Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2015, Síða 36
Helgarblað 6.–9. mars 201536 Fólk Viðtal
H
araldur Ólafsson er einn
af þekktustu veður
fræðingum landsins, lýsir
veðri í sjónvarpsfréttum
á RÚV og er prófessor við
Háskóla Íslands. Sem stendur er
hann í fríi frá sjónvarpsveðurfrétt
um, kominn í ótímabundna hvíld
eins og hann orðar það. Hann er
fyrst spurður hvort hann kunni vel
við sig í sjónvarpi og segir: „Það
er mjög heillandi tilhugsun að
geta farið í sjónvarp og skýrt fyrir
fólki á fimmtán sekúndum hvern
ig dægur sveifla hita er eða hvern
ig vindur snýst í kringum lægð.
Þannig nær maður til jafnmargra
og maður gæti á heilli mannsævi
við það að halda fyrirlestra úti í
bæ.“
Sjónvarpið er öflugur miðill,
finnurðu fyrir því að þú ert þjóð-
þekktur?
„Vissulega. Sumum leiðist að
vera þekktir en mér er alveg sama.
Það er algengt að bláókunnugt
fólk gefi sig á tal við mig og er
ekki leiðinlegt því margt af þessu
fólki hefur frá ýmsu að segja. Það
er hins vegar áberandi að í yngri
aldurshópum eru ekki allir sem
þekkja veðurfræðinga.“
Hvenær fékkstu áhuga á veður-
fræði?
„Snemma fannst mér heill
andi tilhugsun að geta spáð fyrir
um veður. Það er svo gaman að
geta séð fyrir hvernig veðrið verð
ur og að hægt sé að gera það með
lögmálum eðlisfræði er ótrúlega
heillandi. Svo komu ýmis önnur
atriði þarna við sögu, eins og mjög
gott aðgengi að veðurfræðibók
um. Pabbi var veðurfræðingur
og heimilið var fullt af alls konar
efni um veðurfræði. Sjálfur fylgd
ist ég mikið með veðri sem strákur
og var vanur að vaka eftir veður
fréttum klukkan eitt á nóttunni og
man enn sumar spárnar. Stundum
gerði ég mér að leik að giska á loft
hitann á veðurstöðvum sekúndu
broti áður en hann var lesinn upp.
Ég veit um annan mann sem lék
þann leik mörgum árum á undan
mér. Hann heitir Ómar Ragnars
son. Ég hafði reyndar hagsmuni af
því hvernig veður var því ég mok
aði tröppur fyrir fólk og beið eftir
næstu hríð því þá kom aur í kass
ann. Á sumrin tíndi ég ánamaðka
fyrir veiðimenn og beið þá alltaf
eftir rigningu, ólíkt öllum öðrum.“
Áttu þér uppáhaldsveður?
„Já, útsynningur á vetrum er
mjög fallegt veður. Éljaklakkarnir
eru fallegir og sömuleiðis birt
an sem kemur síðla vetrar í
snjón um. Og svo er það þessi lit
ríki breytileiki í suðvestanáttinni.
Eina stundina er glampandi sól
skin og svo skellur allt í einu á
blindhríð. Útsynningurinn er eins
og fjörugt og skemmtilegt tón
verk. En það er með veðrið eins og
tónlist, maður hlustar ekki á sama
lagið viðstöðulaust. Fjölbreytileik
inn er það skemmtilegasta og fal
legasta í veðrinu.“
Verðum áfram í sveiflum
Margir hafa áhyggjur af þróun
veðurfars í heiminum. Hvað er
að gerast þar, veðrið virðist ansi
óstöðugt og breytilegt?
„Það er mikill breytileiki í veðri
og veðurfari. Minni margra er
stutt og þess vegna kemur þessi
breytileiki fólki oft á óvart. Menn
rjúka upp til handa og fóta ef
það snjóar í Jerúsalem en muna
ekki eftir öllum þeim tilvikum
þegar þar hefur snjóað áður án
þess að það hafi verið áþreifan
leg vísbending um yfirvofandi
heimsendi.“
Hvernig á að bregðast við hlýnun
jarðar af mannavöldum?
„Það er flest sem bendir til þess
að þessi hlýnun tengist auknum
koltvísýringi í andrúmsloftinu og
sú aukning er klárlega af manna
völdum. Hitt er svo annað að það
er ekki mikilvægasta spurningin í
veðurfarsbreytingafræðum að hve
miklu leyti nýliðnar breytingar eru
af mannavöldum, þótt auðvitað sé
hún forvitnileg. Menn verða að
horfast í augu við það að koltvísýr
ingur er að aukast og það er ekki
auðvelt að sjá fyrir sér að það geti
haldið áfram án þess að veðurfar
ið breytist. Áhrif ólíkra lofttegunda
á geislun er þekkt og óhætt að líta
á sem eðlisfræðilegar staðreyndir.
Við þessu verða menn að bregðast
með skynsamlegum hætti.“
Eru miklar breytingar fram undan
í veðurfari á næstu áratugum hér
á landi?
„Það er ekkert sem bendir til
annars en að við verðum í sveifl
um eins og hafa verið alla tíð á Ís
landi. Það koma þurr sumur, blaut
sumur, kaldir vetur og hlýir vetur.
Að jafnaði er mjög hlýtt núna mið
að við það sem var á kuldatímabil
inu í lok 19. aldar og í upphafi 20.
aldar og harla hlýtt miðað við það
sem var á hafísárunum á 7. ára
tugnum og á kalda tímabilinu í
kringum 1980. Það eru engar vís
bendingar um að það muni kólna
svo um muni en það eru heldur
ekki áþreifanlegar vísbendingar
um að hlýna muni mjög hratt.
