Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2015, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2015, Síða 2
Helgarblað 25.–27. júlí 20152 Fréttir Lífrænt Valið besta heilsuefnið Fæst í apótekum, Hagkaup, Krónunni, Grænni heilsu, Heilsuhúsinu og Fjarðarkaup. www.thebeautyshortlist.com Best Health Supplement - Overall Wellbeing Hreinsar líkamann, bætir andadrátt og líkamslykt, fegrar og frískar húðina Bætir meltingu, gerir líkamann basískan, kemur á réttu pH gildi Yr 100 lífræn næringarefni sem gefa orku, einbeitingu og vellíðan Spirulina, Chlorella & Barleygrass Lifestream framkvæmir þrefaldar næringarprófanir; við uppskeru, eftir framleiðslu og að lokum með vottun frá óháðri prófunarstofu. Dagleg græn upplyfting. Heilnæmt fæði, hámarks upptaka og nýting á næringarefnum. 120 hylki. Útgáfa DV næstu daga Að þessu sinni fylgir DV 44 síðna tekjublað með tekjum ríflega tæplega þrjú þúsund Íslendinga. Ástæða þess að það kemur út á laugardegi að þessu sinni er sú að skattstjóri birti útsvarsgögn í gær, á föstudegi. Næsta útgáfa DV verður þriðjudaginn 28. júlí, en þá kem- ur út vikublað. Verslunarmannahelgarblaðið kemur svo út föstudaginn 31. júlí næstkomandi. Þekkir þú manninn? Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir upplýsingum um hver maðurinn á myndinni er en hans er leitað í tengslum við rannsókn lögreglu á atviki sem átti sér stað í útibúi Íslandsbanka, Höfðabakka 9, þann 9. júlí sl. um klukkan 16. Maðurinn er talinn hafa farið af vettvangi á vespu. Lögregla biður manninn um að hafa samband. Hann, eða þeir sem vita hver maðurinn er, er beðinn um að hafa samband í síma 444-1000, senda tölvupóst á netfangið einar.asbjornsson@ lrh.is eða senda einkaskilaboð á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Rannsakar ofbeldi í litlum samfélögum n Talar við þolendur og bæjarbúa n Neikvæð viðbrögð við nauðgunarkærum S temningin er frábær fyrir gönguna og sérstaklega eftir kynningarpartíið á Húrra á miðvikudaginn var. Það var röð fram með tveimur götum því það mættu svo margir – og það var svo gaman,“ segir Sunna Ben, einn skipuleggjenda Druslugöngunnar sem verður gengin í dag, laugardag, klukkan 14.00. Gengið verður frá Hall- grímskirkju, efst á Skólavörðuholti, niður á Austurvöll þar sem ræðuhöld munu fara fram og tónlist spiluð. Ræðumenn eru Sóley Tómasdóttir, Jóhannes Kr. Kristjánsson og Guðrún Katrín Jóhannesdóttir. Hljómsveitirnar Mammút, Úlfur Úlfur og Boogie Trouble munu stíga á svið auk Friðriks Dórs tónlistarmanns. Biðröð í kynningar­ partíið „Við höfum verið að selja ýmsan varning í tengslum við gönguna eins og derhúfur og boli. Salan varð svo mikil að við erum eig- inlega að rembast við að framleiða enn meira fyr- ir gönguna,“ segir Sunna. Hún segir marga hafa málað og smíðað skilti í kynningarpartíinu sem nota á í göngunni en þeir sem vilja geta einnig mætt fyrr í dag til að búa til sín eigin. Sunna segir nýja herferð Druslugöngunnar hafa slegið í gegn. „Nýja herferðin, „Ég er drusla“, hefur gengið framar vonum og við erum mun sýnilegri núna en áður. Gréta Þorkelsdóttir og Helga Dögg Ólafs- dóttir áttu hugmyndina að henni og þetta var dálítið stórt verkefni sem gekk mjög vel,“ segir hún glöð í bragði. Sér eftir að hafa ekki kært Sunna birti færslu á Facebook-síðu sinni fyrir nokkru þar sem hún greindi frá því hún hefði orðið fyrir grófu kynferðisofbeldi sem hún kærði ekki til lögreglu en iðrist að hafa ekki kært. „Mér var ráðlagt að fara ekki lengra með málin. Núna þegar um- ræðan hefur opnast meira og ég tek þátt í henni þá átta ég mig á því hvað þetta er galið. Ég fattaði ekki þegar ég var unglingur að fara lengra með málin enda sagði lögregluþjónn mér að gera það ekki, það tæki því ekki og væri ekki þess virði. Það var ekki fyrr en ég var orðin fullorðin að ég áttaði mig á þessu,“ segir hún að lokum. Nauðgunarkærur í litlum bæjarfélögum Guðrún Katrín Jóhannesdóttir verður í hópi ræðumanna í göngunni í ár en hún vinnur að mastersritgerð í félagsfræði um við- brögð við nauðgunarkærum í litlum bæjarfélögum. „Ég er að skoða tvö tilvik í litlum bæjarfélögum þar sem nauðganir hafa verið kærðar en ég tala bæði við þolendur og aðra bæjarbúa.“ Hún segist ekki geta rætt sér- stakar niðurstöður varðandi um- fjöllun sína þar sem hún sé enn að vinna rannsóknina. „Mál þessara stúlkna eru sam- bærileg, þær hafi upplifað verulega neikvæð viðbrögð annarra bæjar- búa eftir að hafa kært nauðgun.“ Fagaðilar geti haft áhrif á farveg mála Hún segir þolendur kynferðisof- beldis í litlum bæjarfélögum sem segja frá og kæra málin oft fá nei- kvæð viðbrögð sem felist í svip- brigðum, hunsun, um þá sé mikið talað og jafnvel gert lítið úr þeirra upplifun. „Þetta er það sem fólk á í hættu ef það kærir nauðgun. Svona viðbrögð geta haft miklar afleiðingar í för með sér og fólk kannski kærir ekki. Í þessu felst því ákveðin þöggun enda veit fólk hvaða neikvæðu viðbrögð- um það getur þurft að mæta.“ Aðspurð bætir Guðrún því við að fagaðilar geti haft áhrif á í hvaða far- veg kynferðisbrotamál fara. „Það er erfitt að tala fyrir hönd einhvers en ég hef rekist á dæmi þar sem fagað- ilar hafa áhrif á hvað þolendur gera. Hins vegar er ég ekki beinlínis að skoða það heldur það þegar nauðg- un hefur verið kærð og heilu bæjar- félögin fara upp á móti fórnar- lömbum kynferðisofbeldis. Svo virðist sem fólk sé frekar tilbúið til að lýsa yfir stuðningi við gerendur en þolendur.“ n „Svona viðbrögð geta haft miklar afleiðingar í för með sér og fólk kannski kærir ekki. Sunna Ben Einn skipuleggjenda Druslugöngunnar. Guðrún Katrín Jóhannesdóttir „Mál þessara stúlkna eru sambærileg, þær hafa upplifað verulega neikvæð viðbrögð annarra bæjarbúa eftir að hafa kært nauðgun.“ Druslugangan Samstaða með þolendum kynferði sofbeldis. Druslugangan Fjölmennt verður í miðbænum í dag. MyND SiGtryGGur Ari Birna Guðmundsdóttir birna@dv.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.