Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2015, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2015, Page 8
Helgarblað 25.–27. júlí 20158 Fréttir HamraHlíð 17, 105 reykjavík / Hús Blindrafélagsins / sími 552-2002 Vönduð lesgleraugu frá 3.900 kr. „Það kemur vel til greina að boða til hluthafafundar“ Bankasýslan íhugar að boða til fundar vegna ákvörðunar um byggingu höfuðstöðva Landsbankans B ankasýsla ríkisins er með til skoðunar að boðað verði til hluthafafundar vegna umdeildrar ákvörðunar bankaráðs Landsbankans um að reisa nýjar höfuðstöðvar bankans við Austurhöfn, í miðborg Reykjavíkur. Forstjóri bankasýsl- unnar hefur sjálfur sagt að hann hefði viljað sjá aðra möguleika skoðaða og óttast að kostnaður geti farið fram úr ætlun og verk- efnið tafist. „Það kemur vel til greina að boða til hluthafafundar“ „Við erum að fara yfir málið og það kemur vel til greina að boða til hluthafafundar,“ segir Jón Gunn- ar Jónsson, forstjóri Bankasýsl- unnar. Hann vildi að svo stöddu ekki slá því föstu hvenær ákvörðun lægi fyrir. Á slíkum fundi myndi Bankasýslan að öllum líkindum óska eftir frekari rökstuðningi á þeim forsendum sem lægju á bak við ákvörðunina og þannig sann- reyna hvort fullyrðingar um hag- kvæmni séu á rökum reistar. Einnig er mögulegt að Bankasýslan leggi fram ályktun gegn framkvæmdun- um en slíkt mundi setja verulegan þrýsting á stjórn bankans. Forstjórinn ekki farið leynt með óánægju sína Bankasýsla ríkisins fer með 98% eignarhlut ríkisins í Landsbankan- um og skipar bankaráðið. Það var bankaráðið, sem fer með æðstu stjórn bankans, sem tók ákvörðun um að farið yrði í framkvæmdina og hefur Jón Gunnar staðfest við fjölmiðla að ákvörðunin hafi ver- ið innan ákvörðunarsviðs banka- ráðsins og ekki hafi þurft að bera hana undir hluthafafund. Jón Gunnar hefur hins vegar ekki far- ið leynt með óánægju sína varð- andi ákvörðunina. Í samtali við Viðskiptablaðið sagðist hann vilja sjá aðra möguleika skoðaða til hlít- ar auk þess sem hann óttaðist að kostnaðurinn gæti farið fram úr áætlunum, verkefnið gæti tafist og að það myndi taka of mikinn tíma frá stjórnendum bankans. Að hans sögn þyrfti Bankasýslan að sann- reyna fullyrðingar bankans um hagkvæmni ákvörðunarinnar. Frumkvæði Vestmannaeyja- bæjar Fyrr í vikunni fól bæjarráð Vest- mannaeyjabæjar bæjarstjóra að óska eftir hluthafafundi í Lands- bankanum og kalla þar eftir frekari rökstuðningi vegna fyrirhugaðr- ar nýbyggingar bankans. Sérstak- lega vildi bæjarráð að óskað yrði eftir því að stjórn Landsbankans léti fara fram óháð mat á því hvaða staðsetning væri hentug. Í bókun bæjarráðs kom fram að þar sem að bankinn sé nánast eingöngu í op- inberri eigu „sé sérstaklega brýnt að vanda til verka hvað nýfram- kvæmdir við höfuðstöðvar varðar og þá ekki síst að þess verði gætt að hvergi séu send þau skilaboð að óráðsía, glæframennska og flott- ræfilsháttur verði látinn viðgang- ast. Vítin eru til að varast þau.