Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2015, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2015, Síða 19
Umræða 19Helgarblað 25.–27. júlí 2015 Mest lesið Þetta er óvenjulegt Kærustunni minni var nauðgað Ég byrja yfirleitt illa Ísland færist nær A-flokki 1 Brimbrettakappi varð fyrir hákarlaárás í beinni útsendingu Ástralski brimbrettakappinn Mick Fanning varð fyrir hákarlaárás í beinni útsendingu frá heimsbikarmóti í Suður- Afríku Lesið: 61.376 2 Máttur FacebookStolinn tjaldvagn fannst eftir mynddeilingar á Facebook. Tjaldvagni Harðar Garðarsson- ar var stolið. Hann náði myndum af þjófnaðinum og birti þær á Facebook. Lesið: 31.004 2 Fóru inn í herbergi hjá skólastelpum seint um kvöld Sex enskar stúlkur sem gistu á Reykja- vík Backpackers aðfaranótt mánu- dags voru vaktar seint um kvöld þegar starfsmaður gistiheim- ilisins opnaði læstar dyr herbergisins til að hleypa öðrum ferðamanni inn. Sá var að leita að farangri sem hann taldi að væri í herberginu. Stúlkurnar voru talsvert skelkaðar og fannst þetta óþægileg upplifun. Lesið: 26.669 Haraldur Briem sóttvarnarlæknir um karlmann sem grunaður er um að hafa smitað stúlkur af HIV. - DV.is Annie Mist var ánægð með fyrsta daginn á heimsleikunum í crossfit. - DV.is Myndin Dyttað að húsinu á heitum sumardegi Þessi nýtti veðurblíðuna og málaði blátt ofan í blátt. Mynd ÞoRMAR ViGniR GunnARSSon Betra blóðflæði betri heilsa með SuperBeets rauðrófu kristal Fæst í flestum apótekum og heilsubúðum - S: 896 6949 w w w .s u p er b ee ts .is - v it ex .is Betra blóðflæði betri heilsa með SuperBeets rauðrófu kristal Superbeets Nitric Oxide allt að 5 sinnum öflugra 1. dós superbeets jafngildir 30 flöskum af 500 ml rauðrófusafa Nitric Oxide Nóbelsverðlaun 1998 Sameind ársins 1992 Uppgötvun á Nitric Oxide var upphafið á framleiðslu rislyfja Eftir fertugt framleiðir líkaminn 50% minna Nitric Oxide Fæst í flestum apótekum og heilsubúðum Upplýsingar í síma 896 6949 og www.vitex.is Fæst í flestum apótekum og heilsubúðum NÝTT w w w .z en b ev .is - U m b o ð : v it ex e h f Betri og dýpri svefn Engin eftirköst eða ávanabinding Melatónin Upplýsingar í síma 896 6949 og www.vitex.is úr graskersfræjum ZenBev - náttúrulegt Triptófan Vísindaleg sönnun á virkni sjá vitex.is Tvær bragðtegundir sítrónu og súkkulaði Melatónín er talið minnka líkur á blöðruhálskirtilskrabbameini sjá vitex.is Breyting nítrats úr fæðu í Nitric Oxide byrjar í munni, þess vegna er SuperBeets tekið inn í vökvaformi, en ekki töfluformi. Nitric Oxide Superbeets allt að 5 sinnum öflugri 1. dós superbeets jafngildir 30 flöskum af 500 ml rauðrófusafa Íslensk vottun á virkni NO3 Sýni rannsóknarstofa - Nýsköpunarmiðstöð Íslands Eftir fertugt framleiðir líkaminn 50% minna Nitric Oxide. SUPERBEETS örvar Nitri c Oxide framleiðslu strax. Bætt blóðflæði og aukin súrefnisupptaka hefur jákvæð áhrif á alla starfsemi líkamans, þ.m.t. hjarta og æðakerfi. ATH: Breyting nítrats úr fæðu í Nitric Oxide. (NO) byrjar í munni, þess vegna er SuperBeets tekið inn í vökvaformi, en ekki töfluformi.Þ egar Grikkir tóku upp evru árið 2001 hafði þar um nokkurra ára skeið ríkt sæmilegt jafn- vægi í efnahags- og peninga- málum, en áður hafði Grikkland iðu- lega þurft að glíma við verðbólgu og hátt vaxtastig. Aðild Grikklands að myntbandalaginu var því álitin mik- ilvægur áfangi í því að tryggja efna- hagslegan stöðugleika landsins til framtíðar og skapa ný tækifæri. For- sætisráðherrann á þeim tíma dró upp þá líkingu að upptaka evru myndi færa Grikkland nær hjarta Evrópu. Kannski hafa ekki margir séð fyr- ir að upptaka evru myndi leiða til of- þenslu gríska hagkerfisins, efnahags- hruns og margra ára kreppu. En vart hefur nokkur Grikki getað séð fyr- ir þá gríðarlegu hörku sem aðildar- ríkin, með Þýskaland í broddi fylk- ingar, voru tilbúin að sýna Grikklandi í efnahagserfiðleikum þess. Í stað samstöðu og samhjálpar hafa vina- þjóðirnar látið Grikki sæta afarkost- um og þvingunaraðgerðum. Jafnvel Alþjóða gjaldeyrissjóðnum virðist nóg um hörkuna. Það eru engin fordæmi fyrir því að peningakerfi ríkis sé nánast tekið úr sambandi í þeim tilgangi að þvinga landsmenn til að ganga að afarkost- um. Nú er ljóst að slík þvingunar- aðgerð er ekki bara fræðilegur möguleiki heldur sá kaldi veruleiki sem Evrópusambandið hefur boð- ið Grikklandi. Ef grísk stjórnvöld