Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2015, Side 52
Helgarblað 6.–9. mars 201552 Menning
É
g kveikti á sjónvarpinu og
sá að lögreglan var á hæl-
um bankaræningjanna, og þá
gerði ég mér grein fyrir því að
pabbi minn var með þeim. Ég
skildi hins vegar ekki hvernig það
hafði gerst að eldri bróðir minn og
pabbi, sem höfðu átt í svo miklum
erjum, höfðu sest niður og ákveðið
að ræna banka í sameiningu. Þegar
ég fór að sofa um kvöldið var ég viss
um að þeir myndu báðir deyja,“ seg-
ir Stefan Thunberg, annar höfunda
spennusögunnar Dansað við björn-
inn. Bókin er byggð á sönnum at-
burðum, en þrír bræður Thunbergs
stóðu á bak við röð þaulskipulagðra
vopnaðra bankarána í Svíþjóð í byrj-
un tíunda áratugar síðustu aldar. Að
sama skapi er það brothætt samband
sonar og ofbeldisfulls föður sem er
viðfangsefni bókarinnar, sem hefur
slegið í gegn í Svíþjóð og kvikmynda-
rétturinn seldur til Hollywood. DV
ræddi við Thunberg og meðhöfund
hans, Andres Roslund, fyrrverandi
fréttamann og metsöluhöfund, sem
heimsóttu landið í tilefni af þýðingu
bókarinnar.
Lögreglan forviða
Stefan Thunberg er næstelstur í
fjögurra bræðra hópi sem varð nán-
ast goðsagnakenndur fyrir glæpi sína
á árunum 1991 til 1993. Eftir stóran
þjófnað á vopnum frá sænska hern-
um frömdu sá elsti og tveir yngstu
tíu bankarán ásamt litum hópi vina.
Ránin sem „herdeildin“, eins og
hópurinn var kallaður, framkvæmdi
voru mun betur skipulögð og útfærð
en nokkur önnur rán í sænskri sögu.
Var lengi vel talið að um þrautþjálf-
aða fagmenn væri að ræða, en þvert
á móti var enginn bræðranna á saka-
skrá. „Ég vissi af þessu frá byrjun því
það var alltaf opið hús fyrir mig hjá
elsta bróður mínum.
Ég man þegar þeir voru að skipu-
leggja ránið á vopnabúrinu og ég
man eftir að hafa hitt þá eftir vel
heppnað bankarán. Í sjónvarpinu
var verið að fjalla um ránið og þeir
töluðu um það eins og það væri bíó-
mynd sem ég hafði ekki séð. Það
hljómar kannski brjál-
æðislega en stemningin
var svo glaðleg og full af
adrenalíni að mig lang-
aði til að verða hluti af
þessu.“ Thunberg var
á þessum tíma nemi í
listaháskóla og ákvað eft-
ir nokkra umhugsun að
taka ekki þátt en fylgdist
með allri atburðarásinni
bak við tjöldin. Hann
rifjar meðal annars upp
þegar bróðir hans sýndi
honum leynikjallara
sem hann hafði grafið
undir hús sitt og geymdi
á þriðja hundrað vopn.
Ofbeldisfulli faðirinn í bakgrunni
Meðhöfundur Thunbergs, Andres
Roslund, segir að það sem hafi kveikt
áhuga hans á að vinna að sögunni
hafi verið sú innsýn sem Thunberg
gat gefið í uppvöxt og aðstæður sem
leiða til þess að hópur bræðra tekur
upp á því að ræna banka. Árekstrar
ofbeldisfulls og stjórnsams föður og
elsta sonarins urðu þannig kjarninn
í sögunni, en þetta er eitthvað sem
Roslund segist sjálfur hafa tengt
við og hafi gefið sögunni almennari
skírskotun.
Faðirinn er á vissan hátt alltaf í
bakgrunninum í heimi ræningjanna.
„Á yfirborðinu var tilgangurinn
með ránunum að eignast svo mik-
ið af peningum að þeir þyrftu ekki á
neinum að halda. Ómeðvitað þýddi
það: „Við þurfum ekki á föður okk-
ar að halda“. En svo var það líka hitt:
spennan og ánægj-
an sem fólst í því fyr-
ir tvítuga stráka að
framkvæma slík rán
sem lögreglan skildi
ekkert í,“ segir Thun-
berg.
