Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2015, Síða 28
Heimilisfang
Kringlan 4-12
6. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
sandkorn
28 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Eggert Skúlason og Kolbrún Bergþórsdóttir
Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson • Ritstjórnarfulltrúi: Jóhann Hauksson
Umsjónarmaður innblaðs: Sólrún Lilja Ragnarsdóttir • Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Helgarblað 6.–9. mars 2015
Það er gott að
vera liðugur
Hann hefur bara
gleymst
Ég er mjög bjartsýn
Upprisa íslensks verkafólks
Jónas Stefánsson keppir á Icelend Winter Games. – DV Ósátt móðir drengs í Hjallastefnuskóla sem fékk slæmar einkunnir. – DVHilma Ýr Davíðsdóttir greindist með MS 22 ára. – DV
K
jarasamningar íslenskrar al-
þýðu eru lausir. Krafa stóru
verkalýðsfélaganna liggur á
borðinu. Lágmarkslaun verði
300 þúsund krónur á mánuði. Þessi
krafa er sanngjörn og ljóst að samfé-
lagið leggur blessun sína yfir hana.
Oft hefur verkalýðshreyfingin
verið í sterkri stöðu en sennilega
aldrei sem nú. Þar spilar inn í of-
urhagnaður bankanna, yfirvofandi
aflétting Jóhönnuþaksins á laun for-
stjóra ríkisstofnana og verðhækk-
anir undanfarinna missera. Ríflega
hundrað þúsund launþegar eru
með lausa samninga og horfa upp á
fréttir af þessu tagi. Í því samhengi
er krafan ekki bara sanngjörn held-
ur hógvær.
Verkfallsvopnið hefur aldrei ver-
ið beittara. Allsherjarverkfall vofir
yfir og það jafnvel þegar í þessum
mánuði. Íslenskt samfélag má ekki
við slíkum hamförum á vinnumark-
aði með tilheyrandi tjóni. Ferða-
mannastraumurinn til landsins er
að þyngjast. Efnahagsbati er stað-
reynd en með langvinnum átökum
á vinnumarkaði verður sett strik í
þann reikning. Við megum ekki við
því að hverfa aftur til níunda ára-
tugar síðustu aldar með verkföll-
um tugþúsunda og algerri lömun á
samfélaginu.
Forsætisráðherra lýsti stuðningi
við krónutöluhækkanir í ávarpi sínu
á Viðskiptaþingi í síðasta mánuði.
Hann ræddi einnig um mikilvægi
þess að aðilar vinnumarkaðar ættu
samtöl við stjórnvöld um mögulegar
lausnir. Nú er lag. Viðræður geta ha-
fist strax. Það er ekkert að vanbún-
aði. Krafan er klár. Stjórnvöld lofa
undir rós stuðningi við kröfuna og
þá er komið að atvinnurekendum
að sýna á spilin. Er til of mikils mælst
að þetta verði ekki dregið fram á síð-
ustu stundu og menn gangi frekar
hratt frá þessu? Ein leiðin til að forð-
ast verfallsátök er að semja fyrst ein-
vörðungu um lægstu launin og taka
lengri tíma í eðlilega endurskoðun
og uppfærslu á kjarasamningun-
um sjálfum. Það eiga allir rétt á því
að verkfallsátök verði í lágmarki. Að
sama skapi ber að sýna því skilning
að launþegar geti þurft að grípa til
þess neyðarúrræðis sem verkfall er.
Um leið og sest verður við samn-
ingaborðið ber öllum málsaðilum
að hafa í huga að ekki má ógna
þeim stöðugleika og verðbólguleysi
sem tekist hefur að koma á hér á
landi. Þeim snillingum sem manna
borðið hjá ríkissáttasemjara verður
ekki skotaskuld úr því að finna leið-
ir sem henta okkar lægst launaða
fólki. Krafan er að samningar um
300 þúsund króna lágmarkslaun
verði undirritaðir öðru hvorum
megin við páska. Páskar eru góður
tími til að ljúka kjarasamningum.
Allir í fríi og engin truflun verður
á samtölum aðila vinnumarkaðar-
ins. Það væri mjög við hæfi að upp-
risa íslensks verkafólks miðaðist við
páska. n
Kiddi sleggja orðinn
Pírati?
