Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2015, Síða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2015, Síða 41
Helgarblað 6.–9. mars 2015 Skrýtið 41 Þú reykir ekki Vísindamenn í Ísrael rannsökuðu árið 2010 greind 20 þúsund ungra manna. Mennirnir í úrtakinu voru á aldrinum 18 til 21 árs. Þeir sem reyktu höfðu að meðaltali greindarvísitölu upp á 94. Þeir sem ekki reyktu voru með 101. Daily Mail var á meðal miðla sem sögðu frá rannsókn- inni. Rannsóknin sýndi enn fremur fram á að þeir sem reyktu pakka á dag eða meira væru með greindarvísitöluna 90, að meðaltali. Þegar um bræður var að ræða reyndust þeir sem voru með lægri greindarvísitölu frekar reykja. Þú átt kött Rannsókn sem birt var í fyrra sýnir fram á að þeir sem eru meira fyrir hunda eru opnari en þeir sem eru meira fyrir ketti. Rannsóknin sýndi aftur á móti að þeir sem voru meira fyrir ketti skoruðu hærra á greindarvísitöluska- lanum. „Það er í sjálfu sér eðlilegt,“ segir Denise Guastello, sem vann að rannsókninni. „Þeir sem eiga hunda eru líklegri til að fara út að ganga með hundana og blanda geði við annað fólk.“ Hún segir að á hinn bóginn séu þeir sem eru einrænni, líklegri til að dvelja heima við lestur. Reyklausir, hávaxnir og grannir eru greindari Hvernig skilgreinir maður gáfur? Vísindamenn hafa fengist við viðfangsefnið í áratugi og hinar ýmsu niðurstöður hafa komið fram á sjónarsviðið. Brjóstamjólk, holdafar, reykingar og hæð eru á meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós að geti spáð fyrir um greindarvísitölu fólks. Business Insider hefur tekið saman níu atriði sem gefa fyrirheit um greind fólks. Þú ert hávaxinn Rétt eins og þá örvhentu varðar hefur það að vera hávaxinn lengi þótt bera gáfum vott. Fram hafa komið rannsóknarniðurstöður sem ýta undir slíkar kenningar. Í rannsókn sem unnin var við Princeton-háskóla kom fram að „Allt frá þriggja ára aldri, áður en skólaganga kemur til sögunnar, og í gegnum allan barndóminn, standa hávaxin börn sig umtalsvert betur í vitsmunalegum prófum. Þú varst á brjósti Í tveimur rannsóknum, sem birtar voru 2007, þar sem til rannsóknar voru ríflega 3.000 bresk og nýsjálensk börn, reyndist brjóstamjólkurgjöf hafa mikil áhrif á greind. Þau börn sem fengu brjóstamjólk, sem báru svokallað FADS2-gen, mældust að meðaltali næstum sjö stigum hærra í greind. Duke University greindi frá þessu, sem og Reuters. Þetta tiltekna gen getur hjálpað börnunum að nýta mjólkina betur til þess að þroska heilann – svo þau börn sem fá brjóstamjólk verða greindari. Samband gensins, brjóstamjólkur og greindarvísitölu er þó ekki fullrannsakað. Þú lærðir á hljóðfæri Vísindamenn hafa sýnt fram á að tónlist getur hjálpað til við þroska á nokkra mismunandi vegu. Árið 2011 sýndu menn fram á að greina mætti framfarir í þroska fjögurra til sex ára barna eftir aðeins eins mánaðar tónlistarkennslu. Árið 2004 sýndi önnur rannsókn fram á að sex ára börn sem sóttu kennslu á píanó höfðu eftir mánuð tekið meiri framförum í greind en börn sem sóttu leiklistarnámskeið eða fóru ekki í neina kennslu. Þetta er hins vegar alltaf spurning um orsök og afleiðingu. Árið 2013 leiddi rannsókn í ljós að betur gefin börn væru líklegri til að læra á hljóðfæri. Þú ert örvhentur Eitt sinn var talið að örv- hentir væru líklegri til þess að fremja afbrot. Nú vita menn betur. Nýlegri rannsóknir benda til þess að örvhentir séu hugmyndaríkari og meira skapandi en hinir rétthentu. Blaðamaður New Yorker sagði árið 1995 frá rannsókn þar sem hæfni í sundurhverfri hugsun var prófuð en sá sem er sterkur á því sviði finnur margar og sundurleitar, oft nýstárlegar lausnir á tilteknu verkefni eða vandamáli. Til að gera langa sögu stutta stóðu örvhentir sig mun betur á þessu sviði. Ef til vill þess vegna standa örvhentir sérstak- lega framarlega í arkitektur og bókmenntum. Þú ert elstur Eldri systkini eru venjulega gáfaðri en þau yngri. The New York Times greindi árið 2007 frá tímamóta- rannsókn sem sýndi að eldri systkini eru greindari en hin yngri. Þar munar að jafnaði þremur stigum. Rannsóknin sýndi að þetta hafði ekkert með gen að gera heldur samspil og samskipti foreldra og barna. Elsta barnið situr eitt að athyglinni og örvuninni fyrstu árin og er svo í leiðandi hlutverki gagnvart yngra systkini sínu. Þú hefur notað dóp Bresk rannsókn sem birt var árið 2012 sýndi fram á tengingu á milli greindar og notkunar ólöglegra fíkniefna. Úrtakið samanstóð af sex þúsund Bretum, sem fæddust árið 1958. Þeir sem höfðu hærri greindarvísitölu við 11 ára aldur voru 31 ári síðar líklegri til að hafa notað ólögleg fíkniefni. Niðurstöðurnar bentu til þess að greind börn væru líklegri til að stunda skaðlega hegðun síðar á lífsleiðinni, svo sem eins og að drekka óhóflega eða nota fíkniefni. Þú ert grannur Í franskri rannsókn, niðurstöður voru birtar árið 2006, voru 2.200 manns teknir í greindar- vísitölupróf yfir fimm ára tímabil. Rannsóknin leiddi í ljós að þeir sem voru feitir voru með lægri greindarvísitölu. Þeir sem voru með BMI- stuðul undir 20 þekktu 56% orða í orðaforða- prófi. Offitusjúklingar, eða þeir sem voru með BMI yfir 30, þekktu 44%. Þeim sem voru feitir hrakaði yfir fimm ára tímabil á meðan hinir grennri stóðu í stað. Frá þessu greindi The Telegraph.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.