Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2015, Blaðsíða 36
Helgarblað 6.–9. nóvember 201536 Menning
Metsölulisti
Eymundsson
28. okt.–3. nóv. 2015
Allar bækur
1 Þýska húsið Arnaldur Indriðason
2 DimmaRagnar Jónasson
3 Týnd í paradísMikael Torfason
4 Útlaginn Jón Gnarr/ Hrefna Lind Heimisdóttir
5 HrellirinnLars Kepler
6 Þín eigin goðsagaÆvar Þór Benediktsson
7 Lost Ocean Johanna Basford
8 HundadagarEinar Már Guðmundsson
9 Þarmar með sjarmaGiulia Enders
10 Íslensk litadýrðElsa Nielsen
n Iceland Airwaves 2015 er hafin n GKR, Kött Grá Pje og Misþyrming
A
irwaves-vikan hefst alltaf
með fiðringi, léttu kitli í
maganum þegar maður
flýtir sér heim úr vinnunni
á miðvikudag, sækir arm-
bandið sitt, rýnir í dagskrána yfir
bjór og tekur lokaákvörðun um hvað
maður ætlar að reyna að sjá fyrsta
kvöldið. Það er spenna í loftinu og
rafmagnaðar bylgjur svífa um mið-
borgina, hljóðbylgjur skella á öldu
kúltúrferðamanna með Cintamani-
eyrnaskjól og Gull í glasinu. Það eru
engin sérstaklega stór erlend nöfn að
spila á miðvikudagskvöldinu, en ef þú
hefur áhuga á því sem er að gerast í
grasrótarsenunni og jaðarpopptónlist
getur það oft verið skemmtilegasta
kvöldið. Þetta er kvöld ungu íslensku
listamannanna og núna er tækifærið
til að heyra í ferskasta bandinu sem
allir eru að tala um.
Frábær morgunmatur
Og þannig byrjaði kvöldið. Frá því
í sumar hefur verið sívaxandi suð í
kringum GKR en suðið náði loksins
eyrum fjöldans fyrir rétt um tveimur
vikum þegar lagið Morgunmatur kom
út með litríku myndbandi á Youtube.
Áður en þessi ungi rappari tróð upp
var svolítil röð farin að myndast fyrir
utan Húrra. Textar og framkoma GKR
eru óvenjuleg og fersk: fagurfræðin er
internetvædd og heimagerð þar sem
retró-tákn og nördismi er rímixaður
saman við hiphop-menninguna á lit-
ríkan hátt. Þrátt fyrir að fáir íslensk-
ir rapparar hafi rappað um götulífið
og glæpi eru þeir oftar en ekki karl-
mennskan uppmáluð: hetjusögur,
drykkjuskapur og strákalæti. En GKR
leggur frekar áherslu á hversdagsleik-
ann, litlu sigrana og ósigrana í lífinu,
lítið sjálfsálit en stóra drauma, súra
mjólk og ósvöruð símtöl.
Þótt hann mæti inn á sviðið með
sólgleraugu og hettuna yfir aflituð-
um lubbanum er hann fljótur að
taka þau niður – fella grímuna – og
leggja áherslu á að öllum eigi að líða
vel á tónleikunum, það þurfi enginn
að vera feiminn. Pródúserinn Mart-
einn stóð vaktina við tölvuna bak-
við rapparann og keyrði taktana í
gang. Þarna heyrðust meðal annars
„Ballin,“ slagarinn „Morgunmatur“
og „Hello“ – eitt af uppáhaldslögun-
um mínum í ár – auk tilfinninga-
þrunginnar endurhljóðblöndunar
af „Elskan af því bara“ eftir Vagina-
boys. Stundum fannst mér óþarflega
mikið af röddinni tvöfölduð í bak-
grunnstónlistinni, en rödd Gauks er
ekkert sérstaklega sterk svo það er
skiljanleg lausn á meðan hann slíp-
ast til í tónleikaforminu. Flæðið var
hins vegar frábært, sérstaklega þegar
hann er orðinn heitur og hoppandi
um sviðið. Það er frábært að vera á
staðnum þegar efnilegur listamaður
nær loks eyrum fólks, listræn gredd-
an, ánægjan og spenningurinn skil-
ar sér í mögnuðu andrúmslofti. Mig
grunar að þetta séu stærstu tónleikar
sem GKR hefur spilað á – 300 manns
komin gagngert til að hlusta á hann
– og alsælan sem hann upplifði svo
augljóslega á sviðinu skilaði sér út
í salinn. Fáránlega eftirminnilegir
tónleikar.