Píratar hafa verið á mikilli sigl-
ingu í skoðanakönnunum að
undanförnu og mælast nú þriðji
stærsti stjórnmálaflokkur lands-
ins. Sífellt fleiri flykkjast því til
liðs við flokkinn þessa dagana.
Nú velta ýmsir því fyrir sér hvort
Kristinn H. Gunnarsson, Kiddi
sleggja, sé nýjasti liðsmaður
Pírata. Sagðar voru af því frétt-
ir í vikunni að Samtök fyrirtækja
í sjávarútvegi hefðu neitað að
halda fund með Pírötum vegna
þess að þeir hafi viljað að Krist-
inn yrði einn frummælenda á
fundinum. Sé Kristinn genginn
til liðs við Pírata er ljóst að þar er
enginn aukvisi á ferð enda hef-
ur Kristinn meðal annars setið
á þingi fyrir Alþýðubandalagið,
Framsóknarflokkinn og Frjáls-
lynda flokkinn.
Á að opinbera
hernaðaráætlunina?
Einhver undarlegasta umræða
sem átt hefur sér stað síðustu vik-
ur og mánuði er hvort ekki sé rétt
að vinna stjórnvalda og ráðgjafa
hennar að áætl-
un um losun hafta
fari fram fyrir
opnum tjöldum.
Þannig væri hægt
að skapa sem
mesta sátt um þá
leið sem yrði far-
in í þessu stærsta hagsmunamáli
þjóðarinnar.
Forsætis- og fjármálaráðherra hafa
bent á að það þjóni hins vegar
augljóslega ekki hagsmunum Ís-
lands, til dæmis gagnvart kröf-
uhöfum föllnu bankanna, að upp-
lýst verði nákvæmlega um áform
stjórnvalda áður en haftaáætlunin
verður tilbúin. Rifja má upp um-
mæli seðlabankastjóra í mars 2014
um að ekki væri hægt að opinbera
nákvæma áætlun um afnám hafta.
Það væri „svipað eins og banda-
menn hefðu birt í BBC áætlun sína
um innrás í Normandí“, sagði Már
Guðmundsson.
Jarðskjálfti Jóns
Baldvins
Styrmir Gunnarsson, fv. ritstjóri
Morgunblaðsins, segir á Evrópu-
vaktinni að yfirlýsingar Jóns
Baldvins Hanni-
balssonar, fyrr-
verandi utan-
ríkisráðherra, í
sjónvarpsviðtali á
Eyjunni á Stöð 2
um síðustu helgi
hafa gjörbreytt
stöðunni í umræðum um ESB.
Viðtalið var rætt á Alþingi í vik-
unni, það hefur orðið tilefni fjölda
frétta og margir hafa haft á orði, að
það geti markað vatnaskil í um-
ræðunni um Ísland og Evrópu-
sambandið, enda Jón Baldvin hálf-
gerður guðfaðir Evrópusamvinnu
hér á landi.
Greinilegt var að Árni Páll Árna-
son, formaður Samfylkingarinn-
ar, var lítt hrifinn af ummælum
gamla krataforingjans, en hann
gat þó ekki annað en tekið undir
að Evrópusambandið ætti í mikl-
um vandræðum.
Leiðari
Eggert Skúlason
eggert@dv.is
„Nú er lag. Við-
ræður geta haf-
ist strax. Það er ekkert að
vanbúnaði. Krafan er klár.
S
tarfshópur á vegum Land-
læknisembættisins skilaði
skýrslu í desember árið 2001
um fyrirhugaða skimun allra
Íslendinga 50 ára og eldri fyr-
ir blóði í saur. Tilgangurinn með slíkri
skimun er að snemmgreina illkynja
æxli í meltingarvegi. Þar segir að þrjár
slembirannsóknir hafi sýnt fram á
lækkun dánartíðni af völdum krabba-
meins í ristli og endaþarmi með leit
að blóði í hægðum einu sinni á ári.
Því miður rann fyrirhuguð skimun út í
sandinn og var peningaleysi yfirvalda
kennt um og skimunin talin of kostn-
aðarsöm.
