Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2015, Side 76
Helgarblað 25.–27. júlí 201532 Lífsstíll
1 Hvers vegna fórst þú á spunanámskeið? „Ég fór á
fyrsta námskeiðið sem hún hélt þegar ég
vissi ekkert hvað þetta var. Aðallega af því
að Dóra er ein uppáhaldsleikkonan mín og
mér finnst hún svo klár og hæfileikarík og
var viss um að hún gæti kennt mér eitthvað
og líka af því ég er áhugamanneskja um allt
sem er fyndið.“
2 Var það skref út fyrir þinn þægindaramma? Ef já,
hvers vegna? „Þetta er líkt því sem ég hef fengist við að því leyti að þetta snýst um
að koma fram og leika við og með öðrum en ólíkt að því leyti að það er ekkert handrit og
enginn veit hvað gerist næst og allir geta leikið allt. Ef mig langar að leika karlkyns
skipstjóra sem hefur áhuga á hannyrðum og er skotinn í Gylfa Ægissyni þá bara geri ég
það. Þetta er vettvangur þar sem allir draumar og draumahlutverk geta orðið að
veruleika og allir geta verið Mary Poppins.“
3 Hvað fékkst þú út úr námskeiðinu? „Fyrst og fremst ofsafengin hlátursköst og svo lærði ég líka að slaka á og bulla betur. Þetta snýst ótrúlega
mikið um samvinnu og hlustun og að hjálpast að við að búa til fyndnustu og skemmti-
legustu senuna. Allir geta komið inn í senu og haft áhrif á hana og þá er líka afar
mikilvægt að vera ekki búinn að giftast sinni eigin hugmynd heldur vera opinn og tilbúinn
að sleppa tökunum og gefa sig óvissunni á vald. Svo þetta er kannski fyrst og fremst
æfing í að skipta um skoðun og þora.“Skútuvogi 11 104 Reykjavík Sími 553 4000 www.prentvorur.is
6.590 kr.
m.vsk.
HVAR KAUPIR ÞÚ TÓNER?
Spunaæði á Íslandi
n Dóra kynntist spunaforminu í New York n Fyllir hvert námskeiðið á fætur öðru
U
m þessar mundir ríkir
mikið spunaæði á Íslandi.
Rekja má æðið til Dóru Jó-
hannsdóttur leikkonu, en
hún heillaðist af leikspuna
þegar hún var heimavinnandi
húsmóðir í New York. Dóra segir
tæknina flókna en heimspekina að
baki henni ótrúlega heillandi.
Heimavinnandi húsmóðir
Dóra hafði starfað sem leikkona á
Íslandi í sjö ár þegar mann hennar,
Jörund Ragnarsson, langaði að
stíga út fyrir þægindarammann og
fara í nám í kvikmyndaleikstjórn
og handritsskrifum við Colombia-
háskólann í New York. Námið er
mjög dýrt sem og lífið sjálft á Man-
hattan. Sonur þeirra hjóna var þá
tveggja og hálfs árs og sáu þau til
dæmis ekki fram á að hafa efni á
leikskólaplássi fyrir hann meðan á
náminu stæði.
„Ég var algjörlega til í að hætta í
leikhúsinu og vera heimavinnandi
húsmóðir, nokkuð sem margir
hneyksluðust á mér fyrir. Ég hafði
samt svo sterka tilfinningu fyrir því
að það myndi leiða eitthvað stór-
kostlegt af sér. Sem það og gerði,
því ég rakst á spunaformið og
uppgötvaði að þarna var eitthvað
allt annað en ég hafði lært áður.
