Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2015, Page 2
Helgarblað 6.–9. nóvember 20152 Fréttir
Sveppasýkingar
- í húðfellingum -
Fæst í apótekum | Celsus ehf. | www.celsus.is
Einföld og áhrifarík, húðvæn meðferð
Þægilegur grisjuborði, passar í nára, undir brjóst og magafellingar.
Engin krem eða duft.
Sorbact - Græn sáralækning
Klíniskar rannsóknir sýna
bata á sveppasýkingu*
hjá yr 85% þátttakenda
*candida albicans
Fyrir tilstilli vatnsfælni bindast allir helstu sárasýklar og
sveppir við umbúðirnar. Sýklarnir verða óvirkir og hætta
að ölga sér, án sýkla- eða sveppadrepandi efna. Virkar
á VRE og MOSA sárasýkla. Skaðar ekki nýjar frumur.
Ótakmörkuð notkun. Engar aukaverkanir. Ekkert ofnæmi.
Baggalútsmenn
sitja á milljónum
J
ólin hafa alltaf fjármagnað
flippið og núna erum við að
berja saman plötu í árferði þar
sem enginn kaupir plötur og
því er eins gott að það er hægt
að nýta þessa peninga í eitthvað
skemmtilegt,“ segir tónlistarmað-
urinn Bragi Valdimar Skúlason um
sterka fjárhagslega stöðu Baggalúts
ehf. sem heldur utan um tónleika-
hald, vefsíðu og plötuútgáfu hópsins.
Fyrirtæki Baggalútanna var rekið
með 7,4 milljóna króna hagnaði í
fyrra og hefur því skilað jákvæðri af-
komu upp á alls 17 milljónir á síðustu
þremur árum. Eigið fé þess, eignir
mínus skuldir, var tæpar 28 milljón-
ir króna en félag sexmenninganna
sem stofnuðu vefsíðuna baggalutur.
is árið 2001 á í dag 61 milljón króna
í handbæru fé.
Sextán tónleikar
Tekjur Baggalúts má að mestu rekja
til tónleikahalds en miðar á jólatón-
leika hljómsveitarinnar hafa selst
eins og heitar lummur síðustu ár.
Hljómsveitin hélt þrettán jólatón-
leika í fyrra en þeir verða sextán í ár.
Miðasalan nam 52 milljónum króna
árið 2013 en í nýbirtum ársreikningi
Baggalúts er ekki tekið fram hversu
miklum tekjum tónleikarnir þrettán
skiluðu í fyrra.
„Tekjurnar koma annars vegar af
tónleikahaldi og hins vegar af útgáfu
og stefgjöldum. Þær má aftur að móti
að mestu rekja til tónleikahalds fyrir
utan vefsíðuna okkar sem mallar og
eitthvert smotterí inn á milli,“ segir
Bragi en hann er eini fastlaunaði
starfsmaður fyrirtækisins enda gegnt
stöðu framkvæmdastjóra þess síð-
ustu ár.
Á toppnum
Baggalútur er í eigu Braga og sex
annara stofnenda vefsíðunnar og eiga
þeir allir 14,3% í fyrirtækinu. Bragi
sagði í viðtali við Fréttablaðið í nóv-
ember í fyrra að eigendurnir þyrftu að
fara að kynna sér hvernig þeir gætu
greitt sér arð út úr félaginu í ljósi þess
að þeir hefðu aldrei gert það.
„Við höfum ekki enn gert það og ég hugsa að við gerum það ekki heldur
söfnum frekar í smá sjóð og höldum
áfram að greiða mönnum góð laun.
Ég er titlaður framkvæmdastjóri en
greiðslur úr félaginu eru að mestu leyti
verktakagreiðslur enda koma menn
nánast einungis saman í desember til
að halda jólatónleikana. Þetta er ekki
rekið í neinum öðrum tilgangi og við
ætlum svo sem ekki að fara að stofna
fasteignafélag alveg strax.“
Síðasta hljómskífa sveitarinnar,
Mamma þarf að djamma, kom út
árið 2013 en Bragi segir von á nýrri
plötu í næstu viku.
