Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2015, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2015, Qupperneq 40
40 Skrýtið Sakamál Helgarblað 6.–9. mars 2015 Tryggið ykkur miða 565 5900 midi.is Það er alltaf gaman í Gaaraleikhúsinu Tvær sýningar = Tvö hlátursköst “Ég er enn með svo miklar harðsperrur í kjálkanum eftir hlátrasköllin að ég get ekki talað með góðu móti” Silja Aðalsteinsdóttir í Tímariti máls og menningar “Litli kallinn minn var orðinn máttlaus af hlátri og það sem undarlegra var, amman ég líka. Við hlógum þarna eins og vitleysingar bæði af uppátækjunum þeirra, svipbrigðum og háttsemi.” Helga Völundardóttir í Kvennablaðinu Konubörn - næstu sýningar Fimmtudagur 12 mars kl.20.00 UPPSELT Föstudagur 13. mars kl 21.30 UPPSELT Laugardagur 14 mars kl 21.30 UPPSELT Föstudagur 20 mars kl 20.00 Aukasýning Föstudagur 27 mars kl 20.00 örfáir miðar Bakaraofninn - næstu sýningar Sunnudagur 8. mars kl 13.00 UPPSELT Sunnudagur 15 mars kl 13.00 og kl 16.00 Sunnudagur 22 mars kl 13.00 og kl 16.00 Sunnudagur 29 mars kl 13.00 Frosti í Harmageddon “Ótrúlega skemmtileg” Hlín Agnarsdóttir í Djöflaeyjunni “Ég vona að sem allra flestir, ungir sem gamlir, kvenbörn og karlbörn fái að njóta þessarar sýningar” Silja Aðalsteinsdóttir Tímarit Máls og Menningar Á rið 2000 var Richard Fielding, 21 árs skífuþeytir í Lundúnum, dæmdur til ótímabundinn- ar dvalar á geðsjúkrahúsinu Rampton í Nottinghamskíri á Englandi. Richard var frá Waltham- stow, úthverfi í austurhluta Lundúna, og tókst nánast að þurrka út fjóra ætt- liði sömu fjölskyldunnar á einu bretti árla morguns 6. mars 1999. Taldi sig eiga harma að hefna Í morgunsárið þennan morgun í mars gerði Richard sér ferð á Bellamy-veg í Chingford í norðausturhluta Lund- úna. Þar í þrílyftu húsi bjó Lee Day, sem var skólafélagi Richards, ásamt ömmu sinni, móður og föður, tví- buradætrum sínum, syni og kærustu. Hlaupið hafði snurða á þráðinn hjá Richard og Lee enda taldi Richard að Lee hefði gert að engu möguleika hans á að öðlast frægð og frama. Logandi víti Í fórum sínum hafði Richard bens- ín á brúsa. Hann hellti bensíninu inn um bréfalúguna og bar síðan eld að. Á örskotsstundu breyttist anddyrið í logandi víti og ljóst að þá leiðina slyppi enginn út úr húsinu nema við illan leik. Sú varð enda raunin, sá eini úr fjöl- skyldunni sem komst lifandi frá þess- um hildarleik var faðir Lees, Brian Day. Honum var bjargað út um glugga á annarri hæð hússins, rétt áður en rúðurnar splundruðust í sprengingu og gat þakkað nágrönnum sínum að hann fengi að kemba hærurnar. Sjö fórnarlömb Ákæran á hendur Richards hljóðaði upp á morð, en hann játaði sig sekan um manndráp og bar fyrir sig sinn- isveiki. Dómarinn, Michael Hyam, hafði á orði að ef gerandinn hefði verið heill á geði þá hefði verið um að ræða „einstaka illmennsku“. Sjö manns guldu með lífi sínu fyr- ir brostna frægðardrauma Richards; Lee Day, 17 ára kærasta hans, Yvonne Colverhouse, þriggja ára tvíburadæt- ur Lees, Maddison og Rhiannon, tveggja ára sonur Lees, Reece, móðir Lees, Sandra, 50 ára og 76 ára amma, Kathleen. Reyndu að bjarga börnunum Lík Lees og móður hans fundust í svefnherbergi á þriðju hæð og talið var að þau hefðu gert árangurslausa tilraun til að bjarga börnunum. Móðir barnanna, sem voru hjá Lee þessa helgi, var Kelly Himpfen. Eftir að dómur hafði verið kveðinn upp sagði Kelly: „Þetta sannar að þú getur komist upp með morð.“ Ekki tekinn alvarlega Rannsókn leiddi í ljós að fyrr um nóttina hafði Richard komið við á bensínstöð og fyllt plastbrúsa af bens- íni. Afgreiðslumaðurinn hafði spurt hann hvort bíllinn hefði orðið bensín- laus en Richard hefði svarað. „Nei, ég ætla að kveikja í húsi.“ Afgreiðslumað- urinn tók Richard ekki alvarlega. Geðlæknar úrskurðuðu að Richard glímdi við margs konar and- lega kvilla og töldu ólíklegt að honum tækist að vinna bug á þeim. Áverkar eftir innbrot Kornið sem fyllti mælinn voru tald- ir áverkar sem Richard hafði fengið í innbroti sem hann framdi með Lee. Taldi Richard að áverkarnir gerðu hann óásjálegri í augum kvenna og drægju þannig úr möguleikum á frama í skífuþeytingum. Telja má fullvíst að þeir draumar Richards heyri nú endanlega sögunni til. n 4 ættliðir á einu bretti n Draumar Richards um frægð og frama fuðruðu upp n Kostuðu sjö mannslíf„ Þetta sannar að þú getur komist upp með morð Sinnisveikur Richard mun dvelja á geðsjúkrahúsi um ókomna framtíð. Saklaus fórnarlömb Ósætti Ric- hards og Lees kostaði sjö mannslíf.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.