Bréf Krabbameinsfélags Íslands
til Bláa naglans
Í grein í dagblöðum 15. febrúar 2015
frá yfirlækni Leitarstöðvar Krabba-
meinsfélags Íslands kemur fram
að Krabbameinsfélagið hafi nýver-
ið fengið veglegan styrk til að vinna
að hópleit á krabbameini í ristli og
endaþarmi sem áætlað er að vinna í
samráði við velferðarráðuneytið og
Landlæknisembættið. Í sömu grein
gagnrýnir yfirlæknirinn Bláa naglann
fyrir að senda frítt heimapróf fyrir
blóði í saur til allra sem verða fimm-
tugir á árinu. Einkum er val Bláa
naglans á heimaprófinu EZ Detect™
frá Biomerica í Bandaríkjunum gagn-
rýnt og prófið talið skaðlegt vegna lé-
legs næmis til að greina þá sem hafi
kirtilæxli eða krabbamein í ristli eða
endaþarmi.
Yfirlæknirinn minnist ekki á vís-
indarannsóknir varðandi notkun EZ
Detcet™ til skimunar á ristilkrabba-
meini. Í grein frá John Hopkins-há-
skólaspítalanum í Bandaríkjunum
frá 2007 komust höfundar að þeirri
niðurstöðu úr rannsókn á 207 sjúk-
lingum að næmi og sértæki EZ Detcet™
til að greina kirtilæxli eða krabbamein
í ristli og endaþarmi væri sambærilegt
við næmi Hemocult II. Töldu þeir EZ
Detcet™ valkost til skimunar á blóði í
saur í þeim tilgangi að snemmgreina
ristil- og endaþarmskrabbamein. Í
rannsókninni kom einnig í ljós að 81
prósent þátttakenda kaus frekar EZ
Detcet™-prófið en Hemocult II. Höf-
undar bentu á að EZ Detcet™-prófið
gæti aukið þátttöku fólks í leit að blóð
í saur sem ekki sæist með berum aug-
um.
Lífeindafræðingar og skimpróf
Í yfir 40 ár stóð ég fyrir leit að blóði í
saur á Landspítala (LSH) og var þar
fremst í flokki að leita að besta próf-
inu, þegar próf, sem við höfðum lengi
notað, voru tekin af markaðnum.
Margt kom upp sem varð til þess að
hætta þurfti við góð próf. Leit að nýj-
um kallaði á samanburðarrannsóknir
og má segja að undirrituð haft fram-
kvæmt fleiri rannsóknir á blóði í saur
en nokkur annar lífeindafræðingur
hér á landi. Við, sem erum vön slíkri
vinnu, þekkjum öll takmarkanir
þessara prófa. Aflestur prófanna er
engan veginn eins auðveldur og oft er
gefið í skyn af þeim, sem aldrei hafa
lagt fyrir sig úrlestur þeirra. Rangur
aflestur er áhættuþáttur sem má ekki
vanmeta.
Framkvæmd peroxídasaprófanna
er þannig að viðkomandi þarf að
smyrja saursýnisprufu á þar til gerð-
an rannsóknarpappír. Þetta er gert
þrjá daga í röð til að auka marktækni,
því ekki er alltaf stöðug blæðing í ristli.
Sýni þarf að pakka inn og senda til
rannsóknardeilda. Sumum finnst ekki
fýsilegt að smyrja hægðarsýni á papp-
ír og dregur það úr þátttöku skimun-
ar. Galli flestra peroxídasaprófa er sá
að þau gera ekki greinarmun á hemó-
glóbíni manna og dýra og því má ekki
borða neitt, sem blóð (hemóglóbín)
er í. Það getur gefið rangt jákvæða
svörun fyrir blóði. Hrátt grænmeti
getur einnig orsakað rangt jákvæða
svörun. Mikilvægt er að fólk haldi
réttu mataræði til að koma í veg fyrir
falskt jákvæða niðurstöðu sem leiddi
til ristilspeglunar að óþörfu. Sítrus-
ávextir geta valdið rangt neikvæðu
svari. Það sama er, ef sjúklingur neytir
250 milligramma af C-vítamíni eða
meira á dag.