Við verðum ugglaust í þessum
sveiflum áfram og sveiflurnar yfir
gnæfa langtímabreytingar þegar
horft er til fárra ára.“
Hefurðu orðið var við að veður
hafi áhrif á skap fólks og andlega
líðan?
„Já, ég held að það sé ekki nokk
ur vafi á því. Það hef ég séð með
skýrustum hætti í Björgvin í Nor
egi. Þar er fólk reyndar ótrúlega
léttlynt miðað við hversu mikið og
oft hann rignir, en þegar sólin skín
eftir langvarandi dumbung verða
margir stjórnlausir af kæti. Á stöð
um þar sem er sólin skín oftar en
ekki missa menn síður stjórn á sér
af gleði, eins og í Frakklandi þar
sem ég bjó um tíma. Með öðrum
orðum hefur breyting á veðri
kannski mest áhrif á skapgerð
fólks. Ef veður verður gott eftir
slæman kafla verða margir óskap
lega glaðir.“
Mætti ríkja meiri
metnaður í skólakerfinu
Víkjum að allt öðru. Ég veit að þú
hefur mikinn áhuga á skólamálum
og varst um tíma ritari Samfoks.
Hvert finnst þér helsta áhyggju-
efnið í skólakerfinu og kennslunni
þar?
„Varðandi skólamálin finnst
mér að menn þurfi að horfast í
augu við að það verður enginn
góður í neinu nema að æfa sig.
Þetta hafa menn lengi vitað en
sumir í menntakerfinu virð
ast hafa gleymt því. Þó held ég
að íþróttakennarar og tónlistar
kennarar geri sér betur grein fyrir
þessu en margir aðrir og líklega
einnig handavinnukennarar. En
það hefur aðeins snjóað yfir þessa
þekkingu hjá sumum öðrum.
Í öðru lagi verða menn að horf
ast í augu við að það er ekki alltaf
óskaplega skemmtilegt að æfa sig,
en maður lætur sig samt hafa það.
Í þriðja lagi er gaman að kunna
eitthvað og sú gleði sem fæst með
ástundun og æfingu vegur marg
falt þyngra en tímabundin þreyta
eða leiðindi yfir því að þurfa að
æfa sig.
Það eru margir óskaplega
hræddir við að börnunum leiðist
eitthvað. Það þarf allt að vera svo
ljómandi skemmtilegt. Auðvitað
er gaman ef hægt er að hafa
hlutina skemmtilega en ég held að
það væri til bóta ef menn slökuðu
aðeins á skemmtunarkröfunni og
horfðust í augu við mikilvægi æf
ingar og muni gleðina við að upp
skera seinna.“
Þú talar um æfingu, ertu fylgjandi
utanaðbókarlærdómi?
„Hann er ljómandi góður og
mörg börn hafa gaman af honum.
Auðvitað verða börnin að kunna
kvæði, það er mikilvægur þáttur í
að þroska máltilfinningu og læra
að yrkja. Ég sakna þess að börn
skuli ekki læra kvæði í skólanum.
Ég veit ekki um nokkurn mann
sem sér eftir þeim tíma sem hann
hefur varið í að læra kvæði utanað.
Það þarf hins vegar ekki að leita
lengi til að finna fólk sem sér eft
ir því að hafa eytt tíma í að horfa á
amerískar seríur í sjónvarpinu.
Ég kenni börnum mínum
kvæði og ég sé í þeim gleðina sem
felst í því að kunna kvæði utanað,
en ég þarf auðvitað að ýta á eftir.
Ég mundi þiggja hjálp skólans
við verk af því tagi, þótt ekki væri
nema til að fækka ferðum í ísbúð
ina til að borga fyrir utanbókar
lærdóminn.
Það mætti ríkja meiri metnað
ur í skólakerfinu. Ég hef oft tekið
til máls um það í sambandi við
stærðfræði og raungreinar, en
það eru fleiri greinar. Ég á dóttur
í tíunda bekk, hún er hálffull
orðin, og í dönsku les hún sögu
sem er í sömu ritröð og Litla gula
hænan. Á þessum aldri þótti ekki
mikið hjá minni kynslóð að hrað
lesa danskar skáldsögur. Enginn
grenjaði yfir því. Í þessum málum
þarf meiri metnað. Flestum reyn
ist auðvelt að ná sæmilegri færni í
að lesa skandinavísk tungumál og
það er fráleitt að leggja ekki á sig
þá litlu vinnu sem þarf til þess.“
Eins og veðurspá sem stóðst
Lestu mikið?
„Ég les auðvitað í fræðibókum
Óþol fyrir EvrÓpusambandinu
Haraldur Ólafsson veðurfræðingur kemur
víða við í viðtali. Hann ræðir meðal annars sveiflu-
kennt veðurfar og er hugsi yfir því að stórum hluta
lands við Holuhraun hafi verið lokað. Hann segir of
mikla hneigð í þjóðfélaginu til að setja miklar og
flóknar reglur og vegna þeirra verði líklega hætt til-
raunum sem hann og nemendur hans hafa gert með
flygildi. Íslensk menntastefna og Evrópusambandið
koma einnig til tals í viðtalinu.
Haraldur hefur sterkar
skoðanir á skólamálum
Sú gleði sem fæst með
ástundun og æfingu vegur
margfalt þyngra en tímabundin
þreyta eða leiðindi yfir því að
þurfa að æfa sig. Mynd Sigtryggur Ari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
„Nú vilja stjórn-
völd setja reglur
um flyg ildin sem eru svo
íþyngjandi að við munum
ekki geta haldið tilraun-
um okkar áfram nema
ráða mann til að sinna
umsýslu og biðja um leyfi
– og svo annan til að leita
að peningum til að borga
báðum laun.