Síðan hef ég verið hugfangin og
verið í þjálfun við Upright Citizens
Brigade (UCB) sem er skóli og leik-
hús á Manhattan með áherslu á
spuna.“
Spuni er handritslaust leik-
rit. Leikararnir spinna atburða-
rásina á staðnum og enginn veit
fyrirfram hvert sagan stefnir. „Það
er afskaplega rík hefð fyrir þessu í
Bandaríkjunum og flestir grín- og
gaman leikarar þar koma úr þessari
þjálfun. Það tekur langan tíma að
öðlast öryggi og færni í tækninni
en það er svo margt hægt að gera
með þetta form. Til dæmis hafa
heilu söngleikirnir verið gerðir
með kór, hljómsveit, dansi og öllu
tilheyrandi.“
Áhugi á gríni nauðsynlegur
Á Íslandi hefur ekki skort áhug-
ann. Dóra hefur fyllt hvert nám-
skeiðið á fætur öðru á örfáum
klukkustundum en hún segir ekki
nauðsynlegt að vera menntaður
leikari til þess að læra og tileinka
sér spunaformið.
„Þú þarft að hafa áhuga á gríni
og fólk sem endist í þessu er oft-
ast fólk sem er smá fyndið og þyk-
ir fyndið í sínum vinahóp. Þú gerir
þetta af því að þú vilt vera í gríni,
jafnvel skrifa grín og vera skapandi
á þeim vettvangi. Svo nýtist tækn-
in í ótrúlega margt annað tengt eða
ótengt listum.“
Falleg heimspeki
Dóra segir heimspekina að baki
spunaforminu sérstaklega fallega
auk þess sem ólíkt fólk finni sam-
leið í gegnum þetta listform. Hún
líkir þessu við hópíþrótt og að
leikarar þurfi að vera sérstaklega
lunknir í virkri hlustun á meðleik-
ara sinn.
„Aðferðafræðin gengur út á að
styðja mótleikarann, láta hann líta
út eins og snilling og gera þannig
sjálfan sig að snillingi. Hér gildir
bara núvitund enda snýst þetta
um að vera í núinu. Virk hlustun
er nauðsynleg og fyrirfram gefnar
hugmyndir eru óþarfar því spuni
er viðbragð við seinustu orðunum
sem þú heyrðir mótleikara þinn
segja. Mér finnst frábært hvað það
er ólíkt fólk sem heillast af þessu, á
síðustu námskeiðum voru til dæm-
is Saga Garðarsdóttir leikkona,
sundlaugarvörður, Ólafur Stefáns-
son handboltamaður, læknir og
ein sjúklega fyndin 80 ára gömul
amma.“
Dóra heldur aftur til New York
í ágúst en fjölskyldan stefnir á
flutninga heim til Íslands í janúar
á næsta ári. Þá hyggst Dóra halda
fleiri námskeið auk þess að starfa
með spunaleikhópnum Improv
Ísland. Áhugasamir geta kynnt
sér námskeið Dóru og starf leik-
hópsins á Facebook-síðu Improv
Íslands. n
Út fyrir
kassann
Kristín Tómasdóttir
skrifar
„Þú þarft að hafa
áhuga á gríni og
fólk sem endist í þessu
er oftast fólk sem er smá
fyndið og þykir fyndið í
sínum vinahóp.
Spunaleikhópurinn Improv Ísland
Improv Ísland er spunaleikhópur sem notar aðferðina „Haraldinn“. Haraldurinn er aðferð
innan langspunaformsins, þar sem leikhópurinn skapar 30–60 mínútna gamansýningu
fyrir framan áhorfendur, út frá einu orði. Ekkert er ákveðið fyrirfram og hver sýning er
aðeins sýnd einu sinni. Í bili samanstendur Improv Ísland leikhópurinn af rúmlega 20
manns af þeim hátt í 200 sem hafa verið að læra og æfa spunaaðferðina hjá Dóru. Leik-
hópurinn Improv Ísland er kominn til að vera og stefnir á vikulegar sýningar í Þjóðleik-
húskjallaranum í febrúar 2016.
Aðstæður breyttust Margir voru
hneykslaðir þegar Dóra ákvað að
taka sér hlé frá leikhúsinu og gerast
heimavinnandi húsmóðir í New York.
„Allir geta verið
Mary Poppins“
Saga fílaði spunanámskeiðið í botn
L
eikkonan Saga Garðarsdóttir
smellti sér á spunanámskeið
hjá Dóru Jóhannsdóttur. Hún
fílaði það í botn og sér í lagi að
fá í hvívetna að leika draumahlut-
verk sín. n