Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2015, Blaðsíða 46
Helgarblað 6.–9. nóvember 201546 Fólk
Plast, miðar og tæki ehf. Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is
gæði – þekking – þjónusta
Umhverfisvænir pokar
sem brotna niður í umhverf inu
Nánari upplýsingar á www.pmt.is
eða í síma 567 8888
• Umhverf isvænu plastpokarnir f rá PMT eru ekki maíspokar
• Þe ir eru með skaðlaust d2w íblöndunarefni
• d2w breyt ir plastpokunum að líf tíma
þe irra loknum svo að þe ir samlagist
nát túrunni á sama hát t og laufblað
Við bjóðum uppá alls kyns gerðir af
umhverfisvænum plastpokum. Íslensk plastfyrirtæki
sem vilja gerast umhverfisvænni geta jafnframt
fengið hjá okkur íblöndunarefni.
Pokar í
s töðluðum stærðum
eða
séráprentaðir
Gerir 250 armbeygjur á dag
n Sprengju-Kata setti áskorun á Facebook n Ætlar að standa við gefið loforð
Þ
etta byrjaði allt á Facebook.
Ég rakst á mynd frá vin-
konu minni þar sem stóð:
„Challenge Me: For ev-
ery like I will do one push-
up“. Í einhverju óðagoti deildi ég
myndinni og bætti við textanum:
„For every LIKE, I will do one push-
up PER DAY, the next month.“ Þetta
var 14. október,“ segir Katrín Lilja
Sigurðardóttir efnafræðingur, sem
líka er þekkt undir nafninu Sprengju-
Kata. Þegar þetta er ritað hafa rúm-
lega 250 manns líkað við færsluna.
Margir hefðu gefist upp við tilhugs-
unina um allar þessar armbeygjur,
en ekki Katrín.
20 armbeygjur í fyrstu atrennu
„Seinustu 20 daga hef ég gert sam-
tals 3.609 armbeygjur. Nú er klukk-
an rúmlega 23.00 og ég var rétt í
þessu að ljúka armbeygju númer
248 í dag,“ segir hún hlæjandi, en fyr-
ir þá sem ekki eru sleipir í ensku þá
snýst áskorunin um að hún geri eina
armbeygju fyrir hvert „like“ á hverj-
um degi í heilan mánuð. Eða um 250
armbeygjur, eins og staðan er í dag.
„Fyrsta daginn var ég voða kát
með 83 „like“ og gerði 83 armbeygj-
ur í lok dagsins og það tók verulega
á. Auðvitað gerði ég armbeygjurnar
ekki allar í einum rykk enda var mér
það algjörlega ómögulegt. Í fyrstu at-
rennu náði ég um 20 armbeygjum og
svo tóku nokkrar þannig endurtekn-
ingar við þann daginn.“ Flestir þeirra
sem „lækað“ hafa við áskorunina eru
í kunningjahópi Katrínar en þar er
líka að finna fólk sem hún þekkir ekki
og þar af nokkrir útlendingar. „Það
er því ekki annað hægt, en að standa
við stóru orðin,“ segir Katrín sem vill
svo sannarlega ekki valda þeim hafa
hvatt hana áfram vonbrigðum.
Sveikst undan út af
hálfmaraþoni
En hvernig fer hún eiginlega að
þessu? „Til að ná örugglega að
klára armbeygjur dagsins verð ég
að muna að byrja ekki þegar orðið
er áliðið dags. Það hefur gerst að ég
hafi þurft að vaka lengur en ég ætl-
aði mér bara til að ná að klára arm-
beygjur dagsins. Þessi armbeygju-
áskorun fór samt fyrst að verða
spaugileg þegar ég fór að draga fyr-
ir gluggana svo nágrannarnir héldu
ekki að ég hefði misst vitið.“
Það er þó alls ekki þannig að
Katrín hafi of mikinn frítíma og því
sé þessi áskorun fín leið til að drepa
tímann og komast í betra form. Ó,
nei. Hún hefur aldeilis nóg að gera.
„Fyrir mér var áskorunin ansi stórt
loforð og ég neyddist til að svíkjast
undan á níunda degi vegna þess
að ég hafði skráð mig til þátttöku í
hálfmaraþoni morguninn eftir og
vildi eiga næga orku. Fyrirgefið mér
þetta. Ég bæti í staðinn einum arm-
beygjudegi við í lokin,“ segir Katrín
kímin. Henni er samt fúlasta alvara.