„Við höfum gefið út nýju plötur og
bækur og ýmislegt annað í gegnum
tíðina. Nýjan platan heitir Jólaland
en umbúðirnar utan um hana eru
jólaskraut eða jólastjarna sem verður
hægt að setja ofan á jólatré. Slagorð
okkar er því „Baggalút á toppinn“
því við búumst við að platan verði á
toppi sölulistanna og allra jólatrjáa í
landinu.“ n
n Tónleikahald skilaði 7,4 milljóna króna hagnaði n Jólin fjármagna flippið
„Söfnum
frekar í smá
sjóð og höldum
áfram að greiða
mönnum góð laun
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Baggalútur Fyrstu jólatónleikar Baggalúts voru haldnir í Iðnó á Þorláksmessu árið 2006. Uppselt er á alla sextán tónleikana sem sveitin
ætlar að halda í desember.
Framkvæmdastjórinn Bragi Valdimar
segist vona að Baggalútur verði á toppnum
um jólin.
Eldur og bílvelta
Eldur kom upp í íbúð í Kópavogi
laust fyrir klukkan hálf átta á
miðvikudagskvöld. Íbúar til-
kynntu að eldur hefði komist í
rimlagardínur út frá kerti.
Þegar viðbragðsaðilar komu
á vettvang voru íbúarnir búnir
að slökkva eldinn með duft-
slökkvitæki.
Aðfaranótt fimmtudags kom
lögreglan að umferðaróhappi í
Mosfellsbæ. Þar hafði ökumað-
ur ekið á vegkant, umferðarmerki
og velt bíl sínum á hliðina. Að
sögn lögreglu er bíllinn töluvert
skemmdur og var hann fluttur af
vettvangi með dráttarbíl.
Sendur í leyfi
Starfsmaður hótelsins Reykja-
vík Marina, sem grunaður er um
aðild að nauðgun eftir skóla-
skemmtun HR í miðbæ Reykja-
víkur, hefur verið sendur í leyfi frá
störfum. Fréttablaðið greindi frá
því að tvær kærur hafi verið lagð-
ar fram gegn karlmönnum sem
grunaðir eru um að hafa nauðg-
að tveimur konum eftir skóla-
skemmtanir í október. Fyrra at-
vikið átti sér stað þann 7. október,
en nemendi við skólann liggur
þar undir grun. Síðara atvik-
ið varð 16. október en þar liggja
tveir undir grun, nemandinn og
starfsmaður umrædds hótels.
Þ
að er léttara yfir öllu
núna. Ef Alþingi sam-
þykkir fjáraukalögin
þá dugir það til
að halda okkur á floti að
minnsta kosti fram í ágúst
á næsta ári,“ segir Gunnar
Guðbjörnsson, skólastjóri
Söngskóla Sigurðar Demetz,
en samkvæmt fjáraukalög-
um leggur ríkið 60 milljónir í sérstak-
an björgunarpakka til að bregðast
við fjárhagsvanda tónlistar skólanna
í Reykjavík. Borgin leggur fram 90
milljónir og jöfnunarsjóður sveitarfé-
laga 30 milljónir á móti framlagi rík-
isins. Öllum tuttugu og átta kennur-
um Söngskóla Sigurðar Demetz var
sagt upp í haust enda taldi Gunnar
ekki vera rekstrargrundvöll fyrir skól-
ann nema fram að áramótum. Hann
segist ekki þora að draga uppsagnirn-
ar til baka fyrr en lögin hafa
verið endanlega samþykkt. Í
dag er rekstur skólanna fjár-
magnaður með fé úr ríkis-
sjóði, í gegnum jöfnunar-
sjóð sveitarfélaganna, ásamt
skólagjöldum. Það hefur hins
vegar ekki nægt fyrir rekstrin-
um og langflest sveitarfélög
greitt það sem upp á vant-
ar, en borgin hefur metið það svo að
henni beri ekki að brúa þetta bil. Vandi
skólanna í Reykjavík jókst enn meira
í ár í kjölfar nýrra kjarasamninga.
Gunnar segir ljóst að fjárhagsvandinn
á mið- og framhaldsstigi verði árlegt
deiluefni verði ekki hafist handa við
að semja um fjármögnun til framtíð-
ar. Annars sé hætta á að einhverjum
skólum verði lokað og kerfið koðni
smám saman niður. n
kristjan@dv.is
Bjargað fyrir horn
60 milljónir fyrir tónlistarskóla í fjáraukalögum