Sýrlands. Allt er fallegra í Sýr
landi eins og það var,“ segir drengurinn.
Flóttamannabúðir
Börn að leik eftir snjókomu
í flóttamannabúðunum Al
Zaatari í borginni Mafraq í
Jórdaníu.