hefðu ekki fallist á þá afarkosti sem ESB bauð þeim blasti við algert hrun hagkerfisins. Þannig hefur Evrópu- sambandið fengið sínu framgengt en harkan sem Grikkir voru beittir mun væntanlega seint gleymast. Eftir þriggja vikna lokun grískra banka voru þeir opnaðir aftur síðast- liðinn mánudag. Ekki má þó taka út meira en 60 evrur á dag og auk þess er lokað á millifærslur milli landa. Forseti samtaka grískra banka hvet- ur sparifjáreigendur til að leggja peninga sína í banka og fullyrðir að óhætt sé að treysta bönkunum. Geta Grikkir treyst því? Árið 2010 hvatti þáverandi fjármálaráðherra Grikk- lands almenning til að fjárfesta í rík- isskuldabréfum sem voru svo færð niður um 53% tveimur árum síðar. Grískir bankar eru rúnir trausti eft- ir þriggja vikna lokun og hverfandi líkur á að almenningur muni treysta bönkum fyrir sparifé sínu á næst- unni. Fjármagnsflóttinn úr grísk- um bönkum mun því líklega halda áfram og kalla á frekari neyðarað- gerðir í náinni framtíð. Spurningin er hvaða skilyrði muni fylgja þeirri fyr- irgreiðslu. Þurfa að taka upp sjálfstæða mynt Þótt grískir bankar séu ekki í ríkiseigu hefur seðlabanki evrusvæðisins neit- að að leggja þeim til lausafé án rík- isábyrgðar. Skuldir einkabanka hafa þannig færst yfir á ríkissjóð og þá sem greiða skatta. Lánin til grísku bank- anna hafa runnið til þess að gera upp við stóra erlenda kröfuhafa, aðallega evrópska banka. Eignafólk hefur líka getað forðað sínu fé úr grískum bönk- um en almennt launafólk situr eft- ir með skuldugri ríkissjóð og þyngri skattbyrði. Erfitt er að sjá hvernig Grikkland á að komast upp úr krepp- unni án verulegrar lækkunar skulda og upptöku sjálfstæðrar myntar. Þegar ESB stillti Varufakis og Tzipras upp við vegg kom í ljós að þeir höfðu í raun ekkert „Plan B“ í raun. Haft er eftir Varufakis að þeir hafi ekki gert ráð fyrir að ESB myndi beita aðildarríki slíkri hörku. Hag- fræðingar hafa bent á að ef Grikkland hefði átt tilbúna áætlun um upptöku drökmu hefði samningsstaða þess verið allt önnur og sterkari. Upptaka sjálfstæðrar myntar hefði með geng- isfellingu leitt til lækkunar á stór- um hluta skulda, samkeppnishæfni Grikklands hefði orðið gríðarsterk, hagvöxtur hefði tekið við sér, ekki síst ferðaþjónusta, atvinna hefði aukist og skattstofnar ríkisins tekið við sér. Fjárfestar hefðu séð tækifæri í Grikk- landi og fjármagn byrjað að flæða til landsins að nýju. Myntbandalag Evrópusambandsins hefði hins vegar ekki mátt við slíku fordæmi enda gætu þá fleiri aðildarríki farið að íhuga útgöngu úr myntbandalaginu sem lausn á sínum efnahagsvanda. Reiða sig á gæsku Án sjálfstæðs gjaldmiðils getur Grikkland ekki komið hjólum at- vinnulífsins í gang af sjálfsdáðum. Grikkland mun því áfram þurfa að reiða sig á gæsku Evrópusambands- ins og efnahagsaðstoð sem nú er ljóst að ekki fæst nema gegn ströng- um skilyrðum. Síðan ESB hóf „björg- unaraðgerðir“ í Grikklandi árið 2010 hefur hagkerfi þess dregist saman um 25%. Laun hafa lækkað um 20% og atvinnuleysi aukist úr 10% í 25%. Ríkisskuldir, sem hlutfall af þjóðar- framleiðslu, hafa aukist úr 113% í 170%. Heilbrigðis-, velferðar- og menntakerfi Grikklands eru í rúst. Fjármagns- og atgervisflótti er við- varandi. Fjórðungur grunnskóla- barna er vannærður vegna fátækt- ar. Sjúkir og aldraðir deyja vegna þess að lyf eru ekki til. Enn sér ekki fyrir endann á vanda Grikklands og lengi gæti vont versnað. Spurst hef- ur að tugþúsundir Breta hafi afbók- að Grikklandsferðir sínar á meðan bankar voru lokaðir og þýskir ferða- menn óttist nú að þeir séu ekki leng- ur velkomnir í Grikklandi. Verði stjórnmálaástandið talið ótryggt í Grikklandi gæti ferðageirinn hrunið með skelfilegum afleiðingum. Saga Grikklands sýnir hve mik- ilvægt það getur verið að eiga sjálf- stæðan gjaldmiðil þegar á móti blæs. Þjóðir geta lent í efnahagsáföllum af ólíkum ástæðum, en dæmin sýna að hagkerfi sem byggja á sjálfstæðum gjaldmiðli eru margfalt fljótari að ná sér aftur á strik. Það er líka ljóst að vísasta leið þjóðar til að glata efna- hagslegu sjálfstæði sínu er að færa erlendum aðila valdið til að skapa gjaldmiðilinn. n ESB er engin elsku mamma Kjallari Frosti Sigurjónsson þingmaður framsóknarflokksins Atli Fannar Bjarkason skrifaði um kærustuna sína og Druslugönguna. - Fréttablaðið
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.