Hún ætlar að klára verkefnið með
stæl.
Plankaáskorun á döfinni?
„Armbeygjuáskorunin er orðin ein-
hvers konar ástar-haturs verkefni.
Ég meina, hvaða heilvita mann-
eskja nennir að standa í þessu?
En það jákvæða er augljós mun-
ur í styrk. Á fyrsta degi náði ég um
20 armbeygjum í fyrstu atrennu, en
núna aðeins 20 dögum síðar, get
ég náð 50 armbeygjum í fyrstu at-
rennu,“ segir Katrín sem tekur fram
að hún sé samt bara venjuleg kona.
„Ég er alls ekkert sterkari en geng-
ur og gerist og nokkuð þung svo
það væri ógerlegt fyrir mig að gera
meira en 4 til 5 armbeygjur á tán-
um og þessar 3.609 armbeygjur
voru langflestar teknar á hnjám. Í
lok áskorunarinnar vona ég að ég
geti stolt gert armbeygjur á tánum.“
En hvað tekur svo við þegar
þessari áskorun er lokið? „Ég þarf
auðvitað að finna nýja áskorun
eftir nokkra daga. Plankaáskor-
un hljómar ekkert illa: 1 sek. á dag
í planka fyrir hvert „like“,“ segir
Katrín hlæjandi að lokum. n
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is
Gerir armbeygjur Katrín Lilja ætlar að standa við stóru orðin og halda út í mánuð. MyndiR SiGtRyGGuR ARi
„Armbeygju-
áskorunin er orðin
einhvers konar ástar-
haturs verkefni. Ég meina,
hvaða heilvita manneskja
nennir að standa í þessu?
Jákvæð áhrif Katrín Lilja
segist hafa styrkst heilmikið á
þessum 20 dögum sem
áskorunin hefur varað.
M
aður er náttúrlega búinn að
fylgjast með þessum hörm-
ungum í fréttunum og þar
sem ég á sjálfur börn get-
ur maður ekki annað en þakkað fyr-
ir hvað maður hefur það gott,“ segir
tónlistarmaðurinn Rúnar Eff Rúnars-
son, sem stofnaði styrktarsjóð handa
flóttabörnunum sem munu koma til
Akureyrar frá Sýrlandi á næstunni en
Rúnar fékk Rauða krossinn til að sjá
um sjóðinn. Rúnar hefur skipulagt
tónleika í Hofi á sunnudaginn klukk-
an 16 og mun ágóðinn renna í sjóð-
inn. „Peningarnir sem safnast eru
ætlaðir þeim börnum og unglingum
í hópi flóttafólksins til að hægt sé að
veita þeim sömu tækifæri og börn-
in okkar hafa hvað varðar frístund-
ir, leikjanámskeið og slíkt í von um
að gera þeim lífið aðeins bærilegra.
Rauði krossinn og Akueyrarbær
munu sjá til þess að grunnþörfum
fólksins sé mætt en styrktarsjóður-
inn er hugsaður út frá samfélagslega
þættinum. Þessi börn þurfa klárlega
á sálfræðihjálp að halda en börn eru
börn og þau þurfa að leika sér, eign-
ast vini og finnast þau vera velkomin
í samfélagið. Þess vegna er líka mik-
ilvægt fyrir okkur foreldra að virkja
börnin okkar til að taka vel á móti
þeim.“ Auk Rúnars munu þau Magni
Ásgeirsson, Erna Hrönn, Stebbi Jak
og Hreimur Örn stíga á svið á Hofi.
„Þetta eru allt foreldrar eins og ég
og öll tóku þau vel í að gera þetta.
Kannski verður maður viðkvæmari
með aldrinum og þegar maður verð-
ur foreldri en þetta er einfaldlega
hrikalegt ástand. Maður er farinn að
forðast fréttirnar því maður veit að
þær eru skelfilegar.“ n
indiana@dv.is
„Verður viðkvæmari
með aldrinum“
Rúnar Eff stofnaði styrktarsjóð fyrir börn flóttamanna
Rúnar Eff Rúnar hefur hóað saman tónlist-
arfólki sem mun troða upp í Hofi um helgina.
Mynd ÞóRhALLuR JónSSon