“ Hagkvæmt fyrir miðbæjarfyr- irtækið Eins og fram hefur komið eru helstu rökin varðandi framkvæmd- ina hjá stjórnendum Landsbank- ans þau að mikið óhagræði sé af núverandi húsnæðisfyrirkomulagi bankans en fyrirtækið sé dreift í fjölmörgum byggingum í miðbæn- um sem flestar séu leigðar. Með því að byggja nýjar höfuðstöðvar á einum stað sé bankinn að spara sér um 700 milljónir króna á ári í leigukostnað. Nýja byggingin mun kosta um átta milljarða og halda stjórnendur bankans því fram að fjárfestingin muni borga sig upp á tíu árum. Einnig hefur komið fram að bankinn skilgreini sig sem mið- bæjarfyrirtæki. Bankinn hafi verið til húsa í hjarta miðbæjarins í rúma öld og þar vilji fyrirtækið vera. Sigmundur Davíð: Fresta ætti áformunum um 3–4 ár Fjölmargir hafa stigið fram og gagn- rýnt áform bankans. Forsætisráð- herra, Sigmundur Davíð Gunn- laugsson, er í þeim hópi og sagði í samtali við RÚV að algjörlega ótíma- bært væri að ráðast í byggingu höf- uðstöðva og að fresta ætti slíkum áformum um 3–4 ár. Fjölmargir aðr- ir húsnæðiskostir væru fyrir bank- ann á höfuðborgarsvæðinu og utan þess og á þessum tímapunkti ætti bankinn að einbeita sér að því að bæta kjör viðskiptavina. Frosti Sig- urjónsson alþingismaður benti á að ef að átta milljarða byggingaráform væru hagkvæm þá væru ódýrari kostir mun hagkvæmari. Í því sam- hengi benti hann á enn stærra hús- næði við Urðarhvarf í Kópavogi sem fullbúið myndi ekki kosta meira en tvo milljarða. Að auki gæti bankinn þá selt lóðina við Austurhöfn upp í kostnaðinn. Steinmola fyrir steinmola Kári Stefánsson, forstjóri Decode, gekk þó lengst í gagnrýninni og leitaði í smiðju Kjarvals: „Sjáið þið til þess að húskarl ykkar fái frið til þess að reisa húsið mikla við Austurhöfnina. Dreif- ið um húsið þrjú hundruð þúsund sleggjum og hvetjið landsmenn alla til þess að koma og brjóta það niður steinmola fyrir steinmola til þess að tjá reiði sína og fyrirlitningu á hrokan- um og óhófinu sem einkenndu bank- ana fyrir hrun og skutu síðan upp kollinum rétt sem snöggvast í Lands- bankanum árið 2015.“ n Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Kærir gæslu- varðhald Maður sem grunaður er um að hafa smitað ungar konur af HIV- veirunni hefur ákveðið að kæra gæsluvarðhaldsúrskurð, en hann var á miðvikudag úrskurðað- ur í gæsluvarðhald til 20. ágúst. Lögmaður hans hefur ákveðið að kæra úrskurðinn sem tekinn verður fyrir í Hæstarétti á næstu dögum. Málið hefur verið rann- sakað í samvinnu við sóttvarna- lækni, Harald Briem, sem hefur staðfest að málið sé óvenju um- fangsmikið. Maðurinn er níger- ískur hælisleitandi á þrítugsaldri sem hefur verið hér á landi í rúmt ár. „Það er mikilvægt að finna fólk og mjög algengt að við fáum að- stoð frá lögreglu til þess. Það er í samræmi við sóttvarnarlög,“ segir Haraldur en konur sem telja sig geta verið í hættu eru beðnar um að hafa samband við lögregluna. Leiðrétting Í síðasta tölublaði mátti lesa um- fjöllun um starfsemi ADHD- teymis Landspítala Íslands. Þar kom fram að teymið hefði ekki fengið fjárveitingu árin 2014 og 2015. Það er ekki rétt og leiðréttist hér með en teymið fékk 40 millj- óna króna fjárveitingu í lok ársins 2014, en það kom ekki fram í fjárlögum. Þó ekki hafi verið gert ráð fyrir fjárveitingu til ADHD- teymisins í fjárlögum ársins 2015 standa nú yfir samningaviðræð- ur við Sjúkratryggingar Íslands þar um.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.