Megas rappsenunnar
Kött Grá Pjé spilaði fyrir nokkuð
troðnum sal í Iðnó. Með honum
voru Heimur Bjéjoð (úr Skyttun-
um), „pródúserinn“ Styrmir Hauks-
son sen lék á trommuheila, hljóð-
gervla og önnur tæki og Vignir Rafn,
bassaleikari Agent Fresco. Kött var
hress með síða hárið sitt, bartana,
hippamussuna, hálsmen og fjólublá-
ar neglur. Hann var fljótur að rífa sig
úr mussunni og hoppa niður á gólf
og skyrpa rímunum beint í grímuna
á liðinu.
Rapptónlist þýðist oft ekkert sér-
staklega vel yfir á tónleikaformið
og erfitt að greina orðaskil. Þarna
var sérstakt vandamál vegna þess
hversu mikið endurómaði í Iðnó,
sem bætti ekki úr skák þar sem text-
ar Kött Grá Pjé er yfirleitt óskiljan-
leg djöflasýra (meint á besta mögu-
lega hátt), orðskrípi og furðuleg
tilvitnanasúpa. Kött er ólíkt póetísk-
ari öðrum röppurum á Íslandi í dag
– einhvers konar Megas íslensku
rappsenunnar í dag. Hann sækir í
annan, breiðari, furðulegri og snjall-
ari tilvísanabanka en hinir. Hann er
klúr á svo absúrd hátt, fágaður á svo
grófan hátt, heimspekilegur á svo
líkamlegan hátt. Í laginu Koddaslag
söng hann um að riðlast á náttúru-
fyrirbærum og biðlaði til áhorfenda
í viðlaginu: „Verð að fá að sucka yo
dick“ og í Trilljón skötur rappaði
hann: „Elsku homie, cray cray. Alls-
ber Kjartan Gunnarsson að veiða
kids með AK. Mannakjöt á pay day,
mamma segir nei, nei!“
Dáleiðandi drungi
Á Gauknum hélt dauðarokkútgáf-
an Vánagandr um stjórnartaumana.
Fróðir menn segja að íslenska
dauðarokkssenan hafi ekki verið jafn
lifandi í áratugi. Þrátt fyrir að vera
óreyndur í svartmálmshlustun var ég
spenntur að sjá blackmetal-bandið
Misþyrmingu, sem hefur verið að
vekja umtalsverða athygli bæði innan
og utan landsteinanna.
Þeir voru allir klæddir svörtu leðri,
með grifflur og í rifnum bolum með
gadda og keðjur, svarta og rauða lík-
málningu að dauðarokkssið. And-
rúmsloftið var myrkt án þess þó að
vera tilgerðarlegt.
Með grófum hraðabreyting-
um breytist tónlistin úr dáleiðandi
drunga yfir í alltumvefjandi nístandi
blindöskubyl, en undir dynjandi nið
tvöföldu bassatrommunnar og djöf-
ullegum barkasöng og ópum söngvar-
ans D.G. er tónlistin ómstríð, melódísk
og uppfull af grípandi gítarlínum –
eins og til dæmis í laginu Söngur upp-
ljómunar af frumraun sveitarinnar
Söngvar elds og óreiðu. n
StAðGóðuR
MoRGunMAtuR
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
NASA snýr aftur Gísli Pálmi
á sviðinu. MyND ÞorMAr ViGNir GuNNArSSoN
Ískaldur Gísli Pálmi og félagar í Glacier Mafia
léku á NASA sem aftur er notaður undir tónleika
á hátíðinni. MyND ÞorMAr ViGNir GuNNArSSoN
Júníus Meyvant Poppljúflingurinn
Unnar Gísli Sigurmundsson, betur
þekktur sem Júníus Meyvant, á sviðinu í
Silfurbergi. MyND ÞorMAr ViGNir GuNNArSSoN
Árstíðir
Drungi Svartmálmssveitin
Misþyrming spilaði á sérstöku
Vánagandrs-kvöldi á Gaukn-
um á miðvikudagskvöld.
Hello? GKR fékk áhorfendur til að svara í
símann á sjálfsmynd sem hann tók á Húrra
á miðvikudagskvöld. MyND GKr
Kött Grá Pje Textar Kött Grá Pjé eru
yfirleitt óskiljanleg djöflasýra (meint á
besta mögulega hátt), orðskrípi og furðuleg
tilvitnanasúpa. MyND ÞorMAr ViGNir GuNNArSSoN
Barnabækur
1 Þín eigin goðsagaÆvar Þór Benediktsson
2 Bert og hrukkótta kerlingin
Sören Olsson /Anders Jacobsson
3 Mamma klikk!Gunnar Helgason
4 KoparborginRagnhildur Hólmgeirsdóttir
5 DúkkaGerður Kristný
6 Amma óþekka og tröllin í fjöllunum
J.K. Kolsöe
7 Goðheimar 6 – Gull-eplin
Peter Madsen
8 Grimmi tannlækn-irinn
David Walliams
9 Gulli gullfiskurHelgi Jónsson
10 Matreiðslubókin mín og Mikka
Walt Disney