Greining ristilkrabba
Samkvæmt Krabbameinsskrá Íslands
greinast ríflega 100 einstaklingar ár-
lega með þetta krabbamein og um 50
deyja árlega af völdum þess. Dánar-
tíðni vegna ristilkrabbameins hefur
því miður ekki breyst mikið. Ristil-
krabbamein greinist oft seint og velta
menn fyrir sér hvað valdi. Mögulegt
er að fyrirhöfnin við að leita til læknis
og að þurfa síðan að breyta mataræði
og skila inn þremur hægðarprufum
á rannsóknardeild geti valdið fram-
taksleysi. Mikilvægt er að auka vitund
fólks fyrir áhættunni og gera fólki auð-
velt að leita að blóði í saur. Þetta sýnist
mér vera markmið Bláa naglans með
því að senda auðvelt heimapróf fyrir
blóði í hægum frítt til allra sem verða
fimmtugir á árinu.
Hvert er hið fullkomna próf?
Prófið EZ Detcet™, sem Blái naglinn
sendir, er einfalt heimapróf fyrir leit
að blóði í hægðum. Prófið er hann-
að og gert til þess, að einstaklingur-
inn sjálfur geti framkvæmt það. Jafn-
framt hefur prófið þann kost að ekki
þarf að vera á sérstöku mataræði fyrir
rannsóknina, ekki þarf að snerta saur-
inn og hægt er að gera prófið heima.
Eftir hægðir er prófblað sett ofan í
salernis skálina og innan tveggja mín-
útna kemur blágrænn litur á próf-
svæði blaðsins, ef blóð er þar til stað-
ar. Verði engin litabreyting, telst prófið
neikvætt. Má líkja þessari byltingu við
þungunarpróf, sem konur geta sjálf-
ar gert. Ekkert próf til leitar að blóði
í hægðum er fullkomið. Eins og áður
sagði, er EZ Detcet™-prófið hentugra
en önnur perosxídasapróf að því leyti,
að ekki þarf að gæta sín í mataræði
þegar það er notað og við það minnka
líkurnar á rangt jákvæðu prófi.
Krabbameinsfélagið og Blái
naglinn
Í Bandaríkjunum gefa heilsugæslu-
stöðvar, sjúkrahús og margvísleg fé-
lagasamtök EZ Detect™-prófið líkt og
nú hefur verið gert hér á landi. Þetta er
Bláa naglanum vel kunnugt og hefur
hann einmitt tekið þessar stofnanir og
samtök sér til fyrirmyndar. Gagnstætt
yfirlýsingum yfirlæknis Leitarstöðvar
Krabbameinsfélagsins telur undirrit-
uð framtak Bláa naglans lofsvert. Með
EZ Detcet™-prófinu er stigið eitt skref
fram á við. Að reyna að hindra fram-
lag Bláa naglans, þegar hann dreifir
EZ Detcet™-heimaprófinu, sýnir að
mínu mati þröngsýni og fordóma. Ég
spái, að í framtíðinni leiti fólk sjálft að
blóði í hægðum heima með eins ein-
földu og öruggu heimaprófi og völ er
á hverju sinni og fari í framhaldi af því
til læknis, sé prófið jákvætt. Ameríska
krabbameinsfélagið bendir á, að öll
skimunarpróf fyrir blóði í saur þurfi
að gera árlega, vegna þess að prófin
greina ekki alltaf krabbameinið.
Leiðrétting á grein yfirlæknis
EZ Detect™ er CE (Conformité
Européenne) skráð í Evrópu og er
FDA (Food and Drug Administration)
og CLIA (Clinical Labaratory
Improvement Amendments) viður-
kennt (approved, waived) í Banda-
ríkjunum, þvert á það, sem haldið er
fram í grein yfirlæknis Leitarstöðv-
ar Krabbameinsfélagsins. Þá eru þrjú
próf í pakkanum, sem Blái naglinn
sendir fólki, en ekki eitt eins og haldið
er fram í grein hans. n
Blái naglinn: Jafn einfalt og þungunarpróf„Dánartíðni vegna
ristilkrabbameins
hefur því miður ekki
breyst mikið.
Bergljót Halldórsdóttir
lífeindafræðingur
Kjallari
MynD SiGtryGGur Ari