Það var svo ekki
fyrr en hann las bók-
ina sem elsti bróð-
irinn gerði sér grein
fyrir að hann hafi á
margan hátt fetað í
fótspor föðurins með því að stjórna
yngri bræðrum sínum. „Yngri bræð-
urnir hefðu í raun aldrei leiðst út í
glæpi ef þeir hefðu ekki litið svo mik-
ið upp til bróður síns. Hann krafðist
þess ekki einu sinni, þetta var bara
þeirra leið til að vera hluti af fjöl-
skyldunni. En þetta er líka ástæðan
fyrir því að þeir ákváðu á endanum
að hætta – þeir gerðu sér grein fyr-
ir því að þeir væru að særa fólk. En
þegar þar var komið var elsti bróð-
irinn orðinn svo háður ránunum
að hann gat ekki hætt, og ég held
að hann dreymi kannski ennþá um
þau,“ segir Roslund.
Sannleikurinn alltaf skáldaður
Að lokum voru bræðurnir hand-
teknir eftir mikinn eltingarleik við
lögregluna á Þorláksmessu 1993. Þá
hafði faðir strákanna ákveðið að taka
þátt og var því einnig handtekinn.
Thunberg segir aldrei hafa kom-
ið til greina að skrifa sagnfræðilega
sanna bók, heldur vildi hann gera
skáldsögu byggða á atburðunum.
Hann segir raunar að aldrei sé hægt
að segja satt frá atburðum, sann-
leikurinn sé alltaf eins konar skáld-
skapur byggður á sjónarhorni þess
sem segir söguna. Þessu til stuðn-
ings bendir Roslund á að þegar hann
hafi rætt við bræðurna um ofbeldi
föðurins gagnvart móður þeirra hafi
þeir allir endurskrifað minningar
sínar til að taka á sig ábyrgðina. Þeir
ákváðu því að binda sig ekki við stað-
reyndir og skrifuðu Thunberg sjálf-
an til dæmis ekki inn í söguna, held-
ur voru lítil brot af honum sýnileg í
persónum allra bræðranna. „Við ætl-
uðum að brjóta veruleikann niður
frumeindir sínar og byggja hann aft-
ur upp til að mynda góða sögu,“ bæt-
ir Roslund við.
Bræðurnir voru allir dæmdir í
fangelsi, sá elsti Carl Sumonja fékk
14 ára dóm en hinir mun vægari.
Thunberg segir að samband bræðr-
anna sé gott í dag. Fjölskyldumeð-
limirnir hafi tekið bókina í sátt þótt
þeir hafi verið ósáttir við að hann
hafi sagt frá mörgum leyndarmálum
sem þeir álitu að hefðu verið í trún-
aði. „Einn bróðir minn hringdi í mig
eftir að hann las bókina og sagði:
„Stefan, ég fokking hata þig en ég
elska þessa bók“.“ n
„Það hljómar
kannski brjálæð-
islega en stemningin var
svo glaðleg og full af
adrenalíni að mig langaði
til að verða hluti af þessu.
Þaulskipulögð
bankarán Bræðurnir
stóðu á bak við á ann-
an tug rána á rúmlega
tveggja ára tímabili.
Skrifar um banka -
rán bræðra sinna
Stefan Thunberg er bróðir alræmdustu bankaræningja Svíþjóðar
Thunberg og Roslund
Anders Roslund starfaði
sem fréttamaður í
vinsælasta fréttaþætti
Svíþjóðar á sama tíma og
bræður Stefans Thunberg
rændu banka víðs vegar
um landið – nú hafa
þeir skrifað spennusögu
byggða á atburðunum.
Mynd SigTRygguR ARi
Kristján guðjónsson
kristjan@dv.is
Metsölulisti
Eymundsson
24. febrúar –4. mars 2015
Allar bækur
1 AfturganganJo Nesbø
2 AlexPierre Lemaitre
3 Dansað við björninnRoslund & Thunberg
4 Öræfi - kiljaÓfeigur Sigurðsson
5 Ömmumatur NönnuNanna Rögnvaldardóttir
6 Náðarstund kiljaHannah Kent
7 Iceland Small World- lítil Sigurgeir
Sigurjónsson
8 Hreint mataræðiDr. Alejandro Junger
9 Iceland In a BagÝmsir höfundar
10 Kamp Knox kiljaArnaldur Indriðason
Íslenskar kiljur
1 AfturganganJo Nesbø
2 AlexPierre Lemaitre
3 Dansað við björninnRoslund & Thunberg
4 ÖræfiÓfeigur Sigurðsson
5 NáðarstundHannah Kent
6 Kamp KnoxArnaldur Indriðason
7 Aftur á kreikTimur Vermes
8 Etta og Ottó og Russel og James
Emma Hooper
9 ÆvintýriJonas T. Bengtsson
10 LjónatemjarinnCamilla Läckberg